Morgunblaðið - 02.12.1999, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 13
FRÉTTIR
Nýjar heimildir um Moskvudvöl Stefáns Pjeturssonar 1933-1934 í bók Arnórs Hannibalssonar
STEFÁN Pjetursson, fyrrverandi
þjóðskjalavörður og ritstjóri Alþýðu-
blaðsins, mátti sennilega þakka fyrir
að hreinsanir Stalíns höfðu ekki haf-
ist fyrir alvöru í Sovétríkjunum í júlí
1934 þegar Stefán var rekinn úr
Kommúnistaflokknum, að því er
fram kemur í nýrri bók Arnórs
Hannibalssonar prófessors, Moskvu-
línan. Er það niðurstaða Ai-nórs að
óvíst sé að Stefán, sem var staddur í
Moskvu á þessum tíma, hefði sloppið
lifandi frá Sovétríkjunum ef brott-
rekstur hans úr flokknum hefði kom-
ið til nokkru síðar.
Frá för Stefáns (1898-1987) til
Moskvu 1933 hefur verið sagt áður
en hann var boðaður þangað af Kom-
intern, Alþjóðasambandi kommún-
ista, í því skyni að sjá villu síns vegar.
Hafði Stefán þá snúist gegn fyrir-
mælum Sovétstjórnar um að litið
skyldi á jafnaðarmenn sem höfund-
andstæðing kommúnista, enda væru
þeir höfuðstoð auðvaldsins á íslandi.
I bók Arnórs er hins vegar stuðst
við áður ókönnuð skjöl úr sovéskum
skjalasöfnum sem veita nokkru skýr-
ari mynd af dvöl Stefáns í Moskvu
1933-1934 og umfjöllun yfírvalda
Komintern um málefni Stefáns. Skjöl
þessi leiða m.a. í ljós að forysta Kom-
intern taldi Stefán alls ekki gera
nægilega yfirbót meðan á Moskvud-
völ hans stóð og var honum veitt
„ströng viðvörun" í júní 1934. Kom
jafnframt til tals að senda hann til
„framleiðslustarfa“ í Sovétríkjunum,
Mátti þakka fyrir að
hreinsanir Stalíns voru
ekki hafnar fyrir alvöru
sem að sögn Arnórs getur vart þýtt
annað en senda hafi átt Stefán í Gú-
lagið.
Stefán var því næst rekinn úr
Kommúnistaflokknum, opinberlega
stimplaður flokksfjandi, villutrúar-
maður og tækifærissinni og gefur
Arnór í skyn í bók sinni að hefðu
þessir atburðir átt sér stað nokkru
seinna - en Stalín var í júlí 1934 ekki
enn farinn að láta myrða kommún-
ista í hrönnum - hefði Stefán ef til vill
ekki þurft að kemba hærurnar.
Stefán slapp hins vegar frá Sovét-
ríkjunum í tæka tíð með aðstoð
danska sendiráðsins í Moskvu og
gerðist síðar hatrammur andstæð-
ingur íslenskra kommúnista.
Arni Bergmann
á launum
Bók Ai'nórs sýnir glöggt fram á að
yfirmenn sovéska kommúnista-
flokksins í aðalstöðvum Komintern í
Moskvu fylgdust grannt með málum
Eimskip stefnir
Sj ómannafélagi
Reykjavíkur
EIMSKIPAFELAG Islands
hefur stefnt Sjómannafélagi
Reykjavíkur fyrir Héraðsdóm
Reykjavíkur vegna aðgerða sem
Sjómannafélagið hafði uppi er
það stöðvaði losun á leiguskip-
inu Hanseduo í Straumsvík í
október á síðasta ári. Hérað-
sdómur Reykjaness hafði áður
staðfest lögbannskröfu stefn-
anda og ISAL á þeim forsend-
um að aðgerðir stefnda hefðu
verið með öllu löglausar.
„Við viljum fá úr því skorið
hvort þeir (Sjómannafélag
Reykjavíkur) séu bótaskyldir
fyrir því tjóni sem þeir valda,“
sagði Þórður Sverrisson, fram-
kvæmdastjóri flutningasviðs
Eimskips. „Við teljum því rétt
að láta reyna á þetta og við töld-
um reyndar að Sjómannafélagið
hygðist láta af þessum aðgerð-
um eftir að þær voru taldar
ólöglegar í Straumsvík."
Að sögn Þórðar var ákvörð-
unin um að stefna Sjómannafé-
laginu tekin í kjölfar þeirra at-
burða sem hafa átt sér stað á
siðustu dögum og vikum, er Sjó-
mannafélagið og Alþjóðasamb-
and flutingaverkamanna stöðv-
aði alla vinnu við flutningaskipið
Nordheim.
Þórður sagði mikilvægt að fá
úr því skorið hvort Sjómannafé-
lagið væri bótaskylt, þar sem
tjón af völdum aðgerða þess
næmi milljónum króna.
Málið verður þingfest í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur þann 14.
desember.
á íslandi og kölluðu leiðtoga ís-
lenskra kommúnista gjaman á sinn
fund þegar þeim bauð svo við að
horfa. Fóru m.a. þeir Brynjólfur
Bjarnason og Einar Olgeirsson
reglulega austur til að gefa skýrslur
um starfið á Islandi og taka við fyrir-
mælum Komintem.
Ennfremur rekur Amór efni skráa
í skjalasafni Komintern um sam-
skipti við Island en aðgangur að
skjölunum sjálfum er enn bannaður.
Kemui’ fram í þessum spjaldskrám
að árið 1959 var samþykkt á fundum
Komintem að að sovéska dagblaðið
Pravda skyldi gi'eiða póst- og síma-
kostnað Árna Bergmanns, fréttarit-
ara Þjóðviljans í Moskvu, og að fram-
kvæmdastjóm sovéska Rauða
krossins og Rauða hálfmánans skyldi
greiða Árna mánaðarlega laun að
upphæð 2000 rúblur, auk eingreiðslu
að upphæð 3000 rúblur. Átti Ámi
einnig að fá til afnota tveggja her-
bergja íbúð með húsgögnum.
Presturinn í
Holti hugsan-
lega færður til
KARL Sigurbjörnsson, biskup ís-
lands, hefur sent frá sér fréttatil-
kynningu vegna ágreiningsmála í
Holtsprestakalli í Ónundarfirði. í
tilkynningunni segir:
„Biskup haimar þá erfiðleika sem
em í sóknum Holtsprestakalls og
lítur ástand mála alvarlegum aug-
um. Unnið er að því að koma málum
í viðunandi horf eins og nokkur kost-
ur er og eins fljótt og unnt er, svo
safnaðarstarf og helgihald geti orðið
með eðlilegum hætti um aðventu og
jól. I því sambandi kemur til greina
að flytja sr. Gunnar Björnsson til í
starfi tímabundið.
Þá hefur biskupsembættinu bor-
ist bréf er sr. Gunnar sendi prófasti í
ísafjarðarprófastsdæmi vegna fund-
ar prestanna þar 15. nóvember sl.
Bréfið er til athugunar, m.a. hvort
það gefi tilefni til sérstakra aðgerða.
Biskupsembættið telur ekki rétt
að tjá sig frekar um þetta viðkvæma
mál að sinni.“
Undir fréttatilkynninguna ritar
Guðmundur Þór Guðmundsson, lög-
maður kirkjuráðs, fyrir hönd bisk-
ups íslands.
Það eru komnir
Jólapakkar
frá Karin Herzog...
...hvað ætli sé í þínum?
...fersklr vlndar 1 umhirðu húðar
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Kynningar í vikunni:
Fimmtudagur 2. desember:
Lyf og heilsa, Kringlunni kl. 14-18.
Hafnarfjarðarapótek kl. 14-18.
Apótekið Smáratorgi kl. 14-18.
Föstudagur 3. desember:
Apótekið Smáratorgi kl. 14-18.
Lyf og heilsa, Melhaga kl. 14-18.
Hagkaup Akureyri kl. 14-18.
Laugardagur 4. desember:
Hagkaup Smáratorgi kl. 13-17.
Hagkaup Kringlunni kl. 13-17.
Hagkaup Akureyri kl. 13-17.______
Karin Herzog snyrtistofan býður upp á 20% afsláttj
af súrefnis-ávaxtasýrumeðferð. Sími 698 0799
Gorbatjov fjallaði
um mál Ragnars Arnalds
Einnig kemur fram í spjaldskrám
þessum að í mars 1979 samþykkti
Komintern að bjóðá skyldi Ragnari
Arnalds, sem þá var mennta- og sam-
gönguráðherra, til Sovétríkjanna og
átti menningarmálaráðuneyti Sovét-
ríkjanna að greiða kostnaðinn. Vekur
athygli að um þetta mál fjallaði með-
al Mikhaíl nokkur Gorbatjov, síðar
leiðtogi Sovétríkjanna.
Ragnar þáði ekki þetta né önnur
slík boð og sagði hann í samtali við
Morgunblaðið í gær að það hefði ver-
ið stefna Alþýðubandalagsins alveg
frá stofnun 1968, að rjúfa flokksleg
tengsl við valdaflokka þeirra ríkja
sem stóðu að innrásinni í Tékkóslóv-
akíu. Einstaklingum hefði þó vita-
skuld verið frjálst að fara til Sovét-
ríkjanna og það hefðu einmitt margir
gert, ekki aðeins liðsmenn Alþýðu-
bandalagsins heldur einnig annarra
flokka.
Sagði Ragnar jafnframt að þótt
hann hefði ekki þekkst boðið hefði svo
sem ekkert mælt á móti því að hann
færi til Sovétríkjanna sem ráðherra,
það hefðu margir aðrir gert, og fræg-
ust hefði för Geirs Hallgrímssonar,
fyrrverandi forsætisráðherra, verið.
Leyniskjöl um heimsókn
Svavars Gestssonar
Loks vekur nokkra athygli í bók
Amórs að í spjaldskrá Komintern er
boð til handa Svavari Gestssyni, þá-
verandi heilbrigðis- og félagsmála-
ráðherra, að koma til Sovétríkjanna í
júní 1981 flokkað sem „algjörlega
leynilegt" skjal, en kostnaðinn við
komu hans skyldi Ríkisnefnd Sovét-
ríkjanna um vinnumál greiða.
Svavar sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að þama hefði verið um
opinbera heimsókn að ræða, um hana
hefði verið fjallað í íslenskum dag-
blöðum á sínum tíma og ekkert óeðli-
legt hefði verið við hana. Vísaði hann
í því sambandi til þess að t.d. segði
Steingrímur Hermannsson, fyrrver-
andi forsætisráðherra, frá sambæri-
legri ferð í nýlegri ævisögu sinni.
di ag< i
L TI LBC ME3 i
EURO SKO
Kringlunni 8-12, sími 568 6211
RR skór, Skemmuvegi 32, sími 557 5777
Skóhöllin, Bæjarhrauni 16, sími 555 4420