Morgunblaðið - 08.03.2000, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Um 200 manns skoðuðu tilraunabúið á Stóra-Ármdti fyrir helgina
Morgunblaðið/Valdimar Gestir á Stóra-Ármóti hlýða á erindi og njóta veitinga.
Endurbættur mjaltabás með tölvu og júgurbólguskynjara vakti athygli.
Itarleg rannsókn á
próteininnihaldi mjólkur
Gaulverjabæ - Um 200 manns,
bændur og búalið af Suðurlandi
ásamt gestum, litu við á opnu húsi
að Stóra-Ármóti í Hraungerðis-
hreppi 3. mars sl., þar sem rekin er
tilraunastöð í nautgriparækt.
Gestir hlýddu á fróðleik um
starfið og tilraunir sem fara fram á
staðnum og nutu veitinga. í haust
var ráðinn nýr tilraunastjóri, Grét-
ar Hrafn Harðarson dýralæknir á
Hellu, og útskýrði hann helstu
markmið, margs konar tilraunir
sem eru á döfinni og svaraði spurn-
ingum gesta. I gangi eru nú tilraun-
ir þar sem gerður er samanburður
á fóðrun heys úr fyrri og seinni
slætti. Ætlunin er að skoða áhrif
fóðrunar og meðferðar gripa á
efnainnihald mjólkur.
Markaðurinn kallar á próteinrík-
ari mjólk á kostnað fitu. Prótein-
innihald mjólkur hefur hins vegar
heldur lækkað síðustu ár og er það
hugsanlega talið að einhverju leyti
tengjast aukinni fóðrun nautgripa á
heyi úr rúllum. Þá er meira niður-
brot á próteini sem nýtist verr.
Þannig fóður, blautt og hálfþurrt,
kallar á orkuríkari og öðruvísi
kjarnfóðurblöndur en þegar mest
var fóðrað á þurrheyi. I svokölluð-
um vambaropskúm á Ármóti er
kannað niðurbrot próteins hinna
ýmsu fóðurtegunda og hefur þann-
ig fengist inargs konar fróðleikur.
Athygli gesta vakti endurbættur
mjaltabás í fjósinu sem annar um 60
mjólkurkúm sem þar eru. Mjög
margir kúabændur hafa komið sér
upp þannig aðstöðu síðustu ár.
Vakti athygli júgurbólguskynjari
sem nemur sýkingu í spena áður en
bólga kemst á alvarlegt stig. Einnig
sést í mjöltum ef kýr fær hita. „Mun
þetta væntanlega skila heilbrigðari
gripum og auðvelda mjaltir í fram-
tíðinni,“ að sögn Sveins Sigur-
mundssonar, framkvæmdasljóra
Búnaðarsambands Suðurlands, sem
rekur búið, en RALA kemur að til-
raunaþættinum og ræður tilrauna-
stjórann. Bústjóri að Stóra-Ármóti
er Einar Gestsson og Hafdís Haf-
steinsdóttir. Tilraunamaður Eirík-
ur Þórkelsson.
Þú getur treyst því að í Golf líður
þér eins og heima hjá þér
m
HEKLA
— tforystU á tlýrri öld! Laugavegur 1 70-1 74 • Sími 569 5500 • Heimasíba www.hekla.is • Netfang h e kl a@h e kl a . is