Morgunblaðið - 21.08.1999, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Tekist á við sjálfan sýslumanninn í Hölkná í Þistilfirði, Isleifur Karlsson mundar stöngina.
Búið að landa, Jón Hólm heldur á laxinum, sem
mældist 106 sentímetrar og var líklega þar með
24-25 pund, ísleifur býst til að losa fluguna úr
kjafti laxins.
Á myndinni búast ísleifur t.h. og Jón Hólm t.v. til að
sleppa höfðingjanum, en honum liggur á og það er
handagangur í öskjunni.
Veiðin glæddist er drd fyrir sólu
Laxinn orðinn rólegur, enda farinn að anda aftur
og ísleifur sýnist sáttur við gang mála.
SVO virðist sem veiði hafí glæðst
víða á Vesturlandi síðustu daga, ekki
vegna neinnar teljandi úrkomu held-
ur vegna þess að það einfaldlega dró
ský fyrir sólu og hitastigið lækkaði
um nokkrar gráður. í Miðá í Dölum
fengu menn t.d. 18 laxa á þremur
dögum og í Andakílsá lentu menn í
því að fískur fór að taka „alveg
geggjað," eins og Ivar Bragason,
matreiðslumeistari á Primavera,
orðaði það, en hann setti í 19 laxa
ásamt félaga sínum Leif Kolbeins-
syni á örfáum klukkustundum í
Andakílsá. Þeir lönduðu þar af 16
fiskum. „Þetta voru allt fallegir lax-
ar, upp í 9-10 pund, bjartir en ekki
nýgengnir. Þeir tóku allir rauða
Frances túbu, utan einn sem kom á
Undertaker númer 12,“ sagði ívar í
samtali við Morgunblaðið. Þetta var í
vikulokin og þá komnir 126 laxar úr
ánni.
Enn veiðist vel í Soginu, einkum
þó á svæði Alviðru, en þar veiddust
t.d. 11 laxar á miðvikudaginn. Þá
voru komnir 17 laxar á land úr
Bfldsfelli og flestir þeirra veiddust
síðustu daga þannig að laxinn er
farinn að mjaka sér upp ána. Þá eru
menn famir að sjá meira af bleikju
heldur en fyrr í sumar, aðallega í
Bíldsfelli og eru kunnugir á því að
fiskurinn sé mun vænni heldur en
áður. Hann er að sama skapi tregari
að taka.
Norðurá í 1600 laxa
Um það bil 1600 laxar eru komnir
á land úr Norðurá í Borgarfirði og
er hún í öðru sæti á eftir Þverá/Kj-
arrá. Veiðin hefur verið róleg í
seinni tíð, en alltaf þó einhver reyt-
ingur. Áin hefur að sögn margra
ekki verið jafnvatnslítil á síðsumri í
mörg ár og er þá mikið sagt. Það
ásamt langvarandi hitum hefur að
sjálfsögðu komið niður á aflabrögð-
um veiðimanna, ekki síst þeirra sem
nota maðk sem agn. Vakti t.d.
óskipta athygli meðal stangaveiði-
manna að „maðkahollið" skyldi ekki
veiða nema tæpa 60 laxa. Leigutak-
ar Norðurár höfðu sett fimm laxa
dagskvóta á hverja stöng, en þegar
til kom var engin þörf fyrir það. Áin
var ógnar vatnslítil og fiskur allur á
kafí í botngróðri eða undir bökkum
og ekki til viðtals.
Elliðaárnar við sama...
... heygarðshornið. I miðri viku
voru aðeins 372 laxar komnir á
land úr ánum og veiði hefur verið
dauf í allt sumar ef frá undan eru
skildir nokkrir líflegir dagar
snemma vertíðar og þá vonuðu
margir að allt væri á uppleið. Svo
fór í sama farið og tvö síðustu
sumur og því miður hugsanlegt að
Elliðaárnar rétti ekki úr kútnum
af eigin rammleik úr því sem kom-
ið er. Mitt í öllum deilum og um-
ræðum veiðimanna í millum um
kosti og galla þess fyrirkomulags
sem nefnt hefur verið „veiða-
sleppa" er hálfundarlegt að því
fyrirkomulagi skuli ekki hafa verið
komið á í þeirri á hér á landi sem
þarf kannski mest á því að halda.
Ekki hefði Elliðaánum veitt af 372
löxum til að styrkja hrygninguna í
haust.
Afmælissýning Hundaræktarfélags Islands
Dæmdir
eftir útliti
Þórhildur Bjartmarz
Hundaræktarfélag
íslands gengst í
tilefni af 30 ára af-
mæli sínu fyrir hunda-
ræktarsýningu í Gusti,
reiðhöllinni í Kópavogi, í
dag og á morgun. Þór-
hildur Bjartmarz er for-
maður félagsins. Hún var
spurð hvort þetta væri al-
þjóðleg sýning?
Nei, þetta er ekki al-
þjóðleg sýning - en há-
tíðasýning og haldin í
tengslum við þing nor-
rænu hundaræktarfélag-
anna sem hófst í gær og
stendur enn í dag. Það
eru sex dómarar sem
dæma á sýningunni,
venjulega eru aðeins
tveir dómarar sem
dæma.
- Eru margir hundar á þessaii
sýningu?
Það eru rúmlega 260 hundar
sýndir af 44 hundategundum. í
dag keppa rúmlega tuttugu ungir
sýnendur, en það eru krakkar á
aldrinum 10 til 17 ára. Þau sýna
hunda og síðan er dæmt um
hvernig þeim ferst það úr hendi.
Þau safna stigum og stigahæsti
ungi sýnandi ársins fer svo næsta
ár á sýningu í Bretlandi þar sem
hann keppir á stærstu hundasýn-
ingu Bretlands, sem heitir
Crufts. Hún er haldin í Birming-
ham og þetta er árleg sýning þar
í landi.
-Hvaða hundategund er vin-
sælust á sýningum á Islandi í
dag?
Það sem við sjáum mest á
sýningum er Cavalier King
Charles Spaniel. Þetta er smá-
hundur af bresku kyni. Þetta er
þægilegur smáhundur sem
þarfnast ekki mikillar feldhirðu
en er samt duglegur í göngu og
góður fjölskylduhundur. Islenski
fjárhundurinn er líka vinsæll,
hann verður sérstaklega kynnt-
ur á umræddri sýningu, þar sem
verður lögð sérstök áhersla á út-
lit hans og skemmtileg litbrigði í
feldi hans. Irskir setterhundar
eru vinsælir sýningarhundar,
það ríkir alltaf mikill keppn-
isandi meðal eigenda þeirra þeg-
ar setterhundarnir eru sýndir.
-Hvernig er staða Hunda-
ræktarfélagsins á þessum tíma-
mótum?
Staða félagsins er ansi góð, við
erum með þúsund félagsmenn og
sækjum á í námskeiðshaldi. Við
erum að mennta þjálfara til þess
að kenna veiðihundum og einnig
að mennta þjálfara í hundafimi.
Það eru haldin veiðipróf, sporleit-
arnámskeið og sporleitarkeppni
fyrir alla hunda sem óskað er
þátttöku fyrir. Við erum að reyna
að efla þekkingu okkar og alla
starfsemi eftir föngum.
- Hvenær eru alþjóðlegar
hundaræktunarsýn-
ingar hér á landi?
Þær eru tvær á ári
og er sú fyrri í mars
og sú seinni fyrstu
helgina í október. Á
þessum sýningum eru veitt al-
þjóðleg meistarastig fyrir hunda
sem standast þær kröfur að vera
framúrskarandi í sinni tegund.
Þá er dæmt eftir ákveðnum kröf-
um (standard) sem heimaland
hundsins gefur út. Þegar hundur
hefur fengið fjögur alþjóðleg stig
getur hann orðið alþjóðlegur
meistari, en í sambandi við
ákveðnar hundategundir þarf
hundurinn einnig að uppfylla
vinnupróf. Sýningamar eru að
► Þórhildur Bjartmarz fæddist
1957 í Reykjavík. Eftir nám í
almennum skóla Iauk hún námi
sem hundaþjálfari hjá Hunda-
ræktarfélagi íslands. Hún hef-
ur starfað sem hundaþjálfari sl.
fimmtán ár. Hún hefur verið
formaður Hundaræktarfélags
Islands í rúm tvö ár. Þórhildur
er gift Viggó Pálssyni verslun-
armanni og á einn son.
öðru leyti mjög líkar. Aðrar sýn-
ingar gefa líka íslensk meistara-
stig og flestir keppa að þvi að
hundurinn þeirra hljóti titilinn ís-
lenskur meistari. Til þess að öðl-
ast þann titil þarf þrjú íslensk
meistai-astig.
- Hefur Islendingum farið
framí „hundamenningu", ef svo
má segja?
Já að mati hundeigenda. En
kröfur eru þær sömu og verið
hefur og litlar tilslakanir hafa
verið gerðar þrátt fyrir vaxandi
hundaeign. í Reykjavík stendur
enn í reglugerð að bannað sé að
hafa hund. Hundahald er þó leyft
þar með ákveðnum skilyrðum
sem mörgum þykja þröng. Ekki
er enn leyft að ganga með hund
á Laugavegi og í miðbæ Reykja-
víkur. Viðhorf til hundahalds er
annað á Akureyii. Þegar við
komum með hunda á sýningu
þangað getum við gengið um
miðbæinn óáreitt með hundinn í
bandi og ekki eru vandræði að fá
gistingu þar sem hægt er að hafa
hundinn hjá sér. Við höfum
stundum kallað Akureyri paradís
hundaeigenda. Almennt er farið
vel með hunda á íslandi og flest-
ir sækja sér fróðleik um hvernig
meðhöndla skal hundinn.
-Er algengt að hundaeigend-
ur komi með hunda sína á hlýðni-
námskeið?
Já, og þótt fólk sé kannski að
fá annan eða þriðja hundinn
kemur það aftur. Hundurinn lær-
ir að hlýða innan um aðra hunda
og tengsl hans við eigandann
verða sterkari.
- Eru hundar
dæmdir eftir hlýðni á
sýningum eins og
þeirri sem haldin er
núna um helgina?
Nei, þeir eru dæmdir eftir út-
liti og gæðum innan tegundar-
innar en eigandinn verður að
geta sýnt hundinn á viðeigandi
hátt. Ef hundurinn t.d. dregur
eigandann um gólfið sér dómar-
inn ekki réttar hreyfíngar
hundsins, hann þarf að hlaupa á
sem frjálslegastan hátt, óþving-
að, hann þarf að kunna að
standa þannig að dómarinn geti
skoðað hvernig líkamsbygging
hans er.
Almennt farið
vel með hunda
á íslandi