Morgunblaðið - 21.08.1999, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 21.08.1999, Qupperneq 56
56 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fylkir og B&L skrifa undir samning KNATTSPYRNUDEILD Fylkis og B&L hafa skifað undir langtíma styrktar- og samstarfssamning. Með þessu hefur B&L tengt starf- semi sína við Árbæinn en B&L flutti alla starfsemi sína fyrir skömmu í nýtt húsnæði að Grjót- hálsi 1. Jafnframt er B&L orðin aðalstyrktaraðili á öllum þeim vettvöngum sem knattspyrnudeild Fylkis stendur fyrir. 1. deildar lið Fylkis hefur staðið sig vel í sumar og eru miklar líkur á því að það komist upp í úrvalsdeild að ári, segir í fréttatilkynningu. Á mynd- inni má sjá Kjartan Daníelsson t.h., framkvæmdastjóra knatt- spyrnudeildar Fylkis, og Friðrik Bjarnason, markaðsstjóra B&L, takast í hendur við undirritun samningsins. Á bak við þá er Hyundai Grandour sem er flagg- skipið frá Hyundai. Morgunblaðið/Klemenz Bjarki Þátttakendur samankomnir á Húsabakka f Svarfaðardal þar sem hópurinn dvelur. HÓPUR íslenskra söngvara tekur þessa dag- ana þátt í svokölluðu „Master-class“ nám- skeiði f klassfskum söng að Rimum í Svarfað- ardal, félagsheimili Svarfdælinga. fslenskur söngkennari og ítalskur píanóleikari leið- beina 15 íslenskum söngnemendum í fjóra daga en námskeiðinu lýkur með tónleikum f Dalvíkurkirkju sunnudagskvöldið 22. ágúst kl. 21. Morgunblaðið hitti Rósu Kristínu Bald- ursdóttir, einn af aðstandendum námskeiðs- ins, og fræddist um tilurð þessa námskeiðs. Rósa Kristfn sagði að svona námskeið hefðu ekki oft verið haldin hér á landi. „Til- fellið er að íslenskir söngvarar þurfa að sækja mörg svona námskeið út fyrir land- steinana og ég fór að velta því fyrir mér hvort það væri ekki hægt að halda þau hér á landi. Ég ræddi þetta við Dóru Reyndal, kennara við Söngskólann, og fékk hana til að kenna á námskeiðinu ásamt Dario, sem er ftalskur pfanisti. Dario starfar við tónlistar- háskóla í Salzburg og er virtur í sínu fagi,“ sagði Rósa Kristfn. Rósa sagði að Dario kenndi söngvurunum Sungið í Svarfaðardal stfl og túlkun, en Dóra Reyndal sæi um að kenna þeim réttu tæknina. Píanóundirleikar- ar á námskeiðinu eru sfðan Danfel Þorsteins- son og Sólveig Anna Jónsdóttir. Þátttakendur á námskeiðinu eru fimmtán og koma víðs vegar að af landinu, en Rósa segir að nám- skeiðið hafi ekki verið auglýst. „Við sendum bréf til söngvara sem við töld- um að væru áhugasamir um að komast á svona námskeið hér á landi og undirtektirnar voru alveg framar vonum, þannig að þetta er tvfmælalaust eitthvað sem verður gert aftur,“ sagði Rósa Kristín. Hún segir að hún hafi velt því fyrir sér hvort hægt væri að lokka fólk til að koma hingað langt norður í land og dvelja í fjóra daga, en segir sfðan að það sé kannski einmitt kostur námskeiðsins. „Ef námskeiðið væri í borginni væri fólkið að fara heim á kvöldin, elda matinn og sjá um bömin. Hér er það í friði til að einbeita sér að námskeiðinu þvf að þetta krefst algerrar einbeitingar þegar nám- skeiðið er svona stutt,“ sagði Rósa Kristín. Mikil vinna Hún tekur það fram að námskeiðið þýði mikla vinnu fyrir söngvarana. Það hefst á morgnana með upphitunaræfingum og stend- ur síðan til eitt. Eftir það er pása til fjögur og nemendurnir eiga þess kost að hlaða orkuna að nýju í gönguferðum í Svarfaðardalnum eða skreppa í sund í Sundskálanum, sem er þarna rétt hjá. Hins vegar er boðið upp á einkatfma á þessum tíma og margir nýta sér það tækifæri, að sögn Rósu Kristínar. Hún segir að vegna góðra viðbragða sé draumur- inn að markaðssetja þetta námskeið jafnvel erlendis. „Staðurinn hefur upp á bjóða allt sem til þarf, frið og ró og stórkostlega nátt- úra sem gefur manni innblástur í söngnum," sagði Rósa. ATVINNUAUGLÝSINGAR Lyfjaverksmiðja Óskum eftir að ráða eftirtalið starfsfólktil starfa í lyfjaverksmiðju okkar, Reykjavíkurvegi 78, Hafnarfirði og Borgartúni 6, Reykjavík. 1. Starfsfólk í pökkunardeildir og steríldeild. 2. Starfsfólk í framleiðsludeild við þrif. 3. Starfsfólk í framleiðsludeild við töfluslátt. Æskilegt er að umsækjendur hafi menntun og/eða reynslu á sviði vélavinnslu. 4. Starfsmann á lager. Vinnutími 8—16 virka daga, um vaktavinnu getur einnig verið að ræða. Reyklaus vinnustaður. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu, Reykjavíkurvegi 78, Hafnarfirði. Umsóknarfrestur er til 29. ágúst nk. Vinsamlega endurnýið eldri umsóknir. Lyfjafyrirtækið Delta er stærsti lyfjaframleiðandi landsins. Delta hefur nýlega tekið í notkun nýja og fullkomna lyfjaverksmiðju og erfyrir- tækið framsækið og leiðandi á sínu sviði. Hjá Delta starfa nú um 140 manns. Við leitum að starfsfólki sem vill taka þátt í spennandi verkefnum hjá ört vaxandi fyrirtæki. Delta hf., Reykjavíkurvegi 78, 220 Hafnarfjörður, sími 550 3300, veffang: www.delta.is Grundarfjörður Kennarar Grunnskóli Eyrarsveitar í Grundarfirði óskar eftir að ráða kennara í kennslu á unglingastigi, smíðar og handmennt. Nánari upplýsingar veitir Anna Bergsdóttir skólastjóri í síma 438 6511 eða 863 6619. Grundarfjörður er fallegt sveitarfélag á norðanverðu Snæfellsnesi, í rúmlega 2ja stunda akstursfjarlaegðfrá Reykjavík. íbúar Grundarfjarðar telja á tíunda hundraðið og hefur fjölgað um 18% á sl. 10 árum. Grundarfjörður er vaxandi byggðarlag og þar er næg atvinna. í Grundarfirði starfar Grunnskóli Eyrarsveitar með um 210 nemendur í 12 bekkjardeildum. í haust lýkurfram- kvæmdum við stækkun skólabyggingarinnar, en skólinn er einsetinn. Þróunarverkefni hefur verið í gangi við skól- ann og ýmsar nýjungar í skólastarfi. Við leitum að kenn- urum sem eru tilbúnir að gerast hluti af öflugum hópi á góðum vinnustað. Sveitarstjórinn í Grundarfirði Járniðnaðarmenn Vélsmiðja í Garðabæ óskar eftir að ráða vélvirkja eða menn vana járnsmíði. Upplýsingar gefur Jón Þór í síma 565 7390. Kennarar kennarar Vegna forfalla vantar okkur enn kennara við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri. Um framtíðarstarf er að ræða. Skólinn er meðal annars þróunarskóli í upplýsingatækni og kennarar í Árborg njóta sérkjarasamninga. Nánari upplýsingar gefa Arndís Harpa skóla- stjóri í símum 864 1538 og 483 1141 og Þorlák- ur Helgason fræðslustjóri í síma 482 1977. dg? ú> HSHBHBRj vesturbæ Iðnnám Björnsbakarí vesturbæ getur bætt við sig bak- aranemum nú þegar. UpplýsingargefurÁrni í síma 896 3470. Góðan daginn trésmiðir Ertu leiður í vinnunni? — Viltu breyta til? Laus staða trésmiðs og ófaglærðs manns. Upplýsingar gefur Guðmundur í síma 899 9825. Borgarsmíði ehf.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.