Morgunblaðið - 09.10.1999, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1999 59
UMRÆÐAN
Ofvöxtur
í Efstaleiti
HUGMYNDIR
ráðamanna Ríkisútv-
arpsins um að hleypa
af stokkunum annarri
sjónvarpsstöð á veg-
um RUV hafa vakið
verðskuldaða furðu.
Fyrir nokkrum árum
lýsti fyrrverandi þing-
maður Alþýðubanda-
lagsins hugmynd sinni
um að ríkisvaldið hæfi
útgáfu dagblaðs, Rík-
isdagblaðsins, til að
sporna við áhrifum
einkaaðila í fjölmiðla-
heiminum. Nýlegar Borgar Þór
hugmyndir ráða- Einarsson
manna RÚV eru af
sama sauðahúsi, nema kannski enn
fáránlegri.
RUV stendur nú að rekstri
þriggja fjölmiðla og verða allir við-
tækjaeigendur að reiða af hendi
nauðungargjald til stofnunarinnar,
hvort sem þeir nýta
sér þjónustu hennar
eða ekki. Þetta á þó
ekki við, um starfs-
menn RUV, sem eru
undanþegnir gjaldinu
án lagaheimildar.
Nauðungargj aldið
dugar þó hvergi fyrir
rekstri báknsins og
sogar það árlega
hundruð milljóna til
viðbótar úr ríkissjóði.
Hagsmunum hvers
þjónar önnur ríkis-
sjónvarpsstöð?
í tilraun til að slá á
efasemdaraddir hafa
ráðamenn RÚV tekið fram að ekki
sé ætlunin að innheimta sérstakt
afnotagjald vegna nýju stöðvarinn-
ar heldur eigi auglýsingar að
standa undir rekstrinum. M.ö.o.
ætlar ríkisvaldið að hella sér út í
harða samkeppni við einkaaðila um
auglýsingatekjur. Er tilgangurinn
kannski að græða á öllu saman?
Það yrði í það minnsta merkilegur
„árangur" af þessu brölti öllu sam-
Fjölmidlun
Hugmyndin um aðra
ríkissjónvarpsstöð, seg-
ir Borgar Þór Einars-
son, styrkir málflutning
þeirra sem vilja að ríkið
hætti fjölmiðlarekstri
sínum með öllu.
an ef með því yrði tryggt, að aðeins
ein einkarekin sjónvarpsstöð fengi
þrifist. Brölt báknsins yrði nefni-
lega til þess eins að leggja stein í
götu þeirra einkaaðila sem hafa
hug á að koma á raunverulegri
samkeppni á íslenskum sjónvarps-
markaði.
Málsvari einkaframtaksins
á villigötum
Stundum er sagt að ástandið
þurfi að versna til þess að það fari
að batna. Vonandi á það við um of-
angreindar hugmyndir forráða-
manna RÚV um aðra
ríkissjónvarpsstöð. Rétt eins og
hugmyndin um Ríkisdagblaðið
sýndi fáránleika ríkisrekinna fjöl-
miðla í hnotskurn, styrkir hug-
myndin um aðra ríkissjónvarpsstöð
málflutning þeirra sem vilja að rík-
ið hætti fjölmiðlarekstri sínum með
öllu.
Um þessar mundir eru málefni
RÚV á könnu Sjálfstæðisflokksins,
sem frá stofnun hefur verið máls-
vari einkaframtaks. Það skyti afar
skökku við ef við þær aðstæður yrði
’þrengt að einkaaðilum með út-
þenslu ríkisbáknsins RÚV. Sala
fyrirtækisins í heild væri nær
væntingum.
Höfundu r er stjómarmaður
íHeimdalli, f.u.s. íReykjavík.
...cifsláttur
þrjátíu
...af töskum o% skóm frá :
GUE S S
VERSACE
ASSESSORIES
eona
KRINGLUNNI • SÍMI 588 7230
WWW.LEONARD.IS
Af „sönnum“
Islendingum
DAVÍÐ Oddsson,
forsætisráðherra og
formaður Sjálfstæðis-
flokksins, er óum-
deildur þjóðarleiðtogi.
Honum hefur tekist að
rísa yfir dægurþras og
deilur. Til hans er litið
þegar önnur stjóm-
völd ganga á rétt al-
mennings og misbeita
valdi sínu. Þá kemur
Davíð Oddsson og
segir af myndugleik,
„svona gera menn
ekld“.
Ég hefi orðið þess
mjög var í þeirri
„galdrahríð" sem dun-
ið hefur á okkur umhverfisvemdar-
sinnum á undanfornum mánuðum
að mai'gir hafa lifað í von um að Da-
Umhverfismál
Öfgastimplinum, segir
Hrafnkell A. Jónsson,
var slett framan í okkur.
víð Oddsson skakkaði þann leik.
Ekki endilega með þeim hætti að
hann féllist á rök okkar sem viljum
ganga um náttúru landsins af þeirri
virðingu sem Islandi sæmir, heldur
myndi hann hasta á þær fasísku til-
hneigingar sem endurspeglast hafa
í málflutningi virkjunarsinna, þar
sem krafan um atvinnuofsóknir og
skoðanabann hafa risið hæst í rök-
um manna. Það var því með eftir-
væntingu sem ég kynnti mér stefn-
uræðu forsætisráðherra sem hann
flutti nú í þingbyrjun.
Vissulega fjallaði
Davíð Oddsson um
umhverfismál, en ekki
með þeim hætti sem
ég hafði vænst. Ég
hafði ekki gert mér
vonir um að hann
myndi lýsa stuðningi
við lögformlegt mat á
umhverfisáhrifum
Fljótsdalsvirkjunar,
en að hann sem for-
sætisráðherra reyndi
að bera sáttaorð á milli
þeirra sem deilt hafa
um virkjunar- og um-
hverfismál að undan-
förnu. Það var þó öðru
nær. Umhverfisverndarfólki var
sendur tónninn. Öfgastimplinum
var slett framan í okkur, og þar
með tekið undir með þeim sem vað-
ið hafa uppi með svívirðingar og
hótanir um atvinnumissi og kröfu
um brottrekstur úr trúnaðarstörf-
um. Forsætisráðherra talaði um
„sanna umhverfisverndarstefnu".
Pétur sálugi Þríhross stofnaði í
Sviðinsvík Félag sannra Islend-
inga. Austfirsk Þríhross stofnuðu
sitt félag fyrir nokkru. Er ekki
sjálfgefið að Davíð Oddsson, búinn
að uppgötva „sanna“ umhverfis-
verndarmenn, beiti sér fyrir stofn-
un Félags sannra Islendinga, hann
getur þá gert orð Péturs Þríhross
að sínum „þá skal ég sýna þeim það,
að ég skal koma af stað þeim and-
legu öflum hér á Sviðinsvík, að þeir
skulu ekki þurfa að binda um
skeinu“.
Höfundur er hcraðsskjalavörður.
Hrafnkell
A. Jónsson
SJOMANNASKOLINN
Stýrimannaskóli íslands
Sjúkrahús Reykjavíkur
■t-fe Slysavarnaskóli sjómanna
1. Sjúkra- og slysahjálp - lyfjakista - samstarfsverkefni
Námskeið fyrir skipstjórnarmenn verður haldið í Stýrimanna-
skólanum, um borð í Sœbjörgu og Slysa- og bráðamóttöku
Sjúkrahúss Reykjavíkur. Kennarar eru lœknar, hjúkrunarfrœð-
ingar og leiðbeinendur Slysavarnaskólans. Samhliða nám-
skeiðinu verða gengnar vaktir á bráðamóttöku Sjúkrahúss
Reykjavíkur.
Námskeið verða haldin 25.-27. október, 22.-24. nóvember
og 20.-22. desember.
Þátttakendur mœti í Stýrimannaskólann kl. 9.00.
Verð kr. 40.000.
2. GMDSS-fjarskiptanámskeið:
25. okt.-3. nóv. 15. nóv.-24. nóv. 30. nóv.-9. des.
Hafið samband við skrifstofu Stýrimannaskólans.
3. GPS fyrir sjómenn eða útivistarfólk
Tvö kvöld
Verð kr. 6.000.
4. Sjóvinna, splœs og netabœtingar
Verð kr. 10.000.
5. 30 rúmlesta námskeið
Vomámskeið hefst 10. janúar og lýkur 15. mars.
Innritun hafin.
Innritun í Stýrimannaskóiann í Reykjavík - skipstjórnamám -
vorönn.
(Sjávarútvegsbraut fyrir byrjendur - áfanganám).
Inntökuskilyrði í Stýrimannaskólann í Reykjavík er lok
grunnskólaprófs.
Innritun á námskeið og aðrar upplýsingar á skrifstofu Stýrimanna-
skólans frá kl. 8.00-14.00 í síma 551 3194, fax 562 2750.
Skólameistari