Morgunblaðið - 10.02.2000, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 10.02.2000, Blaðsíða 54
54 FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000 r1". MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Guðrún Péturs- dóttir, kjóla- meistari og húsmóð- ir, fæddist í Hrauni í Keldudal í Dýrafirði 15. nóvember 1916. Hún lést á Land- spítalanum 2. febr- úar sfðastliðinn eftir stutta legu. Foreldr- ar hennar voru Sig- ríður Þorsteinsdóttir frá Dynjanda í Arn- arfirði, f. 24.8. 1886, d. 6.9. 1947, og Pétur Kristján Elíasson frá Neðribæ í Arnarfirði, f. 18.6. 1884. Hann fórst með þil- skipinu Dýra í apríl 1922. Guðrún átti fjögur systkini. Tvö þeirra, Guðrún og Elías, dóu kornung en tvo bræður sína missti Guðrún 1942, Guðmund sem fórst með flutningaskipinu Fanefeld og Þor- stein Jörund sem dó úr berklum. Guðrún giftist árið 1944 Friðr- iki Karlssyni, f. 28.9. 1918, d. 28.9. 1989, fyrrverandi framkvæmda- stjóra Domus Medica. Þau bjuggu í Mávahlíð 39 í Reykjavík frá 1947 þar til Friðrik lést en stuttu seinna 'V „Þetta er fallegur dagur til að deyja.“ Þessi orð komu mér í hug er ég fór ásamt konu minni að dánar- beði tengdamóður minnar. Það var björt nótt og falleg. Guðrún Péturs- dóttir hafði verið hraust og kraft- mikil þar til hún fékk heilablóðfall og líf hennar fjaraði út á fáum dög- um. Henni varð að ósk sinni og þannig vildi hún fara. Guðrún var af vestfirsku sjó- manns- og bændafólki komin. Fædd á Hrauni í Keldudal í Dýrafirði. Lífsbaráttan var hörð á Vestfjörð- um sem og víða annars staðar í byrj- un aldarinnar. Guðrún átti fjögur systkin. Tvö dóu ung úr bamaveiki ári áður en Guðrún fæddist. Þor- steinn Jörundur bróðir Guðrúnar dó úr berklum 1942 og það sama ár drukknaði bróðir hennar Guðmund- ur. Faðir Guðrúnar drukknaði einn- ig er þilskipið Dýri fórst, er hún var sex ára. Tóku þá föðurbróðir hennar Kristinn Elíasson, og amma, Guð- björg Jónsdóttir, stelpuna að sér og fluttist hún með þeim að Lokin- hömrum og var þar uns hún var níu ára. Kvæntist fóstri hennar þá Daðínu Guðjónsdóttur sem reyndist Guðrúnu hið besta. Bjó Guðrún hjá . þeim lengst af á Sæbóli í Haukadal í Dýrafirði. Daðína lést háöldruð í Reykjavík árið 1999. Sem unglingur fór Guðrún að vinna á spítalanum á Þingeyri og síðar að salta síld á Siglufirði. Fimmtán ára fór hún til Reykjavíkur og bjó þar eftir það. Af ýmsum ástæðum fór það svo að Guðrún átti ekki afturkvæmt á bemskuslóðir fyrr en rúmum 50 ár- flutti Guðrún í þjón- ustuíbúð í Bólstaðar- hlíð 41. Þau áttu tvö börn: 1) Sigríði P. Friðriksdóttur, kennaraí Flensborg í Hafnarfirði, f. 31.8. 1949, gift Bjama S. Ásgeirssyni, lög- manni. Eiga þau tvö böm, Guðrúnu Björk Bjamadóttur, lögmann, hennar maki er Ingvar Stef- ánsson, bygginga- verkfræðingur, og Friðrik Om Bjarna- son, nema í HÍ. 2) Karl G. Frið- riksson, framkvaemdastjóra hjá Iðntæknistofnun íslands, f. 2.2. 1955, kvæntur Hafdísi Rúnar- sdóttur, hjúkrunarfræðingi. Þau eiga tvö böm, írisi Rún Karlsdótt- ur og Friðrik Karl Karlsson. Haf- dís á einnig dóttur, Bryndísi Haraldsdóttur, iðnrekstrarfræð- ing. Sambýlismaður hennar er Ornólfur Ornólfsson, rafvirki. Utför Guðrúnar fer fram frá Háteigskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. um eftir að hún fluttist þaðan. Á fyrsta hálfa tímanum sem hún dvaldist á Þingeyri í það sinn hitti hún af hreinni tilviljun fimm eða sex gamla félaga og vini. Okkur, sem urðum vitni að þessum atburði, þótti þetta að sjálfsögðu bæði merkilegt og skemmtilegt því það var eins og hún hefði rétt skroppið að heiman. Eftir að Guðrún fluttist til Reykjavíkur fór hún fljótlega að læra að sauma, m.a. hjá Guðrúnu Arngrímsdóttur, og um tvítugt lauk hún námi sem kjólameistari. Ég minnist þess að hafa síðar séð mörg meistarastykki Guðrúnar, ekki síst kjóla sem hún saumaði fyrir helstu óperusöngkonur okkar íslendinga á sjötta og sjöunda áratug aldarinnar. Er fram liðu stundir og eftir að Guð- rún hætti vinnu gafst henni tími til annars konar handavinnu. Mig langar sérstaklega að minn- ast leirkerasmíði hennar. Naut hún þar einkum leiðsagnar Sigríðar Ágústsdóttur leirkerasmiðs. Oft er það svo að þegar minnst er á leir- kerasmíð eldri borgara er litið á slíkt fyrst og fremst sem dægra- styttingu. Að sjálfsögðu var leir- kerasmíð Guðrúnar dægrastytting en um leið miklu meira. Guðrún hafði einkar listfengan þráð eða neista sem henni tókst að varðveita og þróa. Fóru þar saman smekkur og næmt auga fyrir því sem var fal- legt og vel gert. Væri hún ekki án- ægð með verkið var því miskunnar- laust fórnað og hafist handa að nýju. í dag eru í eigu fjölskyldu Guðrúnar glæsilegir gripir sem hún skóp og sóma sér fyllilega innan um vönduð listaverk. Eftir að iðnnámi Guðrúnar lauk vann hún talsvert við sauma. Eitt sinn sagði hún mér þá sögu að þegar hún var rúmlega tvítug og vann á greiðasölu í Reykjavík hafi húsmóð- irin komist að því að Guðrún var lið- tæk við sauma. Hafi hún þá dengt yfir Guðrúnu miklum fjölda af buxum sem eigin- maður húsmóðurinnar hafi átt og þurftu lagfæringar við. Hafi það verið ótrúlegt hvað maðurinn átti af buxum og hafi hún eytt fleiri dögum í að skipta um rennilása, laga vasa og stytta. Fljótlega stofnaði Guðrún eigið fyrirtæki og saumaði myrkranna á milli. Vel gekk þar til hún hitti Friðrik Karlsson, mannsefnið sitt, en þá breyttust vinnuvenjurnar. Þessi ungi maður lét hana ekki í friði. Guðrún og Friðrik giftust árið 1944. Voru þau meðal frumbyggja í Hlíð- unum og byggðu Mávahlíð 39. Árið 1989 lést Friðrik og ekki löngu síðar fluttist Guðrún í þjónustuíbúð að Bólstaðarhlið 41 og átti þar gott ævikvöld. Árið 1949 eignuðust þau hjón Sig- ríði Petru og síðan árið 1955 soninn Karl Guðmund. Um það leyti sem ég fór að draga mig eftir Sigríði dóttur þeirra var Friðrik að Ijúka miklu verki eða smíði stórhýsis við Egils- götu sem var Domus Medica. Bygg- ing eins og Domus Medica, eða hús læknanna, var þá nýlunda og þurfti kjark og þor bæði lækna og annarra að takast á við slíkt verk. Rak Frið- rik síðan Domus Medica og var framkvæmdastjóri þess til dauða- dags. Það var afrek út af fyrir sig að skömmu fyrir andlát sitt skilaði Friðrik af sér þessu stórhýsi skuld- lausu til vina sinna í læknastétt. í fjölda ára vann Guðrún með manni sínum í Domus Medica og var betri en enginn. Af eðlilegum ástæðum var ég á ýmsan hátt bæði óreyndur og ómót- aður er ég fór að venja komur mínar heim til þeirra hjóna. Að undan- skildum foreldrum mínum má óefað telja að þau hjón hafi ekki síst haft áhrif á mótun mína sem ungs manns. Á ég þeim þar mikið að þakka. Friðrik var ákveðinn, stjórnsamur og forkur duglegur. Fáa hef ég hitt sem voru jafn hreinskiptir og eðlisgreindir og hann. Guðrún var að mörgu leyti gott mótvægi við Friðrik. Hún fór, ekki með hávaða og féll ekki verk úr hendi. Er við hjón eignuðumst okkar íyrsta bam vorum við bæði í há- skólanámi. Var Guðrún þá meira en tilbúin að taka við ömmuhlutverk- inu. Hætt er við að nám okkar hefði dregist meira en góðu hófi gegndi án hennar aðstoðar og velvilja. Var það mikið lán dóttur okkar að fá að vera löngum stundum hjá ömmu sinni og nöfnu. Urðu þær ævarandi vinir. Er dóttir okkar þurfti t.d. að- stoð við fataval var Guðrún amma hinn besti ráðunautur. Skipti aldur þar engu máli. Ömmuhlutverkið tók hún einnig að sér og leysti ekki síð- ur gagnvart syni okkar Friðriki sem og börnum sonar síns og konu hans Hafdísar, þeim Bryndísi, Irisi og Friðriki Karli. Það er mikil gæfa hverju barni og unglingi að fá að njóta tilsagnar og vináttu slíkrar sómakonu. Bjami S. Ásgeirsson. Nú er Guðrún amma farin og söknuðurinn er mikill. Á slíkri stund hugsar maður til allra þeirra góðu minninga sem maður á um ömmu. Ég var svo heppin að eignast þriðju ömmuna upp úr tíu ára aldri. Ég man ekki hvenær við hittumst í fyrsta skipti en minnisstætt er að hafa setið í eldhúsinu í Mávahlíðinni og borðað bestu brúnköku sem fyr- irfinnst. Það er mér enn ráðgáta hvemig ömmu tókst að baka svona himn- eska köku. Ég man líka vel eftir því þegar öll fjölskyldan fór í ferð um Vestfirði á æskuslóðir ömmu. Það var gaman að fylgjast með henni þegar hún rifjaði upp æskuminningar sínar. Ég man sérstaklega eftir því þegar amma keypti sér skó í ferðinni, gráa strigaskó en það voru hennar fyrstu og líklega einu strigaskór. Mér sem barni fannst mjög undarlegt að amma sem búin væri að lifa í mörg mörg ár hefði aldrei átt strigaskó. En Guðrún amma tók sig vel út í strigaskónum og síðbuxum þó hún væri ekki vön að ganga í slíkum fatnaði. Amma var nefnilega mikil hefðarfrú og alltaf fallega klædd. Enda var hún mjög fær saumakona og mikil smekkmanneskja. Hún saumaði kjólinn á mig fyrir brúð- kaupið hjá mömmu og pabba. Amma átti líka heiðurinn af fermingar- dragtinni minni. Ég man vel þegar ég fór með mömmu og ömmu í bæinn til að skoða úrvalið af slíkum fatnaði og ákveða hvernig ég vildi að fermingarfötin mín litu út. Við mæðgurnar vorum ekki alltaf sam- mála þegar að klæðaburði kom en ömmu tókst mjög vel að sameina óskir okkar beggja. Amma var mikil handverkskona og voru afrek hennar mörg. Þegar hún hóf fyrir nokkrum árum að vinna með leir spruttu fram mörg meistaraverkin. Mér þykir mjög vænt um vasann sem hún gaf mér í jólagjöf fyrir nokkrum árum og eru gestir iðnir við að hrósa þessu meistaraverki. Síðasta jólagjöfin frá Guðrúnu ömmu var mjög fallegt sængurverasett sem hún hafði sjálf saumað. Aldrei óraði mig fyrir því að þú yrðir ekki með okkur næstu jól, en ég er því fegin að hafa upplifað með þér aldamótin. Systkini mín þurfa ung að upplifa sorgina, en þau hafa nú misst sína uppáhalds ömmu, sem betur fer eiga þau þó allar fallegu minning- arnar um samverustundir ykkar. Alltaf fannst þeim gaman að fá að gista hjá þér og alltaf brölluðuð þið eitthvað skemmtilegt saman. Frið- rik Karl minnist ekki á jólin án þess að ömmuijúpur komi til tals og ég man vel eftir því þegar íris Rún sagði í einlægni: „Það er alltaf svo gott að tala við ömmu, hún skilur aUt.“ Ég var stolt af því að geta yfir há- tíðamar tilkynnt ættingjum að við Öddi ættum von á barni. Elsku Guðrún amma, þú lifðir ekki til að sjá það en ég trúi því að þú munir vaka yfir okkur öllum og vemda okkur um ókomna tíð. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka þér. Þinn kærleikur í verki var gjöf sem gleymist eigi og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Bryndís. Það er skyndilega komið að kveðjustund, hún Unna mín er dáin. Það hafði ekki langan aðdraganda og ég er þakklát fyrir að hafa getað setið við rúmið hennar og haldið um hendurnar á henni næstsíðasta dag- inn sem hún lifði. Hugurinn leitaði ósjálfrátt aftur í tímann til bemskuáranna sem við áttum saman vestur í Haukadal í Dýrafirði. Hún var hjá foreldrum mínum til 16 ára aldurs ásamt ömmu okkar beggja sem átti hjá okkur heimili, hún var ein af þessum ömmum sem aldrei gleymast, sagði okkur sögur, kenndi okkur að lesa og aðra góða siði. Það var talsverður aldursmunur á okkur Unnu og það var nú ekki ónýtt að eiga stóra góða frænku sem maður leit upp til, því hún var svo lagin við að sauma brúðuföt og hjálpa mér við ýmsa hluti sem ég var að gera en var ekki alltaf nógu þolinmóð við, auk þess gætti hún þess vandlega að við systkinin yrð- um ekki fyrir neinum áföllum. Hún átti forláta gamalt koffort með handraða, þar geymdi hún upp- áhaldshlutina sína og fallegustu föt- in sín, og ég man hvað mér fannst mikið til um þegar hún leyfði mér að skoða hvað þar var geymt. Hún fluttist með móður sinni suð- ur til Reykjavíkur þar sem hún lærði að sauma, varð meistari í kjólasaumi, stofnaði og rak sauma- Crjíscfryfífyur Upplýsingar í símum 562 7575 & 5050 925 1 HOTEL LOFTLEIÐIR O ICCLANDAIR HOT CLS Glæsileg kaffihlaðborð FALLEGIR SALIR OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA T) i 3 1 ZJ / . I Útfararstofan annast meginhluta allra útfara á höfuöborgarsvæðinu. Þar starfa nú 15 manns við útfararþjónustu og kistuframleiðslu. Alúileg þjónusta sem byggir á langri reynslu Utfararstofa Kirkjugarðanna ehf. Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími 551 1266-www.utfarastofa.com ^OGAgS^ GUÐRUN PÉTURSDÓTTIR stofu í mörg ár. Hún kom gjarnan í heimsókn vestur á sumrin og þegar hún fór aftur vorum við systur oft- ast einum kjól ríkari auk þess sem það kom fyrir að hún tók með sér efni sem við áttum, saumaði úr því fyrir sunnan og fyrir jólin fengum við svo senda glæsikjóla sem gaman var að spóka sig í. Við Unna stóðum alltaf í miklum bréfaskriftum, og þegar hún skrifaði mér að hún væri búin að eignast mann sem hún ætl- aði að giftast þá er ég ekki frá því að ég hafi aðeins fundið til afbrýðisemi. Þegar ég kom hingað suður til að vinna var hún gift, þá átti ég svo sannarlega athvarf hjá henni og hennar ágæta eiginmanni og þótt ég byggi út í bæ varð ég fastagestur þar og fann að ég var alltaf velkom- in. Þegar ég gifti mig saumaði hún á mig brúðarkjólinn og hjálpaði mér með það allt eins og þegar ég var lít- il stelpa. Þótt við værum orðnar full- orðnar og stundum langt á milli samfunda fannst mér alltaf eins og við hefðum verið saman í gær. Nú þegar hún er horfin er gott að geta látið hugann reika og rifjað upp allar góðu minningarnar sem aldrei verða festar á blað. Hún var gæfu- söm kona, átti góðan mann, mann- vænleg börn, tengdabörn og indæl barnabörn sem ég veit að voru henni afar kær. Systkini mín og við hjónin send- um fjölskyldu hennar innilegar sam- úðarkveðjur og biðjum þeim bless- unar Guðs. Elsku Unna mín, hjartans þakkir fyrir allt. Sofðu rótt og Guð geymi þig- Elsa. Ég vil þakka fyrir þann tíma, sem ég bjó hjá Guðrúnu í Mávahlíðinni. Það var góður tími. Það fylgdi Guð- rúnu kyrrð og ró. Hún var mér hlý- leg og reyndist mér vel. En stundum kemur þögnin og þylur gömul Ijöð. Þá þrái ég enn að þakka hvað þú varst mild og góð. (Tómas Guðm.) Elsku Sísí, Kalli og fjölskyldur, ég hugsa til ykkar. Guð gefi ykkur styrk í sorginni. Eva Gunnlaugsdóttir. Þegar góð vinkona kveður er margt sem kemur upp í hugann og minningar streyma fram. Mig langar að skrifa örfá orð um mágkonu mína, hana Gunnu mág- konu. Gunna var gift bróður mínum Friðriki Karlssyni sem látinn er fyr- ir nokkrum árum. Við hjónin ásamt Gunnu og Frið- rik byggðum saman í tvígang við Mávahlíðina í Reykjavík á fimmta áratug síðustu aldar, í seinna sinnið sambyggt hús, þau við nr. 39 og við 41. Sambúð okkar í þessu húsi stóð í rúm 40 ár og bar þar ekki skugga á. Mikill samgangur var milli heim- ila okkar og var samband okkar við Gunnu ætíð gott enda var hún mjög góð og trygglynd kona. Gunna var lærður kjólameistari og vann við þá iðn í mörg ár en það var sama hvað hún tók sér fyrir hendur allt lék í höndum hennar. Gunna var mjög listræn og bar heimili hennar og Friðriks því fag- urtvitni. Ég vil með þessum línum þakka Gunnu mágkonu öll árin og votta bömum, tengdabörnum og bama- bömum mína dýpstu samúð. Kristin (Kidda). Kveðja frá spilafélögum Nú er skarð fyrir skildi. Hún Guð- rún er látin. Hér verða aðeins nokk- ur orð sett á blað sem kveðja frá spilafélögum. Við höfum spilað sam- an brids í nokkur ár, á heimavelli hennar í Bólstaðarhlíðinni. Oft var glatt á hjalla, enda ekki gerðar of háar kröfur í spilamennskunni. Guð- rún var góður félagi sem við söknum sárlega. Hún var vinur vina sinna og vildi öllum vel. Við biðjum henni guðs blessunar á vegferð sinni. Sendum öllum aðstandendum samúðarkveðjur. Spilafélagar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.