Morgunblaðið - 10.02.2000, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 10.02.2000, Qupperneq 26
26 FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Wolfgang Schtissel, nýr kanzlari Austurríkis, flytur stefnuræðu sína Stjórnin væntir sann- girni af umheiminum Vín.AFP.AP. AP Wolfgang Schtissel, kanzlari Austurríkis, flytur stefnuræðu sína í þing- inu í Vín í gær, með ráðherra hinnar nýju ríkisstjórnar sér við hlið. WOLFGANG Schussel, nýr kanzlari Austurríkis, vísaði í gær, við flutning stefnuræðu ríkisstjórnar sinnar, enn á ný á bug alþjóðlegri gagnrýni á að hann skyldi hafa stofnað til stjómar- samstarfs við hinn umdeilda Frelsis- flokk Jörgs Haiders. Lýsti Schiissel því yfir að um leið og umheimurinn sæi stjórnarstefnuna í framkvæmd myndu gagnrýnisraddirnar sann- færast um að áhyggjur þeirra væm ástæðulausar. Einna mesta athygli vakti að Schiissel boðaði skaðabætur til handa fólki sem nazistar neyddu til vinnu í Austurríki á stríðsárunum. A annað þúsund löggæzlumanna höfðu í gær tekið sér stöðu í kring um þinghúsið í Vín í því skyni að tryggja að möguleg fjöldamótmæli fæm friðsamlega fram. Fáa mót- mælendur var þó að sjá. „Margar af þeim fréttum sem fluttar hafa verið [erlendis] um Aust- urríki em ósanngjarnar," sagði Schússel er hann flutti stefnuræðu sína í þinginu í gær. En hann sagði: „Ég tek þetta alvarlega. Við verðum að bregðast við fordómum með öfl- ugu upplýsingaátaki. Það er kominn tími til að sannfæra gagnrýnendur innan Austurríkis sem utan með því að hrinda í framkvæmd stefnu at- hafna.“ Vísbendingar um að öldurnar sé að lægja Gæta fór 1 gær vísbendinga um að farið væri að draga úr hinu alþjóð- lega fári í kring um austurrísku rík- isstjórnarmyndunina. Bandarísk stjórnvöld tilkynntu að sendiherra þeirra myndi snúa aftur til Vínar í vikulokin eftir skraf og ráðagerðir í Washington. „Ég verð að segja að stefnuyfirlýsingin sem [hin nýja stjórnj hefur látið frá sér fara inni- heldur allt sem maður myndi óska sér að sjá í henni; nú er spurningin bara sú hvort hún muni halda sig við hana í framkvæmd," sagði Madel- eine Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. En táknrænar refsiaðgerðir héldu líka áfram. I Lundúnum var tilkynnt að Karl Bretaprins hefði afboðað þátttöku í ráðstefnu í Vín í maímán- uði. Opinberri heimsókn forseta Portúgals, Jorges Sampaio, hefur einnig verið slegið á frest. Haider, sem hin alþjóðlega gagn- rýni beinist fyrst og fremst að vegna ummæla sem hann hefur látið falla á stjómmálaferli sínum og hægt hefur verið að túlka sem lof á vissa þætti nazistatímans, á sjálfur ekki sæti í hinni nýju ríkisstjóm, heldur gegnir áfram stöðu fylkisstjóra í Kámten, syðst í Austurríki. En sex af tólf ráð- herrastólum stjómarinnar em skip- aðir flokksmönnum hans; fara þeir m.a. með ráðuneyti fjármála og varnarmála. Reiknuðu ekki með náðugum hveitibrauðsdögum Hæstsetti ráðherrann úr Frelsis- flokknum, Susanne Riess-Passer varakanzlari, sagðist í þingræðu að nýja stjórnin reiknaði ekki með því að eiga náðuga hveitibrauðsdaga í embætti. „En við ætlumst til þess að okkur sé sýnd sanngirni, bæði innan- lands sem erlendis,“ sagði hún. Schússel lýsti því einnig yfir að nýja stjómin myndi fylgja eftir áformum um að greiða fólki skaða- bætur, sem nazistar neyddu til vinnu í Austurríki á stríðsámnum. Nýbúið er að semja um slíkan skaðabótasjóð í Þýzkalandi. „Ríkisstjómin mun greiða fyrrverandi nauðungarverka- mönnum nazista, eftir að óháð sagn- fræðinganefnd hefur gert skýrslu um málið og búið er að gera úttekt á ábyrgð einkafyrirtækja í þessu sam- bandi,“ sagði Schússel. Evrópusambandið Microsoft kraf- ið upplýsinga Brussel. AFP. FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópusambandsins, ESB, hefur sett bandaríska hugbúnaðarfyrir- tækinu Microsoft mánaðarfrest til að svara ásökunum um að það ætli að einoka allan tölvumarkaðinn með nýju stýrikerfi, Windows 2000. Kerfið er væntanlegt á markað í næstu viku. Mario Monti, er fer með samkeppnismál í stjórninni, sagðist hafa fengið heimild til að rannsaka hvort Microsoft hefði hannað hluta kerfisins þannig að það gæti náð markaðsráðandi stöðu á sviði netþjóna og rafrænna viðskipta, sams konar stöðu og það hefur nú á sviði stýrikerfa. -----*-M------- Norður-Kórea Yinátta við Russa Seoul. AFP. RÚSSAR og Norður-Kóreumenn gerðu í gær nýjan vináttusamning og kom hann í stað annars frá tím- um Sovétríkjanna sem sagði Sovét- menn koma Norður-Kóreu til að- stoðar yrði gerð árás á landið. Ákvæðið var frá árinu 1961. I staðinn kemur nýtt ákvæði þar sem segir að ríkin tvö skuli efla samstarf sitt að því tilskildu að það skerði ekki nýja samskiptahætti við önnur lönd. Lögð er áhersla á að þjóðirnar tvær muni standa saman í að vernda sjálfræði og yfirráð í eigin landi. Igor Ivanov, utanríkisráðherra Rússlands, undirritaði samninginn í gær ásamt starfsbróður sínum, Paek Sam-Nun, í höfuðstað N-Kór- eu, Pyongyang. Háttsettur embætt- ismaður Moskvustjórnarinnar hef- ur ekki sótt N-Kóreu heim í áratug. Lundúnum. Morgnnblaðið. MÁLIN tvö sem nú eru í rannsókn snerta bæði blaðamenn á The Mirr- or, annars vegar ritstjóra þess, Piers Morgan, og hins vegar Anil Bhoyrul, annan tveggja höfunda dálkarins City Slickers, sem eru nokkurs kon- ar kjaftaskar úr kaupstaðnum. Sautjánda janúar keypti Piers Morgan hlutabréf í Viglen-fyrirtæk- inu fyrir 20 þúsund pund. Daginn eftir var mælt með slíkum kaupum í City Slickers vegna vaxandi umsvifa fyrirtækisins á Netinu og í kjölfar þess tvöfölduðust hlutabréfin í verði. Piers Morgan græddi í einu vetfangi 20 þúsund pund á pappírnum. Þegar þessi kaup komust í hámæli hófst mikil umræða um réttmæti þeirra og hvort Piers Morgan hefði misnotað vitneskju sína í ritstjórastólnum í auðgunarskyni eða ekki. Mál Bhoyr- uls hefur svo hnykkt á umræðum um starfsreglur og siðareglur blaða og blaðamanna. Segir kaupin á undan fréttinni Piers Morgan neitaði því strax að hafa haft vitneskju um efni City Slickers þegar hann keypti bréfin. Hann læsi ekki efni dálksins fyrr en eftir að hlutabréfamarkaðnum væri lokað, þetta milli klukkan hálfsjö og sjö. Síðar sagðist hann hafa keypt hlutabréfin sex tímum áður en blaðamennirnir fengu upplýsingar frá forráðamönnum fyrirtækisins. Og hann hefði ekki vitað hvað í dálk- inum stóð fyrr en hann las hann í fyrstu prentun blaðsins, um hálftólf- leytið um kvöldið. Sér hefði óneitan- lega verið svolítið skemmt þegar hann sá að blaðamenn hans voru að mæla með hlutabréfum, sem hann hafði þegar fest kaup á. En kaupin væru tilkomin vegna þess að hann hefði lengi vitað að Viglen væri gott fyrirtæki og þekkti vel til eiganda þess, sem væri einn af dálkahöfund- um blaðsins. Hann sá enga ástæðu til þess að tilkynna eigendum blaðs- ins um þessi hlutabréfakaup sín í ljósi skrifanna, enda hefði honum Blaðamenn á hálum ís Tvö mál tengd brezkum blaðamönnum eru nú til rannsóknar hjá siðanefnd sem rannsakar ásakanir á hendur blöðum og blaðamönnum, og hjá rann- sóknarnefnd Kauphallarinnar. Freysteinn Jóhannsson hefur fylgzt með fréttum af málunum, sem snúast um það hvort blaðamenn misnoti vitn- eskju sína til þess að græða á henni fé. lengi verið kunnugt um að Viglen væri arðbært fyrirtæki, eins og reyndar hefði verið bent á í blaðinu áður. Þetta með tilkynninguna til stjórnar blaðsins er í ljósi siðareglu blaðanna, sem segir, að blaðamenn eigi ekki að skrifa um hlutabréf eða verðbréf þar sem þeir sjálfir eða fólk tengt þeim kunni að hafa hag af, nema tilkynna viðskiptaritstjóra eða aðalritstjóra blaðsins þar um. Er Piers Morgan í þessum efnum talinn standa í sömu sporum gagnvart eig- endum blaðsins og blaðamenn gagn- vart yfirmönnum sínum. Sá sér ekki annað fært en selja Þær brigður voru bornar á þessa frásögn Morgans að sem ritstjóri hlyti hann að vita hver væru stærstu málin í hverri deild blaðsins og það mætti þá alveg eins tala um van- rækslu hans í starfi að hafa ekki les- ið dálk eins og City Slickers fyrr en blaðið var komið í prentun. Honum til málsbóta er bent á að hann hafi ekki hlaupið til og fjárfest í Viglen, þótt fréttir blaðsins hafi áður bent til þess að það væri góður kostur. Og hann rauk ekki til strax daginn eftir kaupin nú til að ná gróðanum til sín. Morgan hefur sagt að hann hafi litið á þessi hlutabréfakaup sem lang- tímafjárfestingu. Stjórn blaðsins settist á rökstóla og komst að þeirri niðurstöðu að rit- stjórinn hefði sýnt klaufaskap, en hann hefði engin lög brotið og engar reglur. Piers Morgan sá sér þó ekki annað fært en selja hlutabréfin aftur og ætlar að gefa ágóðann, sem var kominn niður í 13 þúsund pund, til góðgerðarmála. Ritstjórar láti hlutabréf eiga sig í umræðum um þetta mál hafa fjölmiðlar leitt getum að því, að á öðrum blöðum hefði ritstjórinn orðið að taka pokann sinn ef hann hefði orðið uppvís að því sama og Piers Morgan. Leitað hefur verið til ann- arra ritstjóra og þeir spurðir um sín- ar starfsvenjur. Flestir þeirra segj- ast ekki standa í neinum hlutabréfaviðskiptum vegna hætt- unnar á hagsmunaárekstram. Það sé öllum fyrir beztu, bæði þeim og blöð- unum. Engar skriflegar reglur eru til um nákvæmlega þetta atriði, en stjórn The Mirror hefur tilkynnt að hún muni taka starfsreglur blaðsins til endurskoðunar vegna þessara mála. Það virðist og samdóma nið- urstaða þeirra, sem ég hef séð fjalla um þetta mál, að bezt fari á því að ritstjórar láti öll hlutabréfaviðskipti eiga sig. Einn dálkahöfundurinn benti þeim á að fjárfesta frekar í Reuters Verðbréfasali í kauphöllinni í Lundúnum. Verðbréfabrask rit- stjóra á dagblaðinu Daily Mirror hefur valdið hneyksli í fjölmiðla- heiminum í Bretlandi. landi eða húsnæði en fyrirtækjum, en á móti hefur verið sagt að einu gildi á hvaða sviði það sé; hagsmun- imir séu alls staðar og ritstjórastóll- inn eigi að vera hafinn yfir allan gran um hagsmunaárekstra, auk þess sem orðstír blaðsins byggist m.a. á slíku sjálfstæði. Forstjóri BBC varð að selja Þegar Greg Dyke tók við starfi forstjóra BBC fyrir skömmu hafði staðið nokkur styrr um hlutabréfa- eign hans. Strax eftir ráðningu hans fóra fjölmiðlar að skýra frá því að hann ætti hlutabréf í hinum og þess- um fyrirtækjum og leiða getum að því, hvaða áhrif þessi hlutabréfaeign ætti eftir að hafa á störf hans á for- stjórastóli BBC. Síðan vora settar fram kröfur um að hann losaði sig við öll hlutabréfin. Dyke hafnaði þeim möguleika fyrst og setti fram hugmyndir um að hlutabréfaeign hans yrði sett í sérstakan sjóð undir sjálfstæðri stjórn, en því hafnaði stjórn BBC og Dyke varð að selja hlutabréfin áður en hann tók við for- stjórastarftnu. Hertar reglur um blaðamenn Mál Anils Bhoyrals, blaðamanns á The Mirror, er þannig vaxið að hann er sagður hafa hvatt til hlutabréfa- kaupa í iyrirtækjum sem hann sjálfur á hluti í, til þess að ýta undir verð- mæti þeirra á markaðnum og þar með auka eign sína og/eða tekjur eftir aðstæðum. Bhoyral hefur sagt að hann sjái ekkert athugavert við það að mæla með fyrirtækjum, enda þótt hann eigi hluti í þeim. Hann segist starfa fyrir opnum tjöldum, því hann segi lesend- um eins og er, og sé rasandi yfir ásök- unum um að hann hafi brotið af sér í starfi. Hann hafi á síðustu tveimur ár- um veðjað á 692 fyrirtæki í dálki sín- um og skrifað lofsamlega um önnur 500. Hann hafi hins vegar aðeins átt hluti í fjóram fyrirtækjum; heildar- fjárfesting sín sé upp á 2.000 pund og sem stendur sé hann í 800 punda tapi. Sem era náttúrlega ekki meðmæli með ráðgjöf hans, ef út í það er farið! Siðareglur banna hins vegar blaða- mönnum að kaupa hlut í fyrirtækjum sem þeir hafa nýlega fjallað um eða ætla að fjalla um á næstunni og á það að koma í veg fyrir að blaðamenn noti vitneskju, sem þeir fá, áður en hún er á almannavitorði. Stjóm The Mhror taldi ekki ástæðu til aðgerða í máli Bhoyrals, en hefur þegar sett þá starfsreglu að blaðamenn viðskipta- ritstjómarinnar megi ekki kaupa hluti í fyrirtækjum nema hafa fengið til þess leyfi 72 klukkustundum fyrir kaupin. Ekki er búizt við niðurstöðum siðanefndar og kauphallarnefndar fyrr en í næsta mánuði. Hverjar svo sem þær verða, telja menn ljóst að þessi mál kalli á endurskoðun starfs- og siðareglna blaða og blaðamanna. En þetta snýst ekki bara um þau og þeirra pyngju, heldur miklu frekar skyldur þeirra við lesendur um áreiðanleg blöð og blaðamenn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.