Morgunblaðið - 03.12.1999, Blaðsíða 36
36 FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1999
LISTIR
MORGUNBUAÐIÐ
Ný bók eftir Kay Redfíeld Jamison
Fjallar um sjálfsvíg
meðal ungs fólks
ÚT ER komin í Banda-
ríkjum bókin Night
Falls Fast eftir sálfræð-
inginn Kay Redfield
Jamison, höfund bókar-
innar I róti hugans, sem
nýverið kom út í ís-
lenskri þýðingu. I bók-
inni leitast Jamison við
að varpa ljósi á sjálfsvíg
og sjálfsvígstilraunir en
sjálf hefur hún reynt að
fyrirfara sér.
Kay Redfield Jami-
son er bandarískur há-
skólakennari í sálfræði
og meðal þekktustu
sérfræðinga heims í
geðsjúkdómum. Hún
háði harða og þrotlausa baráttu við
geðhvarfasýki allt frá unglingsár-
um. Geðveikin hélt henni í heljar-
greipum og hafði næstum svipt hana
lífinu. En hún barðist áfram, náði
tökum á sjúkdómnum og öðlaðist
hugrekki til þess að segja öðrum frá
baráttu sinni, þjáningum og sigrum.
Um reynslu sína ritaði hún bókina I
róti hugans.
Jamison skipulagði fyrst sjálfsvíg
sautján ára gömul og gerði tilraun
til að fyrirfara sér 28 ára að aldri. í
Night Falls Fast ígrundar hún þá
margslungnu sálfræði sem liggur að
baki sjálfsvígum,
einkum hjá fólki undir
fertugu - en tíðni
sjálfsvíga í þeim ald-
urshópi hefur þre-
faldast í Bandaríkjun-
um á 45 árum - og
spyr spurninga á borð
við: Hvers vegna fell-
ur fólk fyrir eigin
hendi? Hvers vegna
eru sjálfsvíg eitt
helsta heilsuvandamál
heims í dag? Og
hvernig má koma í
veg fyrir sjálfsvíg?
Jamison hugar að
geðhvarfasýki, sjálfs-
vígum í ólíku um-
og menningu, sjálfsmorðs-
bréfum, aðferðum - í Banda-
ríkjunum koma skotvopn við sögu í
um 60% tilfella - fyrirbyggjandi að;
gerðum og harmi aðstandenda. í
bókinni kemur fram að algengast sé
að fólk fremji sjálfsvíg á vorin og
sumrin en ekki um vetur, eins og oft
hefur verið haldið fram.
Jamison hugleiðir hvaða mann-
gerðir svipta sig lífi, hvers vegna og
á hvaða tímapunkti í lífinu og rök-
styður mál sitt með sögum af fólki
sem annaðhvort hefur fallið fyrir
eigin hendi eða gert tilraun til þess.
Kay Redfield
Jamison
hverfi
Jamison vitnar jöfnum höndum til
þekktra og venjulegra einstaklinga
en flestir eiga það sammerkt að vera
ungir að árum.
Betri skilningur
I dómi á bókavefnum Ama-
zon.com segir að Night Falls Fast
sé ekki auðveld bók aflestrar, hvorki
með hliðsjón af efni né úrvinnslu, en
fólk skilji sjálfsvíg betur að lestri
loknum. Þykir gagnrýnandanum
dýpt þunglyndisins sem hrekur
ungt fólk út í aðgerðir af þessu tagi
sláandi.
Gagnrýnandi New York Times
segir að sú staðreynd að Jamison
þekki viðfangsefnið af eigin raun,
hafi bersýnilega í senn áhrif á hana
sjálfa við skrifin og lesendur bókar-
innar.
I Booklist segir að Night Falls
Fast glími við efnið á faglegum for-
sendum en eigi samt sem áður er-
indi við mun fleira fólk en fagmenn á
sviði sálarfræði.
I Kirkus Reviews kemur fram að
bókin sé vel skrifuð, efnisleg og
áhugaverð úttekt á þjóðfélagsmeini
sem líkja megi orðið við farsótt.
Um þrjátíu þúsund manns fyrir-
fara sér í Bandaríkjunum á ári
hverju. Að áliti Jamison gerir hálf
milljón manna tilraun til þess.
Morgunblaðið/Kristinn
Hljómskálakvintettinn og Kvintett Coretto ásamt Jóni Stefánssyni.
Orgel gegn
lúðrum í
Langholts-
kirkju
TVEIR málmblásarakvartettar
koma fram á tónleikum í Langholts-
kirkju á morgun, laugardag, kl. 17.
Það er Hljómskálakvartettinn og
Kvintett Coretto ásamt Jóni Stef-
ánssyni orgelleikara kirkjunnar.
Aðallega verða flutt verk frá end-
urreisnar- og barokktímanum, auk
nokkurra jólalaga í útsetningum
sem gerðar voru fyrir Canadian
Brass, þar sem hið nýja orgel Lang-
holtskirkju fær að spreyta sig á móti
10 málmblásurum.
Þeir sem fram koma á tónleikun-
um, auk Jóns Stefánssonar orgel-
leikara, eru: trompetleikararnir Ás-
geir H. Steingrímsson, Einar St.
Jónsson, Eiríkur Örn Pálsson og
Sveinn Þ. Birgisson; hornaleikar-
arnir Emil Friðfinsson og Þorkell
Jóelsson; básúnuleikararnir Oddur
Björnsson og Sigurður Þorbergsson
og túbuleikararnir Bjarni Guð-
mundsson og Þórhallur Halldórs-
son.
Aðgangur að tónleikunum er
1.000 kr., en ókeypis fyrir börn.
Smáverkum grafíklistamanna komið fyrir í sal félagsins íslensk grafík
íTryggvagötu 17.
Skúffugallerí
á Tryggvagötu
FÉLAGAR í íslenskri grafík opna
skúffugallerí á Tryggvagötu 17, í
kvöld, föstudagskvöld, kl. 20.
Þeir 36 listamenn sem eiga verk í
skúffugalleriinu eru Aðalheiður
Skarphéðinsdótth-, Aðalheiður Val-
geirsdóttir, Anna G. Torfadóttir, Ás-
rún Tryggvadóttir, Benedikt Krist-
þórsson, Björg Þorsteinsdóttir,
Edda Jónsdóttir, Friðrika Geirs-
dóttir, Guðbjörg Ringsted, Guð-
mundur Ámann, Guðný B. Guðjóns-
dóttir, Gunnhildur Ólafsdóttir, Gréta
Mjöll Bjarnadóttir, Hafdís Ólafs-
dóttir, Halldóra Gísladóttir, Harpa
Björnsdóttir, Helga Armanns, Ingi-
björg Jóhannsdóttir, Iréne Jensen,
Jóhanna Sveinsdóttir, Jón Reykdal,
Kristín Hauksdóttir, Kristín Pálma-
dóttir, Magdalena Margrét Kjart-
ansdóttir, Marilyn Herdís Meelk,
Ragnheiður Jónsdóttir, Ragnhildur
Ragnarsdóttir, Rikharður Valtingoj-
er, Rut Rebekka, Sigrid Valtingojer,
Sigrún Eldjárn, Sigurveig Knúts-
dóttir, Sveinbjörg Hallgrímsdóttir,
Valgerður Hauksdóttir, Þorgerður
Sigurðardóttir og Þórður Hall.
Skúffugallerí er þekkt sýningar-
fyrirkomulag víða erlendis og oft í
tengslum við grafíkverkstæði, skóla,
söfn eða gallerí, segir í fréttatilkynn-
ingu. Þetta er hins vegar í fyrsta
skipti sem slíkt gallerí er opnað á ís-
landi. I skúffunum eru sýnd verk
unnin á pappír, grafík, teikningar og
ljósmyndir.
Smámyndasýning
félagsmanna
Skúffugalleríið er í sýningarsal fé-
lagsins að Tryggvagötu 17, hafnar-
megin. Þar mun á sama tíma verða
opnuð smámyndasýning félags-
manna, en þeim var gefinn kostur á
að senda inn verk sem eru í stærð-
inni 20 x 20 sm eða minni. Þetta er í
fyrsta skipti sem öllum félagsmönn-
um er boðið að sýna í salnum.
Sýningarsalurinn er opinn
fimmtudaga til sunnudaga, kl. 14-18.
Síðasti sýningardagur smámynda-
sýningarinnar er sunnudaginn 19.
desember, en skúffugalleríð mun
verða opið áfram á föstum opnunar-
tíma sýningarsalar, það er fimmtu-
daga - sunnudaga. Aðgangur að sýn-
ingunum er ókeypis.
Aætlaður fyrsti vinningur í sexföldum potti á laugardaginn!