Morgunblaðið - 02.12.1999, Page 47
46 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 47
JfofgtmHiifeife
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDl: Árvakurhf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
YFIRLYSINGAR
NORSK HYDRO
MORGUNBLAÐIÐ birti í gær fréttasamtal við Helge
Stiksrud, upplýsingafulltrúa umhverfismála hjá
Norsk Hydro, þar sem upplýsingafulltrúinn sagði m.a.: Við
mundum vilja, að tímaramminn, sem settur hefur verið
stæðist. En það mundi ekki þýða að við misstum áhugann á
að reisa álver, ef Alþingi ákvæði að fram skyldi fara lög-
formlegt mat á umhverfisáhrifum.“
Þessi yfirlýsing talsmanns Norsk Hydro hefur grund-
vallarþýðingu í ljósi þeirra umræðna, sem fram hafa farið
hér undanfarin misseri. Aðalröksemd og raunar eina röks-
emd talsmanna þess að hefja framkvæmdir við Fljótsdals-
virkjun án þess að virkjunin færi í lögformlegt umhverfis-
mat, hefur verið sú, að við mundum missa af þeim
strætisvagni, að eiga samstarf við Norsk Hydro um bygg-
ingu álvers á Reyðarfirði, ef þær tímaáætlanir stæðust
ekki, að niðurstaða lægi fyrir á miðju næsta ári. Yfirlýsing
talsmanns Norsk Hydro kippti gersamlega stoðunum und-
an þeirri röksemd.
Það er augljóst, að þessi yfirlýsing hefur valdið miklu
uppnámi í hópi þeirra sem barizt hafa fyrir því að fram-
kvæmdir hæfust við virkjunina án umhverfismats. Þegar
Morgunblaðið hafði fyrst samband við iðnaðarráðuneytið í
gær til þess að fá umsögn iðnaðarráðherra um þessa yfir-
lýsingu Norsk Hydro komu þau skilaboð frá iðnaðarráð-
herra, að hann mundi ekki veita umsögn um málið fyrr en
ný yfirlýsing hefði borizt frá Norsk Hydro. Ekki fer á milli
mála, að fulltrúar íslenzkra stjórnvalda hafa haft samband
við Norsk Hydro í gær og sett fram kröfu um nýja yfir-
lýsingu.
í nýrri yfirlýsingu, sem Norsk Hydro sendi frá sér í gær
eru ummæli upplýsingafulltrúans hins vegar ekki dregin
til baka. Þar segir ekkert um, að Norsk Hydro mundi missa
áhuga á framkvæmdum við álver á Reyðarfirði, ef tíma;
ramminn, sem um hefur verið samið, breyttist eitthvað. I
hinni seinni yfirlýsingu Norsk Hydro segir það eitt að tafir
mundu auka áhættuna á því að ekkert yrði af verkefninu.
Þar með er ljóst að fyrri yfirlýsing Norsk Hydro stendur
þess efnis, að breyting á tímasetningum mundi ekki leiða
til þess að fyrirtækið missti áhugann á verkinu.
I Morgunblaðinu í dag halda Finnur Ingólfsson iðnaðar-
ráðherra, Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra og Hjálm-
ar Árnason, formaður iðnaðarnefndar Alþingis, því öll
fram, að yfirlýsing Helge Stiksrud breyti engu. Þetta er
einfaldlega rangt. Yfirlýsing þessa talsmanns Norsk
Hydro breytir öllu og síðari yfirlýsing fyrirtækisins hefur
nákvæmlega engin áhrif á þá staðreynd.
Talsmenn þess að framkvæmdir hefjist við Fljótsdals-
virkjun án umhverfismats geta ekki lengur haldið því fram,
að það sé nauðsynlegt á þeirri forsendu, að ella mundi
Norsk Hydro hverfa frá málinu. Það liggur nú fyrir, að
Norsk Hydro mundi ekki missa áhugann þótt nokkurra
mánaða töf yrði vegna þess að virkjunin færi í lögformlegt
umhverfismat. Enda liggur í augum uppi, að fyrirtæki, sem
hyggst styrkja stöðu sína, sem eitt af stærstu álfyrirtækj-
um heims, lætur ekki úr greipum sér ganga tækifæri til
þess að byggja síðasta álverið, sem að öllum líkindum yrði
byggt í okkar heimshluta. En jafnvel þótt það gerðist ligg-
ur það fyrir, eins og Morgunblaðið hefur ítrekað bent á, að
annað álfyrirtæki hefur lýst áhuga á að koma að byggingu
álvers, ef af því verður.
í ljósi hinna nýju yfirlýsinga Norsk Hydro hljóta al-
þingismenn að endurskoða afstöðu sína til þessa máls. Aðal
röksemdin fyrir því að fara fram hjálögformlegu umhverf-
ismati er ekki lengur til staðar. Það dugar ekki fyrir al-
þingismenn að halda því fram, að allt sé óbreytt, þegar
staða málsins hefur gjörbreytzt. Yfirlýsing um að Norsk
Hydro mundi ekki missa áhugann, þótt tímasetningar
breyttust er eitt. Yfirlýsing um að tafir hafi alltaf í för með
sér hættu á að ekkert verði úr verkefni er annað eins og all-
ir sjá.
Það er athyglisvert, að Norsk Hydro skuli gefa þessa yf-
irlýsingu eftir fund fulltrúa fyrirtækisins með fulltrúum
hinna alþjóðlegu umhverfissamtaka World Wide Fund for
Nature. Það bendir til þess að Norsk Hydro standi ekki á
sama um- að alþjóðleg umhverfissamtök snúizt gegn fyrir-
tækinu. Sú afstaða Norsk Hydro er skynsamleg.
Með sama hætti væri hyggilegt af Alþingi íslendinga að
samþykkja að virkjunin fari í umhverfismat. Yrði sú
ákvörðun tekin nú mundi því verða lokið að ári. Hefði sú
ákvörðun verið tekin á síðasta ári væri þessu ferli að ljúka
nú. Framkvæmdir við Fljótsdalsvirkjun án lögformlegs
umhverfismats mundu valda djúpum klofningi meðal þjóð-
arinnar.
Byggðastofnun kynnir skýrslu sem gerð var um ástand og aðgerðir í byggðamálum
íbúafjöldi í hverjum flokki atvinnuþróunarsvæða
Atvinnuþróunar- Atvinnuþróunar- Atvinnuþróunar-
svæði I svæði II svæði III
5.552
12.526
52.734
Dreifbýli
Dreifbýli-þéttbýli
Þéttbýli
SAMTALS
Hlutf. landsmanna 5,13%
BYGGÐASTOFNUN hefur
gefið út skýrsluna Byggðir
á íslandi, sem unnin er af
þróunarsviði Byggðastofn-
unar á Sauðárkróki. Þar er fjallað um
aðgerðir í byggðamálum. í skýrslunni
kemur fram að bráðaaðgerðir séu
nauðsynlegar á nokkrum stöðum á
landinu sem falla undir skilgreining-
una atvinnuþróunarsvæði, þar sem
um 5,1% landsmanna býr.
Egill Jónsson, stjórnarformaður
Byggðastofnunar, sagði að hér væri
um fyrstu skýrslu þessarar gerðar að
ræða og það hlyti að verða verkefni
þróunarsviðs Byggðastofnunar að
endurbæta hana og viðhalda henni
eftir því sem nýrri og betri upplýsing-
ar fengjust.
Markmið skýrslunnar er að greina
vanda byggða þar sem veruleg rösk-
un hefur orðið á atvinnuháttum og
búsetu en tilefnið er bréf forsætis-
ráðherra til Byggðastofnunar 19.
ágúst 1997 um gerð stefnumótandi
áætlunar í byggðamálum og ályktun
Alþingis um stefnu í byggðamálum
1999-2001.
Fábreytt atvinnulíf og
breytt gildismat
I fyrsta hluta skýrslunnar er birt
niðurstaða greiningar Byggðastofn-
unar á ástandi búsetu í landinu. Fjall-
að er um skilgreiningu og afmörkun
byggc a sem nefnd eru atvinnuþróun-
arsvæði. I skýrslunni segir að aðal-
orsakir fólksflutninga af landsbyggð-
inni til höfuöborgarsvæðisins séu
breyttir hættir í landbúnaði og fisk-
veiðum, fábrejtt atvinnulíf, aukinn
hluti þekkingar í framleiðslu og
breytt gildismat fólks. Þórarinn Sól-
mundarson, sérfræðingur hjá þróun-
arsviði Byggðastofnunar, segir að nú
sé í fyrsta sinni framkvæmd greining
af þessu tagi. Til að matið verði sem
trúverðugast sé m.a. tekið mið af fjar-
lægð til þjónustukjarna, skólakerfi,
aldursdreifingu íbúa, menntunarstigi,
og samgöngum.
Til að meta ástand byggða var
sveitarfélögum skipt upp í þrjá flokka
eftir þéttbýlisstigi.
Til grundvallar þessari skiptingu er
í fyrsta lagi hve margir íbúar eru á
ferkílómetra, fólksfækkun síðustu tíu
ár og síðustu fimm ár á viðkomandi
svæðum, fækkun ársverka í landbún-
aði síðastliðin fimm og tíu ár, atvinnu-
samsetning, fábreytni atvinnulífsins
og frávik meðaltekna í landbúnaði frá
landsmeðaltali og frávik meðaltekna
íbúa frá landsmeðaltali allra atvinnu-
greina. Á þessum grundvelli var land-
inu skipt upp í þrjú atvinnuþróunar-
svæði eftir alvarleika búseturöskunar
sem þar á sér stað.
Á atvinnuþróunarsvæði I er ástand
í búsetu verst og þar búa 14.130
manns, eða um 5,13% landsmanna.
Þar verður, að mati Byggðastofnun-
ar, að grípa til bráðaaðgerða og þar
er einnig mest þörf fyrii’ sértækar að-
gerðir. Niðurstöður greiningarinnar
sýna að það er einkum á sauðfjár-
ræktarsvæðum og í sjávarútvegs-
byggðum þar sem við mestan vanda
er að glíma. í þessum byggðum er at-
vinnulíf einhæft, aðrir möguleikar til
atvinnusóknar takmarkaðir og brott-
flutningur verið mikill, jafnvel þar
sem tekjur eru háar. Staða búsetu er
því erfiðust í byggðarlögum í Dölum
og á vestanverðu Norðurlandi þar
sem afkoma byggist að miklu leyti á
sauðfjárrækt og suðurfirðir Áust-
fjarða sem eru sjávarútvegssvæði. Á
Suðurlandi er búseta veik- ________
ust í austanverðri Rangár-
vallasýslu og í Vestur-
Skaftafellssýslu sem eru
landbúnaðarhéruð. Staða
búsetu er sterkust á Suð-
vesturlandi sem m.a. má skýra af ná-
lægð við höfuðborgarsvæðið.
Fyrirsjáanlegt að störfum
haldi áfram að fækka
í skýrslu Byggðastofnunar segir að
breytingar á stjórnun fiskveiða sé
ekki eina ástæðan fyrir vanda sjávar-
byggðanna. Tengsl vinnslu við fiskim-
iðin, sem hafi verið undirstaða þétt-
býlismyndunar hérlendis fyrr á
öldinni, hafi rofnað, bæði vegna betri
skipakosts, sjóvinnslu og tækni-
framfara. Landvinnslan byggi nú á
stærri framleiðslueiningum en hún
gerði áður og aukin tæknivæðing hafi
gert það að verkum að störfum hafi
fækkað. „Miðað við óbreyttar for-
Skipting landsins í
atvinnuþróunarsvæði
Atvinnuþróunarsvæði I
Atvinnuþróunarsvæði II
Atvinnuþróunarsvæði III
5,1% landsmanna
býr á svæðum þar sem
bráðaaðgerðir eru
nauðsynlegar
Tengsl vinnslu
við f iskimið
hafa rofnað
sendur er fyrirsjáanlegt að störfum í
fiskveiðum og fiskvinnslu haldi áfram
að fækka,“ segir í skýrslunni. Þar
segir jafnframt að brotthvarf kvótans
og um leið samdráttur í sjávarafla sé
sá þáttur sem eigi stærstan hlut í
vanda þeirra sjávarbyggða sem verst
standi.
Tillögur til eflingar
sjávarbyggðum
Byggðastofnun leggur fram eftir-
farandi tillögur til eflingar sjávar-
byggðum: Að forkaupsréttur sveitar-
_________ félaga á skipum sem til
stendur að selja úr við-
komandi byggðarlagi verði
styrktur og taki einnig til
sölu aflahlutdeildar. Að
fylgst verði með áhrifum
úthlutunar byggðakvóta fyrir fisk-
veiðiárið 1999-2000 á útgerð og fisk-
vinnslu í byggðarlögum sem í hlut
eiga. Hugað verði að því hvernig
byggðakvóti hafi laðað að aðrar afla-
heimildir. Að fiskvinnslur fái rétt til
eignarheimildar á kvóta. Að litlar
fiskverkanir á jaðarsvæðum fái að-
stoð til að leita sér faglegrar aðstoðar
á sviði reksturs og vinnslu og að
tryggð verði jöfn starfsskilyrði ein-
stakra greina innan sjávarútvegsins.
Jafnframt bendir stofnunin á að
kannaðar verði leiðir sem farnar hafa
verið í byggðatengdri fiskveiðistjórn-
un á jaðarsvæðum erlendis, að skoð-
aður verði sérstaklega þáttur strand-
veiða í útgerð í þeim sjávarbyggðum
Byggðastofnun hefur kynnt skýrslu þar
sem vandi byggða vegna búseturöskunar
er í fyrsta sinn greindur. Guðjón Guðmun-
dsson var á blaðamannafundi þar sem
skýrslan var kynnt.
Egill Jónsson, stjórnarformaður Byggðastofnunar, Bjarki Jóhannesson,
forstöðumaður þróunarsviðs, og Þórarinn Sólmundarson sérfræðingar.
sem standa höllustum fæti, fundnar
verði leiðir til að opna sjávarútveginn
fyrir nýjum aðilum sem vilja hefja út-
gerð, skoðaðar verði ástæður fyrir
flutningi óunnins afla frá byggðarlög-
um sem standa höllum fæti og hvaða
leiðir eru færar til þess að vinna
stærri hluta landaðs afla í viðkomandi
byggðarlagi.
Opnað verði fyrir frjálst framsal
greiðslumarks framleiðenda
Þórarinn bendir á að nú standi yfir
samningaviðræður milli ríkisins og
sauðfjárbænda um nýjan
búvörusamning í sauðfjár-
rækt. „Það er alveg ljóst
að þeir samningar munu
hafa afgerandi áhrif á þró-
un búsetu í landinu því á
mjög stórum svæðum í landinu
sauðfjárrækt uppistöðuatvinnu-
gi-ein,“ segir Þórarinn.
Fram kemur í skýrslunni að stuðn-
ingur hins opinbera við landbúnað
hefur lækkað úr 15 milljörðum kr. ár-
ið 1989 í 7,8 milljarða kr. árið 1997.
Heildarútgjöldin hafi því lækkað um
nær 50% og eru nú um 5% af heildar-
útgjöldum ríkissjóðs.
Byggðastofnun leggur fram marg-
þættar tillögur um aðgerðir í land-
búnaði. Lagt er til að afkoma þeirra
sem stunda sauðfjárrækt verði bætt.
Fram hefur komið að meðaltekjur á
ársverk í sauðfjárrækt eru i kringum
800 þúsund krónur. Stofnunin telur
að skoða verði mjög ítarlega að veita
Sóknarfæri í
fjarvinnslu á
landsbyggð
er
sérstakan stuðning við þau svæði
dreifbýlisins sem byggja tilveru og
afkomu sína sérstaklega á sauðfjár-
rækt með það að markmiði að auka
svigrúm til stækkunar sauðfjárbúa og
fækkunar sauðfjárbænda. I þessu
skyni er í skýrslunni lagt til að opnað
verði fyrir frjálst framsal á greiðslu-
marki milli framleiðenda sem muni
skapa svigrúm til nauðsynlegrar hag-
ræðingar innan greinarinnar og færa
framleiðsluna á færri hendur. Lagt er
til að hafið verði markaðsátak til átta
ára í samstarfi við sölufyrirtæki í
sjávarútvegi og útflutningsráð. Varið
verði til verkefnisins 200 milljónum
kr., eða 25 milljónum kr. á ári. Lagt
er til að greiddar verði útflutnings-
bætur, eða svonefnd útflutnings-
skylda, verði greidd í 5 ár að hluta
með opinberum stuðningi með viðbót-
arbeingreiðslu sem miðist við 150 kr.
á kg. Lagt er til að Byggðastofnun fái
50 milljónir kr. á ári til að vinna að
sértækum svæðisbundnum aðgerðum
á jaðarsvæðum og að styrkveitingum
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
verði í ríkara mæli beint að svæðis-
bundnum verkefnum í sveitum.
Ástandið á atvinnuþróunarsvæði II
er að mati Byggðastofnunar nokkru
skárra þó að til sértækra aðgerða
þurfi sumstaðar að grípa ef ekki eigi
að fara illa. Á atvinnuþróunarsvæði
II búa 22.500 landsmanna eða 8,18%
landsmanna. Á atvinnuþróunarsvæði
III er eingöngu gert ráð fyrir al-
mennum byggðaaðgerðum en þar búa
70.800 manns, eða 25% þjóðarinnar.
Þórarinn Sólmundarson segir að
lítið þurfi að breytast á svæðum til
þess að þau flytjist á milli flokka. í
litlum sjávarbyggðum þurfi t.a.m.
ekki annað en að togarinn fari til þess
að ástandið versni til muna.
Nýsköpun í atvinnu
og búsetu
I þriðja kafla skýrslunnar er fjallað
um nýsköpun í atvinnu og búsetu.
Greint er frá orsökum búseturöskun-
ar. Þar segir að ein mikilvæg orsök sé
breytt gildismat fólks, einkum ungs
fólks sem stafi af aukinni menntun,
ferðalögum og fjölmiðlum. Einnig er
nefnd til sögunnar umbylting á
stjórnkerfum þjóðfélagsins, aukinn
hreyfanleiki í ferðum og búferlaflutn-
ingum og alþjóðahyggja. I skýrslunni
segir að leita verði nýrra leiða í
byggðastefnunni. Laga verði hana að
atvinnuháttum upplýsinga- og þekk-
ingarþjóðfélagsins. Ljóst sé að af-
skekktir staðir sem eigi erfitt upp-
dráttar í venjulegum
framleiðsluiðnaði vegna fjarlægðar
frá mörkuðum og hráefni ættu að
eiga góða möguleika í upplýsinga-
samfélaginu.
Fjarvinnsla er talin vera sóknar-
færi á landsbyggðinni. Byggðastofn-
un bendir á að gera þurfi átak til að
jafna samkeppnisaðstæður höfuð-
borgarsvæðisins og landsbyggðarinn-
ar varðandi gagnaflutninga og til að
hvetja opinberar stofnanir til að nýta
sér þann möguleika sem fólginn er í
fjölgun opinberra starfa á lands-
byggðinni með notkun upplýsinga-
tækni. Lagt er til að gert verði mark-
aðsátak til að hvetja einka- og
opinber fyrirtæki til að flytja verkefni
til landsbyggðarinnar og að greindir
verði möguleikar byggðarlaga á
landsbyggðinni á að taka við sérhæfð-
um fjarvinnsluverkefnum. Þá er vikið
að þekkingariðnaði og nýsköpun í
sjávarútvegi og þeim störfum sem
_________ verða til þegar aukin
þekking hefur færst inn í
fisk'veiðar og fiskvinnslu.
Fjallað er um nýsköpun í
iðnaðar- og þjónustufyrir-
tækjum, ferðaþjónustu
sem er vaxandi þáttur úti á lands-
byggðinni og hvatt til þess að saga og
þjóðtrú landsins sé betur nýtt í þeirri
grein. Fjallað er um möguleika í skó-
grækt, hrossarækt og loðdýrarækt og
í skýrslunni er lagt til að menningar-
starfsemi á landsbyggðinni verði efld
og Byggðastofnun og menntamála-
ráðuneytið styðji það framtak sveit-
arfélaga að halda Listahátíð íslands á
landsbyggðinni annað hvert ár. Þá er
fjallað um jöfnun lífskjara í skýrsl-
unni og lagt til að fasteignagjöld
verði í hlutfalli við raunvirði fasteigna
og sveitarfélögum fundinn annar
jafngildur tekjustofn sem ekki rýrir
atvinnu- og búsetuskilyrði á lands-
byggðinni.
u_
Eyjabakkar
og náttúru-
vernd
FYRIR nokkru á
heilsugöngu í hádeg-
inu um Austurstræti í
snjáðri og sumar-
þreyttri miðborg
Reykjavíkur var ég
tekinn tali af frétta-
mönnum nýrrar sjón-
varpsrásar. Spurt var:
„Hver á Island?“ Svar
mitt var eitthvað á
þessa leið: „Ég, þú og
ég, við eigum Island.“
Eins og gengur hjá
mörgum þá snýst hug-
ur minn þessi misserin
um náttúru íslands,
hálendislög sl. árs og
umhverfis- og virkjun-
aiTnál líðandi stundar, um Eyja-
bakka og Fljótsdalsvirkjun. í svari
mínu hefði á táknrænan eða mynd-
rænan hátt mátt bæta við „fuglar
himinsins og liljur vallarins“, mynd-
mál sem nálgast raunveruleikann.
Einnig verður að huga að arfleifð
okkar og afkomenda.
Eyjabakkar eru einstök gróðurvin
á hálendi Islands í um 650 m hæð og
tengist hún samfelldu gróðurbelti
allt til sjávar. Verndun gróðurs og
uppgræðsla eru baráttumál íslend-
inga til að verjast uppblæstri og
landrofi. Mýrarflákar og annað vot-
lendi eru dýrmæt fuglalífi sem nær-
ist á gjöfum jarðar, lágdýralífi, jurt-
aríki og vatni. Islendingar leyfa sér
að hafa skoðun á ruðningi skóga á
Amasonsvæðum Suður-Ameríku svo
rækta megi korn fyrir nautgripaeldi,
m.a. fyrir hamborgarana vinsælu.
Skógar binda kolefni og eru þannig
þýðingarmikill þáttur í baráttunni
gegn mengun andrúmsloftsins eða
lofthjúpsins af völdum bruna. Grösin
eru eðli sínu samkvæmt ekki eins
mikilvirk í þessum efnum og skógar,
en jarðvegur votlendismýra má sín
meira. Þegar kemur að eigin garði
hugsa sumir öðruvísi í stundarhags-
munaskyni. Röksemdafærslan hrein
íslensk orka, sem kosta má hvað sem
vill fyrir landið og náttúrufarið, fyrir
óhreina stóriðju til framleiðslu á áli,
sem aftur er notað í bílaiðnað. Bílar
sem þú verða léttari en ef úr öðrum
málmum væru og brenna þá minna
bensíni en ella eru mér langsótt rök í
hnattrænum umhverfismálum svo
vitnað sé til umhverfismálaráðheiTa.
Eins eru það lítt sannfærandi rök
fyrir Fljótsdalsvirkjun að ef ekki
verði af þá komi lægð í efnahagsá-
standið innan ákveðins tíma svo vitn-
að sé til iðnaðarráðherra. Má vera,
en er þá ekki komin eilífðarvél sem
stöðugt krefst nýrra landsfórna?
Einnig þykir mér það undarleg þver-
sögn þegar haft er á orði að lögboðnu
umhverfismati (ath. lögboðnu) megi
sleppa með því að láta Alþingi ís-
lendinga um málið og þannig þá að
sniðganga núgildandi lög. Hér er
óbeint vitnað til ummæla forsætis-
ráðherra. Reyndar er um þrætubók-
arefni að ræða varðandi gildi laga.
Bréfritari var hér áður í náttúni-
verndarnefnd Hafnarfjarðar, löng-
um sem formaður og sat þá nokkur
náttúruverndarþing allt frá árinu
1971 þegar þáverandi náttúruvernd-
arlög tóku gildi. Ég hefi því nokkra
reynslu af því hvað náttúruvernd
hefur oft og lengst af átt undir högg
að sækja vegna stundarhagsmuna
eða þrýstings athafnalífsins á sveit-
arstjórnir sem kosnar eru til fjög-
urra ára. Sífellt hefur opinber um-
ræða í þessum efnum verið að
endurtaka sig þótt ávallt hverju
sinni sé haft á orði að nú sé skilning-
urinn betri og öldin önnur. Fram-
kvæmdavaldið valtar oft yfir áður
samþykktan ásetning þegar svo býð-
ur við. Náttúruverndarlögin frá 1971
voru verk hugsjónamanna eins og
Eysteins Jónssonar ráðherra, Páls
Líndals lögmanns og Sigurðar Þór-
arinssonai- jarðfræðings og e.t.v.
fleiri manna, m.a. Há-
kons Guðmundssonar
hæstaréttardómara.
Þetta eru a.m.k. menn-
irnir sem ég minntist
sérstaklega frá náttúru-
verndai-þingunum. Elín
Pálmadóttir blaðamað-
ur er mér einnig minn-
isstæð frá þeim tíma
íyrir skelegga baráttu
fyrir náttúruvemd.
Nýju núverandi lögin
frá 1992 eru svo fram-
hald gömlu laganna
þeirra hugsjónamanna.
Fleyg eru orð Sigurðar
Þórarinssonar um að
menn skyldu „læra að
lesa í landið“. í tiltölulega veiku um-
hverfisráðuneyti síðari ára er svo að
finna ráðherra i fararbroddi starfs-
liðs, sem leitar að smugum í lögum
og reglugerðum til að sniðganga til-
gang laga og hugsjóna. Skyldu menn
veita því sérstakan gaum. E.t.v. má
rekja þetta til þess að nokkur
áherslumunur er á umhverfismálum
eins og hollustu matvæla og sorp-
hirðu og svo því sem við nefnum
náttúruvernd. I ráðuneytinu mætti
greina þar á milli.
Bréfritari hefur ferðast víða og
komið í þjóðgarða í Bandaríkjunum
og Afríku. Þar hefur víða verið tekið
vel á málum í víðernum landanna.
Ég hef einnig ferðast um hin þétt-
Hálendismál
Tungan, náttúra lands-
ins og sagan, segir
Svend-Aage Malmberg,
eru þau verðmæti sem
gera það þess virði að
*
vera Islendingur í stór-
um heimi.
býlu lönd Evrópu, m.a. Ítalíu og
Spán. Þar er margt að sjá sem gleð-
ur augu ferðalangs, fornar menning-
arslóðir, listir, fjölbreytt mannlíf og
fagrar lendur, sem draga að sér at-
hyglina frá öðrum mannanna verk-
um eins og tröllauknu vegakerfi og
iðjuverum. Þar gefst ekki tilefni til
að huga að víðemum óspilltrar nátt-
úru. Reyndar fann ég til þess á
ferðalagi um dásemdarlönd Norður-
og Mið-Ítalíu að ein af auðlindum Is-
lands væri fámennið, strjálbýlið og
víðáttan friðhelga. Ég vil einnig geta
þess að í huga mér snýst náttúru-
vernd ekki sérstaklega um peninga-
legan hagnað eins og af ferðaiðnaði,
heldur er náttúra íslands mér hug-
læg og kær, þar sem öll sár eða
kæruleysisleg meðferð er nær eins
og sár í eigin holdi.
Að lokum skal vænta þess og vona
að náttúruvemdarsjónarmið og’
skilningur á gildi þeirra einstæðu að-
stæðna sem er að finna á íslandi, firn
og undur, geti brotist úr þeim viðjum
skilningsleysis sem virðist ríkja
meðal æðstu stjórnenda landsins.
Svo aftur sé vitnað til Sigurðar Þór-
arinssonar: „lifum í sátt við landið“
en ekki í stríði, og einnig innbyrðis,
með sjálfbæra nýtingu að leiðarljósi.
Eyðing gróðurlendis á Eyjabökkum
telst vart til sjálfbærrar nýtingar.
Tungan, náttúra landsins og sagan
eru þau verðmæti sem gera það þess
virði að vera íslendingur í stórurn
heimi. Er það vel þess virði að minn-
ast þess nú á fullveldisdeginum 1.
desember, minnug tímamótanna
1918 sem gáfu okkur tækifæri til
sjálfbærs sjálfstæðis.
Guð blessi land og þjóð
í strjálbýh og þéttbýli.
Höfundur er haffræðingvr.
Svend-Aage
Malmberg