Morgunblaðið - 10.02.2000, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000 29
LISTIR
Söngvarar
og listrænir
stjórnendur
AIDA eftir Giuseppe Verdi. Sinfóníuhljóm-
sveit íslands og gestir í Laugardalshöll, í dag
kl. 19 og laugardag kl. 16. Sýningin er liður í
dagskrá menningarborgarársins.
Einsöngvarar: Kristján Jóhannsson,
Lucia Mazzaria, Larissa Diadkova, Giancarlo
Paquetto, Michail Ryssov, Guðjón Óskars-
son, Þorgeir J. Andrésson og Sigrún Hjálm-
týsdóttir.
Kórar: Kór íslensku óperunnar, Kór
Söngskólans í Reykjavík og Karlakórinn
Fóstbræður.
Kórstjóri: Garðar Cortes. (Kórstjóri Fóst-
bræðra: Arni Harðarson.)
Sviðsetning: Roberto Lagana Manoli.
Ljósahönnuður: Jóhann Bjarni Pálmason.
Hljóðhönnun: Gunnar Smári Helgason og
Ole Oder.
Búningar: Hulda Kristín Magnúsdóttir.
Hljóð og ljós: Exton.
Danshöfundur: Jóhann Freyr Björgvins-
son.
Dansarar: Jóhann Freyr Björgvinsson,
Hrefna Hallgrímsdóttir og Sveinbjörg Þór-
hallsdóttir.
Hljómsveitarstjóri: Rico Saccani.
ÞEGAR í uppsiglingu var mikil hátíð í tilefni
opnunar Súes-skurðarins 1869 var leitað til
Giuseppes Verdis og hann beðinn um að
semja stórt kórverk til flutnings við það tæki-
færi. Verdi hafði engan áhuga á því og hafn-
aði beiðninni. Ári seinna bárust honum í
hendur handrit sem fomleifa- og Egypta-
landsfræðingurinn Auguste Mariette hafði
samið og byggðist á frumsaminni sögu sem
látin var gerast í Egyptalandi til forna, AS'du.
Verdi tók þessu handriti sem himnasendingu
og ákvað að semja óperu, byggða á sögunni,
og bjóða hana fram til opnunarhátiðarinnar.
Fól hann Antonio Ghislanzoni að semja óp-
eruhandrit úr sögunni.
Boði Verdis var tekið og hófst undirbún-
ingur að uppsetningu óperunnar snemma árs
1870. Stóð sú vinna allt það ár. Margt varð
þess valdandi að hátíðahöldin og þar með
frumsýning óperunnar drógust á langinn,
styrjaldarátök, umsátur um París svo send-
ing búninga og leiktjalda tafðist, ágreiningur
um hlutverkaskipan og fleiri hindranir.
Seint á árinu 1871 hafði loks tekist að leysa
úr öllum vandamálum og sigrast á öðrum
hindrunum.
í skugga
stríðsátaka
Óperan var frumflutt í óperuhúsi Kaíró-
borgar hinn 24. desember 1871 og hlaut, eins
og vænta mátti, gífurlega hrifningu. Hljóm-
sveitarstjóri á frumflutningi óperunnar var
Giovanni Bottesini (1821-1889) en hann var
þekkt tónskáld og einn fremsti kontrabassa-
leikari síns tíma.
/
Astir og
átök
Aida gerist í skugga stríðsátaka Egypta og
Eþíópíumanna. Egypska konungsdóttirin,
Amneris, ann hinum unga stríðsmanni Rad-
ames en óttast að hugur hans sé hjá eþíópísku
ambáttinni Aidu. Uppgjörinu er þó skotið á
frest er gyðjan Isis tilnefnir Radames sem
hersljóra gegn her Eþíópiu. Aida ber ugg í
bijósti vegna yfirvofandi bardaga því faðir
hennar, Amonasro konungur, fer fyrir
Eþíópíumönnum. Fari hann með sigur af
hólmi þýðir það ósigur Radamesar, sem hún
ann. Biður hún guðina að sjá aumur á angist
hennar.
Amneris leiðir A'ídu í gildru. Tilkynnir
henni að Radames sé fallinn. Taka viðbrögð
ambáttarinnar af öll tvímæli um tilfinningar
hennar. Biður hún Amneris að miskunna sér
meðan lýðurinn fagnar sigri Egypta í fjarska.
Sigurvegarinn, Radames, er krýndur lár-
viðarsveig og konungur heitir að veita hon-
um hvers sem hann óskar. Fangarnir eru
leiddir fram fyrir Radames, þeirra á meðal
Amonasro, faðir Aidu. Radames biður kon-
ung að sýna föngunum miskunn og hann
fellst á að náða þá alla nema Amonasro. Hann
færir Radamesi síðan gjöf - hönd dóttur sinn-
ar. Amonasro uppgötvar hvern hug dóttir
hans ber til Radamesar og knýr hana, í skjóli
föðurlandsástar, til að spyija ástmann sinn
hvaða leið egypski herinn muni fara til ár-
ásar á her Eþíópíu svo sá síðamefndi geti
veitt honum fyrirsát.
Radames tjáir A'idu ást sína og ákveða þau
að hlaupast á brott saman. Hrygg í hjarta ber
hún þó upp spuminguna fyrir föður sinn og
þegar Radames svarar sprettur Amonasro
fram úr fylgsni sínu. Radames iðrast að hafa
bmgðist föðurlandi sínu en Ai'da og Amon-
asro reyna að hughreysta hann. I þeim svif-
um birtist Amneris. Amonasro reynir að vega
hana en Radames kemur í veg fyrir það.
Feðginin forða sér á braut en Radames er
tekinn höndum og leiddur fyrir dómstól.
Grafinn lifandi
Amneris heitir því að bjarga Radames úr
prísundinni en hann hefur misst alla löngun
til að lifa enda þess fullviss að Ai'da sé öll.
Þegar hann fréttir að hún sé lífs, tekur hann
gleði sína á ný - fagnar því að geta dáið til að
bjarga henni. Hinn grimmi dómur er felldur:
Radames skal grafinn lifandi i hvelfinguna
undir altari guðsins sem hann hefur svívirt.
Kominn í hvelfinguna syngur Radames um
ást sína til Ai'du. Hann verður þá var við að
hún hefur læðst inn til að geta dáið í örmum
hans. Hann harmar val hennar en hún kveðst
reiðubúin að hverfa til æðri heima. Elskend-
umir sameinast en fyrir utan grafhvelfing-
una krýpur Amneris á bæn og biður fyrir sál
mannsins sem hún ann.
*
BMW 316 Compact er ótrúlega vel búinn bíll. Meðal staðalbúnaðar eru fullkomin
Hi-Fi hljómtæki með geislaspilara og 10 hátölurum, M-sportpakki, leðursæti,
ABS, 4 loftpúðar, ASC+T rásvöm og spólvörn (Automatic Stability Control + Traction)
og margt margt fleira. Komdu og prófaðu þennan frábæra bíl!
Grjótháls 1
sími 575 1210
Engum líkur
BMW Compact kostar kr. 1.948.000.
Enginn
stenst honum
snumng
BMW 316 Compact J ***