Morgunblaðið - 08.03.2000, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2000 31
LISTIR
Ljósmyndasafn Reykjavík-
ur hlytur viðurkenningu
LJÓSMYNDASAFN Reykjavíkur
hefur verið valið til að hljóta sam-
starfsverðlaun sem veitt eru af Int-
ernational Partnership Among
Museums (IPAM) í samvinnu við
Ansel Adams Center: Friends of
Photography í San Francisco og
veitt eru af Bandan'sku safnasam-
tökunum (AAM).
Samstarfsverkefnið snýst um
gerð á safnkennsluefni fyrir kenn-
ara og nemendur á sviði ljósmynda-
sögu. Sérstaklega verður vikið að
landslagsmyndum og hvernig þær
myndir móta hugmyndir fólks um
náttúruna og óspillt landsvæði.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur og
Ansel Adams Center: Friends of
Photography munu m.a. nota í
þessu verkefni myndir úr safnkosti
beggja aðila, þar á meðal framlag
bandaríska ljósmyndarans Ansel
Adams sem þekktur er fyrir lands-
lagsmyndir sínar. Verkefnið verður
meðal annars gert aðgengilegt á
vefsíðum beggja stofnana sem
standa að þessu verkefni, á íslensku
og ensku.
Þátttakendur í verkefninu eru,
fyrir hönd Ljósmyndasafns
Reykjavíkur Guðbrandur Bene-
diktsson sagnfræðingur og fyrir
hönd Friends of Photography Julia
Brashares listfræðingur.
„Síðastliðin tuttugu ár,“ segir Ed
Able, forstjóri og stjórnarfomaður
Bandarísku safnasamtakanna í
Washington, „hefur IPAM gefið
söfnum í Bandaríkjunum einstakt
tækifæri til að koma á tengslum við
sambærilegar stofnanir utan
Bandaríkjanna með þróun og fram-
kvæmd á sameiginlegum verkefn-
um.“ Markmið IPAM-verðlaun-
anna er að mynda gagnkvæm og
varanleg tengsl milli bandarískra
og annarra safna í heiminum sem
eiga sameiginleg markmið. IPAM
hefur að markmiði að stuðla að
vexti stofnana svo þær séu betur í
stakk búnar til að þjóna almenningi.
IPAM starfar í gegnum mennta-
og menningarmálaráðuneytið
bandaríska og eru verðlaunin veitt
á samkeppnisgrundvelli. Bandarísk
sendiráð úti um allan heim taka
þátt í gerð umsókna og samskiptum
milli aðila. Bandarísku safnasam-
tökin hafa umsjón með verkefninu.
Við lok þessarar úthlutunar, hefur
182 samstarfsverkefnum verið
komið á í 69 löndum og 38 ríkjum í
Bandaríkjunum frá því að verkefnið
var sett á laggirnar árið 1980.
Fjármögnun verkefnisins er á
höndum mennta- og menningar-
málaráðuneytisins bandaríska og
Lampadia-sjóðnum, sem styrkir
menningarsamskipti milli Banda-
ríkjanna, Argentínu, Brasilíu og
Chile. Frekari fjárstuðningur kem-
ur frá Trust for Mutual Under-
standing og fleiri aðilum í Banda-
ríkjunum, Mið- og Austur-Evrópu.
Bandarísku safnasamtökin (Am-
erican Association of Museums) eru
samtök sem söfn og starfsmenn
þeirra mynda. Sambandið var
stofnað árið 1906 og þjónar yfir
3000 stofnunum af ýmsum gerðum
og stærðum, þar á meðal sögu-
minjasöfnum, listasöfnum, náttúru-
gripasöfnum, vísindasöfnum, dýra-
og grasafræðigörðum, stjörnusöl-
um, barnasöfnum ofl. A meðal
þeirra 11.000 einstaklinga sem eru í
sambandinu er að finna forstöðu-
menn safna, stjómarmeðlimi stofn-
ana, sjálfboðaliða og nemendur í
safnafræðum. Einnig eru yfir 2000
meðlimir s.s. eins og fyrirtæki og
sjálfstætt starfandi ráðgjafar sem
tengjast með einum eða öðrum
hætti safnasviðinu.
Mennta- og menningarráðuneyt-
ið bandaríska skýrir og styður er-
lendis við stefnu bandarískra
stjórnvalda í utanríkis- og öryggis-
málum með margvíslegum verkefn-
um. Ráðuneytið hefur að markmiði
að stuðla að gagnkvæmum skilningi
milli Bandaríkjanna og annarra
landa með þátttöku í mennta- og
menningai-verkefnum.
Snorrastofu af-
hent bókasafn
Jakobs Bene-
diktssonar
FORMLEG afhending á bókasafni
dr. Jakobs Benediktssonar fer fram í
Reykholtskirkju á fóstudag, kl. 20.30.
Safninu hefur verið fundinn staður i
Snorrastofu í Reykholti fyrir milli-
göngu bókaforlagsins Máls og menn-
ingar.
Boðið verður upp á dagskrá, þar
sem blandað verður saman stuttum
erindum og tónlist. Bjami Guð-
mundsson, formaður stjórnar
Snorrastofu, mun stýra samkomunni.
Fyrst mun Bergur Þorgeirsson, for-
stöðumaður Snorrastofu, ávarpa
samkomuna, þá mun Sverrir Tómas-
son, sérfræðingur á Stofnun Árna
Magnússonar ræða fræðastörf dr.
Jakobs Benediktssonar og að lokum
mun Halldór Guðmundsson, útgáfu-
stjóri Máls og menningar fjalla um
tengsl Jakobs og Máls og menningar.
Að erindum loknum mun Snorrastofu
verða afhent bókasafn Jakobs með
sérstöku gjafabréfi. Reiknað er með
að dagskráin standi yfir í eina
klukkustund og er aðgangur að sam-
komunni ókeypis. Dagskráin er unn-
in í samvinnu við bókaútgáfu Máls og
menningar og ættingja Jakobs.
HYUNDAI AT0S ER EINN SÁ ALLRA
SPARNEYTNASTI
Grjótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1280
Hyundai Atos er nettur og skemmtilegur bíll, einn sá allra sparneytnasti á markaðnum. Hann er hinn
fullkomni bæjarbíll, þægilegur í akstri og snar í snúningum. Hann er með stórum hurðum og háum
sætum svo útsýnið er óvenjugott. Komdu og prófaðu sparneytinn og þægilegan Hyundai Atos!
HYunoni
meir%öllu