Morgunblaðið - 10.02.2000, Page 11

Morgunblaðið - 10.02.2000, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000 11 FRÉTTIR títgáfa starfsleyfís stærsta svínabús landsins að Brautarholti á Kjalarnesi N ágranni krefst höfnunar og að rekstri verði hætt Morgunblaðið/Golli Frá byggingu svínabúsins í Brautarholti. LÖGMAÐUR íbúa jarðarinnar Brautarholts á Kjalamesi gerir al- varlegar athugasemdir við starfs- leyfistillögur fyrir Svínabúið að Brautarholti, stærsta svínabús landsins, eins og þær voru sam- þykktar á fundi umhverfis- og heil- brigðisnefndar Reykjavíkur í lok nó- vember í fyrra. Krefst íbúinn þess að útgáfu starfsleyfis verði hafnað og rekstri búsins þegar hætt. Frestur til að skila inn athuga- semdum við starfsleyfið rann út á dögunum og bárust tvær athuga- semdir og hefur Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur nú fjórar vikur til að fara yfir þær. Guðjón Ólafur Jóns- son, lögmaður íbúans, segist vænta þess að athugasemdin fái vandaða og faglega umfjöllun, en bendir jafn- framt á að leyfi hafi fengist fyrir staðsetningu búsins á sínum tíma að uppfylltum mjög ströngum skilyi’ð- um um hreinlæti og mengunarvarn- ir. „Við slíkt hefur alls ekki verið staðið og þess vegna getur umbjóð- andi minn alls ekki látið hjá líða að nýta rétt sinn til athugasemda við starfsleyfið," segir Guðjón Ólafur. Brautarholt á Kjalarnesi er óðals- jörð og tóku tveir bræður við rekstri hennar af foreldrum sínum árið 1967. Annar þeirra rekur svínabúið ásamt sonum sínum en hinn á íbúð- arhús í næsta nágrenni og fyrir hönd hans hefur Guðjón Ólafur Jónsson, lögmaður, skilað inn athugasemdum. Svínarækt var rekin sem aukabú- grein til ársins 1982 í félagsbúi þeirra bræðra, en aðalframleiðslu- grein búsins var áður framleiðsla mjólkur og síðar grasköggla. Árið 1982 hóf annar bróðirinn ásamt son- um sínum byggingu svínahúss á jörðinni og eiga þeir nú og reka Svínabúið Brautarholti ehf. Jörðinni var að hluta til skipt árið 1989, en nokkur hluti hennar er enn í óskiptri sameign þeirra bræðra. ítrekuð og alvarleg brot hreppsnefndar I greinargerð sem fylgir athuga- semdum íbúans við starfsleyfið rek- ur lögmaðurinn forsögu málsins, en Hreppsnefnd Kjalarneshrepps gaf út byggingarleyfí fyrir tveimur svínahúsum 26. febrúar 1998 og fyrir þjónustuhúsi sem tengir þau saman um sumarið það ár. Segir í greinar- gerð lögmannsins að umbjóðanda hans hafi verið ókunnugt um útgáfu byggingarleyfisins fyrr en síðsum- ars í fyrra og telji hann að málsmeð- ferð byggingarnefndar og hrepps- nefndar Kjalarneshrepps hafi falið í sér ítrekuð og alvarleg brot á ákvæð- um skipulags- og byggingarlaga og stjómsýslulaga. Hafi meðmæli Skipulagsstofnunar ekki legið fyrir þegar ákvörðun var tekin og ekki verið eftir þeim leitað. Lögbundin grenndarkynning hafi ekki farið fram, lögbundinn andmælaréttur hafi verið virtur að vettugi og kær- anda ekki tilkynnt um meðferð máls- ins, hvorki af byggingarnefnd né hreppsnefnd. Þá hafi meðalhófsregla stjómsýslulaga verið brotin og rann- sóknarregla laganna sömuleiðis. Segir ennfremur að svínabúið hafi fyrir alllöngu hafið umtalsverðan rekstur í hinum nýju svínahúsum, þrátt fyrir að ekki liggi fyrir starf- sleyfi heilbrigðisnefndar. Heilbrigð- isefth’litið hafi ekki talið sér fært að stöðva ólögmætan rekstur búsins og umhverfisráðuneytið hafi gert at- hugasemdir þar að lútandi. Þúsundir tonna af skít í sjóinn I athugasemdum við einstaka liði starfsleyfisins em gerðar athuga- semdir við söfnun, geymslu og nýt- ingu svínamykju frá búinu. Þar er vísað til þess að í starfsleyfisskilyrð- um sé gert ráð fyrir að öll svína- mykja frá búinu fari í mykjutanka sem skuli rýma sex mánaða birgðir hið minnsta. Bent er á að við eldra svínahúsið í Brautarholti sé um 2.300 rúmmetra tankur sem taki um 1.800 tonn af skít og við nýju húsin sé tankur sem taki um 80 tonn af skít. Ætla megi að 12-13.000 tonn af svínamykju falli til af rekstri vænt- anlegs bús á ári og því þurfi að vera til staðar tankar sem taki a.m.k. 6.000 til 6.500 tonn af mykju. Sé ljóst að svínabúið uppfylli engan veginn þau skilyrði miðað við núverandi að- stöðu og því séu engar forsendur til að veita starfsleyfi. Bent er á að skv. skilyrðum starfs- leyfisins sé tekið fram að losun á svínamykju í sjó sé óheimil. Ibúinn telji hins vegar að Svínabúið Braut- arholti hafi losað þúsundir tonna á hverju ári í sjóinn við Brautarholt, nú síðast í síðustu viku. Ekki hafi verið dreift svínamykju frá búinu síðan í september sl. og telja megi að hún hafi öll frá þeim tíma verið losuð í sjóinn, enda sé ljóst að ekki séu til tankar til geymslu hennar. Minnt er á að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur Skattframtöl í póst um helgina VEGNA tafa sem orðið hafa á frá- gangi skattframtala hefur framtals- frestur einstaklinga, sem ekki hafa með höndum eigin atvinnurekstur, verið framlengdur til 28. febrúar. Undanfarin ár hefur frestur til að skila skattframtali verið 10. febrúar. Fyrstu framtölin verða póstlögð frá skattstofunum í dag, þannig að skattgreiðendur eiga að fá þau um og eftir helgi. Upplýsingar um greiðslur frá Tryggingastofnun rík- isins, lífeyrissjóðum og Atvinnuleys- istryggingasjóði verða í réttum reit- um á skattframtölunum og framteljendur þurfa aðeins að skoða þær og sannfærast um að þær séu réttar. Skattayfirvöld stefna að því að fleiri upplýsingar verði settar sjálfvirkt inn á framtalið í framtíð- inni. Hægt er að sækja um viðbótar framtalsfrest til skattstjóra og þarf sú umsókn að hafa borist í síðasta lagi 28. febrúar, hvort sem sótt er um skriflega eða með tölvupósti. Þeir sem fá viðbótarfrest, fá frest til 10. mars. Framtalsfrestur einstaklinga sem skila á Netinu er til 31. mars. Morgunblaðið/Ómar Starra- þing STARRAR eru margir og halda sig við mannabústaði. Fuglinn byrjaði ekki að verpa í borginni fyrr en upp úr 1960. Þetta er fallegur fugl, og býsna mkill „spaugfugl", meðal annars mikil „hermikráka“, og hef- ur leikið margan manninn grátt með því að herma eftir Lóu og boð- að ótímabært sumar, en óvinsæll vegna þess að flóin sem lifir í hreiðrum hans getur borist í híbýli manna. Lirfurnar lifa vetrarlangt í hreiðrunum og verða fullþroska að vori. hafi nýverið veitt forsvarsmönnum svínabúsins áminn- ingu vegna þessa og sýni framganga þeirra ótvírætt að nauðsynlegt sé að hafa frekara eftirlit með rekstrinum að þessu leyti, eins og segir í greinargerð- inni. Um mengunar- varnir segir í at- hugasemdunum að þrátt fyrir að svínabúið sé ekki í full- um rekstri sé ljóst að hinn ólögmæti rekstur sem fram fari með vitund og vilja Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur valdi kæranda verulegu tjóni. Lykt- armengun frá búinu sé oft óbærileg, einkum í góðu veðri þegar vindur standi af norðvestan. Geti íbúinn þá ekki opnað glugga á húsi sínu og hafi oft beinlínis þurft að flýja hús sitt sökum mengunar. Ljóst sé að ástandið sé heilsuspillandi. Ekki hafi verið orðið við fyrirheitum um viðun- andi mótvægisaðgerðir og fyrir vikið berist frá búinu heilsuspillandi og mengandi loft sem innihaldi m.a. húðryk, fóðurryk og ammoníak sem blandað sé efnum eins og brenni- steinssýrlingi, sem talinn sé lífs- hættulegur. Loftið smjúgi alls staðar inn með hurðum og opnanlegum gluggum á íbúðarhúsinu og hafist fólk þá ekki við. I álitsgerðinni kemur að lokum fram að íbúinn sem gerir athuga- semdir við starfsleyfið hafi árið 1993 lagt fyrir hreppsnefnd Kjalarnes- hrepps hugmyndir sínar um upp- byggingu ferðaþjónustu og golfvall- ar í landi sínu. Hugmyndunum hafi hins vegar verið stungið undir stól af oddvita hreppsins, títtnefndum bróður íbúans. Hafi hann ekki heyrt af afdrifum þeirra þrátt fyrir ítrek- anir fyrr en hreppurinn sameinaðist Reykjavíkurborg árið 1998 og erind- inu var vísað til borgarinnar. Ljóst sé að hugsanlegur rekstur svínabús- ins muni gera þessar hugmyndir að engu. Stökktu til Kanarí 12. mars frá kr. 34.855 Nú seljum við síðustu sætin til Kanarí í mars, en eyjarnar eru lang- vinsælasti vetraráfangastaður okkar og þúsundir íslendinga ferðast þangað á hverjum vetri til að njóta eins besta veðurfars heimsins og stytta veturinn hér heima. Nú bjóðast síðustu sætin í mars til Kanarí á hreint frábærum kjör- um. Þú bókar núna og tryggir þér sæti, og 5 dögum fyrir brottför látum við þig vita hvar þú gistir. 12. mars Verð frá kr. 34.855 12. mars, vika, m.v. hjón með 2 böm. Aukavika frá kr. 7.700 Verð kr. 44.990 Hvenær er laust? • 20. feb. - uppselt • 12. mars - 21 sæti • 19. mars - 31 sæti • 26. mars - lausl • 9. apríl - laust • 16. apríl - 21 sæti M.v. 2 í íbúð, 1 vika 19. mars Verð frá kr. 68.055 Hjón með 2 börn, Tanife, 3 vikur. HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð, sími 595 1000. www.heimsferdir.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.