Morgunblaðið - 09.10.1999, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 09.10.1999, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1999 51 • MINNINGAR Sökum gamallar vináttu tengdaföð- ur míns, Steingríms Amasonar, við þau hjón Astu og Sveinbjörn og fjöl- skyldur þeiiTa, leituðum við til þeirra er til flutninga kom. I Hraun- prýði var okkur tekið af þeirri ein- stöku gestrisni og hlýju sem var að- alsmerki þeirra hjóna. Svo var einnig ávallt er komið vai' á þeirra heimili, þaðan fór enginn án þess að þiggja rausnarlegar veitingar og taka þátt í ánægjulegum sami'æðum i við þau hjónin. Það voru mikil umskipti fyrir okkur að flytja af höfuðborgar- svæðinu í lítið þorp úti á landi öll- um ókunnug, en þau hjón gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að létta okkur þessar breytingar. I tólf ár bjuggum við á Hellissandi og kynntumst þar mörgu prýðis- 1 fólki, en alltaf var heimilið í Hraunprýði, sá staður sem oftast var heimsóttur og ávallt mætti manni þar sama hlýja viðmótið. Eftir að við fluttum aftur til Reykjavíkur urðu samfundir eðli- lega færri, en þó hélst alltaf sama góða sambandið. Það var ekki síst ti-ygglyndi Astu að þakka. Ásta var sannur vinur, hún tók þátt í sorgum og gleði - studdi og styrkti af ráðum og dáð. Ásta átti við vanheilsu að stríða mörg undanfarin ár en sínum góðu eðliskostum, trygglyndi og hreinskilni hélt hún til hinsta dags. Síðustu samfundir okkar voru á áttræðisafmæli hennar sl. haust þar sem við áttum saman góða stund. Ég kveð þig, kæra vinkona, og þakka allar okkar góðu samveru- stundir. Innilegar samúðarkveðj- ur sendi ég og fjölskylda mín, Sveinbirni, sonum þeirra hjóna og fjölskyldum þeirra. Guð blessi minningu Ástrósar Friðbjarnardóttur. Ingibjörg Kristin Jónsdóttir. í dag er til moldar borin að Ingjaldshóli ein af okkar kæru fé- lagskonum. Með nokkrum orðum langar okkur til að minnast hennar Ástrósar Friðbjarnardóttur, sem var félagi og starfaði í kvenfélagi Hellissands í tæpa sex áratugi. Hún gekk í félagið 4. apríl 1943 og allt frá þeim tíma átti félagið hennar huga, eins og hún sagði sjálf fannst henni félagið vera virðulegt, formlegt og heiðarlegt. Hún hafði alla tíð mikinn metnað fyrir hönd félagsins og hennar vilji var að allt sem félagskonur gerðu ættu þær að gera vel. Fyrstu ár félagsins voru fundir ævinlega haldnir á sunnudögum og klæddu konur sig upp í þjóð- búninga eða spariföt þegar þær sóttu fundi. Ástrós var ákaflega félagslynd að eðlisfari og var ein þeirra sem ávallt kom á kvenfé- lagsfundi ef nokkur tök voru á. Hún var mjög virkur félagi og var meðal annars gjaldkeri félagsins í tuttugu ár. Ástrós var hreinskipt- in kona sem lét skoðanir sínar óhikað í ljós en virti jafnframt 5 skoðanir annarra. Hún bar hag þeirra sem þurftu á hjálp að halda mjög fyrir brjósti, þannig að segja má að fórnfýsi og góðvild hafí einkennt hennar dagfar. Á afmælishátíð félagsins þegar kvenfélagið varð sjötíu ára var Ástrós gerð að heiðursfélaga þess. Einn af eiginleikum Ástrósar var hversu gott hún átti með að taka til máls á mannamótum og lét aldrei ógert að þakka fyrir veittar vel- gjörðir fyrir sína hönd eða hóp þess sem hún naut samvistar með. Ástrós bar einstaklega sterkan hug til heimabyggðar sinar og vildi vegsemd hennar sem mesta. Þótt árin færðust yfir var Ástrós ævin- lega boðin og búin að vera með og leggja sitt fram til félagsstarfsins. Minningin um þessa hlýju og glaðværu konu mun lengi geymast meðal okkar. Við félagskonur þökkum henni allt samstarfíð og samfylgdina. Við vottum þér, kæri Svein- I björn, og fjölskyldunni allri dýpstu samúð okkar. Guð blessi minningu hennar. Kvenfélag Hellissands. Með hlýhug og þakklæti minn- umst við slysavamakonur látins fé- laga, Ástrósar Friðbjarnardóttur. Ástrós gekk til liðs við deildina á fyrstu starfsárum hennar og var fé- lagi til dauðadags. Hún var tryggur félagi og var ætíð boðin og búin að leggja sitt af mörkum fyrir verkefni félagsins meðan kraftar leyfðu. Við þökkum Ástrósu fyrir samstarfið og góðar samverustundir liðinna ára. Sveinbimi og fjölskyldu hans send- um við innilegar samúðai'kveðjur. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem) Slysavamadeildin Helga Bárðardóttir, Hellissandi. Hvað skyldu þeir vera margir sem heimsóttu Hellissand og komu við í Hraunprýði hjá þeim Ástu og Svein- bimi símstöðvarhjónum? Þeir verða ábyggilega ekki tíundaðir, en víst er að þar var alltaf opið hús og fagnað af húsráðendum, og því varð vina- hópurinn stærri með árunum sem liðu. Þá má ekki gleyma því hvað þau hjón vom félagslynd og alltaf gleði- gjafar í hópferðum, þegar gáfust skoðunarferðir um landið, ekki síst á seinni ámm þegar aldraðir fóm sín- ar skemmtilegu ferðir, og þær vora ekki svo fáar. Ég er einn þeirra sem nutu þess að vera gestir þeirra ásamt fjölskyldu og þær stundir geymast í þakklátum huga. Ég var ekld búinn að vera lengi á Snæfells- nesi þegar ég heimsótti þau hjón og hlaut vinfengi þeirra og þess vegna fagnaði ég þeim svo innilega þegar þau ákváðu að eyða seinni hluta æv- innar í Stykkishólmi. Því miður vom þær stundir alltof fáar, því Ásta lést skyndilega 1. okt. sl. Var nýkomin heim eftir að hafa eytt dögunum á heilsuhæli og meðal vina. Hún var hress og ánægð þegar hún kom til baka og aHt virtist horfa til betri veg- ar með heilsuna, en við sjáum lítið fiam, eins og þar stendur. Það er ein af gjöfúm guðs. Ég man aldrei til þess að Ásta væri annað en góð í skapi, hvemig sem stóð á þegar ég heimsótti hana og alltaf gat hún tek- ið á móti gestum með bros á vör. Þetta vom einkenni hennar og því var heimilið svo hlýtt og fagnandi. Sveinbjöm mim heldur ekki hafa dregið þar nokkuð úr. Félagslífið átti líka styrka stoð í þeim hjónum. Ég gleymi því heldur ekki þegar drengir mínir vom í ferð á Hellissandi í inn- heimtuerindum. Þá var gott að eiga þau hjón að og varð það til að auka enn á vináttu okkar. Ásta fór létt með að vera í fararbroddi, þegar stjóma þurfti gleðimótum. Þar naut hún sín og allt það sem hún lagði til í framfaramálum síns staðar var gert af heilum hug. Ég er ekki í vafa um að það verður stórt skarð í vinahópi nú þegar Ásta er horfin af sjónar- sviðinu, og margir sakna vinar í stað. Þau Ásta og Sveinbjöm vom jafn- aldra og áttu langa samleið í gegn- um lífið, studdu vel hvort annað. Það verður því erfitt fyrir hann eftir að hans styrka stoð er horfin af braut, í bili, en þau trúðu bæði á endumýjun samfunda og það mýkir sárin. Það verður heldur daufara yfir Dvalarheimilinu þegar þær hverfa nú tvær, hún og Ingibjörg Hjaltalín með viku millibili. En Drottinn leggur líkn með þraut og það mun reynast rétt. Um leið og ég þakka Ástu góða og skemmtilega sam- fylgd gegnum árin, vil ég biðja henni og ástvinum hennar allrar blessunar guðs og ég veit að hann mun leiða þá sem nú sakna mest, áfram um lífsins veg, því þegar allt kemur til alls er hann eina skjólið sem aldrei bregst. Ámi Helgason, Stykkishólmi. Sigurskák Margeirs gegn Morozevich SKAK Reykjavík EVRÓPUKEPPNI TAFLFÉLAGA 24.-2G.9. 1999 SIGUR Mai-geirs Péturssonar gegn Morozevich í Evrópukeppni taflfélaga vakti heimsathygli. Skákin var tefld í undan- rásarriðli, sem haldinn var í Hellisheimilinu og skipulagður af Taflfélagi Reykjavíkur og Taflfélaginu Helli í samein- ingu. Fyrir okkur Islendinga er þessi skák merkileg fyrir þær sak- ir að aldrei áður hefur íslenskur skákmaður unnið jafn stigaháan skákmann. Alexander Morozevich er fjórði stigahæsti skákmaður heims og er með 2.751 skákstig. Einungis Kasparov, Anand og Kramnik em stigahærri um þess- ar mundir. Auðvitað getur stigasamanburð- ur verið varasöm iðja og saman- burður á þessu afreki Margeirs við fyrri sigra íslenskra skákmanna er vandasamur. Þar er reyndar af mörgu að taka. Friðrik Ólafsson er þó eini íslenski skákmaðurinn sem hefur unnið ríkjandi heims- meistara í skák. Það gerðist árið 1980, þegar Friðrik sigraði Anatoly Karpov á sterku skákmóti í Buenos Aires í Argentínu. Frið- rik vann auk þess marga góða sigra á bæði væntanlegum og fyrr- verandi heimsmeisturam. Það var svo reyndar Margeir sjálfur sem síðastur íslenskra skákmanna tefldi við núverandi heimsmeistara FIDE, Alexander Khalifman. Það var í Evrópukeppni taflfélaga í fyrra, sem fram fór í Narva í Eist- landi. Þetta var mikil baráttuskák, sem lauk með jafntefli. Það er þvi greinilegt að Margeir nýtur þess að tefla í Evrópukeppninni, svipað og margir aðrir íslenskir skák- menn. Hér á eftir fylgir sigurskák Margeirs gegn Morozevich með skýringum Hannesar Hlífars Stef- ánssonar. Þetta var góður vamarsigur Margeirs. Upp kemur sjaldgæft afbrigði í Sikileyjarvöm. Rússinn blæs snemma til sóknar og skákin verður mjög flókin. I miðtaflinu nær Morozevich óvæntum drottn- ingarleik og allt virðist stefna í ör- uggan sigur hans, en svartur neit- ar að gefast upp. Svo fer að Morozevich finnur ekki nákvæm- ustu leiðina og finnur þá Margeir óvænta björgunarleið. Rússanum verður svo mikið um að hann fell- ur á tíma. Hvítt: Alexander Morozevich Svart: Margeir Pétursson Sikileyjarvörn [B27] 1. e4 c5 2. Rf3 g6 3. d4 cxd4 4. Dxd4 Rf6 5. e5 Rc6 6. Da4 Rd5 7. De4 Rdb4 8. Bb5 Da5 9. Rc3 Bg7 10. 0-0 0-0 11. a3 d5! í skákinni Roth-Lekander Teeside 1974 lék svartur hinum linkulega leik 11.... Ra6 og eftir 12. Bf4 Rc5 13. De3 Re6 14. Bg3 náði svartur ekki að losa um sig. 12. exd6 Bf5 Upp era komnar gríðarlegar flækjur. 13. Dc4 Rxc2 14. Rd5 e6! Við fyrstu sýn virðist sem flækj- umar séu svörtum í hag, en Rúss- inn lumar á mótleik. Verri kostur er 14. ... Rxal 15.dxe7 Hfc8 16. Bd2 og svartur tapar liði, því eftir 16. ... Re5 kemur 17. Dxc8+ Hxc8 18. Bxa5. 15. Re7+ Rxe7 16. dxe7 Hfc8 17. Bd2! Krókur á móti bragði! 17.... Db6 Ekki 17. ... Hxc4 18. Bxa5 Hc5 19. Bd8! og hvítur vekur upp nýja drottningu. 18. e8D+ Hxe8 19. Bxe8 Hxe8 Vafasamt er 19. ... Rxal vegna 20. Da4! með hótuninni Dd7. 20. Hacl Dxb2 21. g4 Eftir feikigóða vöm missir Mar- geir nú af besta framhaldinu. 21.. .. Rxa3? Eftir 21.... Rd4! em líklegustu úr- slitin jafntefli, t.d. 22. Rxd4 Dxd2 23. Rxfö (ef 23. RÍ3 þá Dd3) 23. ... exfö 24. Db5 Hd8 25. gxfö. Þó hvít- ur sé skiptamuni yfir er hæpið að hann eigi vinningsmöguleika vegna þess hversu opin kóngs- staða hans er. 22. Dc8! Db5 Ekki 22. ... Hxc8 23. Hxc8+ Bfó 24. Bh6 Db4 25. Hxí8+ Dxf8 26. Bxf8 og hvítur verður hróki yfir. 23. gxf5 Bb2! 24. Bh6 Bg7 25. Be3 Bb2 Þegar hér var komið sögu var Morozevich kominn í mikið tíma- hrak. 26. fxe6? Fellur í gildruna. Eftir 26. Bd4! eða 26. f6 stæði hvítur með pálmann í höndunum. 26. ... Hxc8 27. Hxc8+ Kg7 28. e7 Dd7! Morozevich varð svo mikið um við þennan leik Margeirs, að hann féll á tíma nokkmm leikjum síðar! 29. e8R+ Eftir 29. e8D næði svartur þrá- skák með Dg4+. Það er ekki oft sem næst að vekja upp mann tvisvar á sama reit. Kannski Morozevich hafi ekki kunnað við að vekja upp nýja drottningu á sama stað! 29.. .. Kh8 30. Rd6+ Kg7 31. Re8+ Kh8 32. Hfcl Hér féll Rússinn stigahái á tíma. Rannsóknir leiða í ljós að staðan er jafntefli eftir 32. ... Dg4+ (ekki 32. ... Bxcl vegna 33. Bd4+ fö 34. Rxfö!!+ Dxc8 35. Rd5+ Kg8 36. Re7+) 33. Kfl Dxf3 34. Hlc7 og vegna hótunarinnar Rd6+ verður svartur að taka þráskák með Ddl+ 35. Kg2 Dg4+ 0-1 Skákmót á næstunni 18.10. Hellir. Fullorðinsmót. 23.10. SÍ. Heimsm.mót barna. 25.10. Hellir. Atkvöld. 31.10. Hellir. Kvennamót. 31.10. TR. Hausthraðskákmót. Daði Örn Jónsson Hannes Hlífar Stefánsson Margeir Pétursson Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 ♦ Simi 581 3300 Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ Fákafeni 9 Reykjavík Sími 568 2866 mbl.is _ALLTXK/= enTH\SA£J rjÝTT Þakrennur og rör úr Plastisol- vöröu stáli. Heildarlausn á þakrennuvörnum í mörgum litum. A SBBA BLIKKÁS hf Símar 557 2000 og 557 7100 Skemmuvegi 36 Bleik gata
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.