Morgunblaðið - 08.03.2000, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 08.03.2000, Qupperneq 1
57. TBL. 88. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Deutsche Bank og Dresdner Bank Stærsti banki í heimi? Frankfurt. AFP. VIÐRÆÐUR um sameiningu þýsku bankanna Deutsche Bank og Dresdner Bank eru komnar vel á veg en saman yrðu þeir stærsta bankastofnun í heimi. Að því er fram kom í Financial Times ætluðu bankaráðin að ræða sameiningaráætlunina hvort í sínu lagi í dag en samanlögð eign beggja bankanna er nærri 90.000 milljarðar ísl. kr. Hafa forráðamenn bankanna staðfest þetta hjá þýska verðbréfa- þinginu en síðustu daga hafa hluta- bréf í bönkunum hækkað verulega. Aukin hagræðing og sparnaður Einn af meginkostum sameining- ar er sagður vera aukin hagræðing og sparnaður og talið er, að hún muni ýta undir sameiningu fyrir- tækja í þýskum iðnaði, sem glímt hefur við of mikla framleiðslugetu og mikinn tilkostnað. Fulltrúar fyrirtækjanna ræddust við sl. haust um nánara samstarf en ekkert kom út úr því þá. Ýmsir sér- fræðingar telja, að það, sem hafi rekið á eftir sameiningunni nú, sé sú mikla fjárfesting, sem þörf er á vegna stóraukinna rafrænna við- skipta. Forkosningar vegna forsetakjörs- ins í Bandaríkjunum í nóvember voru haldnar hjá bæði repúblikön- um og demókrötum í gær í alls 16 sambandsríkjum og leit út fyrir að A1 Gore varaforseti myndi tryggja sér tilnefningu demókrata. Hann sigraði í Georgíu og samkvæmt út- gönguspám voru líkur á að Gore yrði efstur í öllum rikjunum. Meiri óvissa rikti um niðurstöðuna hjá repúblikönum en Sky-sjónvarps- stöðin sagði að George Bush ríkis- stjóri væri samkvæmt útgöngu- spánum efstur í Kaliforniu og Ohio. Hann sigraði í Georgíu en helsti keppinautur hans, John McCain Línur að skýrast vestra öldungadeildarþingmaður, hafði betur í Vermont; aðeins var búið að telja í þessum tveimur rikjum í gærkvöldi. Munurinn virtist ætla að verða lítill í New York. Bush virtist í gær reyna að ná sáttum við McCain er hann sagði að keppinauturinn hefði gert sig að betri frambjóðanda með því að skerpa lfnurnar í baráttunni. Tals- maður McCains sakaði hins vegar Bush um að hafa fengið ólöglegan fjárstyrk frá auðmanni í Texas er hefði verið notaður til að kosta óhróðurs-auglýsingar gegn Mc- Cain. Doris Haddock, níræð kona frá New Hampshire, lauk í gær rúm- lega fimm þúsund kílómetra göngu um Bandaríkin til að leggja áhcrslu á kröfur um umbætur á reglum um fjáröfiun í kosningabaráttu. Hún sést hér á leið framhjá minnismerk- inu um Lincoln forseta í höfuðborg- inni VVashington. Meint mannréttindabrot rússneska hersins í Tsjetsjníustríðinu Fulltrúar Evrópuráðs- ins munu afla ffasrna Moskvu, Strassborg, London, Prag. AP, AFP. Reuters Tsjetsjnesk stúlka horfir út uin tjald í Spútnik-flóttamanna- búðunum í Ingúsetiu í gær. RÚSSAR gerðu í gær harðar árásir með flugvélum og stórskotaliði á uppreisnar- menn í Tsjetsjníu, einkum í bænum Kom- somolskoje. Einnig sögðu talsmenn rúss- neska hersins að hópar uppreisnarmanna væru umkringdir í bæjunum Selmetauzen, Ulus-Kert, Vedeno og Agishti. Sergei Ja- strzhembskí, sem er talsmaður Vladímírs Pútíns forseta í málum Tsjetsjníu, sagði að skæruliðar gerðu nú oft rússneskum her- flokkum fyrirsát og hefðu liðsforingjar látið fella tré við vegarbrúnir til að Tsjetsjenam- ir geti ekki falist bak við þau. Hárt hefur verið barist í Kákasushér- aðinu síðustu daga og mannfall verið mikið. Jastrzhembskí viðurkenndi í gær að mann- fall Rússa 29. febrúar sl. í hörðum átökum við Ulus-Kert hefði ekki verið 31 eins og fyrst var sagt heldur mun meira, en ná- kvæmar tölur væru ekki enn fyrir hendi. Fréttastofan AVN segir að Rússar hafi misst 86 menn í átökunum við bæinn. Rússar hafa samþykkt að Mary Robin- son, fulltrúi Sameinuðu þjóðanna í mann- réttindamálum, fái að fara til Tsjetsjníu og kynna sér ástandið. Ennfremur samþykkti Evrópuráðið í gær að það myndi senda í vikunni nefnd á vett- vang og myndi hún safna gögnum í tengslum við deilur um aðild Rússa að ráðinu. Vilja sumir full- trúar reka þá vegna mannréttindabrota rússneska hersins í Tsjetsjníu. Ráðið varaði í gær Rússa við því að ef þeir virtu ekki ákvæði þess um mannrétt- indi mættu þeir búast við refsiaðgerðum. Madeleine Aibright, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, sagði í gær í Prag að dyr Atlantshafs- bandalagsins, NATO, stæðu Rússum opnar en lagði áherslu á að efla bæri samstarf Rússa og NATO. Hún ítrekaði að Vesturlönd hefðu miklar áhyggjur af stríðsrekstri Moskvustjórnarinnar í Tsjetsjníu. í viðtali sem BBC átti við Pútín forseta á sunnudag sagðist hann ekki Kta á NATO sem and- stæðing og útilokaði ekki að Rússar myndu sækja um aðild að bandalaginu. Hann virt- ist draga nokkuð i land í gær og Itar-Tass- fréttastofan hafði eftir Pútín að hann vildi nánari tengsl við NATO en ágreiningur um stefnuna gagnvart Júgóslaviu merkti að Moskvustjórnin myndi fara sér hægt hvað snerti aðildarviðræður. Haft var eftir Pútín að hann hefði á sunnudag m.a. haft í huga að Sovétríkin hefðu viljað taka þátt í stofn- un NATO 1949 en verið hafnað. ívan Sergejev, vamarmálaráðherra Rússlands, sagði í gær að Rússar litu ekki á NATO sem óvin og allt væri breytingum undirorpið þegar fjallað væri um aðgerðir til að „styrkja stöðugleika og frið í Evrópu". Hins vegar þyrfti NATO að verða fyrst og fremst pólitískt bandalag og hugsanlega verða hluti Óryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, ÖSE. Forsetaefni rússneska kommúnistaflokksins, Gennadí Zjúganov, hefur fordæmt ummæli Pútíns um NATO-aðild og sagt þau vera „einfeldningsleg og ófyrirgefanleg“. Þáttur BBC um velsk stjórnmál Ahorf- endur vantar London. The Daily Telegraph. LÍTILL áhugi virðist á heima- stjórninni í Wales því nýleg könnun bendir tii þess að viku- legur þáttur breska sjónvarps- ins BBC hafi nánast enga áhorfendur. Könnunin bendir til þess að tæplega 2.500 manns hafi horft á þáttinn vikuna sem Rhodri Morgan varð formaður heima- stjórnarinnar í Wales. Talan er innan skekkjumarka þannig að þátturinn taldist hafa „ekkert áhorf'. Þátturinn er sýndur frá klukkan 11.30 til 12 á fimmtu- dagskvöldum og yfirmenn BBC hafa neitað að upplýsa hversu miklu fé hafi verið eytt í hann. Heildarútgjöld BBC vegna um- fjöllunar um heimastjómina nema 6,3 milljónum punda, and- virði 730 milljóna króna, á ári. Talsmaður sjónvarpsins sagði að alls hefðu um 50.000 manns horft á þætti BBC um heimastjórnina og áhorfið um- rætt kvöld gæfi e.t.v. ekki alveg rétta mynd af viðtökunum. „Þetta er sjónvarpsþjónusta í þágu almennings og okkur ber meðal annars skylda til að framleiða vandað efni eins og þessa þætti.“ Heimildarmaður í starfsliði BBC í Cardiff sagði að könnun- in sýndi að lítill áhugi væri á heimastjórninni. „Menn hafa hent gaman að því að það væri ódýrara að senda fólki þáttinn á myndbandi fremur en sjón- varpa honum. Þeir eru ekki margir sem vilja horfa á þátt um velsk stjómmál þegar þeir koma heim af kránni." Norska þingið Minni líkur á stj órnar skiptum LJÓST varð um hádegisbilið í gær að stjórnarandstaðan í Noregi myndi ekki láta á það reyna í tengsl- um við deilur um uppbyggingu fræðslugarðs á Fornebu-flugvelli hvort stjórn Kjell Magne Bondeviks héldi velli, að sögn Aftenposten. A hinn bóginn verður í dag fjallað um annað deilumál, hvort reisa skuli orkuver sem brenna gasi. Lögfræð- ingar dómsmálaráðuneytisins segja að Stórþingið verði að setja sérstök lög ef það vilji skipta sér af ákvörð- unum stjómarinnar, sem hefur ákveðið að leyfa ekki byggingu slíkra vera nema fullnægt verði ströngum skilyrðum um varnir gegn loftmeng- un. MORGUNBLAÐIÐ 8. MARS 2000
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.