Morgunblaðið - 21.08.1999, Side 9

Morgunblaðið - 21.08.1999, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999 9 FRÉTTIR Morgunblaðið/Sigurgeir Asdís Halla Bragadóttir, fráfarandi formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, flytur setningarræðu á þingi SUS í Vestmanna- eyjum í gær. Þing SUS sett Andlát PALL KR. STEFÁNS- SON PÁLL Kr. Stefánsson auglýsinga- stjóri lést á heimili sínu á Blómvangi 10 í Hafnarfirði 19. ágúst síðastlið- inn, 58 ára að aldri. Páll var fæddui- 10. maí árið 1941. Foreldrar hans voru Stefán A. Pálsson og Hildur E. Pálsson, hún lifir son sinn. Eftirlif- andi eiginkona Páls er Anna Guðna- dóttir kaupmaður. Páll iauk_ stúdentsprófi frá Verzl- unarskóla Islands árið 1961. Hann starfaði hjá 0. Johnson & Kaaber frá 1961 til 1969. Frá 1969 til 1977 starfaði Páll á vegum Sjálfstæðis- flokksins, var meðal annai's fram- kvæmdastjóri Heimdallar og SUS og útgáfustjóri Stefnis. Páll var aug- lýsinga- og sölustjóri Vísis frá 1977 til 1981 og gegndi sömu störfum hjá DV frá stofnun þess árið 1981 til ársins 1997. Pá hóf Páll störf fyrir Hjálparstofnun kirkjunnar. Nú síð- ustu mánuðina var Páll í launalausu leyfi frá Hjálparstofnun kirkjunnar og starfaði við markaðs- og auglýs- ingamál hjá Ingvari Helgasyni hf. Páll var einn frumkvöðla að stofn- un SÁÁ og sat í stjórn þeirra sam- taka frá árinu 1977 til 1986. Hann var félagi í Lionsklúbbi Bessastaða- hrepps. Einnig var hann félagi í Oddfellow-reglunni. Börn Páls og Önnu konu hans eru Guðný Ólafía og Stefán. Súrefnisvörur Karin Herzog Silhouette LÍMMIÐAPRENT Þegar þig vantar límmiða Skemmuvegi 14,200 Kópavogi. S. 587 0980. Fox 557 4243 ÞING Sambands ungra sjálfstæðis- manna hófst í Vestmannaeyjum í gær þegar Ásdís Halla Bragadóttir, fráfarandi formaður SUS, flutti setningarræðu. Hún hóf mál sitt á orðunum „Island er gott land“, tal- aði m.a. um grundvallarhugsjónir Sjálfstæðisflokksins, aukið frelsi einstaklinga og minnkandi ríkisum- svif, og rifjaði upp ályktanir SUS frá yfirstandandi kjörtímabili, t.d. um að afnema bann við áfengisaug- lýsingum og að hraða eigi einka- væðingu Landssímans. Helgi Bragason, formaður Ey- verja, félags ungra sjálfstæðis- manna í Vestmannaeyjum, ávarpaði því næst þinggesti í hátíðarsal Framhaldsskólans. Eyverjar fagna 70 ára afmæli um þessar mundir og var Jóhann Friðfinnsson, elsti lif- andi formaður félagsins, viðstaddur fundinn og undi sér vel í félagsskap ungra sjálfstæðismanna. Eftir hefð- bundin þingstörf var efnt til kvöld- verðar þar sem Davíð Oddsson, for- sætisráðheiTa og formaður Sjálf- stæðisflokksins, hélt ræðu og ráð- herrar Sjálfstæðisflokksins sátu fyrir svörum. Búist er við fjölmennu þingi um helgina og voru þingfulltrúar þegar farnir að streyma til Eyja um há- degisbilið í gær. Alls fá 458 þing- fulltrúar úthlutað kjörbréfum og koma þeir hvaðanæva af landinu. Starf í málefnanefndum hefst í dag og á morgun verður gengið til at- kvæða um það hvort Sigurður Kári Kristjánsson eða Jónas Þór Guð- mundsson gegni formennsku í SUS næstu tvö árin og hvernig stjórn sambandsins verður skipuð. Stretchgallabuxur — hlægilegt verð í útsöluhorni — Nokkrir dagar eftir Eddufelli 2 - sími 557 1730. Opið mán.—fös. frá kl. 10—18, lau. 10—15. í Antibhúsgögn Gili, Kjalarnesi, s. 566 8965 Vönduð gömul dönsk húsgögn og antikhúsgögn. Ath. einungis ekta gamlir hlutir. Úrval borðstofuhúsgagna. Opið lau.-sun. kl. 15.00-18.00 og þri.- og fimkvöld kl. 20.30-22.30, eða eftir nánara samkomulagi í síma 892 3041, Ólafur. I ^ JIIm Skólafötin ,:fV| sem krakkarnir i : % 1 vilja / EXIT . § , / Laugavegi 95-97 Fjölbreytt og glaesileejt úrval af vöndtxðiizvi og fallegum haustfatnaði k&QýGafithiMl Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00. eemmsBsmmsms&sn VICTORIA-ANTIK Anlik og gjafavörur. Sígildar vörur, kynslóð eftir kynslóð. Antik er fjárfesting * Antik er Iifsstíli. Fjöibreytt vöruúrval. Næg bílastæði á baklóð. Opið mán.-fös. frá kl. 10-18, lau. 11-17 og sun. 13-17. VICTORIA-ANTIK Grensásvegi 14 sími: 568 6076 JANARD Ný sending Opiö í dag 10—14 t í s k u v e r s l u n Kauðarárstíg 1, sími 561 5077 ERT ÞÚ AÐ MISSA HÁRIÐ? Eða átt þú við önnur hárvandamál að stríða? Vissir þú að næstum því ein af hverjum þremur konum og einn af hverjum fimm körlum eiga við hárvandamál að stríða. Vissir þú að til viðbótar við góða umhirðu þarf hárið einnig nauðsynleg næringar- og grunnefni til uppbyggingar. Arcon-Tisane ® hefur stöðvað hárlos hjá konum og körlum og í mörgum tilfellum aukið örvað og þétt hárvöxtinn. Arcon-Tisane ® vinnur innanfrá, eykur blóðflæðið í hár- æðunum og eykur þannig flutning næringarefna og vítamína til hársekkjanna. Dautt og líflaust hár fær aukna næringu og verður fallegra og heilbrigðara. Arcon hármixtúra er borin beint í hársvörðinn við hárlosi. Arcon-sjampó er með PH gildi sem viðheldur náttúrulegu sýrustigi húðarinnar og hentar öllum hártegundum. Arcon vörurnar fást í apótekum um allt land. Alþjóða Verslunarfélagið ehf Skipholt 5, 105 Reykjavík S: 5114100

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.