Morgunblaðið - 02.12.1999, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 02.12.1999, Qupperneq 28
28 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Öeirðir í Seattle á fyrsta degi ráðstefnu Heimsviðskiptastofnunarinnar Miðborgin eins og vígvöllur yfír að líta Seattle. Reuters, AP, AFP, Daily Telegraph. Reuters. Sumir mótmælendur lokuðu götum í miðborginni með því að setjast nið- ur. Minnir það og raunar fólkið sjálft á mótmælaaðgerðir á árum áður, t.d. á dögum Víetnamstríðsins, enda telja sumir, að nú hafi hinir ólfldeg- ustu hópar fundið sér sameiginlegan óvin f Heimsviðskiptastofnuninni. MÓTMÆLI, óeirðir og skemmdar- verk einkenndu fyrsta dag ráðstefnu Heimsviðskiptastofnunarinnar, WTO, í Seattle í Bandaríkjunum í fyrradag. Varð að aflýsa opnunarat- höfninni vegna ástandsins enda var miðborgin líkust vígvelli eða þar til þjóðvarðliðið var kallað á vettvang. Talið er, að nokkrir tugir þúsunda manna hafi komið til Seattle til að mótmæla auknu viðskiptafrelsi, en þeir, sem tóku þátt í skrflmenn- skunni, voru í miklum minnihluta. Aðrir hörmuðu aðfarimar og ætluðu sumir að taka þátt í að þrífa miðborg- ina í gær. Lögreglan í Seattle var óviðbúin of- beldinu og fékk ekki við neitt ráðið þegar hópar manna fóru um mið- bæinn með rapli og ránum. Brotist var inn í verslanir og þær rændar, kveikt í ruslatunnum, bflum velt eða þeir stórskemmdir með öðram hætti. „Hverra heimur? Okkar heimur. Hverra stræti? Okkar stræti" var kjörorð þeirra, sem fóra herskildi um miðborgina, og létu þeir ekki undan síga fyrr en Gary Locke, ríkisstjóri í Washingtonríki, kallaði til tvær deild- ir úr þjóðvarðliðinu. Talsmenn ýmissa samtaka, sem ] andvíg era auknu viðskiptafrelsi, sögðu, að ofbeldismennirnir væra ekki úr þeirra röðum, og ætluðu sum ! þeirra að taka þátt í þrífa til í mið- | borginni í gær. Fjötrar eða frelsi Þeir, sem mótmæla auknu við- skiptafrelsi, segja, að það vinni gegn umhverfinu, gegn hagsmunum vinn- andi fólks og einkanlega gegn þróun- arríkjunum. Mike Moore, forseti WTO, sagði hins vegar, að mótmæl- endur væra verstu óvinir fátæks fólks um allan heim. Það væri oft fátækt vegna þess eins, að það væri í fjötram viðskiptahafta. Þótt opnunarathöfninni hafi verið aflýst komu viðskiptaráðherrar ríkj- anna 135, sem aðild eiga að WTÖ, saman í fyrradag til að ræða um nýjar viðskiptaviðræður. Moore kvaðst vera fullviss um, að ráðstefnan, sem stendur út allan desember, myndi skila góðum árangri en um það hafa þó margir miklar efasemdir. Era ágreiningsefnin mýmörg, landbúnað- aimál, sjávarútvegsmál, rafeindaiðn- aðurinn og vinnumarkaðsmálin svo einhver séu nefnd, en mörg þróunar- ríkjanna vilja ekki taka upp neinar vestrænar viðmiðanir í vinnuvemdar- málum, til dæmis hvað varðar vinnu barna. Bandaríkin og ESB auka markaðsaðgang fátækra ríkja Dan Glickman, landbúnaðarráð- herra Bandaríkjanna, kvaðst þó bjai-tsýnn á, að semjast myndi um landbúnaðarmálin, og búist var við því í gær, að Bandaríkjastjórn myndi tilkynna, að aðgangur fátækustu ríkj- anna að Bandaríkjamarkaði yrði auk- inn. Aður hafði Evrópusambandið til- kynnt, að innflutningsgjöld á vörum frá 40 fátækustu ríkjunum yrðu felld niður. Sumir þingfulltrúanna áttu ekki orð til að lýsa hneykslan sinni á fram- ferði mótmælenda og þeir vora líka hneykslaðir á viðbúnaðarleysi yfir- valda. Voru viðbrögðin einna mest í Asíu, jafnt hjá fjölmiðlum sem al- menningi. Sundurlausir og sundurlyndir hópar Hóparnir, sem komu saman til að mótmæla auknu viðskiptafrelsi í Seattle, era af ýmsum toga og raunar börðust þeir stundum innbyrðis þeg- ar mest gekk á í fyrradag. Sumir höfðu umhverfisvernd í íyriiTÚmi, gengu um grímuklæddir með myndir af beinagrindum nauta og hvaia, en aðrir, til dæmis hópur verkamanna í stáliðnaði, kváðust vera komnir til að berjast fyiir vinnunni sinni. „Kína burt frá Tíbet“ var kjörorð eins hópsins og svo vora það þeir, sem sögðust vera að berjast fyrir réttind- um dýra um allan heim. Einn hópur- inn sagði, að stórfyrirtæki træðu á rétti einstaklinga og annar mótmælti skógarhöggi. Einna duglegastir við skemmdarverkin voru hins vegar grímuklæddir stjómleysingjar. Mótmæli og jafnvel óeirðir era ekki ný bóla í Bandaríkjunum en lítið hef- ur farið íyrir þeim á síðari áram. Að þeim skuli skjóta upp núna með þess- um hætti hefur verið skýrt með ýmsu. Ný kynslóð aðgerðasinna? Leiðtogar flestra mótmælasamtak- anna kenna til dæmis um „ofsafengn- um“ viðbrögðum lögreglunnar og einnig því, að í bland við mótmælend- ur hafi verið fólk, sem ekki hafi haft áhuga á neinu öðru en að gera ein- hvem óskunda. Aðrir mótmælendur telja hins vegar, að eftir margra ára eyðimerkurgöngu sé að koma fram ný kynslóð svokallaðra aðgerðasinna, fólks, sem sé tilbúið til að grípa til rót- tækra ráða í baráttunni fyrir hug- sjóninni, hver sem hún er. „Ungt fólk, X-kynslóðin eða hvað sem hún er kölluð, hefur ekki átt sér neitt baráttumál fyrr en kannski nú,“ sagði Christopher Krohn frá Kalif- omiu en hann er í hópi þeirra, sem telja að greiðari viðskipti jafngildi rányrkju í náttúranni. Landbúnaðar- málin erfiðust Einn talsmanna Evrópusamband- sins sagði í gær, að sýna yrði mótmæ- lendum í Seattle nokkum skilning, og það gerði einnig Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, sem kom til ráðstefn- unnar í gær. Ætlaði hann jafnvel að j eiga fund með fulltrúum þeirra en hann verður þó að reyna að þóknast j fleiram, viðskiptaráðherram hinna aðildarríkjanna og ekki síst banda- rískum bændum. A ráðstefnunni og í hugsanlegum viðræðum að henni lokinni verður mest tekist á um landbúnaðinn en Bandaríkin og hin rfldn 17 í Cairns- hópnum, samtökum ríkja, sem ílytja út mikið af landbúnaðarvöram, vilja afnema ríkisstyrki og draga smám saman úr innflutningsgjöldum af landbúnaðarafurðum. Talsmenn Evrópusambandsins era hins vegar varla til viðræðu um þessar kröfur og segja, að landbúnaðurinn sé alveg sér á parti og um hann geti ekki gilt sömu reglur og annan iðnað. A því máli eru einnig Japanir, Suður-Kóreumenn, Norðmenn og Svisslendingar. Til átaka kom einnig í London í gær í tilefni af WTO-ráðstefnunni en þá komu um 1.000 manns saman til að mótmæla kapítalisma. Tóku um 100 menn sig út úr hópnum og réðust gegn lögreglunni með grjótkasti og bareflum. Vora 40 handteknir og hafa fjórir þeirra verið ákærðir. Ráðuneytisstjdri utanríkisráðuneytisiiis á fundi WTO í Seattle Reiknar með eðlilegri fram- vindu þrátt fyrir mótmælin Kaupmannahöfn. Morgnnbladid. „UPPHAF ráðherrafundai-ins tafðist nokkuð vegna aðgerða mótmælenda, en ég á von á að fundir samningshópa um sérsvið verði með eðlilegum hætti. Mótmælendur hér skiptast í tvo hópa, annars vegar era það stærri samtök, til dæmis verkalýðs- samtök, sem era vel skipulögð og mótmæla friðsamlega. Hins vegar era svo margir smærri hópar ungs fólks, sem eru stríðsmálaðir, bijóta rúður, sprauta málningu á hús og láta á allan hátt mjög ófriðlega. Mótmæl- endur eru þó miklu færri hér en búist var við,“ sagði Sverrir Haukur Gunn- laugsson, ráðuneytisstjóri í utanrík- isráðuneytinu, í samtali við Morgun- blaðið snemma miðvikudagsmorguns að íslenskum tíma. Ráðherrafundur Heimsviðskipt- astofnunarinnar, World Trade Org- anisation (WTO), hófst í Seattle á vesturströnd Bandaríkjanna á þriðjudag. Sverrir Haukur sagði mótmælendur hafa verið með uppþot um morguninn og fram undir kl. 15, en þá hefði ráðstefnan loks verið sett. ,Á miðvikudeginum hittast samn- ingahópar á sérsviðum, þar sem með- al annars verður fjallað um landbún- aðarmál, markaðsaðgang og sjávarútvegsmál, en síðastnefnda sviðið leggja íslensk stjómvöld mikla áherslu á.“ ísland, Perú, Ástralía, Nýja Sjá- land, Filippseyjar, Bandarikin og Noregur hafa lagt fram tillögur um nauðsyn þess að afnema ríkisstyrki í sjávarútvegi. Ríkin vinna að því að koma tillögum sínum inn í lokayfir- lýsingu ráðherrafundarins. Halldór Asgrímsson utanrfldsráðherra kynnti tillögurnar á sameiginlegum blaðamannafundi í Seattle á mánu- dag, ásamt William M. Daley, við- skiptaráðherra Bandaríkjanna, og formanni World Wildlife Fund. Fyrir ráðherrafundinn í Seattle töldu margir ólíklegt að fundinum tækist að ganga frá umboði til WTO varðandi næstu skref til aukins frels- is í alþjóðaviðskiptum. Sverrir Hauk- ur sagði allt geta gerst. „Þegar , nefndimar fara að fjalla um sérsviðin i kemur skýrar í ljós hver staðan er,“ sagði hann. „Fyrsta ráðstefnudaginn var erfitt að átta sig á þessu, enda höfðu mótmælin traflandi áhrif.“ Mótmælendur vilja meðal annars að WTO taki mið af umhverfis- og verkalýðsmálum þegar samið er um aukið viðskiptafrelsi. Sverrir Haukur sagði þessa gagnrýni ekki nýja. „A mánudag var haldin sérstök upplýs- ingaráðstefna, þar sem öllum hags- munaaðilum, sem koma meðal ann- ars að umhverfismálum, atvinnu- og verkalýðsmálum, var boðin þátttaka. Framkvæmdastjóri WTO, Mike Moore, svaraði þar fjölda fyrirspurna um stöðu mála. í ráðstefnuskjölum WTO kemur líka skýrt í ljós, að stofn- unin lætur sig þessi mál varða. Þeir sem láta mest í sér heyra ættu að gefa sér tíma til að skoða þessi skjöl. En auðvitað er þetta gífurlega flókið mál, hérna eru 135 ríki að reyna að ná samkomulagi sem beinist fyrst og fremst að því að auðvelda samskipti á viðskiptasviðinu í framtíðinni." Gagnrýni ekki fyllilega réttmæt Sverrir Haukur sagði að á ráð- stefnunni yrði rætt um framtíðar- skipulag WTO. Hann sagði það sína skoðun að gagnrýni á þá leið, að starf stofnunarinnar væri ekki nógu gegn- sætt, ætti ekki fyllilega rétt á sér. „Menn vflja vissulega hafa meira gegnsæi og margt má laga í starf- seminni. Við komum hins vegar alltaf aftur að sama atriði. Innan WTO eru 135 rfld sem eiga mjög misjafna hagsmuni að verja.“ Sófar • stólar Svefnsófi Fedra 182.000,- kr. svefnsófar höfðatúni 12 105 reykjavík ser sími 552 6200 552 5757 hus gögn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.