Morgunblaðið - 02.12.1999, Qupperneq 42
42 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Jolagjqjut i nr
Eiffinmenn os: unnustar
HRUND “ Gjafakortum að upphæð kr. 5.000,
Ve r s1u n &
snyrtistofa
eða meira fylgir ESTEÉ LAUDER taska
með snyrtivörum að andvirði kr. 4.900.
Grænatúni 1, Kópavogi, sími 554 4025
LISTIR
Sérhönnuð efni og
hlutir tíl heimilisins
m a m í m o
t e x t í! s m i ð j a - g a 11 e r i
t r y g g v a g a t a 16 • w 5 5 1 1 8 0 8
iðnaðarmenn
Brennarar
og aukalilutir
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Alltaf f leiðinni!
Verslunarmiðstöðin
Grímsbær v/Bústaðaveg
Ævintýr heima
og heiman
BÆKUR
F r á s a g n i r
ÆVINTÝRI
ALÞINGISMANNA
Vigdís Stefánsdóttir skráði. 191
bls. Stoð og styrkur. Prentun:
Grafík hf. Reykjavík, 1999.
BÓK ÞESSI er gefin út til styrkt-
ar góðu málefni. Þess vegna er leitað
til þingmanna að segja
frá. Orð þeirra vega
þungt. Og þeir vekja at-
hygli. Eða eins og
Magnús Stefánsson
kemst að orði: „Það vita
naer allir hver maður er
og það er hlustað á það
sem maður segir.“
En hvað er ævintýr?
Karlssonurinn sem erfir
konungsríkið? Um-
komulausa barnið sem
verður þingmaður? Svo
var það fyrir eina tíð.
Nú orðið tengja þó
fleiri orðið, að ætla má,
við einhvers konar' mannraunir eða
svaðilfarir? Eða þá við einhverja
óvenjulega lífsreynslu? Sá sem gaf
bókinni heitið er eflaust þess sinnis.
Því mikið er þai'na sagt frá ferðalög-
um um fjarlæg lönd. Og ýmislegt
munu þingmenn hafa reynt, bæði
heima og heiman. Langmest kemur
á óvart hve víða þeir hafa ratað. Að
sönnu hefur enginn nema Ólafur
Orn gengið yfir Grænlandsjökul né
tyllt tám á Suðurpólinn. En fjarlæg-
ustu heimsálfur hafa þeir kannað.
Og nálæg lönd þekkja þeir eins og
tröppumar heima hjá sér.
En hvort heldur þeir nú fara langt
eða skammt og hvað sem á vegi
þeirra verður ásannast við lestur
þáttanna að ævintýrið er ekki fyrst
og fremst eitthvað hlutlægt og
áþreifanlegt. Það verður aðeins til í
huganum. Sumh' menn sjá aldrei út
yfir hversdagsleikann; sama hvað
augum þehra mætir. Aðrir finna sér
ævintýr við fótmál hvert. Til að
mynda hún Drífa Hjartardóttir!
Henni verður allt að ævintýri. Hún
er sem kunnugt er húsfreyja á Keld-
um á Rangárvöllum, einu fornfræg-
asta byggða bóli á Suðurlandi. Þann-
ig er hún nágranni Heklu. Hún lýsir
meðal annars Heklugosi úr nálægð.
Og hvað er ævintýr ef ekki það? Að
minnsta kosti ef maður sér það með
augum Drífu. Að ala aldur sinn í
stórbrotnu landslagi með víðáttuna
allt um kring og kristalstæran himin
yfir höfði eru forréttindi sem Drífa
kann að meta. Ef mann langar að
koma innræti sínu í skárra horf er
vísast að lesa það sem Drífa hefur að
segja.
Þuríður Backman er að austan.
En hún átti afa og ömmu í Vest-
Vigdís Stefánsdóttir
mannaeyjum og segist oft hafa dvald-
ist hjá þeim á bemskuárum. Hún talar
því reiprennandi vestmannaeyísku.
Hún hefur klifið Heimaklett. Það er
líka ævintýr. Hún hefur ennfremur
svipast um á matvörumarkaði í Kína.
Og það er nú eitthvað annað en ýsan á
borðum afa og ömmu í Eyjum!
Hjálmar Amason er að fjórða hluta
Færeyingur og ólst að nokkra leyti
upp þar í sveit. Eftir lestur þáttarins
sannfærist maður um að fleiri þing-
menn mættu að skað-
lausu vera að fjórðungi
Færeyingar.
Ekki kemur fram
hvort Pétur Blöndal hef-
ur horft á Heklugos eða
komist upp á Heima-
klett. En hann hefur
klifið Futsiama sem er
næstum tvöfalt hærra
en Hvannadalshnjúkur.
Er ekki rétt munað að
staðið hafi í landafræð-
inni gömlu: Hið heilaga
fjall Japana. Hver verð-
ur ekki víðsýnni eftir
þvílíka göngu? Pétur
hefur líka gert víðreist um Eyjaálfu.
En þaðan hafði hann með sér myndar-
börn sem hann ætlar að gera að íyrir-
myndar íslenskum þegnum. Pétur hef-
ur dálítið sérstakan húmor.
Guðmundur Hallvarðsson var lengi
sjómaður en fór í land eins og fleiri og
tók þá að róa í kontórlogninu. Reyndar
getur nú hvesst þar líka. En það er
önnur saga. Allt um það gildir einu
hvar sjómaðurinn rær. Hugurinn leit-
ar alltaf aftur til sjós.
Svaníriður Inga Jónasdóttir hefur
ekki stigið ölduna til jafns við Guð-
mund en tengist sjónum með öðram
hætti. Hún fór til Italíu og lenti þar í
heilmikilli bið eftir skipi sem verið var
að kaupa; það stóð á pappírunum. Ekki
í fyrsta skipti sem Alþingismaður hef-
ur orðið að sækja námskeið í þolin-
mæði!
„í mér blundar ævintýraþrá," segir
Ólafur Öm. Hann fór til Azerbajdzhan,
meira að segja svo langt að hann komst
langleiðina að landamærum írans.
Misjafnlega leist honum á lífið þar um
slóðir. „Hálfum mánuði seinna,“ segir
hann, „sit ég í mjúkum stóli mínum í
þingsal Alþingis og nýt þess að fylgjast
með störíúm þingsins sem mótast af
virðingu fyrir skoðunum annarra.
Jæja, hugsar maður, gott að svo
skuli vera!
Og þannig er líf þessara þingmanna
og annaiTa sem segja frá í bók þessari,
viðburðaríkt og breytilegt eins og
vindáttin og ljúft og sælt eins og póli-
tíkin íslenska en alltént ævintýralegt í
endurminningunni.
í fáum orðum sagt er flest gott um
bók þessa nema prentvillurnar. Menn
eiga ekki að láta eftir sér að lesa ekki
prófarkh' þó málefnið sé gott.
Erlendur Jdnsson
Nýjar bækur
• NANCY og draugahúsið eftir
Carolyn Keene er í þýðingu Gunn-
ars Sigurjónssonar. Bókin kom fyrst
út 1968.
Þessi bók hefst á því að auðug
kona leitar til Nancyar þegar skart-
gripum hennar er stolið. Nancy
kemst að því að óprúttnir glæpa-
menn sækjast eftir eigum konunnar.
ískyggilegir atburðir, sem erfitt er
að útskýra með eðlilegum hætti, fara
að gerast og allir tengjast þeir dular-
fulla eyðisetrinu Blackwood Hall.
Áður en varir er Nancy komin í
mikla hættu, en hvort eru óvinir
hennar af þessum eða öðrum heimi?
50 bækur um Nancy hafa komið út
og þær selst í milljónum eintaka um
allan heim.
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er
99 bls., prentuð og bundin í Singa-
pore. Verð 1.980 kr.
• ÆVINTÝRALEG skátaútilega er
eftir Kristján Jónsson.
Þessi spennusaga er sjálfstætt
framhald bókar-
innar Leyndar-
dómur Norður-
eyrar sem kom út
í fyrra.
Kobbi, sonur
þorpslöggunnar
Tóta svarta,-verð-
ur fyi-ir miklu
áfalli þegai' pabbi Kristján Jónsson
hans er niðurlægður. Hann kennii'
Skafta sýslumanni um og hyggur á
hefndir um leið og hann ákveður að
framkvæma djarflega og hættulega
áætlun sem á að veita pabba hans
uppreisn æru. Kiddý Munda er með
skátaflokk sinn í útilegu á Norður-
eyri ásamt Jóa Jóns og þau njóta
kyrrðarinnar eftir nýafstaðna
hættuatburði. Einmana refur með
sviðinn feld leitar ásjár hjá þeim. En
brátt er friðurinn úti.
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er
101 bls. prentuð í Singapúr. Verð
2.280 kr.
• SVANUR og sumarið eftir Sören
Olsson og Anders Jacobsson, í þýð-
ingu Jóns Daníelssonar.
Andersson-fjölskyldan fer í úti-
legu. Upphafið lofar ekki góðu því að
hvert vill fara í sína áttina, en að lok-
um fara þau öll saman, í gamla hús-
vagninum sem pabbi og mamma
tóku á leigu fyrir brúðkaupsferðina
sína. Það er þröngt og stundum erf-
itt - en margt skemmtilegt gerist,
eins og venjulega þegar Andersson-
fjölskyldan á í hlut. Og auðvitað
verður Svanur ástfanginn. Datt ein-
hverjum annað í hug?
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er
218 bls., prentuðíSingapúr. Verð
2.280 kr.
• DEPILL kann að telja er eftir Eric
Hill, í þýðingu Helga Magnússonar.
Þetta er flipabók. Depill kann orð-
ið að telja upp að tíu. Litlum börnum
finnst gaman að æfa sig í að telja með
Depli og vinum hans og leita að
skemmtilegum svörum undir flipun-
umv
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er
23 bls., prentuð í Malasíu. Verð 1.180
kr.
Lækkaðu skattana!
Kauptu hlutabréfí tæka tíð
Ávöxtun fjármuna
Verðbréfaráðgjöf
Vi
V E RÐ B R E FASTOFAN
Suðurlcmdsbraut 20, Reykjavík Sfmi 570-1200