Morgunblaðið - 02.12.1999, Side 39

Morgunblaðið - 02.12.1999, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 39 LISTIR Gaman og alvara á Bildudal BÆKUR L j ð ð m æ li BÍLDUDALS GRÆNAR BAUNIR Gamanvísur og alvörumál eftir Hafliða Magnússon. Onnur útgáfa aukin og endurbætt. Vestfirska for- lagið 1999,235 bls. ÞEGAR ég var strákur að alast upp í þorpi norður í landi, voru í bænum tvö, þijú „gamanvísnaskáld". Þau ortu langa bragi af ýmsum tilefnum, kátlegum atburðum, árshátíðum o.þ.h. Mikla kátínu vöktu slíkir bragir einatt og voru jafnvel hápunktar sam- komunnar. Menn lærðu þessa bragi og úr sumum þeirra kann ég hrafl enn, sextíu áram síðar. Líkt þessu hygg ég hafi verið víða um land og er sjálfsagt enn að einhverju leyti, þó að eflaust sé það farið að breytast. Bílddælingar hafa ekki verið eftir- bátai- annarra hvað þetta varðar. Ætla má af bók þeirri, sem hér er kynnt, að þeir hafi verið sæmilega skemmtanaglaðir, haft auga fyrir skoplegum hliðum tilverannar, kunn- að að gera sér mat úr þeim og átt góða húmorista. Gamankviðlingahöf- und hafa þeir átt fágætan, prýðilega hagorðan, bráðfyndinn og líklega þann afkastamesta á landinu öllu. Það er Hafliði Magnússon, sem ég veit annars engin deili á. Fyrir ellefu ár- um kom út bók hans með sama nafni í 500 eintökum. Seldist hún hratt og vel, enda „mikið notuð til söngbrúks á skemmtunum og í partíum, einkum þai- sem gleðskapur nokkur hefur verið hafður um hönd með ljúfum veigum". Þessu trúi ég vel, því að textarnir eru liprir og léttir og flest lögin við þá alkunn og auðsungin. Bókin er þannig útgefin, að fyrstu 133 bls. eru hin „upprunalega bók“. Mörgum kviðlinganna fylgja skýring- ar og myndirTæpar 100 bls. bætast svo við í þessari útgáfu. Efni bókarinnar er einkar fjöl- breytilegt og því sannmæli, sem segir í foitnála fyrri útgáfu (hér prentað- ur): „Þetta er hluti af sögu þorps, séð í spéspegli og alvöruspegli". Og víst er um það, að hugmynd fær maður um lífið á Bfldudal af kviðlingum þessum. Mörg eru kvæði um einstaka menn, einstök gn'nkvæði og afmæliskvæði í léttum dúr, ársannálar, blaðaviðtöl í bundnu máli, þorrablótsbragir, báta- vísur, togarakvæði, bflakaup og brunavarnir, þorpslífið, ýmis kvæði um ástir og vín, danslagatextar, söngvar úr leikritum og söngleikjum, kosningabragir, laxveiðibragir, tölv- unámskeið. Eitt og eitt alvarlegt kvæði skýtur upp kolli inn á milli. Það fer ekkert á milli mála, að höf- undur þessai’a vísnamála er bráðvel hagmæltur - og stundum kviknai’ neisti skáldsins. Hann yrkir í hefð- bundnum stfl, einkum það sem til söngs er ætlað og á augljóslega auð- velt með að binda hugdettur sínar stuðlum í margs konar bragformi. Sumir texta hans hafa flogið víðar en um Bfldudal. Þeir hafa verið flutth’ í útvarp og svo er að sjá sem hann hafi stundum einnig samið lögin líka. Það er auðvitað einkenni þessa kveðskapar eins og annai’s af sama toga, að hann höfðar framar öðru til heimamanna, sem þekkja persónum- ar, sem um er fjallað og eru öllum að- stæðum og atvikum kunnugir. Fyrir þá tel ég víst að bókin sé skemmtilest- ur. Þar munu þeir fyrirhitta gamla kunningja. Sigurjón Björnsson Nýjar bækur • GARÐAR og Glóblesi eftir Hjört Gíslason er komin út í 14. sinn. Hún kom fyrst út árið 1962. I fréttatilkynningu segir: „Verk Hjartar Gíslasonar eru fyrir löngu orðin sígild meðal íslenskra barna- bóka. Þekktar eru bækur hans um Salómon svarta og bækurnar um Glóblesa gefa þeim ekkert eftir. All- ar geisla þær af lífsgleði og kátínu en boða einnig manngæsku og drengskap sem hverjum lesanda er hollt veganesti." Hér segir frá kaupstaðardrengn- um Garðari Hanssyni og folaldinu sem hann bjargar úr dauðans greip- um og gefur nafnið Glóblesi. Útgefandi er Skjaldborg. Halldór Pétursson teiknaði myndir. Bókin er 86 bls. prentuð og bundin í Singa- púr. Verð. 1.980 kr. • FEIGÐARDRA UMAR eftir Sidney Sheldon, í þýðingu Jóns Daníelssonar. Aðalsöguhetjan, Ashley Patter- son, hefur sterk- lega á tilfinning- unni að hún sé ofsótt og jafnvel í lífshættu. Af ein- hverjum ástæð- um lætur ofsækj- andi hennar þó ekki til skarar skríða. En í ná- grenni hennar eru fimm karl- menn myrtir á hroðalegan hátt. Að- stæður benda eindregið til að kona standi að þessum morðum. Grunur beinist að tveimur ungum, fallegum konum, Toni Prescott og Alette Pet- ers, en gallinn er sá að þær virðast hvergi vera til. Fimmta morðið verð- ur til þess að Ashley Patterson er handtekin og sönnunargögnin virð- ast ótvíræð. í kjölfar handtökunnar fylgja einhver sérstæðustu réttar- höld sögunnar. Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er 276 bls. Verð 3.480 kr. • VEIÐIGARPAR dýraríkisins eft- ir Bent Jörgensen, fyrrum forstöðu- mann dýragarðsins í Kaupmanna- höfn. Birde Paulsen teiknaði myndir. Gissur Ó. Erlingsson þýddi. Bókin segir frá mörgum rándýr- um, lifnaðarháttum þeirra og hvern- ig þau veiða sér til matar. Hér má meðal annars lesa um úlfinn sem veiðir í hópum, um mangann, snáka- banann snjalla, og um Ijónið, konung dýranna. Einnig um háhyrninginn, mesta rándýr á jörðu, og píranafisk- ana ógurlegu - og mörg fleiri dýr. Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er 436 bls., prentuð í Danmörku. Verð 1.480 kr. • VANDAMÁL Berts eftir Sören Olsson og Anders Jacobsson, er í þýðingu Jóns Daníelssonar. Þetta er níunda bókin um Bert. Bert er nú kominn á síðustu önn í skólanum eftir jólafríið. Lífið er stundum þungbært og mörg vanda- mál hvfla þungt á Bert. Til dæmis eiga allir kærustur nema hann. Helst vill hann fá Nínu aftur, jafnvel þótt hann þurfi að leggja sig í lífs- hættu. Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er 207 bls., prentuðí Singapúr. Verð 2.480 kr. Ford Transit 10-15 manna ♦ v farmurinn er fn k Greið leið inn, nóg pláss, góð sæti, öryggisbelti fyrir alla og sérhver hlutur á réttum stað. Þetta eru þeir kostir sem gera Ford að rétta bílnum þegar farmurinn er fólk. Útkoman er þægindi og öryggi, jafht fyrir ökumann sem farþega. Allir kostir við fjármögnun eru fyrir hendi, þ.á.m. rekstrarleiga. Nýttu þér þjónustu sölumanna okkar við að finna rétta bílinn og útbúa hann eftir þínu höfði. Briraborg Akureyri I Bílcy I Bctri bilasalan I Bilasalan Bilavík I Tvisturinn Tryggvabraut 5, Akureyri Búðareyri 33, RcyðarfirÖi Hrisraýri 2a, Selfossi Holtsgötu 54, Rcykjanesba: I Faxastig 36, Vcstmannacyjum simi 462 2700 | simi 474 1453 | sími 482 3100 | sími 421 7800 | sími 481 3141 Brimborg • Blldshöfða 6 • Slmi 515 7000 • www.brimborg.is Ford Econoline Club Wagon 12-15 manna brimborg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.