Morgunblaðið - 02.12.1999, Síða 54
54 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+
Faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir og bróðir,
GUÐNI KARL FRIÐRIKSSON,
lést á heimili sínu í Kaliforníu fimmtudaginn
25. nóvember.
Bálför hefur farið fram.
Linda og William Petrucci,
Cindy Friðriksson,
Gísli Gunnarsson,
Gunnar Gunnarsson,
Kristján Friðriksson,
Fríða Friðriksdóttir,
Ólöf Friðriksdóttir,
Örn Friðriksson.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
BRYNDIS JÓNSDÓTTIR
frá Seyðisfirði,
Engihjalla 19, Kópavogi,
er lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur þriðjudaginn
23. nóvember, verður jarðsungin frá Árbæjar-
kirkju föstudaginn 3. desember kl. 10.30.
Valgeir Norðfjörð Guðmundsson,
Jónhildur Valgeirsdóttir,
Sigrún Valgeirsdóttir, Halldór Bragason,
Unnur Marta Valgeirsdóttir, Arne Larsen,
Svanhvít Jóhanna Valgeirsdóttir, Peter Rittweger,
Óskar Halldórsson, Anna Freyja Finnbogadóttir,
Valgeir Halldórsson, Snorri Halldórsson,
Anders Jon, Daniel Rittweger.
+
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGMAR GUÐMUNDSSON,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður til heimilis á
Nönnugötu 10a
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu á
morgun, föstudaginn 3. desember, kl. 11.00.
Emilía M. Sigmarsdóttir, Ragnar Ó. Steinarsson,
Jónína B. Sigmarsdóttir,
Ingveldur H. Sigmarsdóttir, Hermann Norðfjörð,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskuleg eiginkona mín, dóttir, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
BERTA JAKOBSDÓTTIR,
Melbraut 19,
Garði,
sem lést fimmtudaginn 25. nóvember, verður
jarðsett frá Útskálakirkju í Garði, föstudaginn
3. desember, kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ólafur Tryggvason,
Aðalbjörg Valentínusdóttir,
Guðríður S. Brynjarsdóttir, Pálmi Steinar Guðmundsson,
Sigríður Brynjarsdóttir,
Borgar Brynjarsson,
Brynjar Ólafsson, Birgitta B. Bjarnadóttir
og barnabörn.
+
Eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
PÉTUR B. GEORGSSON,
Búlandi 2,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju á morg-
un, föstudaginn 3. desember, kl. 13.30.
Guðrún S. Gunnarsdóttir,
Júlíus Pétursson, Torill Masdalen,
Gunnar Örn Pétursson, Karen Níelsdóttir,
Birgir Pétursson, Anna Lísa Guðmundsdóttir,
Steinunn Pétursdóttir, Sveinn Skúlason,
Guðrún Pétursdóttir,
afabörn og langafabörn.
KRISTBJÖRG
KRISTJÁNSDÓTTIR
+ Kristbjörg Krist-
jánsdóttir var
fædd á Heiðarbrún í
Vestmannaeyjum 8.
aprfl 1921. Hún lést á
Landakoti 24. nóv-
ember síðastliðinn.
Foreldar hennar
voru hjónin Kristján
Jónsson smiður, f. 13.
mars 1882, d. 1957
frá Arngeirsstöðum í
Fljótshlíð og kona
hans Elín Oddsdóttir,
f. 27. janúar 1889, d.
1965 frá Ormskoti í
Fljótshlíð. Kristbjörg
var þrettánda í röðinni af sextán
börnum þeirra hjóna, en tíu kom-
ust á legg. Þau sem létust í æsku
voru; Oskar, Guðrún, Margrét,
Friðrik, Guðleif Hulda og Friðrik.
Þau sem komust á legg; Oskar, Ól-
afur, Oddgeir, Laufey, Jóna,
Klara og Gísli, sem nú eru öll lát-
in. Þau sem eftir lifa eru Har-
aldur, Lárus og hálfbróðir þeirra
samfeðra, Svanur.
Hinn 8. nóvember 1941 giftist
Kristbjörg Leó Ingvarssyni frá
Neðra-Dal, V-Eyjafjöllum, f. 22.
september 1913. Foreldrar hans
voru hjónin Ingvar Ingvarsson
bóndi, f. 21. aprfl 1874, d. 1955,
Neðra-Dal, V-Eyjafjöllum, og
kona hans, Guðbjörg Ólafsdóttir,
f. 7. mars 1875, d. 1950, Hellishól-
um í Fljótshlíð. Dætur Kristbjarg-
ar og Leós eru: 1) Elín Guðbjörg,
f. 17. október 1942, gift Konráði
Guðmundssyni, f. 30. desember
1938. Þeirra börn eru: 1. Krist-
björg, f. 4. júní 1960, sambýlis-
maður Lúðvík Gröndal, f. 18.
ágúst 1955, dóttir þeirra er Ing-
veldur Gröndal, f.
1998. Börn frá fyrri
sambúð Kristbjarg-
ar með Jónasi Helga-
syni eru Konný
Björg og Eydís Ósk,
f. 1993. 2. Brynjar, f.
26. mars 1962, sam-
býliskona Malene
Stærmose, f. 20. jan-
úar 1967, dóttir
þeirra er Ida, f.
1997. Börn Brynjars
frá fyrri sambúðum
eru Björn Leó, f.
1985, móðir Anna
Þóra Björnsdóttir,
Björgvin, f. 1989, móðir Helen
Björgvinsdóttir. 2) Fjóla Leós-
dóttir, f. 7. október 1949, gift Guð-
jóni Þorvaldssyni, f. 23. septem-
ber 1949. Þeirra börn eru: 1.
María Lea Guðjónsdóttir, f. 9. apr-
fl 1968, gift Ólafí Borgþórssyni, f.
5. desember 1965, þeirra börn
eru: Fjóla Rakel og Arnar Leó, f.
1996, og Aníta Rut, f. 1999.2. Þor-
valdur Guðjónsson, f. 3. desember
1971, sambýliskona Hrönn Eir
Grétarsdóttir, f. 30. desember
1970. 3. Elín Kristbjörg, f. 4. októ-
ber 1977, sambýlismaður Páll
Lúther Ingimarsson, f. 15. ágúst
1974. Sonur Eh'nar frá fyrri sam-
búð, Kristófer Aron, f. 1996. 4.
Guðjón Bjarki, f. 1. desember
1987.
Kristbjörg og Leó bjuggu í
Vestmannaeyjum í 27 ár en árið
1969 fluttu þau í Kópavoginn og
hafa búið þar siðan.
Útfór Kristbjargar fer fram frá
Digraneskirkju í Kópavogi í dag
og hefst athöfnin klukkan 15.
Elsku tengdamamma.
Nú ert þú komin til Jesú, sem þú
trúðir staðfastlega á. Þú varst búin
að vera svo lengi veik og vildir kom-
ast til hans. Þú spurðir mig einu
sinni niðri á spítala hvort ég tryði
því ekki að mamma þín, pabbi og
systkini, sem eru látin væru ekki ör-
ugglega á himnum hjá Jesú. Eg
sagðist trúa því að við hittumst þar
öll að lokum. Þá brostir þú svo fal-
lega og sofnaðir vært. Margar góðar
minningar koma upp í hugann um
þig og tendapabba frá „Breiðó" eins
og við kölluðum Breiðabólstað I
Vestmannaeyjum þar sem þið áttuð
heima og við Ella bjuggum hjá ykk-
ur fyrsta árið eftir að nafna þín
fæddist og þú passaðir svo við gæt-
um unnið og klárað mitt nám. Gam-
lárskvöldin þar sem fjölskyldan
kom alltaf saman og borðaður var
lambahryggur með öllu tilheyrandi
og horft á flugeldana þar sem hvergi
var betra útsýni yfir bæinn en úr
eldhúsglugganum ykkar. Eða þegar
þú raukst að útvai-pinu og hækkaðir
allt í botn ef músíkin var eftir þínu
höfði, sérstaklega ef óperuaríur
voru fluttar. Þá söngst þú hástöfum
með. I fjölskylduboðum varstu
hrókur alls fagnaðar og reyttir af
þér brandarana. Mikill samgangur
var alltaf á milli okkar og fjölskyld-
unnar og ófá voru þau skiptin, sem
þú komst færandi hendi. Fáa þekki
ég, sem höfðu eins gaman af að gefa
eins og ykkur tengdapabba. Seinna,
þegar við fluttum öll frá Eyjum
höfðum við átt margar góðar sam-
verustundir. Fastir liðir eins og
kaffið á jóladag og matarboðið á
gamlárskvöld héldu áfram meðan
stætt var. Síðastliðin þrjú ár hafa
verið þér erfið þó rofað hafi til á
milli. Vil ég fyrir hönd fjölskyldunn-
+
Elskulegur bróðir okkar,
MAGNÚS J. H. EGGERTSSON
frá Ásgarði,
Tálknafirði,
lést á Sjúkrahúsi Patreksfjarðar föstudaginn
26. nóvember.
Jarðsungið verður frá Stóru-Laugardalskirkju,
Tálknafirði, laugardaginn 4. desember kl. 14.00
Bræður og fjölskyldur.
+
RAGNHEIÐUR VILMUNDARDÓTTIR,
áður til heimilis
(Drápuhlíð 25
og Kistuholti 13,
Biskupstungum,
lést á Skjóli þriðjudaginn 30. nóvember sl.
Fyrir hönd aðstandenda,
Elfn og Vilborg.
ar þakka öllu því góða fólki, sem
hefur annast þig þennan tíma bæði á
SHR og á Landakoti.
Kæra tengdamamma, nú skiljast
leiðir um sinn. Þakka þér fyrir öll
góðu árin sem við áttum saman.
Guð geymi þig, Bogga mín.
Konráð
Guðmundsson.
Hún amma Bogga á „Breiðó" er
dáin.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlaustu friðínn
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn
og sólinbjörtupprunnin
bak við dimma dauðans nótt.
(V. Briem)
Ég er ánægður yfir því að hafa
verið með fjölskyldu mína á Islandi
og hitt þig í sumar. Þú fékkst þá líka
tækifæri til að sjá „Lille Ida“. Þú
leist svo vel út og varst svo glaðleg
þrátt fyrir veikindi þín undanfarin
ár. Og húmorinn var eins og alltaf, á
réttum stað.
Þegar við sátum úti á túni í Víði-
grundinni og drukkum kaffi sagðir
þú við mig: „Ætli ég fari ekki bráð-
um að taka flugið.“ Þá rann það upp
fyrir mér hversu erfitt það getur
verið að vera búsettur erlendis, þeg-
ar manns nánustu verða veikir. Eg
vildi óska að ég hefði getað verið
meira hjá þér síðustu árin, en nú ert
þú flogin eins og þú sjálf orðaðir
það. Þrátt fyrir að ég hafi búið er-
lendis um árabil, finnst mér ég ekki
hafa búið svo langt í burtu frá þér,
því þú hefur og munt alltaf búa í
hjarta mínu.
Er ég kom, opnaði hún faðminn
svo hlý og svo örugg,
dvaldi ég þar um stund.
En nú hefur hann opnað faðm sinn,
og nú dvelur hún þar,
í faðmi hans að eilífu.
(Þ.E.)
Með mínum fyrstu minningar-
brotum úr barnæsku eru þær stund-
ir þegar ég kom á „Breiðó" í Eyjum
til ömmu. Það fyrsta sem hún gerði
var að taka mig og Kiddý systur nið-
ur til langömmu Elínar. Þar fengum
við að velja okkur einn brjóstsykur
úr stærðarinnar krukku og eftirá
fékk ég leyfi til að „stíga stokkinn“
með afa. Eftir að öll fjölskyldan
flutti suður komum við oft heim til
ömmu. Fyrst á Kópavogsbrautina
og síðar Lundarbrekku þar sem það
var hefð í mörg ár að halda upp á
gamlárskvöld.
Það var alltaf tilhlökkunarefni að
koma í kaffi og kleinur til ömmu.
Kleinurnar finnast ekki betri ann-
ars staðar og ég tala nú ekki um
lambahrygginn. Þó ég hafi starfað
sem matreiðslumaður í 15 ár hef ég
aldrei getað útbúið eins góðan
hrygg og amma. Fjölskylduboðin
voru ætíð lífleg og minnist ég þess
með bros á vör hversu oft við amma
fórum inn í kompu eftir matinn að
stelast til að reykja.
Það er með miklum söknuði sem
þessar línur eru ritaðar, en jafn-
framt er það gert með miklu þakk-
læti í huga. Eg kveð þig nú, elsku
amma Bogga, með einlægri þökk
fyrir allt sem þú hefur gefið mér.
Bið ég þess, að góður Guð verði með
þér og að við megum þér síðar fylgja
í friðarskaut.
Kær kveðja frá Idu og Malene
sem því miður geta ekki verið við-
staddar útför þína.
Elsku amma, njóttu
eilíflega Guði hjá,
umbunarþesserégþáði
ávallt þinni hendi frá.
Pú varst mínu unga hjarta,
eins og þegar sólin hlý,
vorblómin með vorsins geislum
vefur sumarfegurð í.
Hjartkær amma, far í friði,
fóðurlandið himneskt á;
þúsundfaldar þakkir hljóttu
þínum litlavinifrá.
Vertu sæl um allar aldir,
alvaldshendifalinver
inn á landið unaðsbjarta,
englar Drottins fylgi þér.
Bryiyar.
(Höf. ókunnur.)