Morgunblaðið - 21.08.1999, Blaðsíða 64
64 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
www.landsbanki.is
Tilboð til Vörðufélaga
Landsbankans
Varðan
Vöröufélögum býðst nú ferö meö
Samvinnuferðum Landsýn til para-
dísareyjunnar Aruba í Karíbahafinu
á veröi sem er engu líkt.
★ Vikuferð (22.— 28. nóvember)
meö flugi og gistingu í sex nætur
fyrir aöeins 73.900 kr. á mann.
★ Aruba tilheyrir hollensku Antilla-
eyjum og er ein af syöstu eyjum
Karíbahafsins. Vöröufélagar geta
valiö milli tveggja fjögurra stjörnu
hótela: Sonesta Resorts I hjarta
höfuöstaðarins Orjanstad eða
Wyndham Resorts við eina bestu
strönd eyjarinnar.
Innifaliö er flug, gisting, akstur til og frá
flugvelli erlendis, fararstjórn og íslenskir
flugvallaskattar. Ekki er innifalið erlent
brottfarargjald $20 og
forfallagjald, kr. 1.800.
L
Landsbankinn
| Opið frá 9 til 19
ISLENSKA OPERAN
néiiM5£J3Lj,.r
Gamanleikrit í leikstjórn
Sigurðar Sigurjónssonar
Fös. 27/8 kl. 20.00.
Lau. 28/8 kl. 20.00.
Fim. 2/9 kl. 20.00.
Lau. 4/9 kl. 20.00.
Fös. 10/9 kl. 20.00.
Lau. 11/9 kl. 20.00.
Ósóttar pantanir
seldar daglega
Símapantanir í síma 551 1475 frá kl. 10
Miðasala opin frá kl. 13—19 alla daga
nema sunnudaga
MflSnti
S.O.S. Kabarett
í leikstjórn Sigga Sigurjónss.
lau. 21/8 miðnætunsýn. á menningar-
nótt Reykjavíkur örfá sæti laus
fös. 27/8 kl. 20.30 örfá sæti laus
föstudagurinn 3/9 kl. 20.30
laugardaginn 11/9 kl. 20.30
^C*~€r0 kími
HATTUR OG FATTUR
BYRJA AFTUR EFTIR SUMARFRÍ
sunnudag 12. sept. kl. 14.00.
Á þin fjölskylda eftir að sjá Hatt og Fatt?
Miðasala í s. 552 3000. Opið virka daga
kl. 10 — 18 og fram að sýningu sýningardaga.
Miðapantanir allan sólarhringinn.
5 30 30 30
Mtesata qfln Irá 12-18 og (ran að sýrtnqi
sýi*Hailai)a. OpÉO Irá 11 lyrt1 láMrteMiBtt
HÁDEGISLEIKHÚS - kl. 12.00
Rm 26/8 nokkur sæti laus
Fos 27/8 örfá sæti laus
miö 1/9, fim 2/9, fös 3/9
TILBOÖ TIL LEIKHÚSGESTA!
20% afeláttur af mat fyrir lákhúsgesti í Iðnó.
Boröapantanir í síma 562 9700.
FÓLK í FRÉTTUM
Hver var sómi 20. aldar?
JOHN Candy var góður leikari,
sem lést um aldur fram, þegar
hann var að ljúka við aðalhlutverk
í kvikmyndinni Wagons East, sem
sýnd var á Stöð 2 nýverið, en hafði
áður verið sýnd í sjónvarpi. Þetta
er gamansöm mynd, enda lét
Candy best að leika í slíkum
myndum. Á leikferli Candy var
heldur lítið fjallað um líf hans,
kvennafar eða sérviskukúnstir,
sem líklega engar hafa verið, al-
veg öfugt við svonefndar „stjörn-
ur“, sem fara með ærslum um svið
fjölmiðla og þeim mun frægari
sem þær eru fáránlegri. Þetta er
einkenni tímanna,
sem við lifum. Fólk
sem ekkert hefur
afrekað er heims-
frægt í fjölmiðlum
og tekið í guðatölu á meðan
normal fólk deyr drottni sínum,
eins og John Candy án nokkurs
yfirsöngs. Öli almenningslist er
orðinn innantómm- hávaði og
skrölt, eins og sést best á nýjasta
afreki kvikmyndanna um stjörnu-
stríð. Á það er horft dag og nótt
við ítarlegar hvatningar. Þó segja
þeir sem farið hafa að í myndinni
sé engin saga heldur sé keyrt á
brellum. Síðasta mynd Candy var
laus við brellur eða þann heims-
frægðarhrylling, sem er búinn til
handa sveitamannaþjóðum. Þarna
var fólk á ferð, sem hætti við að
taka þátt í að nema land í vestri
Bandaríkjanna á síðustu öld og
sneri til baka og réð Candy sem
leiðsögumann. Lengi áttar hópur-
inn sig ekki á þvi að Candy er
gamall leiðsögumaður hins sögu-
fræga Donner-hóps, sem fórst að
hluta til í fjallaskarði skammt
vestan Reno í Nevada og lagðist í
mannát í eymd sinni. Það setti
nokkurn hroll að austurfararfólki
við þessi tíðindi og Candy yfirgaf
hópinn um stundarsakir. En hann
kom aftur á indíánabykkju sinni
og leiddi hópinn í höfn eftir að
hafa slegist daglangt við riddara-
liðsforingja, sem var eins konar
ýktur Custer.
Þá ei-u aðeins tveir þættir eftir
af Kalda stríðinu, sem hafa sann-
ast sagna verið ærið misjafnir
hvað söguskoðun aldarinnar
snertir. Fyrir
það fyrsta er hér
að ræða
sem unnir
eru úr því kvik-
mynda- og síðar sjónvarpsefni,
sem tiltækilegt er. Þetta efni er
mjög fátæklegt frá fyrri hluta ald-
arinnar. Að vísu var ekki talað um
kalt stríð fyrr en eftir 1945 og
varla fyrr en eftir að Berlínar-
múrinn var reistur. Nú heyrir
þetta allt sögunni til, en þeir sem
skrá söguna eru misjafnlega til
þess færir, eins og þessir þættir
bera með sér. Hins vegar fær 20.
öldin þau eftirmæli vegna kalda
stríðsins, að pólitískt séð hafi hún
eytt síðari hluta sínum í tóma vit-
leysu, öfund, lygi, svik og pretti
og ber það allt manninum ekki
fagurt vitni. Ronald Regan
Bandaríkjaforseti vann síðan
þetta stríð með því að yfirbjóða
Sovétið og hóta búnaði úti í himin-
geimnum til vamar Bandaríkjun-
um. Slíkri stigmögnun gátu Sovét-
ríkin ekki mætt, enda komin fjár-
hagslega að fótum fram, eins og
árin síðan hafa sannað. Veldi, sem
boðaði: Betri er rauður en dauður
er nú verra en dautt miðað við
fyrri heitstrengingar. Eini al-
þjóðakrafturinn, sem erfðist frá
Sovét er rússneska mafían, sem
forsætisráðherrar Evrópu óttast
nú meira en fjandann sjálfan.
Ekki linnir hörmungartíðindum
úr gamla Sovét. Við hér á Islandi
horfum á þessar játningar allar
eins og gamlan reyfara, svo lygi-
legar eru sögurnar frá Gulaginu,
sem verið er að segja frá á Stöð 2.
Sem betur fer er aðeins einn þátt-
ur eftir af þremur. Erfitt er að
hugsa sér að nokkur viti borin
manneskja skuli hafa trúað á
svona ríki og trúi jafnvel enn á
Sovétið. Einhvern tíma var sagt
að ekki væri laust það sem skratt-
inn héldi. I fyrsta þætti voru þeir
að grafa skurð frá Volgu til
Moskvu. Rússar segja sjálfir frá.
Það rann undan einu steypuvirk-
inu og kom hola, þar sem vatn
streymdi í gegn og gat valdið
eyðileggingu. Verkstjórarnir tóku
sig til og ráku verkamennina nið-
ur í holuna til að stífla hana. Þar
drukknuðu þeir og steypuvirkinu
var bjargað. Og ætli einhvern hafi
ekki hryllt við, þegar teikningin
birtist af konum með legið hang-
andi niður úr sér. Byltingin varð
að kontinúserast, þótt konur
fengju legsig í þrælabúðunum.
Verði ykkur að góðu með sósíal-
ismann.
Indriði G. Þorsteinsson
SJONVARPA
LAUGARDEGI þætti
Menninqarndtt
Utimessa
kl. 20.30
Messukaffi
Ljóðalestur
Jeffrey Archer móðg-
ar svarta kjósendur
BRESKI rithöfund-
urinn Jeffrey Areher,
sem hyggst bjóða sig
fram til embættis
borgarstjóra Lund-
úna, lét nýverið falla
ummæli sem þóttu
heldur ósmekkleg og
hafa vakið nokkur
viðbrögð í breskum
fjölmiðlum. Archer
sagði í útvarpsviðtali
að fyrir þrjátíu árum
hafi maður ekki snúið
sér við á götu þegar
svört kona gekk fram
hjá því hún hafi að
öllum líkindum verið í
ljótum fötum, of þung og örugglega
í lélegri vinnu. Aftur á móti væri
sagan önnur núna því að götur
Lundúna væru fullar af fallegum
stúlkum af öllu þjóðerni.
Viðbrögðin hafa ekki látið á sér
standa. Trevor Philips, sem er
einnig í framboði til borgarstjóra
og er sjálfur svertingi, heimtaði að
Archer bæði móður sína afsökunar.
Patti Boulay, sem er svört söng-
kona, tekur hins vegar upp hansk-
ann fyrir Archer í blaðinu Times.
Hún segir að hann hafi ekki verið
að halda því fram að svartir væru
óhjákvæmilega feitari og ekki eins
fínt klæddir og hvítir, heldur hafi
hann verið að benda á hversu mikið
staða svertingja hafí batnað. Þetta
sé ekkert öðruvísi en að segja að
hvít börn séu betur á sig komin lík-
amlega nú til dags því
mataræði þeirra sé
betra en það var.
Blaðakonan Donu
Kogbara segir í blað-
inu Independent að
þrátt fyrir að orð
Archers hafi kannski
ekki verið sögð af
illsku séu þau tví-
mælalaust kjánaleg
og ósanngjörn. Það
hafi alltaf verið til
grannar og vel
klæddar svartar kon-
ur í Englandi og það
að gefa annað í skyn
sé aldeilis ekki besta
leiðin til að verða borgarstjóri í
borg þar sem mikill fjöldi íbúa er af
afrískum og karabískum uppruna.
Þar að auki eigi sú tegund af konu
sem hann lýsti sér sérstakan stað í
menningu svertingja. „Flestir
svartir Bretar, ég sjálf meðtalin,“
segir hún, „eiga stóra og mikla
frænku eða móður sem státar sig
af fataskáp sem er fullur af ski-ýtn-
um' kjólum og fáránlegum höttum.
Við megum gera grín að þeim því
við gerum það góðlátlega og af ást-
úð, en Archer er ekki einn af okkur
og kemst því ekki upp með það,“
segir hún og bætir því svo við að
hann skuli fara varlega í að gera
lítið úr gömlu frænkunum því það
séu margir tilbúnir að verja heiður
þeirra og það með hörku ef til þess
kæmi.
Jeffrey Archer
HI Hallgr ímskirkj a
E||| Orgeltónleikar
f r sunnudaginn 22. ágást kl. 20.30
LISTAHATIÐ Sænski organistinn Lars Andersson leikur verk eftir Messiaen, Bach, Alain og Reger.
1999 Miðasaia í Hallgrímskirkju alJa daga frá kl. 15.00 til 18.00 og við innganginn.
<£
Mataróregla
Ertu með mat á heilanum?
Ofætur, bulimíur og anorexíur. Nýtt námskeið er að hefjast
7. september. Stuðst er við 12 spora O-A kerfið.
Ef farið er eftir sporunum má vænta bata. Get bætt við 3.
Upplýsingar eru gefnar frá kl. 8—12 I síma 552 3132, annars símsvari.
Inga Bjarnason.
Stutt
Gáfaðir
grísir
SVÍN geta lært að nota tölvu-
stýripinna til að stýra loftræst-
ingu og hitastigi í stíum sínum.
Þetta kemur fram í danska viku-
blaðinu Landsbladet siðasta
föstudag. Bjarne Pedersen, sem
hefur sérhæft sig í atferli svína,
hefur gert athugun á málinu og
komist að þessari niðurstöðu.
Hann segir að með því að nota
sérstakt umbunarkerfi geti svín-
in lært á stýripinnann. Svínaaf-
urðir eru helsta útflutningsvara
Dana og gefa af sér um 13% út-
flutningstekna þjóðarinnar.
Barist geg n
flugdrekum
YFIRVÖLD í Kambódíu berjast nú
með oddi og egg gegn nýjasta þjóð-
félagsvandamálinu: Börnum sem
leika sér með flugdreka í lystigörð-
um borgarinnar Phnom Penh.
„Þessi leikur fer illa með grasið,“ er
haft eftir yfirvöldum. Lögreglu-
menn hafa því sést undanfarið reka
böm í stríðum straumum úr görð-
um borgarinnar, auk þess sem sölu-
aðilar flugdreka hafa þurft að af-
henda yfirvöldum vörur sínar. „Við
getum ekki leyft nokkrum börnum
að leika sér með flugdreka í görð-
unum því þá fylgja hundruð í kjöl-
farið,“ var haft eftir einum öryggis-
verði í dagblaðinu Phnom Penh
Post í gær.
Lést af völd-
um eigin hárs
BRESK unglingsstúlka lést ný-
lega vegna þess að hún hafði inn-
byrt of mikið af eigin hári.
Sautján ára stúlka í Hastings
hafði nagað á sér hárið árum
saman og þessi ávani orsakaði að
hárbolti á stærð við ruðnings-
bolta myndaðist í maga hennar.
Þegar læknar gerðu á henni að-
gerð til að fjarlægja hárboltann
tókst það ekki betur en svo að
stúlkan lést af völdum innvortis
blæðinga. Eftir aðgerðina var
móður stúlkunnar sýnd mynd af
hárboltanum. „Eg trúði ekki mín-
um eigin augum,“ sagði hún.
„Þetta leit út eins og dauð rotta.“
Ákafi Jón
eða lostafulla
Gunna
SPÆNSKA ríkisstjómin hefur
fengið bandaríska fyrirtækið
Microsoft til að breyta spænskum
þýðingum sínum á orðabók Word-
forritsins vegna karllægra viðhorfa
í þýðingunni, en konur hafa gagn-
rýnt þýðingarnar harðlega.
I yfirlýsingu frá Microsoft segir
að öll Word-forritin sem seld hafa
verið á Spáni eftir marsmánuð síð-
astliðinn, hafi verið endurþýdd og
einnig muni fyrirtækið dreifa
ókeypis uppfæringum á eldri forrit-
um til að komast fyrir rembuna.
Það sem mest fór fyrir brjóstið á
spænskum konum var samheiti á
orðum eins og „ansiosa" sem þýðir
áköf eða gráðug, en samheitin voru
spænsk orð sem tákna það að vera
kynóð og/eða lostafull. Þegar karl-
kynsmynd sama orðs, „ansioso" er
skoðuð var önnur merking uppi á
teningnum í þýðingunni. Samheiti
orðsins voru þá tengd því að vera
ágjarn, óþreyjufullur eða metnaðar-
gjarn. Það má því gera því skóna að
spænska tölvuorðabókin hafi gert
grófan greinarmun á lýsingarorð-
um eftir því hvort þau áttu við Jón
eða Gunnu.