Morgunblaðið - 21.08.1999, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Sölubann á fjórar tegundir barnavagna í Danmörku
Ein tegundin
seld á Islandi
DANSKA neytendastofn-
unin gerði nýlega athuga-
semdir við fjórar tegund-
ir barnavagna þar sem
bremsurnar virkuðu ekki
sem skyldi. Ein tegund
þessara barnavagna, Cl-
ara, hefur verið seld í
Rúmfatalagernum um
skeið. Þangað geta eig-
endur nú komið með
vagnana í lagfæringu.
Danska neytenda-
stofnunin lét prófa ýmis
öryggis- og nýtingarat-
riði á ellefu tegundum
barnavagna sem eru til
sölu á markaði þar. I
þeim tilfellum sem
bremsum var alvarlega
ábótavant var sala
stöðvuð tímabundið.
Þetta eru tegundirnar
Arrue princess, Viking
(teg. 98), Clara og
Condor Gigant. I nýút-
komnu blaði stofnunar-
innar, Rád & Resultater,
kemur fram að framleið-
endur vagnanna, nema
þeir sem framleiða Cond-
or Gigant, hafi þegar
gert úrbætur og megi því
setja endurbætta vagna á
markað.
Einungis ein
tegund talin góð
I könnun stofnunarinn-
ar kom í ljós að barna-
vagnar á danska markaðnum upp-
fylla ekki ýmsar aðrar kröfur sem
gerðar hafa verið. Því hefur fram-
leiðendum eða innflytjendum ver-
ið sent bréf þar sem farið er fram
á að gerðar' verði úrbætur hið
fyrsta. Vagnarnir fengu heildar-
umsagnimar slæmt, meðal eða
gott þegar niðurstöður prófana
voru metnar. Einungis ein tegund
barnavagna fékk heildarumsögn-
ina gott og það var vagninn Simo
299 Lux. Áðrar tegundir sem
kannaðar voru eru Eichorn Lux,
Brio R’Bigger, Scandia Signe,
Odder Alexandra, BabySam
Wonder XL, Silver Cross Marquis,
Morgunblaðið/Arnaldur
Clara, Viking, Condor Gigant og
Arrue Princess.
Fjóla Guðjónsdóttir hjá mark-
aðsgæsludeild Löggildingarstofu
segir að einungis einn af fjórum
barnavögnum, sem teknir voru úr
sölu í Danmörku, hafí fundist á
markaði hérlendis. „Markaðs-
gæsludeild hefur haft samband við
söluaðila og farið fram á að viðeig-
andi ráðstafanir verði gerðar.“
Eigendur vagna hafl
samband við seljanda
Það er Rúmfatalagerinn sem
hefur um skeið selt barnavagna
sem heita Clara en sölubann var
Armúla 1. sími 588 2030 - fax 588 2033
Opið virka daga 9.00-18.00
NEÐSTALEITI Glæsileg ca 140 fm
íbúð á tveimur hæðum á 1. hæð og
kjallara ásamt stæði í bílskýli. Sól-
stofa og svalir í suðvestur. Mögujeiki
á séraðstöðu á neðri hæð. Áhv.
veðd. 2,3 m. Verð 15,9 m. 3175
ÞVERHOLT 5, MOSFELLSBÆ
íbúöin er 3ja herbergja 114 fm á 2.
hæð í litlu fjölbýli. Góð stærð á her-
bergjum, fataherbergi inn af hjóna-
herbergi, svalir og útsýni, þvottahús.
Góð íbúð í hjarta Mosfellsbæjar.
Verð 9,9 m. 3166
VANTAR EINBYLI I HOLAHVERFI
Höfum kaupanda að góðu einbýlishúsi í Hólahverfi. Biðjum
áhugasama vinsamlegast að hafa samband við skrifstofu
okkar í síma 5882030.
sett á vagnana í
Danmörku uns endurbæt-
ur hefðu verið gerðar á
þeim. Nils Stórá rekstar-
stjóri hjá Rúmfatalagern-
um segir að um 10 vagnar
af þessari gerð hafi þegar
verið seldir hérlendis. „I
kjölfar sölustöðvunar var
hönnun vagnanna breytt
og nú eru þeir komnir á
ný í sölu í Danmörku með
nýrri tegund af gormi í
bremsum. Þeir sem
þegar hafa keypt svona
vagna hjá okkur geta
nú haft samband við
Rúmfatalagerinn og
fengið nýja gorma.“
Jóhannes Gunnarsson,
formaður Neytendasam-
takanna, segir dapurlegt
að sjá hvaða einkunn
bamavagnarnir fá í heild-
ina. „Enn dapurlegra er
að fjórar tegundir skuli
hafa þurft að taka tíma-
bundið úr sölu. Ég fagna
á hinn bóginn viðbrögðum
Rúmfatalagersins. Þar
hefur verið brugðist
skjótt við og kaupendum
bjóðast nú úrbætur."
Engar kannanir
gerðar hérlendis
Þegar Fjóla er spurð
hvort gerðar hafí verið
kannanir á öryggi þeirra
barnavagna sem til sölu
eru hérlendis segir hún að svo sé
ekki. „Hér á landi höfum við ekki
aðstöðu til þess að gera sambæri-
legar prófanir á vöru eins t.d. A
er gert í umræddri barn~
vagnakönnun. Þær vörur
sem prófa þarf eru því
sendar á prófunarstofur
erlendis t.d. til Dan-
merkur. Hins vegar
berast markaðsgæslu-
deild upplýsingar un
þær vörur sem tekn-
ar hafa verið úr sölu í
Evrópu jafnframt því
sem mjög góð sam-
vinna er meðal Norður-
landanna á sviði vöruör-
yggis og markaðs-
gæslu.“
Fjóla segir að danska
könnunin hafi tekið mið af
öryggiskröfum sem settar eru©
fram í drögum að samevr-
ópskum staðli um hönnun og
framleiðslu bamavagna. Að
sögn hennar gegna
ræmdir staðlar mikilvægu
hlutverki við að tryggja
að einungis sé fram-
leidd örugg vara.
„Mjög mikilvægt er
að vel sé fylgst með
öryggi vöru á markaði
ekki síst þegar um er
að ræða vöru sem ætluð
er svo viðkvæmum
neytendahópi sem
böm eru.“
O Bamið má hvergi geta
klemmt finguma.
© Skrúfur og annað lauslegt
þarf að standast próf kokhólks-
ins sem hægt er að nálgast hjá
Slysavamafélaginu Lands-
björgu og í ýmsum-apótekum.
O Fjarlægðin milli handfangs
og skerms á að vera minnst 17
cm þegar vagninn er uppsettur.
O Fjarlægðin milli handfangs
og vagns má ekki vera á bilinu
9-23 cm þar sem þá er hætta á
að bamið geti fest höfuðið á milli.
O Ekki hengja þunga hluti á
hankana á handfangi vagnsins.
Notið frekar körfuna undir
vagni fyrir poka og annan far-
angur.
O Bremsurnar þurfa að vera á
framhlið vagnsins og það örugg-
ar að vagninn standi kyrr í halla
eða á ójöfnum jarðvegi. Þver-
stöng milli bremsuklossa eykur
öryggi.
O Á vagninum þurfa að vera
festingar fyrir beisli. Það eiga
að vera 24,5 cm írá höfðalaginu
að miðju vagnsins þar sem fest-
ingamar eru. Frá 5-6 mánaða
aldri á barnið ætíð að vera með
beisli í vagninum.
© Þegar kippa þarf vagninum
af vagnstellinu á það að krefjast
flóknari aðgerða en eins hand-
taks. Að öðrum kosti á að þurfa
meira en 5 kflóa átak til að taka
vagn af stelli. Skrúfur geta losn-
að og era því ekki æskilegar.
O Ef hægt er að leggja vagn-
inn saman á að þurfa minnst 5
kflóa átak áður en hann leggst
saman.
<Ð Það á að leggja vagninn
saman í að minnsta kosti tveim-
ur oAalrilrlnrn Kronum
Þegar
kaupa á
barnavagn
► Flest börn sofa í vagni á dag-
inn fram að tveggja ára aldri
a.m.k. Veljið því vagninn með
það í huga og hafið innanmálið
það stórt að vagninn rúmi
tveggja ára barn. Danska neyt-
endastofnunin mælir með því að
vagninn sé að innanmáli 92 cm
langur, 32 cm á breiddina og 20
cm djúpur.
Farið eftir teikningunni hér að
neðan með öryggisþætti.
Best er að hægt sé að flytja
barnavagninn milli staða í bíl.
Prófaðu í búðinni að setja vagn-
inn saman.
Það þarf að vera tiltölulega
auðvelt að taka vagninn í sundur
og setja hann saman á ný.
Það þarf að vera þægilegt að
ganga með vagninn.
Ef foreldrar eða þeir sem gæta
barnsins eru mismunandi háir í
loftinu borgar sig að fá vagn með
hæðarstillingu á handfangi.
Systkinasæti
varasamt
Þegar systkinasæti var sett á
barnavagnana kom í ljós að ekki
er hægt að mæla með notkun
þess. Systkinasæti er sæti sem
sett er ofan á svuntu vagnsins.
Hætta er á að vagninn steypist
fram fyrir sig. Noti foreldrar
slíkt sæti er áríðandi að þeir
sleppi aldrei handfanginu. Þá er
einnig bent á að töskur á hand-
fangi megi alls ekki vera þungar
af sömu ástæðum.
► Helmingur vagnanna blotnaði
að innan í mikilli rigningu
► Öll börn frá 5-6 mánaða aldri
eiga að vera með beisli í vagni.
FASrUGNA 5ALAN..
EIGNA KJOR
SKIPAOOTU 1S - FAXi 4SI 1444
462644!
Galtalækur
Q
Um 545 fm húsnæöi á einni hæð. Húsiö er í ágætu ástandi og
hentar vel fyrir ýmiss konar starfsemi.
Nánari upplýsingar veittar á Fasteignasölunni Eignakjör.