Morgunblaðið - 02.12.1999, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 02.12.1999, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 37 Fjölbreytt dagskrá Reykjavfkur menningarborgar Evrópu árið 2000 kynnt FORMLEGA hefst dagskrá menningarborg- arársins árla morguns laugardaginn 29. janúar nk. Þá verður opnaður í Þjóðarbókhlöðunni kassi með gögnum úr fórum Erlendar í Unu- húsi, sem afhentur var Landsbókasafni innsig- laður eftir lát Erlendar 1947 með því skilyrði að hann yrði ekki opnaður fyrr en á árinu 2000. „Menn halda jafnvel að þetta séu dagbækur," •segir Þórunn og forvitnin leynir sér ekki. Síðan rekur hver listviðburðurinn annan fram á kvöld en þá verður blásið til þríþættrar tónlist- arhátíðar Tónskáldafélags Islands sem standa mun allt árið. Um alla borg verða menningar- stofnanir opnar fyrstu helgi menningarborgar- dagskrái-innar, listamenn bjóða gestum inn á vinnustofur sínar, hvítklædd vatnameyja svíf- ur á yfirborði sundlaugarinnar í Laugardal, Islandsviti ítalska listamannsins Claudio Parmiggiani verður vígður í nágrenni Reykja- víkur og drykkjarfontur á Hallgrímstorgi. Er hér þó aðeins fátt eitt nefnt af atburðum á dag- skrá þessarar fyrstu helgar. Heildardagskrá ársins, nærri hundrað síðna bók, verður send inn á hvert heimili á Islandi milli jóla og nýárs. Þórunn segir það raunar í fyrsta sinn sem dagskrá Menningarborgar er dreift til þjóðarinnar allrar, en sökum fámenn- isins hér á landi sé það gerlegt. Einnig er hægt að kynna sér dagskrána á vefnum www.reykja- vik2000.is og í Kringlunni, þar sem opnuð hef- ur verið upplýsingaveita Menningarborgarinn- ar. Þar verður jafnframt viðburðamiðstöð menningarársins þar sem dagskráin verður kynnt vikulega frá 22. janúar nk. Alls eru um 250 viðburðir á dagskrá ársins en þeir voru valdir úr um 400 dagskrárhugmyndum sem menningarborginni bárust. Tákn fyrir það besta sem evrópsk menning býr yfír Þórunn rifjar upp það fimm ára ferli sem nú er að baki frá því að ríkisstjórn Islands og Reykjavíkurborg sóttu í ársbyrjun 1995 um titilinn Menningarborg Evrópu árið 2000. „Síðla sama árs tilkynnir menningarmálaráð- herraráð Evrópusambandsins - nokkuð óvænt - að níu borgir hafi verið valdar, en það hafði aldrei verið gert áður frá því að byrjað var að útdeila þessum titli 1985. Þetta vakti mjög mikla athygli fyrst og í fyrrverandi menning- arborgum var mjög mikil óánægja með þessa ráðstöfun, þar sem mönnum fannst það taka slagkraftinn úr hugmyndinni að hafa menning- arborgirnar níu. Evrópusambandið réttlætti það þannig að með þessu móti væri verið að sýna breidd evrópskrar menningar. Þannig voru valdar þrjár borgir í norðri, Reykjavík, Bergen og Helsinki, þrjár í Evrópu miðri, Prag, Kraká og Brussel, og þrjár í Suður- Evrópu, Avignon, Bologna og Santiago de Compostela, sem tákn fyrir það besta sem evrópsk menning býr yfír. Það var skilyrði af hálfu Evrópusambandsins að þessar borgir ynnu mjög náið saman og að þær tækju þess- um titli með nákvæmlega sömu virðingu og hefðu þær verið einar,“ segir hún. „Eg held að fyrst um sinn hafí margir hugs- að með sér að það væri ekkert varið í að vera í þessum stóra hópi, við myndum bara hverfa. En eftir á að hyggja tel ég að það hefði verið erfítt og nánast ógerlegt að standa ein bak við þennan titil. Það er svo margs krafist af þeirri borg sem ber hann og ef hún er ein er öll at- hyglin þar og hvergi annars staðar. Við höfum einfaldlega ekki það fjármagn, þann mannskap eða það húsnæði sem til þarf til að standa ein undir slíku. Það má alveg líkja því við að taka á móti heilum Ólympíuleikum eða Eurovision," segir Þórunn, sem er á því að það hafi verið mjög mikið lán að Reykjavík skyldi lenda í hópi níu menningarborga. Hún viðurkennir reyndar að á fyrsta fundin- um sem hún sótti þegar hún var nýtekin við starfi stjórnanda menningarborgarinnar fyrir réttum tveimur árum hafi hún fengið á tilfinn- inguna að vera svolítið eins og krækiber í hel- víti. „Á þessum fyrsta fundi, sem var haldinn í Páfahöllinni í Avignon, féllust mér hendur. Þarna sat ég með öllum þessum karlahópi, eina konan í hópi stjórnenda og öll samskipti mjög flókin og þung í vöfum. Maður var alveg úti á túni og ég hugsaði með mér að við myndum aldrei komast inn í þetta. Eg fékk á tilfinning- una að við væium að verða á eftir, en þá vorum við ekki komin með neinn fjárhagsramma. Við þurftum sem sagt heldur betur að bretta upp ennarnar til að ná þessu. Við byrjuðum strax að undirbúa fjárhagsramma til þess að leggja til grundvallar við öflun fjár til verkefna og komum upp ákveðnu verklagi milli stjórnanda og stjórnar en það samstarf hefur gengið afar vel. Eg held að við höfum aldrei þurft að beita atkvæðagreiðslu. Varðandi fjármögnun hafði ég strax samband við forsætisráðherra og menntamálaráðherra og við ræddum um ákveðnar leiðir. Frá því að ríkið kæmi inn í verkefnið yrði sama fjármagn frá ríki og borg en borgin hafði ein staðið að verkefninu þar til ríkið kom inn. Síðla sumars 1998 var gengið frá Nýtt menningar- liugtak í verki Heildardagskrá Reykja- víkur menningarborgar Evrópu árið 2000 liggur nú fyrir. Að baki er fímm ára undirbúningsferli og áður en varir rennur árið langþráða upp með fjöl- breytilegri dagskrá sem teygir anga sína um land allt. Aí því tilefni hitti Margrét Sveinbjörns- dóttir að máli Þórunni Sigurðardóttur, stjórn- anda menningarborgar- innar, og komst að því að þar á bæ er unnið að því að skapa nýtt menningar- hugtak í verki. Morgunblaðið/Árni Sæberg þessu er ný menningarhugsun í verki, þar sem menningarhugtakið er miklu víðara og ekki eitthvað sem tilheyrir einhverjum ákveðnum hópum, heldur er lífsmáti. Kosturinn við að vinna svona verkefni hér á íslandi er að hér er svo stutt á milli manna og stutt á milli hópa. Við getum aukið samskiptin þarna á milli í stað þess að leggja eingöngu áherslu á listastofnan- ir og listviðburði sem stórum hluta þjóðarinnar finnst sér kannski ekki koma neitt sérstaklega mikið við. Auðvitað eru listastofnanimar horn- steinar dagskrárinnar. Allar listastofnanir rík- is og borgar eru með mjög metnaðarfulla og glæsilega viðburði en síðan koma alls konar verkefni önnur. Við tökum t.d. tómstundir inn í dagskrána, því tómstundir eru jú hluti af menningu og eiga eftir að skipta mjög miklu máli á næstu öld. Við höfum leitað eftir því að komast í samband við ýmsa hópa, sem annars væri kannski hætta á að yrðu útundan," segir Þórunn og nefnir sem dæmi skólabörn, eldri borgara, þroskahefta og íþróttafélög, að ógleymdum sveitarfélögum um allt land. „Það sem mestu máli skiptir er þessi mikla og al- menna þátttaka í dagskránni og þessi nýja og opna sýn á menningu. Við leggjum áherslu á nýtt menningarhugtak í verki,“ heldur hún áfrarn. Þó að hin formlega dagskrá ársins hefjist ekki fyrr en undir lok janúar verður menning- arborgarárinu 2000 fagnað um áramótin með hátíðarveislu í Perlunni. Að sögn Þórannar halda hinar borgirnar allar miklar veislur um áramótin. „Þær eru auðvitað haldnar í falleg- ustu húsunum á hverjum stað. Við eigum eng- ar hallir og ekkert tónlistarhús en hins vegar finnst okkur Perlan tilvalinn staður fyrir þessa hátíð. Perlan er á vissan hátt tákn fyrir Reykjavík og hún tengist líka mjög þema menningarborgarinnar, náttúraöflunum, svo okkur finnst mjög gaman að hafa þennan há- tíðlegasta hluta opnunarinnar þar. Þegar þjóð- ir sækja um svona titil verða þær að standa undir því þegar hið alþjóðlega kastljós beinist að þeim. Þannig að við viljum gera þetta hátíð- lega eins og allar hinar borgirnar munu gera.“ samningi ríkis, borgar og menningarborgar- innar en hann var undirritaður fyrir rúmu ári. Sá samningur byggir á því sem ég hafði lagt fram við stjórn í upphafi ársins, þ.e.a.s. að ríkið legði fram 235 milljónir, borgin 275 og menn- ingarborgin myndi sjálf afla 100 milljóna. Þessi áætlun hefur algerlega haldið og við vinnum alveg eftu henni, nema hvað við erum búin að afla aðeins meiri tekna en ráð var fyrir gert. Það hefur tekist mjög góð samvinna við at- vinnulífið, sem kom mjög duglega inn í verk- efnið og sömuleiðis hefur okkur gengið mjög vel að afla erlendra styrkja. Við fengum til að mynda stærsta styrk vegna ballettsins Bald- urs sem Norræni menningarsjóðurinn hefur nokkurntíma veitt,“ segir Þórann. Nú er beðið í ofvæni eftir svari frá CONNECT-sjóði Evrópusambandsins við umsókn um hæsta styrk vegna Radda Evrópu, kórs 90 ungmenna frá öllum menningarborgunum. Kórinn er viðamesta samstarfsverkefni menningarborga Evrópu árið 2000 og er stjórnað af M2000. Að sögn Þórannar er umsóknin vegna Radda Evrópu nú komin í lokaúrval hjá sjóðnum. Alls bárast um 400 umsóknir en einungis allt að 20 munu hljóta styrk. Fékk nákvæmlega það sem ég bað um „Það sem ég held að hafi verið okkar lán er að við gerðum þetta svo einfalt. Við voram komin í þá stöðu að það var annað hvort að stökkva á þetta eða hætta við. Og mér finnst það sýna mjög mikla framsýni hjá okkar ráða- mönnum að þeir skyldu taka svona ákveðið og fumlaust á þessu, vegna þess að um leið og við höfðum fjárhagsrammann gátum við farið að afla peninga og undirbúa dagskrá, sem við gát- um selt. Vegna þess að maður getur ekki feng- ið peninga til verkefna sem þessara ef maður hefur ekkert ákveðið í höndunum." Þórann leggur áherslu á að menningarborg- in Reykjavík sníði sér stakk eftir vexti. „Sann- leikurinn er sá að þó að við séum með lang- minnsta fjármagnið af öllum menningar- borgunum, þá hef ég litið svo á að við verðum að vinna við þær aðstæður sem við búum við. Ég fékk nákvæmlega það sem ég bað um - ég sótti ekki um meira og vildi ekki meira. Ef við hefðum verið með óheyrilegt fjánnagn eins og sumar borgirnar, jafnvel borgir sem era miklu fátækari en við, þá hefðu kröfurnar verið allt aðrar. Þá hefði líka verið miklu meiri hætta á timburmönnum á eftir. Það þýðir ekki að búa til dagskrá sem er óraunsæ og í fullkomnu ósamræmi við það sem menn hafa verið að gera og það sem menn munu gera áfram. Þá verður bara einhver ofmettun sem gerir það að verkum að þegar árið er á enda eru menn orðn- ir þreyttir á orðinu menning - og hvað þá list- viðburðum - en það gerðist í rauninni bæði í Stokkhólmi og Kaupmannahöfn.“ Borgimar níu fengu hver um sig ákveðið þema eða yfirskrift að vinna eftir og telur Þór- unn það mikla heppni að Reykjavík var gert að starfa undir merkjum menningar og náttúra. vStór hluti af verkefninu í heild er kynning á Islandi og vitanlega verður að vinna þá kynn- ingu í einhverjum samhljómi við það sem aðrir eru að gera. Það var tiltölulega auðvelt að nálg- ast atvinnulífið, vegna þess að náttúraöflin eru jú það sem við byggjum okkar atvinnu á, og menning og náttúra rímar líka vel við það sem menn leggja áherslu á þegar verið er að kynna ísland fyrir umheiminum," segir hún. Hún segir að allir hafi verið sammála um að menningarborgartitillinn hafi á sínum tíma gert mjög mikið fyrir ímynd Kaupmannahafn- ar út á við. „Hins vegar era ekki allir sammála um að það hafi gert svo mikið fyrir menningar- lífið í borginni," segir Þórann. Hún bendir á að bæði í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi hafi megináhersla verið lögð á listviðburði. „Það ákváðum við mjög snemma að gera ekki hér, því einhvem veginn er það ekki í samræmi við íslenskt samfélag. Það sem við viljum sjá út úr Menningarborgarárið hafíð með sundspretti á nýársdag I Perlunni á gamlárskvöld kemur fram í fyrsta sinn kórinn Raddir Evrópu ásamt Björk Guðmundsdóttur, undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Meðal annarra listamanna sem koma fram þetta kvöld er Kristján Jóhannsson og á miðnætti verður sérstæð flugeldasýning, þar sem skotið verður á loft níu stjörnum, táknum menningarborganna níu, í litum hverr- ar borgar fyrir sig. Eitt laganna með Röddum Evrópu og Björk verður framlag íslands til sjónvarpsþáttarins „2000 Today“, stærstu sjónvarpsútsendingar sem gerð hefur verið og áætlað er að muni ná til um tveggja milljarða áhorfenda. A nýársdag tekur kórinn þátt í bænastund fyrir friði ásamt biskupi íslands, herra Karli Sigurbjömssyni, í Hallgrímskirkju og verður bænastundinni útvarpað beint. A nýársdag verða svo nokkrar af sundlaug- um borgarinnar opnar og geta borgarbúar því hafið menningarárið með rösklegum sund- spretti og búið sig undir heils árs menningar- veislu sem hefst eins og áður sagði 29. janúar. Brugðið á leik með höfuðskepnurnar Morgunblaðið/Sverrir Guðni Franzson gaf forsmekkinn að Vindhátíð 2000. FORSKOT á sæluna var yfir- skrift kynningar á dagskrá Menningarborgarinnar, sem fram fór í Fjölskyldugarðinum í Laugardal í gær, að viðstödd- um fulltrúum þeirra 250 verk- efna sem verða á dagskrá árs- ins, stjóm og samstarfsaðilum Menningarborgarinnar. Þar var brugðið á leik með höfuð- skepnumar eld, jörð, vatn og loft, sem setja munu sterkan svip á menningarárið. Drjúg- ur snjór féll úr lofti meðan á dagskránni stóð og auðséð var að nærstaddir létu sér vel líka að fá heitt súkkulaði og lumm- ur að ylja sér á. Ávörp fluttu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri, sem einnig tendraði jólaljós í Húsdýragarðinum, Björn Bjarnason mennta- málaráðherra, Páll Skúlason, formaður stjórn- ar Menningarborgarinnar, og Þórann Sigurð- ardóttir, stjórnandi Menningarborgarinnar. Islenskir fulltníar Radda Evrópu sungu undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur, Ari Trausti Guðmundsson gerði tilraunir með spúandi eld- fjall og Guðni Franzson flutti brot úr tón- og dansverki sem hann og Lára Stefánsdóttir era að semja fyrir Vindhátíð 2000. Um annan tón- listarflutning sáu félagar úr Lúðrasveitinni Svani og ungir harmonikkuleikarar. Fulltrúar Landsmóts hestamanna 2000 komu ríðandi með fyrstu eintökin af dagskrárriti Menning- arborgarinnar og afhentu menntamálaráð- herra og borgarstjóra. Þá heiðruðu Grýla og Leppalúði gesti með nærvera sinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.