Morgunblaðið - 21.08.1999, Qupperneq 48
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999
UMRÆÐAN
Afsakið en ég
heiti ekki „gestur“
ÁRNI Ámason ritar
grein í Morgunblaðið
þann 17. ágúst sl. þar
sem hann segir stuðn-
ingsmenn Jónasar
Þórs Guðmundssonar
kasta steinum úr gler-
húsi þegar þeir gagn-
rýna val stjómar
Heimdallar á 35. þing
SUS sem haldið verður
í Vestmannaeyjum um
helgina. I þessu sam-
bandi vitnar hann í
stjómarfund Týs, fé-
lags ungra sjálfstæðis-
manna í Kópavogi, sem
haldinn var í vikunni
þar sem endanlegt val
stjómarinnar átti sér stað. Telur
hann þar hafa verið brotið á sér
þar sem um ellefu einstaklingum
sem hann bar upp, var hafnað í að-
almannasæti og settir í vara-
^ mannasæti í staðinn.
Einnig virðist það hafa farið fyr-
ir brjóstið á Árna að ég hafí setið
þennan stjómarfund, svo mikið að
hann treystir sér ekki til að nafn-
greina mig í pári sínu í Morgun-
blaðinu, og nefnir mig þess í stað
„gest“. Lesendum blaðsins til
glöggvunar er það ég, Jón Kristinn
Snæhólm, fýirverandi formaður
Týs í Kópavogi, fv. formaður utan-
ríkisnefndar SUS, fv. varaformað-
ur SUS og fv. ritstjóri Stefnis, sem
mætti á þennan fund að beiðni for-
manns félagsins.
Ég hef ekki lengur tölu á því hve
marga stjómarfundi ég hef setið
hjá Tý, félagi ungra sjálfstæðis-
manna í Kópavogi, en ég man eftir
mínum fyrsta fundi sem var 1.
október 1983 þegar ég var kjörinn
sem stjórnarmaður í félaginu. Var
þetta eftir hörkugott sambands-
þing SUS á Hótel Loftleiðum mán-
uðinum á undan en þar var vinur
minn, Geir H. Haarde, endurkjör-
inn formaður samtakanna.
Síðan ég hætti formennsku í Tý
hef ég verið kallaður á stjómar-
félagsins til
skrafs og ráðagerða
og ekki mér að vitandi
verið amast við því á
nokkurn hátt.
Þannig er að for-
maður Týs bað mig að
mæta á umtalaðan
stjómarfund til að
vera stjóminni innan
handar með formið á
vah fulltrúanna og
gera stjórnarmeðlim-
um grein fyrir tækni-
legum þáttum þings-
ins ef upp kæmu ein-
hverjar spumingar. Á
síðasta þingi var ég
þingforseti og á Sel-
foss-þinginu fræga 1993 var ég for-
maður kjömefndar og því nokkuð
kunnugur staðháttum.
Árni hafði borið upp fjölda ein-
Formannskosning
Sagt hefur verið með
réttu að rónarnir hafí
komið óorði á brenni-
vínið. Forysta
Heimdallar hefur því
miður, segir Jón Krist-
inn Snæhólm, unnið
frelsinu sama ógagn.
staklinga sem enginn kannaðist
við, þar á meðal ekki ég, sem á að
þekkja æði marga sjálfstæðismenn
í Kópvogi eftir 18 ára stjórnmála-
þátttöku þar í bæ. Átti stjóm Týs
að henda út starfandi fólki af full-
trúalistanum svo að Árna yrði full-
nægt? Nei, auðvitað ekki. Hvaða
hagsmuni hafði Ámi af því að
sprengja upp tillögu stjómarinnar
sem öll stóð að henni? Jú, hann
varð að gefa vinum sínum í
Heimdalli skálkaskjól við sínar
miður góðu aðferðir við valið á sín-
um fulltrúum. Var Ami ósáttur við
einstaklingana sem tilnefndh- vom
af stjórn Týs? Nei, en hann vildi
samt sitt fólk inn til þess að láta
fella það, til þess að geta skrifað
stúf um yfirgang og vonsku í sinn
garð innan Týs.
Gallinn við glerhúsin er sá að
enginn heilvita maður kastar stein-
um úr þeim því þá er voðinn vís.
Grjóthríðin úr glerbúri Árna vekur
því furðu. Mín vegna getur Árni
kastað gangstéttarhellum út úr
súrefnistjaldi á Svalbarða en hann
veit það manna best að tilgangur
hans með því að fara gegn tillögu
stjórnar Týs var ekki til þess fall-
inn að fá sitt fólk samþykkt, heldur
fellt. Þannig þjónaði hann hags-
munum forystu Heimdallar best.
Aðferðarfræði við val
fólks á SUS-þing
Eins og sjá má á þessum skrif-
um mínum hef ég töluverða
reynslu af SUS og SUS-þingum. í
þau skipti sem slagur hefur verið
um formennsku í samtökunum
hafa deilur um fulltrúavalið komið
upp. Hins vegar hafa menn einatt
passað sig á því að velja þá einstak-
linga sem starfað hafa vel og
dyggilega innan félaganna og horft
framhjá því hvað þeir kjósa í for-
mannsslag. Þetta hefur vissulega
þýtt að sá kandídat sem forysta fé-
laganna styður hefur ekki haft full-
an stuðning allra fulltrúa viðkom-
andi félags sem síðan hefur leitt til
ósigurs á SUS-þinginu sjálfu. Þetta
gerðist til dæmis á þinginu 1993 en
þar studdi forysta Heimdallar
Jónas Fr. Jónsson gegn Guðlaugi
Þór Þórðarsyni, núverandi borgar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík.
Þetta veit núverandi forysta
Heimdallar sem styður Sigurð
Kára gegn Jónasi Þór Guðmunds-
syni, fyrsta varaformanni SUS.
Þessi „mistök“ frá ‘93 á ekki að
Jón Kristinn
Snæhólm
Dagskrá Menningarnætur
Reykjavíkurborgar og umfjöllun um
sýningu Myndhöggvarafélagsins
í Reykjavík fylgir Lesbók í dag.
Taktu blöðin með í bæinn!
endurtaka nú, það sést vel á full-
trúavali Heimdallar. Sigurður Kári
verður að fá amk. 90 prósent at-
kvæða Heimdallar til að vinna
kosninguna.
Það er langur listi yfir þá öflugu
ungu sjálfstæðismenn sem ekki fá
að fara á þingið í Vestmannaeyjum.
Þetta fólk hefur starfað í fjölda ára
sem forystumenn Heimdallar og
SUS en liggja undir þeim ægilega
grun um að vera stuðningsmenn
Jónasar Þórs. Hér eru nokkur nöfn
máli mínu til stuðnings: Áslaug
Magnúsdóttir, fv. varaformaður
Heimdallar og SUS, Andri Teits-
son, fv. formaður sjávarútvegs-
nefndar SUS, Hrafnhildur Bridde,
ív. stjórnarmeðlimur Heimdallar,
Árni Sigurðsson, fv. formaður ut-
anríkisnefndar SUS og ritstjóri
Stefnis, Amar Jónsson, fv. fram-
kvæmdastjóri SUS, Andrés Pétur
Rúnarsson, formaður hverfafélags
Laugarneshverfis og fv. SUS
stjórnarmeðlimur, Þórunn Páls-
dóttir, fv. varaborgarfulltrúi,
Magnús Árni Skúlason, núverandi
stjómarmeðlimur í viðskipta- og
neytendanefnd flokksins og í stjórn
SUS ‘95 til ‘97, og svona má lengi
telja.
Frelsi
Sem frjálshyggjumaður hef ég
verið hrifinn af starfsemi
Heimdallar í gegnum tíðina.
Reyndar hafa ungir sjálfstæðis-
menn verið í fararbroddi nýrra
hugmynda sem nú þykja sjálfsögð
mannréttindi en nóg er eftir til að
berjast fyrir.
Forystumenn Heimdallar hafa
því miður sett hugmyndabaráttu
sína mörg ár aftur í tímann með
því að hafa fallið frá einu þýðingar-
mesta hugtaki frelsisins, þ.e. skoð-
anafrelsinu. Einstaklingar sem
ekki hafa sömu skoðanir og foryst-
an fá ekki að tjá sig á þinginu né
kjósa þann forystumann sem þeim
líkar.
Sagt hefur verið með réttu að
rónarnir hafi komið óorði á brenni-
vínið. Forysta Heimdallar hefur
því miður unnið frelsinu sama
ógagn.
Höfundur er fyrrverandi varafor-
maður SUS.
Fylgja ber
lögum
UM HELGINA
er sambandsþing
ungra sjálfstæðis-
manna haldið í Vest>-
mannaeyjum. Á
þinginu hafa um 450
fulltrúar seturétt.
Mun verða gengið til
formanns- og stjórn-
arkosninga og munu
verða teknar til at-
kvæða ályktunartil-
lögur í hinum ýmsu
málaflokkum. Ungir
sjálfstæðismenn
munu taka afstöðu
til þess hvort Sig-
urður Kári Krist-
jánsson eða Jónas
Þór Guðmundsson verður formað-
ur SUS. Mikilvægt er að fulltrúar á
þinginu séu löglega valdir. Því mið-
ur virðist fulltrúavalið hafa farið
fram með ólöglegum hætti í mörg-
um tilvikum.
Stuðningsmenn Jónasar Þórs til
formennsku í SUS hafa m.a. meiri-
hluta í Tý í Kópavogi og Stefni í
Hafnarfirði. Bæði félög eru með 37
fulltrúa á þinginu. I báðum þeirra
var enginn stuðningsmaður hins
frambjóðandans settur á lista yfir
aðalfulltrúa. Ef til vill hefði lítið
verið við því að gera ef ekki hefðu
farið fram lögbrot til þess að ná því
markmiði.
Lögheimih margra ungra sjálf-
stæðismanna sem búa utan Kópa-
vogs og Hafnarfjarðar hafa verið
flutt til þessara sveitarfélaga svo
hægt sé að setja þá á hsta og hafna
félagsmönnum sem styðja þann
frambjóðanda sem er í ónáðinni hjá
stjómarmönnum félaganna. Voru
lögheimilin flutt án þess að við-
komandi sjálfstæðismenn hafi í
raun átt aðsetursskipti. Þessi
verknaður er skýrt brot á lögum
nr. 21/1990 um lögheimili, lögum
nr. 73/1952 um tilkynningar aðset-
ursskipta, lögum SUS og skipu-
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
Nýbýlavegi 12, sími 5544433
lagsreglum Sjálfstæðisflokksins.
Brot á lögum um tilkynningar að-
setursskipta getur varðað viðurlög-
um.
Sjálfsagt vita fæstir þeirra full-
trúa sem fluttu lögheimili sitt í
þessum tilgangi að þeir voru að
fremja refsivert brot á lögum með
sus
Því miður, segja þeir
Haukur Örn Birgisson,
----------—----7--------
og Emar Orn Olafsson,
virðist fulltrúavalið
hafa farið fram með
ólöglegum hætti í
mörgum tilfellum.
því að breyta lögheimih sínu án
þess að hafa aðsetursskipti. Sjálf-
sagt munu þeir flestir leiðrétta
þetta að eigin frumkvæði þegar
þeir komast að því enda sjálfstæð-
ismenn flestir góðir og gegnir
borgarar. Munu þá löglegir félags-
menn í þessum félögum sem ein-
ungis fengu að vera varamenn
komast á þingið í staðinn.
Það er mikilvægt að þar til bærir
aðilar athugi hins vegar vel hvort
þeir sem skipt hafa um lögheimili
fyrir þingið hafi raunverulega haft
aðsetursskipti til þess að tryggja
að farið sé að lögum. Þetta er
prinsipmál sem kemur afstöðu til
frambjóðendanna ekki við og höf-
um við því fulla trú á að á því verði
tekið.
Haukur Órn Birgisson er laganemi
við HÍ og Einar Örn Ólafsson er
verkfræðingur.