Morgunblaðið - 08.03.2000, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 08.03.2000, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Fyrstu bandarísku hermennirnir komnir til Mósambík til að aðstoða við hjálparstarfíð Sjúkdómar breiðast út á flóðasvæðum Maputo. AFP. FYRSTU bandarísku hermennirnir komu til Mósambík í gær til að að- stoða við björgunar- og hjálparstarf- ið vegna flóða sem hafa orðið til þess að hundruð þúsunda manna hafa misst heimili sín. Ottast var að flóðin myndu aukast að nýju vegna úrhellis sem spáð var í suðurhluta landsins og læknar á flóðasvæðunum segja að sífellt fleiri veikist af sjúkdómum á flóðasvæðunum. Suður-afrískir veðurfræðingar spáðu mikilli rigningu í suðurhluta Mósambík í dag og sögðu að hætta væri á vatnavöxtum í ám landsins. Lægð er yfir svæðinu vegna felli- bylsins Gloríu sem varð að hitabelt- isstormi þegar hann kom að strönd landsins. Skortur á drykkjarvatni Lindsey Davies, talsmaður Mat- vælaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (WFP), sagði að a.m.k. 55.000 manns væru í hættu vegna skorts á drykkj- arvatni í héraðinu Chokwe í suður- hluta landsins. Fólkið stæði frammi fyrir því að þurfa að velja á milli þess að deyja af þorsta eða drekka flóð- vatn og hætta á að veikjast af sjúk- dómum vegna líka og dauðra dýra sem fljóta í ánum. Davies sagði að „hörmulegt ástand“ væri í bænum Chokwe við ána Limpopo. „Húsin eru enn á kafi í aur og fnykurinn af líkum og dauð- um dýrum er hræðilegur." Læknar sögðu að kólerutilvikum hefði fjölgað verulega og húðsjúk- dómar væru orðnir algengir. Frétta- ritari BBC hafði einnig eftir fulltrúa Aiþjóðaheilbrigðismálastofnunar- innar (WHO) í Mósambík að mal- aríutilvikum hefði fjölgað stórlega. Börn og vanfærar konur væru eink- um berskjölduð gagnvart sjúkdómn- um. Flóð gætu torveldað hjálparstarfið Björgunarsveitirnar leggja nú áherslu á að koma matvælum, lyfjum og öðrum hjálpargögnum til nauð- staddra íbúa flóðasvæðanna en ótt- ast er að erfitt verði að koma þeim til hjálpar ef flóðin aukast að nýju. Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa ákveðið að senda rúmlega 700 her- menn á flóðasvæðin til að aðstoða við björgunarstarfið og fyrstu hermenn- AP Spænskir hermenn ganga frá matvælakössum á flugvellinum í Maputo, höfuðborg Mósambík. imir komu til Mósambík í gær. Gert er ráð fyrir því að allt herliðið verði komið þangað í dag eða á morgun. Bandaríkjamenn ætla einnig að senda þangað sex þyrlur, fimm flutn- ingavélar og tvær flugvélar búnar tækjum til að kanna ástandið á flóða- svæðunum. Nokkur Evrópuríki hafa einnig sent flugvélar til að dreifa hjálpargögnum í Mósambík. Hjálparstofnanir kanna nú hvort hægt verður að nota járnbrautir til að koma hjálpargögnum til flótta- fólks þar sem eini þjóðvegurinn inn í landið gereyðilagðist í flóðunum. Bandaríkjastjórn hefur verið gagnrýnd fyrir að bregðast of seint við náttúruhamförunum en yfirmað- ur herliðsins, Joseph Wehrle undir- hershöfðingi, sagði að það hefði lagt af stað eins fljótt og nokkur kostur var. Bandarískir sérfræðingar hefðu verið í Mósambík frá 18. febrúar til að meta ástandið og herinn hefði haf- ið undirbúning hjálparstarfsins á fimmtudag, daginn áður en Bill Clinton Bandaríkjaforseti tilkynnti að herliðið yrði sent á flóðasvæðin. Dean Curran, sendiherra Banda- ríkjanna, sagði að náttúruhamfarirn- ar hefðu versnað stig af stigi og við- brögð ríkja heims hefðu einnig stigmagnast. Hann bætti við að Clinton hefði ákveðið aðstoðina sl. miðvikudag en þurft að ráðfæra sig við þingið áður en hún var tilkynnt. Togstreitan um nýjan framkvæmdastjóra IMF Koch-Weser lætur undan þrýstingi Berlín. AFP, AP. FRAMBJÓÐANDI Evrópusam- bandslandanna fimmtán í embætti framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins, Þjóðverjinn Caio Koch- Weser, dró sig í gær út úr kapp- hlaupinu um hver velst til að taka við af Frakkanum Michel Camdessus, sem þegar hefur látið af embættinu. Bandaríkjamenn höfðu beitt sér af hörku gegn Koch-Weser. Þýzka rík- isstjómin tilnefndi tafarlaust nýjan frambjóðanda, Horst Koehler, bank- astjóra Þróunarbanka Evrópu, EBRD. Koehler, sem um skeið var náinn ráðgjafi Helmuts Kohls á meðan hann var kanzlari Þýzkalands, stað- festi í gær að Gerhard Schröder kanzlari hefði hringt í sig til Lund- úna, þar sem höfuðstöðvar EBRD eru, og beðið sig að gefa kost á sér sem frambjóðandi ESB í embætti framkvæmdastjóra IMF í stað Koch- Weser, og að hann hefði lýst sig reiðubúinn til þess. Frambjóðandi ESB þarf að hljóta einróma samþykki allra fjármála- ráðherranna 15. í Róm sagði ítalski utanríkisráðherrann Lamberto Dini að Evrópa ætti að tefla fram manni með meiri þungavigtarorðstír á al- þjóðamælikvarða, svo sem fyrrver- andi ráðherra eða ríkisstjórnarleið- toga; nefndi Dini Giuliano Amato, fyrrverandi fjármálaráðherra Italíu sérstaklega í þessu sambandi. Bandaríski fjármálaráðherrann I awrence Summers hefur einnig lýst sig jákvæðan í garð framboðs af hálfu Amatos. Koch-Weser sagðist í gær hafa ákveðið að draga sig í hlé „í því skyni að ryðja brautina svo finna megi frambjóðanda sem nyti stuðnings all- ra aðildarlanda IMF.“ Sagðist hann í bréfi til Sehröders ekki vilja vera hindrun í vegi bættra samskipta við Bandaríkin, en síðast um helgina lýstu þeir Schröder og Antonio Gut- erres, starfandi formaður ráðheiTar- áðs ESB, því yfir að engin breyting hefði orðið á stuðningi ESB-ríkjanna við Koch-Weser. Bandaríkjamenn höfðu beitt sér gegn Koch-Weser einkum á þeirri forsendu að þeim þótti hann ekki hafa þá starfsreynslu að baki sem starfið útheimti. Fyrir liggur framboð tveggja manna sem ekki koma frá Evrópu - Bandaríkjamannsins Stanleys Fisch- ers og Japanans Eisuke Sakakibara. Fischer er eins og er staðgengill Camdessus. Sakakibara er fyrrver- andi aðstoðarfjármálaráðherra Jap- ans og þekktur undir gælunafninu „Herra Jen“ vegna þess hve einarð- lega hann varði gengi jensins. Deilt um hvert framtíðar- hlutverk sjóðsins eigi að vera Hefð er fyrir því að Evrópubúi gegni æðsta embætti Alþjóðagjald- eyiissjóðsins en Bandaríkjamaður fari fyrir systurstofnuninni Alþjóða- bankanum. Höfuðstöðvar beggja stofnana eru í Washington. Að Schröder skyldi hafa hið snar- asta fundið annan Þjóðverja til að bjóða sig fram í hið áhrifa- mikla embætti í Wash- ington er til vitrns um að hann sé staðráðinn í því að láta höfnun Bandaríkjamanna á Koch-Weser, sem er aðstoðarfjármálaráð- herra þýzku stjórnar- innar, ekki stöðva sig í því að gera sitt ýtrasta til þess að gera Þjóð- verja sýnilegri í alþjóð- legum embættum, eins og Financial Times segir að sé hans fasti ásetningur. Munchenarblaðið Suddeutsche Zeitung segii' möguleika Koch-Wes- ers hafa verið úti um leið og hann náði ekki meiru en 43% fylgi í til- raunaatkvæðagreiðslu í stjórn IMF sl. fimmtudag. Fulltrúar Bandaríkja- manna sátu hjá. En að sögn fréttaskýrenda liggur vandinn í því, að Koch-Weser, sem starfaði hjá Alþjóðabankanum í 25 ár, er andvígur þeirri stefnu Banda- ríkjastjórnar að takmarka athafna- svið IMF við alþjóðlega kreppuíhlut- un og láta Alþjóðabankanum alfarið eftir að sjá um þróunaraðstoð. Bandarísk þingnefnd hefur lagt fram tillögu um að IMF verði skil- greindur þrengri athafnarammi, en bandaríska fjármálaráðuneytið hef- ur sagt að sjóðurinn ætti að gegna svipuðu hlutverki og slökkvilið, eins konar neyðarlánastofnun, sem sér- hæfði sig í að bregðast við þegar al- þjóðlegir fjármálamarkaðir lentu í kröggum. Camdessus hafði áður en hann dró sig í hlé lýst yfir vilja til að IMF tæki í starfi sínu meira tillit til félagslegra afleiðinga gerða sinna. Reuters Vaclav Havel, forseti Tékklands, er hér á spjalli við Madeleine Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fyrir utan Hradjín-forsetahöllina í Prag í gær, þar sem ný stytta af Tomasi Masaryk, fyrsta forseta Tékkó- slóvakíu, var afhjúpuð að viðstöddu fjölmenni. Madeleine Albright í Tékklandi Hafnar hvatningu til forsetaframboðs Hodonin, Prag. AFP. MADELEINE Albright, tékknesk- ættaður utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, ítrekaði í gær að hún hefði ekki hug á því að gefa kost á sér til forsetaframboðs í Tékklandi, þrátt fyrir að Vaclav Havel, núverandi þjóðarleiðtogi landsins, hefði hvatt hana opinberlega til þess. Albright hafnaði hugmyndinni um framboð sitt á síðasta degi þriggja daga opinberrar heimsókn- ar til Tékklands, þar sem hún tók þátt í minningarathöfnum í tilefni af því að 150 ár eru liðin frá fæðingu Thomas Masaryks, „föður“ Tékkó- slóvakíu. í fyrradag hafði Havel lát- ið svo ummælt að sér fyndist AI- bright vera „frábær" frambjóðandi til að taka við af sér, þegar kjör- tímabili hans lýkur árið 2003. „Persónulega þætti mér stórkost- legt ef hún gæfi kost á sér,“ sagði Havel um Albright. „Það myndi hleypa ferskum andblæ inn í stjórn- málin hjá okkur, sem á stundum eru svolítið hrærigrautsleg," sagði hann; það væri þó að sjálfsögðu á valdi tékkneska þingsins að velja arftaka sinn. En á blaðamannafundi í tékkneska utanríkisráðuneytinu í gær sagði Albright: „Ég er og verð ekki í framboði. Ég er mjög upp með mér af ummælum Havels og annarra, en ég held að ákvörðun mín sé nógu skýr.“ Sagði hún hjarta sitt tilheyra tveimur löndum, en Bandaríkin væru hennar heima- land. Eggjakast í fæðingarbæ Masaryks Albright fæddist í Tékkóslóvakíu árið 1937, undir nafninu Marie Korbelova, en fjölskylda hennar flúði land undan oki kommúnista eftir síðari heimsstyrjöld. Annars var heimsóknin eftir- minnileg /yrir Aibright af fleiri or- sökum. í fæðingarbæ Masaryks, þar sem þau Havel voru á ferð í fyrradag, köstuðu ungir mótmæl- endur eggjum að henni og hrópuðu: „Niður með Bandaríkjamenn“. Hún lét atvikið ekki trufla sig.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.