Morgunblaðið - 10.02.2000, Page 53

Morgunblaðið - 10.02.2000, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000 53 Hanna sig um set til Harvard og í septemberlok eignuðust þau sinn annan son, Þórodd. Það var ætlunin að skreppa i heimsókn í vor til að sjá bæði nýjasta meðliminn í fjölskyld- unni og Freystein. Það er svo erfitt að hugsa til þess að Freysteinn verð- ur ekki til staðar með breiða brosið sitt. Við fullorðna fólkið eigum nógu erfitt með að skilja hvernig Guð get- ur hrifið á brott úr örmum foreldra sinna litlu börnin, en erfiðara verður verkefnið að útskýra fyrir Þóroddi litla að stóri bróðir hans sé núna hjá Guði og eigi eftir að passa hann og fylgjast með honum úr fjarlægð þeg- ar hann vex úr grasi. Freysteinn á alla tíð eftir að lifa í huga okkar sem urðum þess aðnjótandi að kynnast honum þennan stutta tíma sem hann var á meðal okkar. Elsku Haraldur, Hanna og Þór- oddur, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð á þessum erfiða tíma í lífi ykkar. Það er okkar einlæga von að þið finnið styrk hvert í öðru til að takast á við þessa miklu sorg. Þröstur Grétarsson, Guðlaug I. Einarsdóttir og dætur. Það var í nóvember sem við sáum Freystein litla í síðasta skipti. Hann var þá sem endranær kröft- ugur, glaðlegur og áhugasamur lítill maður. Við höfum fylgst með Freysteini vaxa og dafna frá því hann var ný- fæddur lítill snáði í íþöku og hann heillaði okkur frá fyrstu stundu. Það var okkur mikið áfall að frétta af láti hans. Elsku Haraldur, Hanna, Þóroddur og aðrir ástvinir, við send- um ykkur okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Guð gefi ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vom grætir þá líður sem leiftur af skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (HIH.) Kristjana, Birgir og Valgerður. í Landnámabók segir frá land- námsmanninum Freysteini hinum fagra. Hann Freysteinn litli Har- aldsson bar nafn þessa landnáms- manns. Líkt og landnámsmennirnir var hann víðförull og hafði oftar en einu sinni á stuttri ævi ferðast á milli heimsálfa. Freysteinn var kátur og fjörugur strákur. Hann hafði stríðnisblik í augunum og hafði gaman af alls kyns ólátum og prakkaraskap. Sérstak- lega þótti honum gaman að ná taki á þykkum hárlokkum á síðhærðum stelpum. Þá hélt hann fast og vildi ekki sleppa. Hann var líka firna- sterkur og ákveðinn. Það urðu fáar torfærur á vegi hans sem honum tókst ekki að sigra. Hann var t.d. góður með sig þegar hann stóð uppi á borði og studdi sig við valtan lampa, jafnvel þótt hann væri eigin- lega í sjálfheldu og kæmist hvorki aftur á bak né áfram. Útivera átti vel við hann og hann undi löngum stund- um á róló og vildi ekki fara heim þeg- ar hann var sóttur. En Freysteinn var ekki bara kraftmikill fjörkálfur. Hann var líka svo undurblíður og góður lítill strákur sem hjúfraði sig í hálsakot á mömmu sinni. í september á síðasta ári urðu um- skipti í lífi Freysteins. Þá fékk hann virðingartitilinn stóri bróðir. Honum fannst þetta litla bam mikið furðu- verk. Af því hann var svo athugull tók hann fljótt eftir því að ef það heyrðist hljóð úr vöggunni kom mamma alltaf og tók barnið upp. Ekki leið á löngu áður en Freysteinn fór að sækja mömmu sína þegar heyrðist í barninu og leiða hana að vöggunni. Freysteinn Haraldsson hefur nú numið land á slóðum sem okkur eru ókunnar. Kæru vinir, Hanna, Har- aldur og Þóroddur. Við skulum ætíð leyfa minningunni um Freystein litla að lifa og rækta hana 1 Freysteins- lundi. Við sendum ykkur og ykkar samheldnu fjölskyldum okkar hlýj- ustu hugsanir. Hvíldu í friði, Freysteinn litli. Anna, Victor, Steinunn og Inga Rut. + Hallgrímur Júlíus Stefánsson fædd- ist á Fitjum í Skorra- dal í Borgarfjarð- arsýslu 27. september 1915. Hann lést á heimili sínu 4. febrúar síðast- liðinn. Foreldrar hans voru hjónin Karólína Hallgrímsdóttir, f. 1881, d. 1966, ættuð frá Flateyjardal í Suður-Þingeyj ar- sýslu og Stefán Guð- mundsson bóndi á Fiyum, f. 1864, d. 1933. Systkini Hallgrúns: Vigdfs Stef- ánsdóttir, f. 1909, d. 1999, Stefán Stefánsson, f. 1913, d. 1998, og Guðmundur Stefánsson, f. 1916. Hallgrúnur kvæntist Vigdísi Jónsdóttur 1946. Vigdís er dóttir hjónanna Gyðu Sigurðardóttur og Jóns Otta Jóns- sonar skipstjóra, sem lengst af bjuggu að Vesturgötu 36A Reykja- Mágur minn, Hallgrímur J. Stef- ánsson, er fallinn frá 84 ára að aldri. Ég var enn á unglingsaldri, þegar hann kvæntist systur minni, Vigdísi. Allt frá þeim fyrstu kynnum vorum við ekki aðeins mágar heldur mjög góðir vinir. Hallgrímur var einstaklega mikill heiðursmaður og ljúfmenni í allri framkomu sinni. Þær eru margar góðar stundirnar þegar við ræddum saman um margskyns málefni frá náttúrufræðum til þjóðfélagsmála. Hann var vel lesinn í náttúrufræð- um, einkum í fuglafræði. í hinu stóra bókasafni hans getur að líta allskyns rit um náttúrufræði. Það má segja svo að hann hafi verið áhuganáttúrufræðingur. Ég minnist skemmtilegra og lær- dómsríkra gönguferða okkar um fuglaparadísina í Miðdal í Laugar- dalshreppi, þar sem ég á sumarhús. Hann þekkti alla fugla og hljóð þeirra svo og nöfnin bæði á íslensku og latínu. Hallgrímur var bráðmyndarlegur maður og vel íþróttum búinn. Hann var lærður íþróttakennari og stund- aði fimleika og kennslu. Það kom sér líka vel við vinnu og aðdrætti í heimahögunum á Fitjum. Hann sagði mér sögur af erfiðum göngum með bræðrum sínum yfir heiðarnar í Lundarreykjadal og í Hvalfjörð. Margar voru skautaferðirnar að vetrarlagi eftir endilöngu Skorra- dalsvatni með vörur á skautasleða í eftirdragi. Ekki lá það fyrir Hallgrími að gerast bóndi, sem hann hafði þó menntun til. Ungir menn með hans atgervi voru eftirsóttir til lög- reglustarfa og hann ákvað að ganga til liðs við lögregluna í Reykjavík og varð það hans ævistarf. Hann var farsæll lögreglumaður enda bæði heiðarlegur og réttsýnn. Hallgrímur var góður heimilisfað- ir og reyndist fjölskyldu sinni vel og vafalaust munu afa- og langafabörn- in sakna hans. Nú er komið að leiðarlokum. Ég þakka fyrir að hafa átt vináttu míns kæra mágs, Hallgríms Stefánsson- ar. Jón Otti Jónsson. Kæri afi, nú ertu farinn frá okkur og því miður er ekki hægt að fara aftur í tímann og rifja upp gamlar minningar með þér, en fjölmörgum minningum sem ég á um þig skaut upp í kollinum á mér þegar ég frétti af láti þínu. Maður bjóst nú við því að þetta myndi gerast fyrr eða síð- ar, þú varst orðinn svo mikið veikur. Ég man sérstaklega eftir því þegar ég hitti þig sunnudaginn 23. janúar og þá vorum við að koma með GSM- símann sem amma hafði keypt handa þér svo hún gæti alltaf náð í þig. Þá sá ég svo greinilega að veik- indin voru að taka sinn toll. En svo kom þessi sorgardagur, föstudagur- inn 4. febrúar. Ég var bara í skólan- vík. Þau eru látin. Synir Vigdísar og Hallgríms eru Jón Otti Ólafsson f. 1941, sem Hallgrímur gekk í föðurstað, maki Jónrna M. Aðal- steinsdóttir, Stefán Hallgrímsson, f. 1948, og Ásgeir S. Ilallgrímsson, f. 1954, maki Steinunn J. Ásgeirsdóttir. Hallgrímur út- skrifaðist frá Héraðsskólanum á Laugarvatni 1935, Iþróttakennaraskóla íslands 1936 og frá Bændaskólanum á Hvann- eyri 1939. Hallgrfmur starfaði í lögreglu- liði Reykjavíkur frá árinu 1940 og þar til hann hætti vegna aldurs. Hann var formaður Lögreglufé- lags Reykjavíkur 1947-1948. títför Hallgríms verður gerð frá Grensáskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 10.30. um í frönskuprófi. Svo kom mamma mín og sagði mér frá látinu og þá minntist ég þess, þegar ég var lítil og gisti oft hjá ykkur ömmu um helgar. Við fórum alltaf í sund í Seltjamarneslaugina. Þar þekktuð þið amma fullt af fólki og við tókum alltaf strætó, leið 3, það var eini strætóinn sem stoppaði stutt frá ykkur. Ég mundi líka eftir því að ég fór oft með ykkur í danstíma í Fé- lagsmiðstöð aldraðra á Vesturgöt- unni og eitt sinn urðuð þið íslands- meistarar í ykkar aldursflokki. Á Vesturgötunni lærði ég líka að spila pool. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, þú varst svo góður afi að ég á eftir að hugsa um þig á hverjum degi. Elsku afi, ég vona að þú sért kominn á góðan stað núna og að þér líði vel. Elsku amma, Jón Otti, Stefán, pabbi og aðrir ættingjar, ég votta ykkur mína innilegustu samúð. Ef þú ert fús að halda á haf, þó hrönnin sé óð, og hefur enga ábyrgð keypt í eilífðarsjóð, og lætur bátinn bruna djarft um boða og sker: Þá skal ég sæll um sjóinn sigla með þér. (Þorsteinn Erlingsson.) Björg Aðalheiður. Elsku afi, söknuðurinn er svo mikill og eins og allir vita er sárt að missa ástvin. En við munum svo vel eftir því yngri systkinin að við reyndum að gista hjá ykkur ömmu eins oft og mögulegt var. Það var alltaf svo gaman, við spiluðum alltaf ólsen ólsen á kvöldin áður en við fór- um að sofa. Síðan vöknuðum við snemma og fórum í sund. Svo þegar við komum heim úr sundi fenguð þið amma ykkur lúr og við vorum bara frammi eitthvað að dunda okkur. Okkur hefur verið sagt að þú hafir passað eldri systkini okkar þegar mamma var að eiga okkur. Svo hafð- ir þú mjög mikinn áhuga á fuglum og hitamælum. Það var alltaf jafn gaman að heyra þig raula fugla- söngva eða gera fuglahljóð. Þú varst líka svo duglegur að hjálpa pabba að byggja við húsið okkar. Þú varst bara svo duglegur maður, það er mjög erfitt að missa þig. Elsku afi, við munum varðveita minningu þína í sálum okkar lengi og við vitum að þú ert kominn á góð- an stað og laus við öll veikindi og að þú fylgist ávallt með okkur. Guð geymi þig og varðveiti. Nú heyri ég lóunnar hugðnæma söng því heim er hún komin í fjallanna þröng að boða okkur blessun og friðinn. Ég titra af hrifningu og tileinka mér þann talandi guð sem í rödd hennar er, svo viss um að vetur sé liðinn. (Halla frá Laugabóli.) Þín barnabörn Iíarólína og Árni. HALLGRÍMUR J. STEFÁNSSON t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALHEIÐUR GUÐRÚN ELÍASDÓTTIR, lést á Vífilsstöðum að morgni þriðjudagsins 8. febrúar. Gunnar Andrésson, Ragnar Andrésson, Ágústa I. Andrésdóttir, Guðbjörg Andrésdóttir, Hallmundur Andrésson, Guðbjörg Þorsteinsdóttir, Lilja Ólafsdóttir, Rögnvaldur Haraldsson, Gunnar Jónsson, Kristín Tómasdóttir, Jóakim Tryggvi Andrésson, Sigríður Aðalbjörg Jónsdóttir, Halldór Ingi Andrésson, Hafdís Ósk Kolbeinsdóttir, Hafsteinn Andrésson, Gunnhildur Margrét Vésteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, SVANBORG MAGNEA SVEINSDÓTTIR, Engimýri 3, Akureyri, andaðist á hjúkrunardeildinni Seli föstudaginn 4. febrúar. Jarðsungið verður frá Akureyrarkirkju föstu- daginn 11. febrúar ki. 11.00. Jónas Davíðsson, Sveinn Jónasson, Guðný Anna Theodórsdóttir, Anna Jónasdóttir, Kristján Árnason, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR, Víðihlíð, Grindavík, áður til heimilis á Vallarbraut 2, Ytri Njarðvík, lést mánudaginn 7. febrúar síðastliðinn. Útför hennar fer fram frá Ytri Njarðvíkurkirkju laugardaginn 12. febrúar kl. 13.30. Haukur Örn Jóhannesson, Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Jóna Margrét Jóhannesdóttir, Haraldur Einarsson og barnabörn. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, ÞÓRA HANNESDÓTTIR, Vailargerði 40, Kópavogi, sem lést sunnudaginn 6. febrúar, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju föstudaginn 11. febrúar kl. 13.30. Guðjón Aðalsteinn Guðmundsson, Guðmundur Guðjónsson, Tove Bech, Gísli Guðjónsson, Julia Guðjónsson, Þóra Margrét Guðmundsdóttir, Guðjón Aðalsteinn Guðmundsson. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, VERNHARÐUR SIGURGRIMSSON, Holti, Flóa, verður jarðsunginn frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 12. febrúar kl. 13.00. Gyða Guðmundsdóttir, Guðbjörg Vernharðsdóttir, Guðmundur Vernharðsson, Sigríður Helga Sigurðardóttir, Katrín Vernharðsdóttir, Eiríkur Vernharðsson, Herborg Pálsdóttir, Úlfar Guðmundsson, Vernharður Reynir Sigurðsson, Ingibjörg Birgisdóttir, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.