Morgunblaðið - 02.12.1999, Side 18

Morgunblaðið - 02.12.1999, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Ágústa Hrönn Kristinsdóttir Signrbjörg, Sigurborg og Harpa ánægðar með matínn, en þær eru í 4. bekk og hefð er fyrir því að stúlkur mætí í upphlut eða peysufötum á árshátíð skólans og piltar í íslenskum hátiðarbúningi eða smóking. „Arshátíð aldarinn- ara í Menntaskól- anum á Akureyri ÁRSHÁTÍÐ Menntaskólans á Akureyri var haldin í Iþrótta- höllinni nýlega og tóku á átt- unda hundrað manns þátt í há- tíðinni. Einkennisorð hátíðar- innar voru „Árshátíð aldarinn- ar“ og var höllin skreytt sam- kvæmt því með vísunum til minnisverðra tíðinda á öldinni auk þess sem lögð var áhersla á stórmerki á öld bilsins, geini- ferðanna og farsímans. I efri sal var svo dregið upp sýnis- horn af klæðaburði á öldinni. Um árabil hefur það verið sjálfsögð regla og metnaðarmál nemenda skólans að árshátíð þeirra sé glæsileg samkoma þar sem prúðbúið fólk skemmtir sér konunglega án áfengis. Veislugestum var boðið upp á margréttaðan hátíðarmat af hlaðborði við undirleik fjöl- margra nemenda sem léku létt- klassíska tónlist. Nemendur gengu um beina undir styrkri stjórn yfirþjónsins, sem var Jó- hannes Garbíel-Rios Kristjáns- son nemandi í 3. bekk. Veislu- stjóri var Isafold Helgadóttir rit- ari stjórnar Hugins, skólafélags MA, Inspector Scholae, Steinn- unn Vala Vigfúsdóttir, flutti há- tíðarræðu, Heiður Hrund Jóns- dóttir flutti minni karla og Stef- án Eiríks Stefánsson minni kvenna. Þá var boðið upp á fjöl- breytta dagskrá, kvartettsöng, dansflokkur sýndi Afrikudansa, norður-íslenskt rapp var meðal atriða, stuttir leikþættir voru fluttir þar sem farið var vítt og breitt um öldina og loks var sýnd framtíðarkvikmynd um MA næsta árþúsund. Margir tugir nemenda sömdu, æfðu og fluttí þessi atriði með glæsibrag. Loks var dansað á tveimur stöðum, gömlu dansarnir og samkvæmisdansar voru stignir í efri sal við undirieik Þuríðar formanns og hásetanna en í neðri sal lék hljómsveitin Milljónamæringarnir með söngvurunum Bjarna Arasyni og Páli Óskari Hjálmtýssyni. Þjóðbúningaskartið fest á mynd, frá vinstri, Ágústa, Lára, Anna Margrét og Berglind voru skrautbúnar á árshátíðinni. Langt er síðan karlakvartett hefur starfað við MA, en í þessum Kenwood-kvartett eru Sigurður Ágúst Einarsson, Hákon Daði Hrcinsson, Ólafur Haukur Sverrisson og Heimir Gunnarsson. Félagarnir í 3VX komnir í sparifötin og eru að leita að sparibrosinu fyrir myndatöku á árshátíðinni. Morgunblaðið/Kristjana Hrönn Ásbjörnsdóttir Kór MA söng íslensk lög, gömul og ný, í nýjum útsetningum undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar. Nýherji og Nett með samstarfssamning SAMNINGUR um samstarf tölvu- fyrirtækjanna Nýherja og Nett á Ákureyri hefur verið undirritaður og er hann í beinu samhengi við yf- irlýsta stefnu Nýherja að ná víð- tæku samstarfí við sölu- og þjón- ustufyrirtæki utan höfuðborgar- svæðisins. Stefna Nýherja er að ná þannig samningum við fyrirtæki vítt og breitt um landið án þess að kaupa hlut í fyrirtækjunum og stækkar nú ört hópur þeirra sem eiga slíkt samstarf. Hlutverk Nýherja er fyrst og fremst að bjóða upp á áhugaverða valkosti og lausnir hjá fyrirtækjum og stofnunum á tilteknu svæði til ávinnings í rekstri. Ráða við stærri verkefni Forsvarsmenn Nett ehf. segja samninginn efla þjónustu íyrirtæk- isins, það geti tekið að sér stærri verkefni og boðið stærri og betri lausnir og þannig tekið þátt í um- fangsmeiri útboðum en áður. Möguleiki skapist nú á því að kalla til tæknimenn frá Nýherja norður yfir heiðar ef á mannskap þurfi að halda til að sinna stórum verkefn- um. Einnig stendur aðstoð starfs- manna Nett Nýherja til boða vegna verkefna syðra. Nett kappkostar að bjóða upp á góðan tölvu- og upplýsingabúnað og veita góða tölvu- og netþjón- ustu. Hjá fyrirtækinu starfa nú 6 manns á fiestum sviðum tölvu- tækninnar, en starfseminni er skipt í þrjú svið; tölvu- og netþjón- ustu, verkstæði og tölvuverslun. Starfsmenn annast einnig ráðgjöf, heimasíðugerð, tækjaleigu og tölvulagnir. Þjónusta tengd Netinu er meginþáttur starfseminnar og eru mörg stór fyrirtæki á Norður- landi tengd fyrirtækinu auk á ann- að hundrað smærri fyrirtækja. Verslun Nett við Furuvelli 13 á Akureyri hefur verið stækkuð og þar býðst nú meira vöruúrval en áður. Tónlistarskólinn Tvennir jólatónleikar JÓLATÓNLEIKAR strengja- deildar Tónlistarskólans á Akur- eyri verða haldnir í Glerárkirkju laugardaginn 4. despmber og hefj- ast þeir kl. 14. Á tónleikunum koma fram strengjasveitir skólans sem eru þrjár og Suzuki-samspils- hópur. Stjómendur eru Anna Pod- hjaska, Guðmundur Óli Gunnars- son og Ömólfur Kristjánsson. Sama dag kl. 16 verða jólatón- leikar Blásaradeildar einnig haldn- ir í Glerárkirkju. Á þeim tónleikum koma fram málmblásarakvintett, blokkflautusveit, blásarasveit skól- ans og Lúðrasveit Akureyrar. Stjómendur em Bjöm Leifsson, Helgi Þ. Svavarsson, Hjálmar Sig- urbjörnsson og Jón Halldór Finns- son. ------------- Aðventu- kvöld í Glæsi- bæjarkirkju AÐVENTUKVÖLD verður haldið í Glæsibæjarkirkju næstkomandi sunnudagskvöld, annan sunnudag í aðventu, 5. desember og hefst það kl. 20.30. Kór kirkjunnar syngur nokkur aðventu- og jólalög undir stjórn Birgis Helgasonar organista, lesin verður jólasaga, fermingarbörn flytja helgileik og telpur úr Þela- merkurskóla syngja um heilaga Lúsíu. Ræðumaður verður Hjalti Jón Sveinsson skólameistari Verk- menntaskólans á Akureyri. Eftir athöfnina selja fermingarböm frið- arljós frá Hjálparstarfi kirkjunnar. ------------- Nemendur Myndlistarskólans Brúarkynning NEMENDUR málunardeildar Myndlistarskólans á Akureyri kynna sýnishorn verka sinna á Teríunni næstu tvo mánuði en kynningin ber yfirskriftina „Brúar- kynning“. Nafnið á kynningunni vísar til þeirra tímamóta sem nú eiga sér stað og er hugsuð sem brú milli árþúsundanna. Verk á sýningunni eiga eftirtald- ir nemendur: Halldóra Helgadótt- ir, Arnfríður Arnardóttir, Sunna Sigfríðardóttir, Tinna Ingvarsdótt- ir, Bára Rúnarsdóttir, Ingunn St. Svavarsdóttir, Jóhanna Björk Benediktsdóttir og Þrándur Þórar- insson. Aðalkennarar á haustönn hafa verið þau Guðmundur Ár- mann og Rósa Kristín. -----♦-♦-♦--- Opið hús hjá Samlaginu TVÖ ár em um þessar mundir liðin frá opnun Samlagsins og í tilefni af því bjóða félagar alla velkomna í listhúsið sunnudaginn 5. desember frá kl. 14 til 18. Félagar í Samlaginu vilja endur- gjalda góðar mótttökur gesta og viðskiptavina með því að bjóða al- menningi að heimsækja listhúsið og taka þátt í að steypa kerti og eða búa til jólapappír á sunnudag- inn. Heitur jóladrykkur og bollur verða á staðnum. -----♦-♦-♦--- Hj álpræðisherinn Samkoma SAMKOMA verður hjá Hjálpræð- ishemum á Akureyri föstudags- kvöldið 3. desember kl. 20. Kom- andör Margareth og Edward Hannevik frá Noregi ásamt deild- arstjóranum Knut Gamst stjórna og tala. i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.