Morgunblaðið - 21.08.1999, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 21.08.1999, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999 55 JÓN ÞÓR ÓSKARSSON ar er Óskar Mar- teinn Helgason, f. 26. júní 1994. Jón Þór lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki 1996 og hafði lokið þremur árum við íagadeild Háskóla íslands. Hann bjó hjá foreldrum sín- um á Suðurbraut 15 á Hofsósi. Útför Jóns Þórs fer fram frá Hofs- óskirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 14. + Jón Þór Óskars- son fæddist hinn 4. júní 1976. Hann lést af slys- förum laugardag- inn 14. ágúst, síðast- liðinn. Foreldrar hans eru hjónin Sigríður Jónsdótt- ir, hjúkrunarfræð- ingur, f. 8. mars 1949, og Óskar Hjaltason, sjómað- ur og bóndi, f. 16. mars 1952. Systkjni Jóns Þórs eru Ás- laug María, f. 6. júní 1974, og Kristinn Ragnar, f. 11. apríl 1991. Sonur Áslaug- Hræðilegt bflslys. Er þetta satt? Jón Þór dáinn. Það getur ekki verið. Svo óafturkræft, endanlegt. Allt virðist tilgangslaust... Enginn er viðbúinn svona hörmulegri frétt. „Ég hef augu mín til fjallanna: Hvaðan kemur mér hjálp?“ Við vorum 15 alls, frændsystkin- in, barnabörnin afa og ömmu í Mýrakoti. Nú hefur verið höggvið stórt skarð í þennan hóp. Við höf- um alltaf verið sérstaklega sam- rýnd. Við vorum og erum enn eins og stór systkinahópur sem gengur saman í gegnum súrt og sætt. Það má segja að Jón Þór hafi brúað aldursbilið í þessum frændsystk- inahópi. Hann var leikfélagi eldri krakkanna og líka þeirra yngri. Lengi vel var hann yngstur í hópn- um en duglegur að fylgja þeim eldri eftir. Fleiri böm fæddust inn í hópinn um leið og þau elstu tínd- ust burt til vinnu og náms. Fyrr en varði var Jón Þór orðinn elstur og foringi í leikfélagahópnum. Síðan óx hann úr grasi og lagði af stað út í lífið, fullur vona og væntinga eins og við öll. Kæri frændi, við eigum svo marg- ar góðar minningar tengdar þér, sem alltaf er jafn gaman að rifja upp. Þið Áslaug voruð svo mikið í Mýrakoti þegar þið voruð krakkar og þar vorum við hin líka. Ymislegt var brallað í sveitinni. Þú hjólaðir oft út í Mýrakot til þess að hitta okkur. Allir indíánaleikimir og æv- intýraleikirnir koma upp í hugann og svo fengum við aldrei nóg af fót- boltanum. Þú varst fyrirmynd þeirra yngri og allir vildu vera góðir að skora mörk eins og þú. Þú fórst að æfa fótbolta með Neista og stóðst þig vel þar. Þegar fram í sótti kom metnaður þinn líka fram í nám- inu. Þú settir þér markmið og lagðir þig fram við að gera það vel sem þú tókst þér fyrir hendur. Við vomm öll svo stolt af því hvað þér gekk vel í lögfræðináminu. Við munum hvað þú varst stoltur og hrifinn af litla bróður þínum sem fæddist þegar þú varst 15 ára. Hann fékk í átta ár að njóta þess að eiga þig að. Um- hyggju þinnar fengum við einnig að njóta, hvort sem við vorum eldri eða yngri en þú. Þegar við þessi eldri eignuðumst maka lagðir þú þig fram um að kynnast þeim og böm- unum okkar, þú varst jafn hlýr og bróðurlegur við þau og okkur. Það var alltaf jafn gaman að hitta þig. Þótt þú værir kominn til Reykjavík- ur og værir í erfiðu námi varstu samt duglegur að koma norður þeg- ar tækifæri gáfust og rækta sam- bandið við vini þína þar, jafnframt því sem þú eignaðist nýja vini fyrir sunnan. Það er kaldranalegt að hugsa til þess að síðasta ferðin þín skyldi enda á þessari stuttu leið sem þú fórst oftar en nokkra aðra á ævinni, leiðinni milli Mýrakots og Hofsóss. Samt sem áður hefur það verið okkur ákveðin huggun að geta komið og kveikt á kerti og minnst þín þar fram að jarðarförinni. I fermingunni þinni var tekin mynd af öllum frændsystkinahópnum, ári áður en Kiddi bróðir þinn fæddist, - sá yngsti í hópnum. Síðan þá hefur staðið til að taka sambærilega mynd af okkur öllum saman, nú er það orðið of seint. En mynd þín lifir í huga okkar allra. Við erum þakklát fyrir þann tíma sem við áttum með þér. „Ég hef augu mín til fjallanna: Hvaðan kemur mér hjálp? Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar." (Sálm. 121:1-2.) Elsku Sigga, Óskar, Kiddi, As- laug og Óskar Marteinn. Guð veiti ykkur styrk tfl að takast á við þenn- an mikla missi. Frændsystkinin frá Mýrakoti, Kristín, Jóhann, Ragnheiður Ásta, Ragnheiður, Einar, Jón, Bjössi, Unnur, Sveinn, Svava, Jón Þorsteinn, Rúnar, makar og börn. Kæri vinur. Þær eru ófáar stundirnar sem við áttum saman og margt vorum við búnir að gera skemmtilegt og oft spjölluðum við um hvemig framtíð- in jrði, það var nú misjafnlega gáfu- legt, enda ungir og áttum allt lífið framundan. Það var aldrei annað inni í myndinni en að við yrðum gamlir og skemmtilegir menn, en maður fær greinilega ekki að ráða sínum tíma. Og nú situr maður eftir og spyr sig afhverju ungur maður í blóma lífsins sé tekinn svona snöggt í burtu. Kæri vinur ég vil þakka þér öll þau ár sem erum búnir að vera vinir. Þú skilur eftir þig stórt skarð. Foreldrum þínum, systkinum og öðmm ættingjum votta ég mína innilegustu samúð og bið Guð að styrkja þau og hugga í þeirra miklu sorg. Þinn vinur, Magnús Tómas. „Dauðinn er eitt af því fáa sem maður trúir ekki, kanski það eina,“ skrifaði Halldór Laxness eitt sinn. En hvað þessi orð em sönn þegar góður vinur og frændi er nú farinn frá okkur. Nú kveðjum við þig með miklum söknuði og okkur er þungt um hjarta en við munum minnast þín og biðja fyrir þér. Ég bið fyrir þér 6, elsku vin nú allt er hljótt. Eilífðardýrð sé kringum þig, hvíl vært og rótt. Kveðjan er sár, en tárin hylur dauðahljóð hin dimma nótt. Bíði þín sólskin og sumar, ástin mín. Sindri á ný litlu, bláu aupn þín. Hjarta mitt hrópar þig á. Hví varstu tekinn mér frá? Logar heit lífsins þrá. Lítilli gröf pæt ég hjá. (B. Marinós) Við vottum fjölskyldu hans okkar dýpstu samúð. Megi Guð styrkja fjölskyldu hans og aðra ástvini. Blessuð sé minning hans. Ólöf, Helgi og Guðmundur, Hulda Björk og Ómar Már. Kveðja frá lagadeild Háskóla íslands Okkur setur ætíð hljóð, þegar fregnir berast af fráfalli ungs fólks í blóma lífsins og með bjarta framtíð fyrir höndum. Við fáum ekki skilið þau grimmu örlög, en verðum að trúa því, að einhver æðri tilgangur sé þar að baki. Og þannig varð okk- ur innanbrjósts, nemendum og starfsfólki í lagadeild, er við sáum á eftir Jóni Þór Óskarssyni, glæsileg- um ungum námsmanni, sem fómar- lambi hörmulegs umferðarslyss. Það er með sársauka og söknuði sem félagar hans og kennarar kveðja góðan dreng, en þeir munu varðveita minningu hans. Mestur harmur er að fjölskyldunni kveðinn, foreldrum og systkinum. Fyrir hönd lagadeildar votta ég þeim og öðrum ættingjum hans og vinum innilega samúð og hluttekningu á þessari sorgarstund. Jónatan Þórmundsson. Kæri vinur og félagi! Ég kveð þig með söknuði og vona og hugga mig við það að þín bíði verðugri verkefni annars staðar. Ég man þegar ég hitti þig fyrst, í ágúst 1991 í Mýrakoti. Þá fór ég eitthvað seint á fætur og þú gerðir mikið grín að mér við Ragnheiði Ástu og spurðir hana hvort ég gerði ekkert annað en að sofa, mér þótti það nú ekki mjög fyndið. Ég man líka þeg- ar við hittumst síðast. Síðasta skipt- ið sem við hittumst að einhverju gagni. Þá settumst við niður og hlustuðum á tónlist og ræddum mikið um það sem við hlustuðum á. Ég vona að þú finnir tónlist við þitt hæfi þar sem þú ert núna, því ekk- ert er skemmtilegra en að hlusta á góða tónlist og ég veit að þér þótti það líka eins og mér. Ég þakka þér, Jón Þór, fyrir allar þær stundir sem við höfðum tækifæri á að eiga sam- an síðastliðin átta ár. Því miður fáum við engan annan Jón Þór, því enginn er eins og hann og djúpt skarð hefur myndast í fríð- an hóp. En minningamar um hann geymum við í hjörtum okkar og á meðan við gerum það lifir hann með okkur um ókomna framtíð. Siggu, Óskari og fjölskyldu og öllum þeim sem eiga um sárt að binda vegna mikils missis sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur með þessum orðum: Trúðuátvenntíheimi tip sem æðsta ber. Guð í alheims geimi Guð í sjálfum þér. (S. Th.) Kristján Kristjánsson. Þú, sem forðum fæddur varst i jötu, fyrir oss þræddir dauðans myrku götu. Líkna þeim sem sonar horíins sakna. Sefa harminn, láttu strenginn slakna! Um hans framtíð vonin geislum vafin, hann var svo unpr, dagur tæpast hafínn. Drottinn minn, þínir dómar eru þungir. Hví deyja þeir bestu stundum svona ungir? Við stöndum hljóð og hugurinn er dofinn. Höggið er fallið, lífsins taug er rofin. Astvinir daprir dýra minning geyma, en duftið hverfur aftur til síns heima. Hans andi svífur frjáls til fegri sala. Hjá fóður lífsins helgar lindir svala. (K. Amason) Krislján Árnason, Skálá. Kveðja úr Lögbergi Flíspeysa, kaffibolli, bartar og skeggbroddar. Þannig kom Jón Þór okkur fyrir sjónir á göngum Lög- bergs milli þess er hann sat lengur en flestir við tormelta doðrantana. Jón Þór var traustur félagi í sam- stæðri heild í bekknum og litlu sam- félagi innan veggja Lögbergs. Þar kynnist fólk vel þegar það eyðir drjúgum tíma við lestur og kaffi- drykkju. Þar er horft á enska bolt- ann, skipst á skoðunum um náms- efnið, ræddar væntanlegar próf- spumingar og þjóðmálin útkljáð. Jón Þór setti sterkan svip á þetta samfélag með ákveðnum skoðunum og staðfestu. Hann fékk sínu venju- legast framgengt í rólegheitum. Hann þurfti lítið að hækka raust sína, heldur sagði hann hvað þurfti og brosti út í eitt. Jóni Þór gekk vel í skóla, en hann gerði sér jafnframt grein fyrir mik- flvægi þess að næra hugann með öðru en lestri námsbóka. Hann tók virkan þátt í félagslífi lagadeildar og mætti á flesta viðburði sem Orator, félag laganema, stóð fyrir. Jón Þór sat löngum stundum við taflborðið í félagsherbergi laga- nema, þar sem hann tefldi ávallt til sigurs. Hann var auk þess einn for- sprakka hins öfluga knattspyrnuliðs bekkjarins. Á öðru ári var Jón Þór hluti ritstjómar glanstímaritsins Gríms Geitskós. Þar fékk kímni hans að njóta sín er hann leitaðist við að sýna lífið í deildinni í öðra ljósi. Nú í sumarlok var Jón Þór farinn að huga að prófi í kröfurétti. Það er ljóst að sæti hans verður autt í prófinu næstkomandi mið- vikudag. Þó ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum. Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta, ég er svo nærri að hvert ykkar tár snertir mig og kvelur þótt látinn mig haldið. En þegar þið hlæið og syngið með glöðu hug, sál mín lyftist upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur, og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar. (Höf. óþ.) Með fráfalli Jóns Þórs hefur verið höggvið stórt skarð í bekkinn og samfélagið í Lögbergi. Þegar við setjumst aftur á skólabekk í haust verður okkur missirinn enn ljósari. Við getum aðeins glaðst yfir þeim tíma sem við áttum með Jóni Þór og minnst hans með söknuði, vitandi það að honum líður vel á þeim stað þar sem hann dvelur nú. Bekkjarsystkin á 3. ári í lögfræði. Þess vfldum við óska að tflefni þessara stuttu skrifa væri mun lengra inn í framtíðina en nú. En staðreyndin er önnur og okkar hlut- skipti er að minnast nú eins af okk- ur í Lávarðadefldinni með orðum sem verða aldrei nógu mörg eða nógu sterk til þess að lýsa þeim hug sem við báram og berum til hans Jóns Þórs vinar okkar. Leiðir okkar fjögurra lágu saman á öndverðum áram okkar í Fjöl- brautaskólanum á Sauðárkróki. Flestir okkar áttu kunningsskap fyrir en þegar allir vora saman komnir þá small saman einstakur vinahópur sem Eyjólfur stærð- fræðikennari gaf svo nafnið sem við voram þekktir undir, þ.e. Lávarða- defldin. Vora á þessum árum treyst vinabönd sem hafa ekki og munu aldrei rofna. Jón Þór fór jafnan á kostum þá við voram að skemmta öðram eða bara okkur sjálfum, eða hvað sem það nú var sem við tókum okkur fyrir hendur í uppátækjaseminni. Én engum gat það dulist sem nokkurn tímann komst í kynni við Jón Þór að þessi maður bjó yfir mikilli yfirvegun, ótrúlegri innsýn í lífið og svo var hann óþrjótandi upp- spretta húmors og gullkorna sem verður sárt saknað. I þessari miklu sorg sem við upp- lifum um þessar mundir er það samt lýsandi dæmi um það hvurs- lags maður hann Jón Þór var, að þegar við hugsum um hann, minn- ingamar, rifjum upp þá gleði sem hann bjó yfir og það góða sem geisl- aði af honum, þá verða minningam- ar aldrei sárar. I brjósti okkar er skilið eftir ógnarstórt tóm, sem svo fyllist á svipstundu af svo innflegu þakklæti fyrir að hafa fengið að njóta þeirrar blessunar að feta örfá skref á lífsleiðinni með manni, hvers karakter mun að eilífu búa í okkur. Elsku hjartans Jón Þór okkar. Kallið þitt er komið og þú hefur svarað, kominn á annan stað til mik- ilvægra verka. Við vitum að þú munt halda uppi merki okkar þar eins og við munum hér gera, þangað tfl við mætum til þín einn og einn í fyllingu tímans. Þangað til þá kveðj- um við í bili og biðjum Guð að geyma þig, sem verður okkur alltaf svo kær. Söknuðurinn er yfirþyrm- andi. Elsku Sigríður, Óskar, Áslaug María og Kristinn Ragnar. Við biðj- um Guð að styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Jafnframt viljum við þakka ykkur fyrir að gera vin okkar að þeim manni sem hann var. Guð blessi ykkur öll. Lávarðadeildin (Atli, Eyþór og Björn). Kveðja frá ungmennafélaginu Neista Það er erfitt að koma orðum að þegar hörmulegir atburðir gerast, jafnvel svo að hinir orðglöðustu menn verða andlausir og og er þá mikið sagt. Nú á dögunum gerðist einn slíkur atburður er einn okkar félaga féll frá í hræðilegu slysi og kveðjum við hann með þunga og trega. Jón Þór Óskarsson var að- eins 23 ára og allt lífið framundan, metnaðarfullur og duglegur og því reiðubúinn að takast á við þau verk- efni sem hver dagur bæri í skauti sér. Fyrst munum við eftir Jóni Þór er hann var ungur drengur í grann- skóla, yfirleitt glaður í bragði og tfl- búinn í ýmsa fjörlega leiki og skip- aði knattspyman þar stóran sess. Snemma var Jón Þór manna orð- heppnastur og kunni ævinlega að svara fyrir sig og gegn hverjum sem var, enda oft ágætt að geta komið vel fyrir sig orði sérstaklega ef einhverjir óprúttnir stórir strák- ar vora í nánd. Þegar Jón Þór tók að vaxa úr grasi sást að hann hafði fengið ríf- legan skammt frá himnafoðumum af eftirtekt, hugmyndaríki og náms- gáfum. Nýtti Jón Þór sér þær gáfur tfl að brjótast til mennta, fyrst í fjöl- brautaskóla og síðar lá leiðin í Há- skólann þar sem hugurinn stefndi á embættispróf í lögfræði. Átti Jón Þór þar skamman veg eftir ófarinn í erfiðu námi sem mörgum hefur reynst erfiður hjalli að klífa. Allan tímann þegar Jón Þór var í námi kom hann í Hofsós á sumrin og spil- aði með knattspyrnuliðinu. Eins og við önnur verkefni sinnti hann knattspymunni af dugnaði og elju og náði þar góðum og oft á tíðum eftirtektarverðum árangri. Fyrst þegar Jón Þór mætti á æfingar með hinum eldri leikmönnum lét hann strax finna fyrir sér enda fljótt tek- inn alvarlega. Fljótlega var hann líka orðinn einn af burðax-ásum í lið- inu og var það alla tíð síðan. Jón Þór, við þökkum þér fyrir stundim- ai' sem við áttum með þér bæði inn- an félagsins og utan þess þar sem þú reyndist sannarlega vera félagi í raun. Foreldrar, systkini, skyldmenni og vinir, megi Drottinn gefa ykkur styrk tfl að að takast á við missinn, sorgina og söknuðinn. Guð blessi ykkur öll. Hjalti og Sigmundur. + Systir mín og móðir okkar, GUÐLAUG GÍSLADÓTTIR BEST, er látin. Sigríður Gísladóttir, Catherine Best, Stephen Best.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.