Morgunblaðið - 10.02.2000, Side 27

Morgunblaðið - 10.02.2000, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000 27 ERLENT Peter Mandelson Hvetur IRA til að endur- skoða af- stöðu sína London, Dublin. Daily Telegfraph, AP, AFP. ÁFRAMHALDANDI viðræður áttu sér stað milli breskra og írskra stjórnmálaleiðtoga i gær í þeirri von að koma megi í veg fyrir að Norður- írland verði á ný sett undir beina stjórn frá London nk. föstudag. Neðri deild breska þingsins sam- þykkti á þriðjudag lagasetningu þess efnis, en hugsanlegt er talið að ríkisstjómir Bretlands og Irlands fundi fyrir vikulok um lausn á deil- unni. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ræddi í gær við Bertie Ahern, forsætisráðherra írlands, David Trimble, forsætisráðherra heimastjórnarinnar, og Peter Mand- elson, ráðherra Norður-írlandsmála í bresku stjórninni, en talsmenn Blairs neituðu að gefa upp efni við- ræðnanna. Mandelson hefur sakað Sinn Fein um „hroka“ og sagt að Sinn Fein, stjórnmálaarmur Irska lýðveldishersins (IRA) gerði lítið til að bjarga friðarferlinu. Útskýra bæri hvers vegna, ef stríðinu væri lokið, enn væri þörf á vopnum. í ræðu sem Mandelson flutti í breska þinginu í gær hvatti hann IRA til að endurskoða afstöðu sína og sagði pólitískan raunveruleika þann að IRA yrði að sýna lit ef bjarga ætti heimastjóminni. Dregur Adams sig í hlé? Mikil spenna ríkir nú í friðarum- leitunum og gaf Gerry Adams í skyn á blaðamannafundi á þriðjudags- kvöld að Sinn Fein væri e.t.v. ekki reiðubúið að taka þátt í friðarvið- ræðum á nýjan leik yrði heima- stjórninni slitið. „Við yrðum að hug- leiða það vandlega hvort við eigum að halda áfram að vera sendiboðinn sem er stöðugt tekinn af lífi þrátt fyrir tilraunir okkar til að leysa þennan vanda,“ sagði Adams og sagðist ekki hafa áhuga á að eyða ævi sinni í að afstýra stöðugu kreppuástandi. Fáir leggja trú á að Sinn Fein taki ekki þátt í friðarviðræðum á nýjan leik, þótt Adams hafi ítrekað sagst ekki geta neytt IRA til að afvopnast og að afnám heimastjórnar stofni friðarferlinu í hættu á nýjan leik. Sambandsflokkur Ulsters og leið- togi hans, Trimble, segja óhjá- kvæmilegt að stjórnin verði leyst upp hefji IRA ekki afvopnun nú þeg- ar. Að sögn AFP-fréttastofunnar er þó ekki talið ólíklegt að ríkisstjórnir Irlands og Bretlands sættist á ein- hverja málamiðlun, þar sem til að mynda væri sett fram tímaáætlun fyrir afvopnunarferli IRA. t\\ á 3SgsS5 hornso^í. 2229***’" o.I\.— Hjá okkur eru Visa- og Euroraðsamningar ávisun á staðgreiðslu Síðustu dagar Nú er um að gera að grípa tækifærið og gera það sem við köllum GÓÐ KAUPI allt að Armúla 8-108 Reykjavik Sími 581-2275 ■ 568-5375 a Fax 568-5275 a Líbanon - leikvöllur Israela og Sýrlendinga MIKLAR loftárásir ísraela á Líban- on hafa kynt undir ótta sumra við að ekkert verði af friðarsamningum milli þeirra og Sýrlendinga. Aðrir telja lít- ið að óttast í þeim efnum. Stjómvöld beggja ríkjanna viti sem er, að ein- hvers konar friðarsamningur sé óhjá- kvæmilegur og því séu átök ísraela og Hezbollah-skæruliða, skjólstæð- inga Sýrlendinga, bara enn ein glím- an á leikvellinum Líbanon. Haft er eftir vestrænum sendi- mönnum í Miðausturlöndum, að til- gangur Israela með árásunum sé íyrst og fremst pólitískur, þeir séu að reyna að styrkja samningsstöðu sína gagnvart Sýrlendingum. Hemað- arlega breyti árásimar engu. Þær vom gerðar til að hefna dauða nokk- urra ísraelskra hermanna sem skæruliðar Hezbollah felldu, en munu ekki koma í veg fyrir aukið mannfall. Óbreytt stefna „Hvað varðar hugsanlega friðar- samninga hefúr ekkert breyst," er haft eftir erlendum sendimanni í Beirút í Líbanon. „Stefna Ehuds Bar- aks, forsætisráðherra ísraels, er sú sama og áður, þ.e. að ísraelski herinn verði fluttur frá Suður-Líbanon fyrir 7. júlí nk., sama á hveiju gengur, og viðræðunum við Sýrlendinga verði haldið áfram.“ Viðræður ísraela og Sýrlendinga hófúst í desember sl. eftir fjögurra ára hlé en strönduðu fljótt á kröfú Sýrlendinga, um að ísraelar hétu því strax í upphafi að flytja her sinn frá Golanhæðum. ísraelar neita því og viija, að önnur mál verði leyst fyrst. Ýmsir te)ja að með loftárásunum á Líbanon séu ísraelar að koma þeim boðum til Sýrlendinga, sem em með 35.000 manna herlið í Líbanon og ráða í raun öllu í landinu, að nú sýni þeir samningsvilja, ella verði ekkert um að semja. Þegar ísraelar verði búnir að flytja aUt herliðið frá Suður- Líbanon sé ekki víst, að þeir hafi neitt meira við Sýrlendinga að tala. Afstaða Sýrlendinga er líka Ijós: Svo lengi sem ekki er um formlegan friðarsamning að ræða munu þeir leyfa skæmliðum Hezbollah að fara sínu fram. Flytji ísraelar her sinn einhliða frá Suður-Líbanon, þá verð- ur heldur ekkert um það að ræða, að Sýrlendingar ábyrgist fyrir sitt leyti öryggi ísraelsku landamæranna. Vilja burt úr kviksyndinu Suður-Líbanon er í senn stjóm- málalegt og hemaðarlegt kviksyndi fyrir Israela. Hersetan er ólögleg, brýtur gegn ályktunum Sameinuðu þjóðanna, og hermennimir em ber- AP Kamael Mroweih og sonur hans flytja burt það sem nothæft er af húsgögnum á heimili þeirra í Týros í Suður- Líbanon. ísraelar skutu í fyrrakvöld þremur flugskeytum á íbúðablokkina. skjaldaðir fyrir árásum Hezbollah. Eina svarið er að beita þeim hátækni- lega herbúnaði sem þeir ráða yfir, gegn hinu vamarlausa Líbanon. Skæruliðar Hezbollah, sem njóta mikils stuðnings meðal shíta í Líban- on; hafa allt að vinna með því að heija á Israela. Það má líta á það sem at- vinnu þeirra og með aðgerðunum tryggja þeir sér fjárstuðning, m.a. frá Sýrlandi og Iran. Brottflutningur hersins nýtur mik- ils stuðnings í Israel og honum mun að sjálfsögðu verða fagnað almennt þegar þar að kemur. Afleiðingarnar gætu þó orðið alvarlegar fyrir Líban- on og Sýrland. Þrátt fyrir átök Hezbollah og ísraela í Suður-Líban- on hefur ríkt ákveðið valdajafnvægi. Hverfi Israelar á brott skilja þeir eft- ir sig valdatóm, sem margir reyna að fylla. Má þar nefna Hezbollah, líb- anska stjómarherinn og suður-líb- anska herinn, sem stutt hefur ísraela. Það getur leitt til mikilla átaka og ef allt fer á versta veg tíl nýrrar borg- arastyijaldar. Hokkískautar: Reimaðir Stærðir 37-46 kVerð: Áður kr. 9-30» Nú kr. 6.536 Hokkískautar: Smelltir Stærðir 36-46 Verð: igfc, Áður kr. 54J9CT £iSL Núkr. 4.193 Listskautar: Vinil Hvítin 28-44. Svartir: 33-46 Stærðir 28-36 'í Áður kr.A»20T . - 4 Núkr. 2.941. Stærðir 37-46 Áður kr. At689 t Nú kr. 3.282 Smelluskautar: Stærðir 29-41 Verð: Áður kr. 4-089 Nú kr. 3.492 Listskautar: Leður Hvítin Stærðir 31-41 Verð: Áður kr. £Æ4T Nú kr. 4.374. Svartir: Stærðir 36-45 q*Áður kr.&AT* Nú kr. 4.532 Barnaskautar (Smelluskautar) '■% Stærðir 29-36 Verð: /*■ Áður kr. 3^89 Nú kr. 2.792 Skeifunni 11, sími 588 9890

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.