Morgunblaðið - 03.12.1999, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1999 15
AKUREYRI
ATR-flugvél Islandsflugs lenti á einum hreyfli á Akureyrarflugvelli
Bilun varð í
mælitæki
Morgunblaðið/Kristján
Farþegar ganga frá borði eftir farsæla lendingu.
SKOÐUN á hreyfli ATR-flugvélar
Islandsflug, sem lenti á einum hreyfli
á Akureyi'arflugvelli í gærmorgun,
leiddi í ljós að sennilegast var um að
ræða bilun í mælitæki, sem gefur til
kynna olíuþrýsting á hreyflinum. 01-
íuþrýstingur var því á hreyflinum all-
an tímann, en eftir að mælitækin
gáfu til kynna að svo væri ekki var
slökkt á hreyflinum, en samkvæmt
verklagsreglum ber að slökkva á
hreyfli lækki eða fari olíuþrýstingur
af þeim að sögn Einars Bjömssonar
flugrekstrarstjóra Islandsflugs.
Mikill viðbúnaður var á Akureyr-
arflugvelli þegar flugvélin lenti þar
um kl. 10.30 í gærmorgun. Slökkvi-
bíll Flugmálastjórnar var við braut-
arendann og þá voru starfsmenn á
vélaverkstæði í viðbragðsstöðu. Bíl-
ar frá Slökkviliði Akureyrar og
mannskapur þaðan var til taks ef á
hefði þurft að halda og þá var lækn-
ir á vellinum.
Vélin hafði verið á lofti í um 10
mínútur er bilunarinnar varð vart
og var hún komin í um 10 þúsund
feta hæð. Þar sem veður var gott og
aðstæður ákjósanlegar á Akureyr-
arflugvelli var ákveðið að snúa vél-
inni við og lenda þar í stað þess að
halda förinni áfram suður til
Reykjavíkur að sögn Einars. Syðra
gekk á með éljum og þá var lengra
að fara, en að sögn Einars geta vél-
arnar auðveldlega athafnað sig á
einum hreyfli. Kröfumar séu þær
að vélarnar geti komist milli staða
þó slökkni á öðrum hreyflinum
strax í flugtaki. „Það var sem betur
fer engin hætta á ferðum og um að
ræða sárasaklausa bilun,“ sagði
Einar.
Aukahjartsláttur fyrst
Tíu manns vom um borð í vélinni,
sjö farþegar og þriggja manna
áhöfn, Jón Elíesersson flugstjóri,
Hermann Leifsson aðstoðarflugmað-
ur og Sigrún Amadóttir, flugfreyja.
Helgi Stefánsson, einn farþeg-
anna, sagði að vélin hefði aðeins
hallast, en að öðru leyti sagðist
hann ekki hafa fundið fyrir neinu.
Hann sagði farþegana hafa tekið
tíðindunum með rósemi, enda hefði
ekki verið um annað að ræða. „Mað-
ur fékk svona aukahjartslátt aðeins
fyrst, en svo var þetta allt í lagi,“
sagði Helgi.
Farþegum var boðið að taka
næstu flugvél frá Flugfélagi Islands
suður eða bíða eftir hádegisvél ís-
landsflugs. Flugvélinni var flogið
frá Akureyri til Reykjavíkur síð-
degis í gær.
Akurey rarkirkj a
Aðventu-
kvöld og
málefni bág-
staddra
MÁLEFNUM bágstaddra og
þriðja heimsins verður sérstak-
ur gaumur gefinn við messu í
Akureyrarkirkju sunnudaginn
5. desember kl. 14.
Beðið verður fyrir þeim sem
um sárt eiga að binda og tón-
list frá Afríku hljómar. Eftir
messuna verður fræðsla um
efnið sem Jónas Þórisson
framkvæmdastjóri Hjálpar-
starfs kirkjunnar annast. Boð-
ið verður upp á kaffi og
smákökur undir fræðslunni
sem fram fer í Safnaðarheimili.
Aðventukvöld verðm' í Akur-
eyrarkirkju á sunnudagskvöld
kl. 20.30. Þar verður fjölbreytt
tónlist, m.a. söngur Bama- og
unglingakórs kirkjunnar.
Jónas Þórisson flytur ávarp en
ræðumaður kvöldsins verður
Þorvaldur Þorsteinsson mynd-
listarmaður og rithöfundur.
Veldu þann sem
þolir samanburð
*o
1
e
Tegund I Vélarstærð
Avensis 1600 16v
Vectra 160016v
Passat 1600 8v
Laguna I 1600 16v
Verð frá
1.680.000 kr.
1.660.000 kr.
1.690.000 kr.
1.678.000 kr.
Loftpúðar
4
2
4
Hnakkapúðar
5
5
5
Fjarstýrð hljómtæki
nci
nei
nei
já
Ilátalarar
Þokuljós
nei
Hestöfl
110
101
101
107
ABS
nci
nei
nei
já
nei
nei
já
Grjótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1220
Renault Laguna kostar frá 1.678.000 kr.
Staðalbúnaður: ABS bremsukerfi, 4 loftpúðar, fjarstýrð samlæsing, öryggisbelti með
strekkjurum og dempurum, fjarstýrt hljómkerfi með geislaspilara og sex hátölurum, þijú
þriggja punkta belti í aftursætum, 5 höfuðpúðar, barnalæsing, útihitamælir,
þjófavöm/ræsivörn, þokuljós, samlitir stuðarar, litað gler, snúningshraðamælir o.m.fl.
RENAULT