Morgunblaðið - 10.02.2000, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Skaðabóta-
mál vegna um-
ferðarhávaða
Kaffi
Reykja-
vík selt
EIGENDASKIPTI urðu að veit-
ingastaðnum Kaffi Reykjavík í gær.
Nýr eigandi er Öm Garðarsson, veit-
ingamaður á Brasseri Borg.
Hlutafélagið Kaffi Reykjavík ehf.
hefur átt og rekið samnefndan veit-
ingastað á Vesturgötu 2 sl. fimm og
hálft ár. Öm kaupir bæði veitinga-
staðinn og fasteignina. Kaupverð
fæst ekki gefið upp.
Eigendur Kaffi Reykjavíkur ehf.
em þeir Gunnar Hjaltalín, Þórarinn
Ragnarsson og Þórður Sigurðsson.
Þeir áttu og ráku til skamms tíma
veitingastaðina Kaffi Thomsen í
Hafnarstræti og Kaffi Osio í Lækj-
argötu. Þeir hafa nú selt báða þessa
staði.
----------------
Gæsla tveggja
framlengd í
e-töflumáli
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur úr-
skurðaði tvo menn í áframhaldandi
gæsluvarðhald til 23. febrúar í gær,
vegna rannsóknar lögreglunnar í
Reykjavík á nýja e-töflumálinu.
Annar mannanna, sem er 26 ára,
var eitt aðalvitnið £ máli ríkissak-
sóknara gegn Kio Briggs á sínum
tíma en maðurinn var úrskurðaður í
lengsta gæsluvarðhaldið þegar málið
kom upp 29. desember síðastliðinn
og þrír menn á aldrinum 17-25 ára
vora handteknir.
Fimm menn sitja í gæsluvarðhaldi
vegna rannsóknar málsins og þar af
hafa þrír setið inni samfleytt að kalla
frá áramótum.
------♦-♦-♦-----
Rangárvallasýsla
Slapp ómeidd-
ur eftir bilveltu
ÖKUMAÐUR fólksbifreiðar slapp
ómeiddur eftir bflveltu rétt vestan
við Hellu í Rangárvallasýslu
skömmu eftir klukkan 14 í gær.
Ökumaðurinn missti stjórn á öku-
tækinu eftir að hafa lent í snjó og
krapa og valt bifreiðin þá út af vegin-
um. Bifreiðin lenti á þakinu þremur
metram neðan við veginn og laskað-
ist nokkuð.
------♦-♦-♦-----
Ljósagangur
úti á Nesi
TILKYNNT var um ljósagang á
himni úti fyrir Seltjamarnesi í gær-
kvöldi.
Gerð var töluverð eftirgrennslan,
enda talið að hugsanlega gæti verið
um neyðarblys að ræða. Sendur var
út bátur og fjaran gengin „allan
hringinn" á Seltjamarnesi, en án ár-
angurs.
Lögreglan handtók tvo menn með
blys niðri á höfn síðar um kvöldið en
ekki lá íyrir hvort þeir bæra ábyrgð
á ljósaganginum.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hafnaði í gær frávísunarkröfu
Reykjavíkurborgar og ríkisins í
skaðabótamáli sem Guðlaugur Lár-
usson og kona hans, Hólmfríður
Jónsdóttir, íbúar á Miklubraut 13,
hafa höfðað vegna heilsutjóns af
völdum mengunar á Miklubrautinni.
Málið verður því tekið til dóms
samkvæmt úrskurði dómara.
Stefnendur krefjast þess að
stefndu beri óskipta skaðabóta-
skyldu gagnvart sér og jafnframt að
Reykjavíkurborg sé skylt að leysa
til sín efri hæð og ris að Miklubraut
13, auk þess að greiða málskostnað.
Ríkið byggði frávísunarkröfu sína
á því að kröfugerð stefnenda væri
ódómhæf þar sem enga afmörkun á
skaðabótaskyldunni væri að finna í
kröfunni. Þá væri málatilbúnaður
stefnenda svo óljós og raglingslegur
að vísa bæri málinu frá dómi.
Dómari taldi hins vegar kröfu
stefnenda dómtæka því stefna
þeirra fullnægði lagaskilyrðum.
Krafan væri um viðurkenningu á
óskiptri skaðabótaskyldu stefndu,
sem telja yrði að stefnendur gætu
gert kröfu um í dómsmáh.
Þingkonur
á leið í um-
ræðuna
ALÞINGISMENN ræddu siðferði
í viðskiptum og verklagsreglur á
fjármálamarkaði utan dagskrár í
gær og Þórunn Sveinbjarnardótt-
ir og Rannveig Guðmundsdóttir,
þingmenn Samfylkingarinnar,
höfðu hrfðina í fangið þegar þær
gengu til fundarins.
Málshefjandi við umræðuna var
Margrét Frímannsdóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, en í
umræðunum sagði Valgerður
Sverrisdóttir viðskiptaráðherra
að þverpólitísk samstaða ætti að
geta náðst um þær breytingar
sem gera þyrfti í þessum efnum.
■ Þverpólitísk/39
Vill gefa
kindum
íslensk
mannanöfn
LANDSSÍMA íslands barst
sérkennileg fyrirspurn frá
kanadískri konu á dögunum.
Lítil hjörð af
íslensku sauðfé
„Tilgangur þessa bréfs er
að spyrjast fyrir um gamla
símaskrá. Ég á litla hjörð af
íslensku sauðfé og hef áhuga
á að gefa lömbunum ósvikin
íslensk nöfn. Símaskráin
myndi vera tilvalin heimild.
Vinsamlegast látið mig vita
um kostnað við að senda mér
gamla skrá (ég hef aðeins
áhuga á nöfnunum, ekki núm-
erunum, og hef því ekki þörf
fyrir nýjustu útgáfu),“ segir í
bréfinu.
Ekki fyrsta skringi-
lega fyrirspurnin
Ólafur Þ. Stephensen, for-
stöðumaður upplýsingadeild-
ar Landssímans, segir að fyr-
irtækinu berist ótrúlega
margar furðulegar fyrir-
spumir.
„Þess er nú skemmst að
minnast þegar spurningum
rigndi yfir okkur um íslensku
símaskrána, þar sem spurt
hafði verið um hana í getraun
i þýsku blaði. Við höfðum
gaman af og lögðum okkur
fram um að aðstoða þátttak-
endur i getrauninni sem best
við gátum,“ segir hann. Ólaf-
ur segir að konan kanadíska
muni fá nýja símaskrá innan
skamms.
Morgunblaðið/Ásdís
*
Halldór Asgrímsson vill aukna áherslu á byggðakvóta
Sú hugsun í lögum
frá 8. áratugmim
HALLDÓR Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, segir að
flokkurinn vilji beita sér fyrir auk-
inni áherslu á byggðakvóta til að
hægt verði að bregðast við miklum
vandamálum í einstökum byggðar-
lögum.
Halldór segir að hugsun um
byggðakvóta hafi verið sett fram i
lögum um kvótakerfið á áttunda
áratugnum og hafí einnig komið
fram í lögum um hagræðingarsjóð
sjávarútvegsins, sem hafi haft yfir
12.000 tonnum að ráða til jöfnunar
vegna aflabrests í einstökum grein-
um og 6.000 tonnum hafi mátt út-
hluta vegna vanda einstakra byggð-
arlaga.
Þessum kvóta hafi síðan verið
deilt út til greinarinnar í heild til að
skapa svigrúm til skattlagningar á
sjávarútveginn í samræmi við
áherslu Alþýðuflokksins á það eftir
að ríkisstjórn Alþýðuflokks og
Sjálfstæðisflokks tók við völdum
1991.
Hann rakti að Byggðastofnun
hefði við síðustu endurskoðun fisk-
veiðilöggjafarinnar fengið 1.500
tonna kvóta sem færi til ráðstöfunar
vegna byggðavanda, en sagðist vera
einn þeirra sem gagnrýndu hvernig
staðið hefði verið að þeirri úthlutun.
„Við erum þeirrar skoðunar að
það sé sjálfsagt að halda áfram á
þessari braut í einhverjum mæli, án
þess að það raski fiskveiðistjórnun-
arkerfinu í heild sinni og, meðal
annars, til þess að tryggja sátt um
það. En í hvaða mæli það á að vera
ætla ég ekki að kveða upp úr um, en
það verður aldrei í mjög stórum stíl
að mínu mati,“ sagði Halldór.
Aðspurður sagðist hann telja
svipað hlutfall byggðakvóta og hag-
ræðingarsjóður hefði haft til ráð-
stöfunar a.m.k. ekki það fráleitasta
sem hefur verið sett fram. Sú leið
hefði orðið niðurstaðan eftir að til-
laga var felld á jöfnu á Alþingi, eftir
heitar umræður, um að veita sjávar-
útvegsráðherra heimild til að leyfa
byggðarlögum að kaupa ný skip í
stað þeirra sem seld væru á brott.
Halldór sagði að fiskveiðistjórn-
unarkerfið hefði þannig verið til sí-
felldrar endurskoðunar. „Á sínum
tíma var heimild til svokallaðrar
línutvöföldunar, sem var ákveðin
með sérstöku tUliti til minni byggð-
arlaga, en þessi heimild var síðan
afnumin. Ég taldi hana mjög mikil-
væga og var í reynd ávallt mjög
andvígur því að afnema það kerfb
en meirihluti myndaðist fyrir því á
Alþingi að það yrði gert og þá verða
menn að beygja sig fyrir lýðræðis-
legri niðurstöðu og það gerði ég
líka. En ég er viss um að það afnám
hefur veikt möguleika minnstu
byggðarlaganna,“ sagði Halldór Ás-
grímsson.
Sérblöð í dag
Með Morgun-
blaðinu í dag
fylgir tíma-
ritið 24-7. Út-
gefandi: Alltaf
ehf. Ábyrgðar-
maður: Snorri
Jónsson.
Átta félög eru skuldlaus
við HSÍ / B1
Fram og Stjarnan mætast í úrslitum
bikarkeppni karla / B2