Morgunblaðið - 08.03.2000, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2000 29
LISTIR
Ungverskt
menning-
arkvöld
á Sóloni
FÉLAGIÐ Ísland-Ungverja-
land efnir miðvikudaginn 15.
mars til menningarkvölds á
veitingastaðnum Sóloni Island-
usi, Bankastræti 7a, 2. hæð, í
kvöld, miðvikudagskvöld, kl.
20.30. Tveir kórar koma fram
og flytja fjörug ungversk lög:
Samkór Kópavogs, undir stjórn
Dagi-únar Hjartardóttur og
Kvennakór Suðurnesja, undir
stjórn Agotu Joó. Pá sýnir Þór
Halldórsson litskyggnur frá
ferðalagi sínu um Ungverja-
land. Aðgangur er ókeypis.
Síðustu
sýningar
Baneitrað samband
Islenska óperan
Sýningum á leikriti Auðar
Haralds, Baneitruði sambandi,
sem sýnt er í Islensku óper-
unni, fer fækkandi. Leikritið
var samstarfsverkefni
Draumasmiðjunnar og Leikfé-
lags Akureyrar. Leikritið er
svört kómedía í leikstjórn
Gunnars Gunnsteinssonar.
Síðustu sýningar verða laug-
ardaginn 11. febrúar og laugar-
daginn 18. febrúar kl. 20.
Réttu mennirn-
ir til að spila
mína tónlist
Sunna Gunnlaugsdóttir djasspíanisti, sem
búsett er í New York, segir í samtali við
Guðjón Guðmundsson að hún hafi sett sam-
an draumasveitina sína. Sveitin, sem er
-------------7--------------
kvartett, kemur til Islands og leikur nýjar
tónsmíðar Sunnu á fimm tónleikum í mars.
S
UNNA Gunnlaugsdóttir
nam djasspíanóleik við
William Paterson College í
New Jersey og gaf hún út
sinn fyrsta geisladisk, Far Far
Away, árið 1997. Hún hefur dvalið
að mestu í New York við nám og
störf undanfarin sex ár.
Sunna var nývöknuð þegar
blaðamaður hringdi í hana og þótti
ekki uppörvandi að líta snjóinn
augum út um gluggann á íbúð sinni
í Brooklyn. Veturinn hefur verið
óvenju kaldur og langur, „eins og
heima á íslandi", segir Sunna, sem
fylgist með fréttum og veðri frá
föðurlandinu í gegnum Netið.
Sunna hefur mest starfað með
eigin tríói sem kom hingað og hélt
tónleika 1998. Kvartettinn hefur
Kamilíufrúin
dönsuð á ný
London. Morgunblaðið.
í RÖSK tuttugu ár hefur enginn
vogað sér að fara í fótspor þeirra
Margot Fonteyn og Rudolf Nureyev
í ballettinum Marguerite og Arm-
and. En nú hefur Konunglegi
ballettinn í London tekið
verkið til sýninga og svo vill
til að aðaldansaramir eru
báðir franskir; Sylvie Guill-
em og Nicolas Le Riche.
Frederick Ashton samdi
ballettinn 1963 með þau
Fonteyn og Nureyev í huga.
Eftir að Nureyev flúði vestur
fyrir járntjaldið 1961 stóð
heimurinn á öndinni yfir
snilld hans og Fonteyn. Þau
þóttu einstök saman og
margir vildu trúa því, að
þetta magnaða samband og
þeir töfrar, sem þau vöktu á
sviðinu, ættu rætur að rekja
til ástar þeirra í milli. Svo var
þó ekki, enda Nureyev sam-
kynhneigður og ást Fonteyn
á eiginmanni sínum alkunn.
En listamenn voru þau af
Guðs náð og það tókst þeim
að sýna og sanna á sviðinu.
Margot
Fontcyn
Rudolf
Nureyev
Ballettinn fjallar um Kamelíufrúna,
Marguerite Gautier, og unga mann-
inn, sem þráir það eitt að heimta
listmunir mSKKHKm
Erum að taka á móti verkum á næsta listmunauppboð.
Fyrir viðskiptavini leitum við að góðum verkum eftir
Jón Stefánsson, Nínu Tryggvadóttur, Þorvald Skúlason,
Gunnlaug Blöndal, Gunnlaug Scheving, Þórarin B.
Þorláksson, Krisu'nu Jónsdóttur og Louisu Matthíasdóttur.
Gallerí Fold
Rauðarárstíg 14—16, sími 551 0400.
fold@artgalIeryfold.com
www.artgalleryfold.com
verið starfandi í um eitt ár og hef-
ur leikið mest á New York-svæð-
inu af og til á þessu tímabili, þar
á meðal í Knitting Factory, sem
er helsta aðsetur framsækinna
djasstónlistarmanna í borginni.
„Ég var orðin dálítið þreytt á
tríóinu. Við höfðum verið svo
lengi saman og þetta var orðið of
vanafast. Scott [Lemore, trommu-
leikari] er enn í bandinu en það er
kominn nýr bassaleikari og saxó-
fónleikari hefur bæst í hópinn.
Við einbeitum okkur að efni eftir
mig og útsetningum á íslenskum
lögum.“
Sunna segir að kvartettinn sé
sín draumasveit. Það sé „meira
púður í þessari sveit en tríóinu“.
Tony Malaby er einn heitasti
tenórsaxófónleikarinn í New York
þessa dagana og hefur fengið sér-
lega góða gagnrýni í stóru blöð-
unum eins og New York Times og
Village Voice. Hann er sagður
brúa bilið á milli hins hefðbundna
og frjálsa djass. Drew Gress
bassaleikari er einna þekktastur
fyrir leik sinn með tríói Fred
Hersch, þar sem hefðbundinn
Sunna Gunnlaugsdóttir
djass er á dagskrá, en ekki síður af
framsækinni spilamennsku í félagi
við Tim Berne og Dave Douglas.
Scott Lemore er geysilega fær og
smekkvís trommari sem er Islend-
ingum að góðu kunnur. Hann held-
ur jafnframt úti eigin tríói með
Tony Malaby og Ben Street bassa-
leikara.
„Þetta er draumabandið mitt.
Fyrir einu og hálfu ári hitti ég
Skúla Sverrisson og hann spurði
mig hvað ég hefði fyrir stafni. Ég
sagði honum að ég vildi stofna
kvartett með þessum mönnum en
þá hafði ég ekki einu sinni hitt
Drew. Ég hafði lengi vitað það að
þetta væru réttu mennirnir til þess
að spila mína tónlist," segir Sunna.
Sunna semur mikið og á ekki
auðvelt með að skilgreina sína tón-
list. Hún segir þó að þetta sé djass
undir evrópskum formerkjum; ekki
hefðbundinn djass en samt ekki
villtur nútímadjass. Það gæti í raun
áhrifa frá alls konar tónlist. „Mín
kynslóð ólst upp við að hlusta á
popp og ég held að það komi fram í
því sem ég sem.“
I desember síðastliðnum tók
kvartettinn síðan upp geisladisk
sem er þó ekki kominn út. Sunna
er að leita að útgefanda fyrir disk-
inn og bindur vonir við að hann
muni opna kvartettnum enn fleiri
dyr. í fyrra fékk Sunna lista-
mannalaun úr Listamannasjóði til
þess að ljúka við eigin tónsmíðar,
útsetja íslensk lög, gera upptökur
og kynna efnið. Tónleikaferðin
hingað til lands er liður í þeirri
kynningu og í næsta mánuði leikur
kvartettinn á djasshátíð í Virginíu,
þar sem ísland skipar heiðurssess.
Tónleikar Kvartetts Sunnu
Gunnlaugsdóttur eru 9. mars á
Sólrisuhátíðinni á ísafirði, 10. mars
verða tónleikar í Gryfju Verk-
menntaskólans á Akureyri, 11.
mars í Borgarhólsskóla á Húsavík
og 12. og 13. mars verða tónleikar í
Múlanum í Reykjavík.
hana úr hórdómi hástéttarheimsins.
Blöð segja frá því, að þegar ball-
ettinn um Marguerite og Armand
var frumsýndur hafi listamennirnir
verið kallaðir fram 21
sinni í lokin. Eftii- það hét
ballettinn aldrei annað
en Fonteyn og Nureyev
og aðrir dansarar komu
ekki nálægt honum. Þau
fluttu hann síðast 1977 í
Manila á Filipseyjum og
síðan hefur hann ekki
sézt á sviði, fyrr en nú.
Reyndar töldu menn, að
ballettinn hefði dáið með
stjörnunum tveimur,
sem létust 1991 og 1993.
Sylvie Guillem hefur
lýst því, þegar lærifaðir
hennar við Paris Opera
Ballet, Rudolf Nureyev,
bauð henni 1987 heim til
þess að sjá myndband af
þeim Fonteyn dansa
ballettinn fræga. Hún
segir, að hann hafi verið
eins og barn, sem er að
sýna ókunnugum sitt bezta
gull. Ekki dreymdi hana um þá, að
það kæmi til hennar kasta, þegar
ballettinn yrði næst settur á svið.
ART CALLERY
IMámsstefna um fimmtu rammaáætlun
Ewrópusambandins
Mánudaginn 13. mars n.k. kl. 10:00 -17:00 í Háskóla íslands, Tæknigaröi, Dunhaga 5
Námsstefna um gerð umsókna og fjármögnun rannsókna- og tækniþróunarverkefna úr rannsóknarsjóðum
Evrópusambandsins, ásamt yfirliti yfir rekstur og þátttöku í slíkum verkefnum.
Námsstefnan er ætluð þeim sem eru að huga að umsóknum á næstunni og er sambærilegt námsstefnu
sem haldin var í september á síðasta ári. Fjallað verður almennt um skilyrði umsókna og hvemig gerð
þeirra skuli háttað. Rætt verður um samningagerð vegna verkefna og þann lagagrunn sem þau byggja
á, auk þess sem mismunandi samningsform verða skoðuð. Einnig verða tekin fyrir helstu atriði sem huga
þarf að í rekstri slíkra fjölþjóðaverkefna og hvaða kröfur eru gerðar til þeirra af hálfu Evrópusambandsins.
\. • Fyrirlesari verður Óskar Einarsson,
sérfrœðingur hjá DG ínformation Society hjá ESB
7T~ Helstu efnisþættir til umræðu og kynningar:
/ | • Stutt umfjöllun um 5. rammaáœtlun Evrópusambandsins
• Ferill umsókna og mat þeirra \ ,*,' í
9 'Gerð umsókna og uppbygging
• Mikilvœg atriði sem þörf er að huga að í undirbúningi umsókna
\ \ • Val umsókna
pTSamn$ngur um verkefni og rekstur þeirra
Umsóknarferli eru óháð fagsviðum, þannig að allir sem hafa hug á að sækja um
í rannsóknarsjóði Evrópusambandsins geta haft gagn af umfjölluninni. Hins vegar
mun „Upplýsingaþjóðfélagið" (IST -Information Society Technologies) verða
notað sem dæmi, þegar þörf er á ákveðnum tilvísunum.
i ►
Rannsóknaþjónusta
IIÁSKÓLA ÍSLAXDS
• Námsstefhan er öllum opin sem eru að huga að umsóknum í fimmtu rammaáætlun
Evrópusambandsins en fjöldi þátttakenda verður takmarkaður við 25 manns.
• Þátttökugjald er 1.500 kr., innifalið í þátttökugjaldi er léttur hádegisverður.
Tekið er á inóti skráningum hjá Rannsóknaþjónustu Háskóla íslands í síma 525
4900 og er skráningarfrestur til 9.mars. Nánari upplýsingar veitir Eirikur Bergmann
Einarsson; netfang: ee@rthj.hi.is
Tæknigarði, Dunhaga 5, 107 Rvk., sími 525 4900, fax 552 8801, netfang rthj@hi.is, vefsíða www.rthj.hi.is