Morgunblaðið - 21.08.1999, Síða 6

Morgunblaðið - 21.08.1999, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Æfínga- og kennsluflug á Reykjavíkurflugvelli Að líkindum dregið úr snerti- lendingum þegar í haust Sveitin komin SNERTILENDINGUM á Reykja- víkurflugvelli vegna æfinga- og kennsluflugs mun að líkindum fækka þegar í haust eða mun fyrr en gert hafði verið ráð fyrir í sam- komulagi samgönguráðherra og borgarstjóra frá því fyrr í sumar. Samgönguráðherra, Sturla Böðvarsson, sendi flugmálastjóra bréf í gærmorgun þar sem hann fel- ur honum að gera tillögur um ráð- stafanir til að nýta flugbrautir í ná- grenni Reykjavíkur undir snerti- lendingar fyrir æfinga- og kennslu- fiugið. Aðspurður kveður samgönguráð- herra þessar ráðstafanir til þess ætl- Fjölföldun á sjónvarpsefni Greiðir 200 þúsund í sekt HÉRAÐSDÓMUR Austurlands hefur kveðið upp dóm í máli Þórar- ins Áma Hafdal Hávarðarsonar, en honum var gefið að sök að hafa brotið útvarpslög með því að fjöl- falda sjónvarpsefni og selja áhöfn- um skipa. Þórarinn var fundinn sekur og er honum gert að greiða 200 þúsund krónur í sekt, sem og allan sakarkostnað, þar með talin málsvamarlaun verjanda síns, 150 þúsund krónur. Það vom íslenska útvarpsfélagið hf. og sjónvarpsstöðin Sýn hf. sem fóra í mál við Þórarin Árna, en hann var ákærður 10. febrúar síð- astliðinn. Þórarinn Ámi var með afraglara heima hjá sér og tók upp efni af Stöð 2, Sýn og úr Sjónvarp- inu og seldi áhöfnum skipa gegn fyrirfram ákveðinni greiðslu. Lög- reglan lagði hald á 5 myndbands- tæki og 47 myndbandsspólur og hafa tækin og spólumar verið gerð upptæk til ríkissjóðs. Samtals sagði ákærði að tíu skip hefðu verið í viðskiptum hjá sér og sannað þykir að hann hafi tekið við greiðslum að upphæð 912 þúsund krónur fyrir upptökurnar. Verði sektin, sem nemur 200 þúsund krónum, ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dóms- ins mun 30 daga varðhald koma í stað hennar. Logi Guðbrandsson dómsstjóri kvað upp dóminn. Reykjavíkurmaraþon á morgun Stefnir í góða þátttöku Fagmað- ur að verki ÞAÐ fer vart á milli mála hvaða listamaður sýnir verk sín í Hafnarhúsinu á næstunni. Bragi Ásgeirsson bar sig fag- mannlega að er hann skreytti húsið nafni sínu í gær, enda þekktur fyrir færni sína með pensilinn. Myndlistarsýning á verkum Braga hefst í Hafnar- húsinu um helgina. SKRÁNING í Reykjavíkunnara- þon sem fram fer á morgun hefur gengið mjög vel, að sögn Þorsteins G. Gunnarssonar sem sér um kynn- ingarmál fyrir hlaupið. Þegar hafa um 1700 manns skráð sig til þátt- töku í vegalengdunum fimm sem keppt verður í auk þess sem skrán- ing í nýja keppnisgrein, 10 km línu- skautahlaup, gengur vonum fram- ar, að sögn Þorsteins. Aldrei hafa jafn margir verið skráðir til leiks í heilt maraþon og nú, um 200 manns. Þar af eru um 140 útlend- ingar. Alls hafa um 315 útlendingar skráð sig til leiks í hlaupum Reykjavíkurmaraþonsins. Barnaspitali Hringsins styrktur Þorsteinn segir allt stefna í mjög góða þátttöku á morgun, skráningin hingað til lofi góðu. Hann gerir ráð fyrir því að flestir skemmtiskokkararnir skrái sig til keppni í dag og vonast til að heild- arfjöldi þátttakenda í Reykjavík- urmaraþoni verði töluvert yfir 3000. Hann vakti athygli á því að Bón- us styrkir Bamaspítala Hringsins um 1000 kr. fyrir hvert barn yngra en 12 ára sem tekur þátt í Reykja- víkurmaraþoni morgundagsins. „Það er gert ráð fyrir góðu veðri og góðri stemmningu. Við eram að vonast til að við fáum mjög gott hlaup á sunnudaginn," sagði Þor- steinn. til Izmit ÍSLENSKA björgunarsveitin er komin til borgarinnar, Izmit sem fór illa út úr jarðskjálftan- um, sem varð í Tyrklandi aðfar- arnótt þriðjudags. Björgunarliðarnir tíu komust á leiðarenda með öll sín tæki kl. 10.45 að íslenskum tíma í gær. Tekið var á móti þeim á flug- vellinum í Istanbul og fóru björgunarliðar í bílalest með pólskum björgunarliðum í lög- reglufylgd til borgarinnar Izmit. Þar vinna þeir með bandarísku sveitinni. Gréta Gunnarsdóttir, hjá ut- anríkisráðuneytinu, segir að gert sé ráð fyrir því að sveitin verði eina viku í Tyrklandi. Nýr aðstoðar- maður viðskipta- ráðherra PÁLL Magnússon hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Finns Ingólfssonar, iðnaðar- og við- skiptaráðherra, og tók hann til starfa 16. ágúst sl. Páll er 28 ára. Hann er stúd- ent frá Menntaskólanum í Kópavogi og er að ljúka prófi í guðíræði. Hann starfaði áður sem framkvæmdastjóri Reykvískrar útgáfu ehf. Páll er í sambúð með Aðal- heiði Sigursveinsdóttur, starfs- manni Landlæknisembættisins, og eiga þau einn son. Fugladrápið í rannsókn RANNSÓKN stendur yfir á fugladrápi í Skógafjöru, en tug- ir fugla voru skotnir í fjörunni fyrr í mánuðinum. Að sögn lög- reglunnar á Hvolsvelli hafa henni borist nokkrar vísbend- ingar og er verið að skoða þær. Miklabrautin lokuð MIKLABRAUTIN, milli Grensásvegar og Skeiðarvogs, verður lokuð að hluta í dag vegna framkvæmda og bendir lögreglan ökumönnum á að nota Bústaðaveginn eða Sæ- brautina í staðinn. Umræddur kafli verður lok- aður fyi’ir allri umferð út úr bænum frá klukkan 6 til 12 en leiðin vestur, þ.e. inn í bæinn, verður lokuð frá klukkan 13 til 15. Þá má einnig búast við að einhveijar tafir verði á umferð um þetta svæði frá klukkan 15 til 17 í dag. aðar að draga úr álagi og auka ör- yggi á Reykjavíkurflugvelli fyrr en áætlanir hafi gert ráð fyrir. „Ég vil með þessu leggja áherslu á þann vilja minn að koma tii móts við þá sem telja að umferðin við Reykjavík- urflugvöll valdi ónæði,“ segir Sturla. í samkomulagi samgönguráð- herra og borgarstjóra var gert ráð fyrir endurbyggingu eldri valla eða byggingu nýrrar flugbrautar í námunda við Reykjavík sem sér- staklega væri ætluð fyrir æfinga- og kennsluflug. Ekki var þó gert ráð fyrir að þær framkvæmdir hæfust fyrr en eftir að uppbyggingu þeirri sem nú stendur fyrir dyram við Reykjavíkurflugvöll lyki, eða eftir 4 til 5 ár. Leitað eftir samstarfi við flugskóla um flutninginn Sturla telur að þess verði skammt að bíða að dregið verði úr snerti- lendingum með því að flytja æfinga- og kennsluflug annað. „Þetta gæti gerst á næstu vikum og mánuðum en þarf auðvitað að gerast í góðu samstarfi við þá sem sinna kennsl- unni. Ég legg mikla áherslu á að reynt verði, með reglum og í sam- starfi við flugskólana, að koma þessu til betri vegar.“ Hann telur mikilvægt að raska ekki aðstöðu flugskóla. Nemendur verði að hafa eins góða aðstöðu og kostur er á Reykjavíkurflugvelli þar sem útgerð kennslu- og æfingaflugs verði þaðan í náinni framtíð. Sem dæmi um nálægar flug- brautir sem hugsanlega verði leitað til nefnir Sturla flugvöllinn á Sel- fossi, á Sandskeiði, við Álfsnes, á Stóra-Kroppi í Borgarfirði og Keflavíkurflugvöll. „Nú verður at- hugað hvemig nýta megi þessar brautir þangað til tekin verður í notkun ný flugbraut fyrir kennslu- flug og snertilendingar, annars staðar en á Reykjavíkurflugvelli," segir samgönguráðherra. Vísitala byggingar- kostnaðar Lítil breyting VÍSITALA byggingarkostn- aðar eftir verðlagi um miðjan ágúst 1999 hækkaði um 0,04% frá fyrra mánuði. Vísitalan er nú 236,4 stig og gildir fyrir september 1999. Hækkun vísitölunnar síð- astliðna þrjá mánuði samsvar- ar 0,9% hækkun á ári. Síðast- liðna tólf mánuði hækkaði byggingarvísitalan um 2,3% og mestan hluta þeirra hækk- unar má rekja til 1,7% hækk- unar í janúar síðastliðnum, sem varð vegna almennra launahækkana. Aðra mmán- uði ársins er breyting á vísi- tölunni á bilinu -0,2 til 0,3%.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.