Morgunblaðið - 21.08.1999, Qupperneq 72
*
NETÞJONAR
slccr viö
Gott upplýsinga-
kerfi borgar sig - er
þitt kerfi skilvirkt?
Það er dýrt að láta sterfsfólkið biða!
Tölvukerfi sem virkar
563 3000
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI3691100, SÍMBRÉF 6691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
•rr >
Davíð Oddsson forsætisráðherra við upphaf SUS-þings
Eignarhlutur ríkisins í
FBA seldur í einu lagi?
TIL greina kemur að selja það sem eftir er af
hlut ríkisins í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins í
einu lagi, að því er fram kom í máli Davíðs
Oddssonar forsætisráðherra í umræðum á þingi
Sambands ungra sjálfstæðismanna sem hófst í
gærkvöldi.
Forsætisráðherra sagði að upphaflegt markmið
með sölu á ríkisbönkunum hefði verið dreifð eign-
araðild og sú stefnumörkun hefði átt stuðning og
hljómgrunn meðal landsmanna og einnig á Al-
þingi. Síðan hefði það gerst að á ótrúlega skömm-
um tíma hefði þriðjungi eða svo af þessum eignar-
hluta verið rakað saman og teldu menn að sölu-
verðið á þeim hluta byggðist á því að viðkomandi
aðilar vildu hafa forræði yfir bankanum þegar
upp væri staðið. Þetta sagði forsætisráðherra að
gæti rýrt verðgildi hlutafjár sem eftir ætti að
selja í bankanum og því hlyti ríkisstjómin að
skoða málið ofan í kjölinn. I athugun væri að
tryggja markmið um dreifða eignaraðild með lög-
um. Þá gæti farið svo að eignarhlutur ríkisins yrði
seldur í einu lagi til að tryggja sanngjamt verð.
Forsætisráðherra tók fram að áform um einka-
væðingu bankans væm ekki í uppnámi en huga
þyrfti að næstu skrefum.
Hann sagðist einnig hafa efasemdir um að að-
ila eins og Kaupþingi væri stætt á að nota aðila
sem það hefði fjárvörslu fyrir til að kaupa bréfin
og grípa síðan tækifærið og selja þau og hirða
hagnaðinn. Velti hann upp þeirri spumingu hvort
það væri löglegt en siðlaust.
■ SUS-þing/9
Sextán
árekstrar
MIKIÐ var um árekstra og
umferðaróhöpp í gær en alls
vom ellefú atvik tilkynnt lög-
reglunni í Reykjavík en fimm
lögreglunni í Kópavogi.
Allharður árekstur varð á
tengivegi sunnanmegin við
Hamraborgarbrú í Kópavogi
klukkan tíu í gærkvöldi er tveir
bflar lentu saman. Onnur bif-
reiðin kastaðist við það á Ijósa-
staur og var ökumaður hennar
fluttur á slysadeild með eymsli
í hálsi en hann var ekki í bíl-
belti að sögn lögreglu í Kópa-
vogi. Bifreið hans var dregin af
vettvangi og er jafnvel talin
ónýt.
Rúta rakst á fólksbfl
Rúta og fólksbfll lentu saman
á gatnamótum Skeiðarvogs og
Miklubrautar klukkan rúmlega
tíu í gærkvöldi. Farþegi í fólks-
bflnum kenndi eymsla í hálsi
eftir áreksturinn. Bifreiðin var
dregin af vettvangi.
Laust eftir klukkan fjögur í
gærdag varð fjögurra bfla
árekstur á Kringlumýrarbraut.
Þá höfðu tveir bflar staðnæmst
íyrir aftan kyrrstæðan bfl og
keyrði fjórði bíllinn allharka-
lega aftan á aftasta bílinn. Ein
manneskja var flutt á slysa-
deild með lögreglubfl. Tvær bif-
reiðir voru dregnar af vett-
vangi.
Barnavagnar teknir
úr sölu í Danmörku
Ein teg-
undin fæst
á Islandi
NÝLEGA lét danska neytenda-
stofnunin taka úr sölu fjórar
tegundir bamavagna meðan
framleiðendur gerðu úrbætur á
bremsubúnaði vagnanna, sem
var mjög ábótavant. Ein teg-
und þessara barnavagna hefur
fundist á markaði hér á landi og
hafa nálægt tíu vagnar þegar
verið seldir. Eigendur þeirra
geta leitað til Rúmfatalagersins
til að fá vagnana lagfærða.
■ SöIubann/28
Fjarnám á 26
stöðum á landinu
FJARNÁM í ferðamálafræði og hag-
nýtri íslensku við Háskóla íslands
hefst í haust og er það í fyrsta sinn
sem skólinn býður heildstætt grunn-
nám úr deildum skólans í fjar-
kennslu. Hvor námsbraut er 45 ein-
inga hagnýtt nám. Hægt verður að
' ',%stunda fjarnámið frá 26 stöðum á
landinu, frá 10 fræðslumiðstöðvum
og 16 útstöðvum þeirra.
Gert er ráð fyrir að þeir sem
stunda hefðbundið nám ljúki 45 ein-
inga námi á einu og hálfu ári, en
stefnt er að því að fjamámsnemend-
ur geti lokið því á þremur áram. Að
•jJjví loknu er hægt að bæta við eining-
*úm til BA- og BS-prófs samkvæmt
ákvörðun viðkomandi deilda.
Margrét S. Bjömsdóttir, forstöðu-
maður samskipta- og þróunarsviðs
Háskólans, segir að talsverðu fé og
mannafla hafi verið ráðstafað í und-
irbúning fjarkennslu, bæði á sviði
tækni og kennslufræði. Fjamámið sé
liður í að efla tengsl og þjónustu
skólans við landsbyggðina.
Háskólinn hefur samstarf um fjar-
námið við fræðslumiðstöðvar á
landsbyggðinni og Háskólann á
Akureyri. Forsenda samstarfsins er
svonefnd Byggðabrú, símstöð sem
Byggðastofnun leigir af Landssíma
Islands og getm- tengt saman mynd-
fundatæki nokkurs fjölda notenda.
■ Boðið/37-
/
Oörugg-
ur í um-
ferðinni
KRÍUUNGI þessi staldraði við í
vegkanti á Grindavíkurvegi áð-
ur en hann hætti sér yfir veg-
inn. Ljósmyndari Morgunblaðs-
ins, sem átti leið þar um, náði
að smella af honum mynd og
tdk þá eftir, að ekki hafði farið
eins vel fyrir nokkrum félögum
ungans á Ieið sinni yfir. Ekið
hafði verið yfir þá og því
greinilegt að það borgar sig að
fara varlega á þessum slóðum
um þessar mundir.
Morgunblaðið/Arnaldur
Rannsókn á unglingum
Hátt sjálfsmat dregur
úr líkum á reykingum
UNGLINGAR sem töldu sig hafa
litla stjóm á eigin lífi þegar þeir
vora 14 ára vora líklegri við 17
ára aldur til að reykja daglega,
drekka mikið áfengi í senn og
hafa prófað hass eða amfetamín.
Þetta kemur fram í viðamikilli
rannsókn Sigrúnar Aðalbjarnar-
dóttur, prófessors við félagsvís-
indadeild Háskóla Islands.
I rannsókninni var unglingun-
um fylgt eftir frá því þeir vora 14
ára þar til þeir vora 17 ára. Spu-
rningalistar vora lagðir fyrir
1.300 14 ára unglinga árið 1994 og
síðan aftur fyrir sama hóp þremu-
r áram síðar.Rannsóknin sýnir að
unglingar með hátt sjálfsmat 14
ára gamlir era annars vegar ólík-
legri til að drekka við 14 ára aldur
og hins vegar til að reykja dag-
lega eða drekka mikið í senn
þegar þeir era 17 ára.
Sigrún segir að unnt sé að nota
þessar niðurstöður í forvamastarfi
og væri ráðlegt að hefjast handa
með því að fræða tilvonandi for-
eldra þegar í ungbamaeftirliti.
■ Unglingar/36