Morgunblaðið - 02.12.1999, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 59
UMRÆÐAN
Sameining fyrir-
tækja - fákeppni
EINS og kunnugt
er hefur sameining
fyrirtækja í sjávarút-
vegi og verslun verið
nánast daglegar frétt-
ir í fjölmiðlum. Hin
frjálsa samkeppni, oft
nefnd frjálshyggja,
sem Sjálfstæðisflokk-
ur hefur leitt yfir
þjóðina í stjórnartíð
sinni er nú orðin að
fákeppni og einokun,
sem leitt hefur til
hækkunar á vöruverði
og þjónustu. Undh- yf-
irskini hagræðingar,
m.a. hagkvæmari inn-
kaupa, betri markaðs-
setningar og skilvirkari stjórn-
sýslu hefði mátt ætla að vöruverð
lækkaði. Sú hefur ekki orðið raun-
in enda virðist sameining fyrir-
tækjanna vera fyrst og síðast að
auka hagnað hluthafa og komast
hjá harðri samkeppni. Reyndar
þurfti engan sérfræðing til að sjá
fyrir þessa þróun og sá sem þetta
ritar hefur ítrekað varað við þeim
hættum, sem af fákeppni leiddu.
Afleiddar afleiðingar, s.s. stórauk-
in verðbólga og samráð um verð-
myndun milli fyrirtækja, eru löngu
þekktar hérlendis. Skýr dæmi um
slíka verðmyndun eru löngu þekkt
hjá olíu- og tryggingafélögum og
skipafélögum.
Stjórnvöld
Ríkisstjórnin stendur ráðþrota
gagnvart þessari verðlagsþróun.
Hún treysti frjálshyggjunni fyrir
eðlilegri samkeppni og forsætis-
ráðherra, Davíð Odds-
son, og hans nánustu
frjálshyggjupostular
eru ráðþrota. Hækk-
un vaxta, aðhald í lán-
veitingum banka, boð-
un samdráttar á
framkvæmdum ríkis-
ins og ríkissjóður
verði samkvæmt fjár-
lögum rekinn með 15
milljarða hagnaði.
Þessar aðgerðir munu
þó hvergi nægja til að
slá á verðbólguna.
Fyrirtækin eru stöð-
ugt að sameinast til
að styrkja stöðu sína
á verðbréfamörkuð-
um, fjárstreymið eykst stöðugt
þrátt fyrir aðgerðir ríkisvaldsins.
Þá eykur einnig á spennuna hið
Verðlagsþróun
Nú er mikilvægast að
láglaunafólk standi þétt
saman, segir Kristján
Pétursson, og semji
aldrei aftur um
fátækralaun.
rangláta og hömlulausa framsal á
fiskveiðiheimildum (óveiddum
fiski) á margföldu raunverði. Það
þurfa ekki miklar breytingar að
verða á uppspenntum verðbréfa-
markaði sjávarútvegsfyrirtækja
Kristján
Pétursson
svo að til stórra áfalla leiði, t.d. er
verðfall á loðnumjöli 'og síld í sjón-
máli. Þá ber einnig að hafa í huga
komandi kjarasamninga, sem ætla
má að þrýsti verðbólgunni upp.
Hinar fjölmennu láglaunastéttir,
sem ekki hafa notið „góðærisins",
munu nú gera launakröfur a.m.k. í
prósentuhækkunum til jafns við
úrskurði kjaranefndar til hinna
ýmsu embættismanna og þing-
manna og ráðherra.
Verðbólguspár
Ríkisstjórnin hefur margoft ver-
ið vöruð við undirliggjandi verð-
bólgu, sem m.a. hefur komið fram í
gífurlegum viðskiptahalla, hækkun
á íbúðar- og vöruverði og eldsneyt-
isverði. Þá hafa allar verðbólgu-
spár verið á einn veg, að verðbólg-
an væri komin á skrið, en þó
virðist enginn reiknimeistari hafa
séð fyrir 6-8% hækkun eins og
raunin er á. Heimilin í landinu,
einkum ungt fólk sem fjárfest hef-
ur í íbúðum, tapa stórfé, einnig
skuldsett fyrirtæki. Svo virðist
sem landsfeðurnir hafi talið sér
trú um, að góðærið væri þeirra
stjórnvisku og framsýni að þakka.
Hin gjöfula náttúra og hagstæð
viðskiptakjör allt kjörtímabilið eru
vandlega falin bak við glansmynd
forsætisráðherra í hinu margfræga
góðæri. Það er sagt að stjórnmála-
menn eigi að vera í tengslum við
þjóðina og gæta hagsmuna allra.
Viskuorð sem allir vildu trúa, en
engum auðnast að fara eftir. Nú á
tímum samþjöppunar valds í formi
einokunar og fákeppni er mikil-
vægast að láglaunafólk standi þétt
saman og semji aldrei aftur um fá-
tækralaun. Það er þjóðarskömm
að íslendingar, ein af ríkustu þjóð-
um heims, skuli láta það viðgang-
ast að tugir þúsunda búi við sára
örbirgð.
Höfundur er fyrrv. deildarstjóri.
GLORIA
Slökkvitæki
HÚSASMIÐJAN
• Duftslökkvitæki
• 6 kg.
• Veggfesting
• Þrýstingsmælir
með prufustút
• Auðvelt í notkun
7^32.
Jólatilhoð
5.995 kr.
Sími 525 3000 • www.husa.is
“ M ATARLITIR
Fyrír kökur, marsipan og skreytingar.
15 mismunandi litir
PIPAROGSALT
Klapparstíg 44 * Sími 562 3614 j
Tískuvöruverslun
Fjarðargata 11 Hafnarfirði Skeiði 1 ísafirði