Morgunblaðið - 21.08.1999, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 21.08.1999, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999 27 ERLENT Washington. Reuters. Talsmaður Bandaríkjastjórnar segir ummæli um fjárstuld á alþjóðlegu hjálparfé í Bosniu röng Tap en ekki stuldur JAMES Rubin, talsmaður banda- ríska utanrfldsráðuneytisins, fór á fimmtudag fram á að stórblaðið The New York Times leiðrétti frétt um stórtækan stuld háttsettra embætt- ismanna í Bosníu á alþjóðlegu hjálp- arfé. Sagði hann ummælin stuðla að misskilningi og grafa undan stuðn- ingi bandarísku þjóðarinnar við al- þjóðlega hjálparstarfsemi. Féllst rit- stjóri blaðsins á að hafa nefnt of háa upphæð en sagðist standa við aðrar spillingarásakanir er fram komu í grein blaðsins. I frétt dagblaðsins, er birt var á þriðjudag, voru nafngreindir áhrifa- menn í Bosníu sem sagðir voru hafa komið undan allt að einum milljarði bandaríkjadala af alþjóðlegu hjálp- arfé. Sagðist blaðið byggja á niður- stöðum sérstakrar nefndar er kann- að hefði spillingu í landinu. Á mið- vikudag efndi Craig Buck, forseti nefndar, sem íyrir hönd Alþjóða þró- unar- og hjálparstofnunar Bandaríkj- anna, USÁID, fer með málefni Bosn- íu, til blaðamannafundar og sagði sér hvorki kunnugt um tflurð umræddr- ar skýrslu né heldur um að hjálparfé hefði lent í röngum höndum. Skýrslan ekki til Utanríkisráðuneyti Bandaríkj- anna kallaði á fimmtudag, í umboði USAID, til blaðamannafundar til að skýra hlið stjórnvalda á málinu. Sagði James Rubin, talsmaður utan- rfldsráðuneytisins, að starfsmenn þess, sem unnið hafa sleitulaust við að kanna réttmæti spillingarásak- ana, hefðu komist að því að umrædd skýrsla hefði aldrei litið dagsins ljós. Hann viðurkenndi hins vegar að hjálparstofnunin .hefði tapað allt að 1,1 milljón bandaríkjadala, en féð var lánað til bankastofnunar í Bosn- íu rétt fyrir gjaldþrot hennar. Hafa ráðstafanir verið gerðar til að inn- heimta upphæðina frá seðlabanka Bosníu. „En upphæðin er þúsund sinnum lægri en haldið var fram í grein The New York Times,“ sagði Rubin. Rubin sagði það ekkert launung- armál að allmargh- háttsettir emb- ættismenn í Bosníu væru flæktir í mjög alvarleg spillingarmál. Hann vildi hins vegar ekki gangast við þeim ásökunum að hjálparstofnanir alþjóðasamfélagsins og erlend sendiráð hefðu reynt að gera lítið úr spillingu af ótta við að hræða fjár- festa og erlenda lánardrottna frá landinu. Enn er óupplýst hvað varð um tuttugu milljónir bandaríkjadala af alþjóðlegu hjálparfé sem lagðir voru inn á bankareikning í Bosníu og aldrei komust í hendur þarlendra stjórnvalda. Rubin sagði að sérstök nefnd, sem starfi á vegum fulltrúa vesturveldanna í Bosníu, kanni nú um 220 tilfelli þar sem talið er að spilling hafi átt sér stað. Alija Izetbegovic, forseti Bosníu- Hersegóvínu, ásakaði í gær starfs- menn vesturveldanna í landinu fyr- ir að veita fjölmiðlum rangar upp- lýsingar um spillingu og fjárstuld þarlendra embættismanna. Sagði hann að ásakanirnar ættu eftir að valda landinu ómældum skaða og krafðist þess að erindrekar vestur- veldanna yrðu gerðir ábyrgir fyrir mistökunum. Russar um START-viðræðurnar Segja Bandaríkjamenn hindra samkomulag Moskvu. Reuters. HATTSETTUR rússneskur emb- ættismaður sagði í gær að Banda- ríkjamönnum væri um að kenna að ekki væri unnt að koma á nýjum samningi er kveði á um fækkun kjarnavopna stórveldanna. Ummæl- in koma í kjölfar þriggja daga samn- ingaviðræðna rússneskra og banda- rískra embættismanna um START-3 samninginn sem lauk á fimmtudag. Leoníd Ivashov, hershöfðingi og yfirmaður alþjóðasviðs varnarmála- ráðuneytisins, sagði að Bandaríkja- menn væru að hindra framgang START-3 samninga vegna áherslu þeirra á að breyta ABM-samningn- um sem kveður á um bann við vörn- um gegn langdrægum eldflaugum og var undirritaður árið 1972. Banda- ríkin hyggja nú á smíði varnarbún- aðar er hamlað gæti eldflaugum ríkja á borð við Iran og N-Kóreu, að hæfa skotmörk í Bandaríkjunum. Ivashov sagði í gær að slíkt væri í al- gerri andstöðu við ABM-samning- inn. „ABM-samningurinn er sá grunn- ur sem allir síðari afvopnunarsamn- ingar hafa verið byggðir á. Ef spilla á þeim grunni myndi allt afvopnun- arferlið vera í hættu,“ sagði Ivashov. START-3 samningnum er ætlað að fækka í kjarnavopnabúrum Rúss- lands og Bandaríkjanna umfram það sem START-2 kveður á um. Rúss- neska þingið hefur enn ekki staðfest START-2 en sex ár eru liðin frá und- irritun hans. Hjá Símanum getur þú fengið leigðan farsíma sem hægt er að nota í Bandaríkjun- um, fyrir aðeins 300 kr. á dag. Þessir simar henta sérstaklega vel fyrir fólk sem er á ferð um heiminn, þar á meðal um austurströnd Bandaríkjanna. Þú ert í öruggu símasambandi hvort heldur er í viðskiptaerindum eða ferðalögum. Símana er aðeins hægt að fá leigða í afgreiðslu Símans í Ármúla 27. - Frekari upplýsingar um GSM dreifikerfið í Bandaríkjunum er að finna á heimasíðu www.omnipoint.com. t Bandaríkjunum eru öðruvísi GSM dreifikerfi en á tslandi. SIMINN Ármóla 27, rími S50 7800 thuœmt eá .A ÞINU HEIMILI? Eigum húsgögn i ævintýralegu úrvali. Sjón er sögu ríkari! • BEYKI • KIRSUBERJA BORÐSTOFUBORÐ • BEYKI • KIRSUBERJA (BSx 1 3D 12201 H 75 Bm) OPIÐ: Mán. - fös. 10:00 -18:00 Fimmtud. 10:00-20:00 Laugard. 11:00-16:00 Sunnud. 13:00-16:00 TM - HÚSGÖGN SíSumúla 30 -Sími 568 6822 ^----- œvintýri líkust
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.