Morgunblaðið - 08.03.2000, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2000 51
BREF TIL BLAÐSINS
Hér segir um
rógsmenn alla
Frá Atlu Steini Guðmundssyni:
SÁ ÚLFAÞYTUR, sem orðið hefur í
tengslum við gagnagrunn Islenskrar
erfðagreiningar, hefur vart faiið
fram hjá þeim Islendingum sem
fylgjast eitthvað með fjölmiðlum,
jafnvel þótt ekki sé nema með öðru
auganu. Nú er liðið á annað ár síðan
lög um starfrækslu gagnagrunnsins
voru sett og hið gríðarlega upplýs-
ingasafn er um þessar mundir að
verða að veruleika. Nú fyiir
skemmstu fengu landsmenn bréf frá
Kára Stefánssyni ásamt ágætum
bæklingi um tilgang grunnsins, nota-
gildi hans og frágang öryggismála til
verndar persónuleyndinni. Þarna
kemur m.a. fram að með miðlægum
gagnagrunni á heilbrigðissviði verði
læknum og heilbrigðisstéttum unnt
að kortleggja og segja fyrir um hegð-
un og útbreiðslu torlæknaðra sjúk-
dóma auk þess sem fyrrgreindir aðil-
ar standi mun betur að vígi í sinni
eilífu baráttu en áður.
Vissulega góðar fréttir fyrir þjóð
sem á margfalt heimsmet í lyfjanotk-
un_- er það ekki annars?
I vikunni sem leið barst svo annað
plagg inn um lúguna, af nokkuð öðru
sauðahúsi. Undir fyi-irsögninni „rétt-
lát gjaldtaka" ræðst Valdimar nokk-
ur Jóhannsson gegn íslenskri erfða-
greiningu á einstaklega lágkúru-
legan hátt. í plaggi sínu mælist
Valdimar til þess eða réttara sagt
„fer fram á“ (svo notað sé hans orða-
lag) að menn segi sig úr gagnagrunn-
inum og láti svo kaupa sig í hann aft-
ur. „Rökin" fyrir þessari fásinnu eru
að deCode Genetics eigi ekkert með
það að fá geílns „tugi milljarða af
þjóðarauðnum". Það er kynlegt verð-
mætamat að kalla sjúkraskýrslur Is-
lendinga þjóðarauð, Valdimar ritar
e.t.v. sínar sjúkraskýrslur með fjað-
urstaf á kálfsskinn eins og okkar
sanni (og eini) þjóðarauður var úr
garði gerður. Hér er á ferðinni ákaf-
lega veikburða múgsefjunartilraun
til að hagnast á þeim einstaklingum
sem ekki hafa kynnt sér ítarlega út á
hvað gagnagrunnurinn gengur eða
láta sér í léttu rúmi liggja hvort þeir
eru hluti af honum eða ekki. Slíkar
tilraunú’ þekkjum við úr sögunni,
Valdimar og skósveinar hans eru hér
í góðum félagsskap þýsks stjórn-
málaflokks á fjórða áratugnum o.fl.
áróðursmeistara.
Þessir góðu menn eru einnig ugg-
andi um þá áhættu sem því fylgir að
veita aðgang að heilsufarsgögnum
sínum. Áhættan er ekki meiri en sú
að hver einstaklingur fer nafnlaus
inn í grunninn og með dulkóðaða
kennitölu auk þess sem ekki er hægt
að sækja upplýsingar um einstaka
aðila, aðeins hópa fólks. Eftirlit með
þessu er m.a. í höndum tölvunefndar
og vísindasiðanefndar, en Páll
Hreinsson, fonnaður þeiiTar fyrr-
nefndu, gerh- skýra grein fyrir ör-
yggismálum gagnagrunnsins í viðtali
í Morgunblaðinu hinn 15. febrúar. Er
Valdimari góðfúslega bent á þetta
viðtal óttist hann að Pétur og Páll
geti að vild flett upp á vinum og sam-
ferðamönnum í grunninum sér til
dægrastyttingar. Eða býst hann
kannski við að erlendir ferðamenn
AÐALFUNDUR
JARÐBORANA HF.
Aðalfundur Jarðborana hf. verður haldinn
fimmtudaginn 9. mars 2000
í Þingsal A, á Radisson SAS Saga Hótel og hefst kl. 16.00.
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. gr. 45 í samþykktumfélagsins.
2. Tillaga um heimild til handa stjórnfélagsins til að kaupa
hluti ífélaginu skv. 55. gr. hlutafjárlaga nr. 211995.
3. Önnur mál, löglega upp horin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu
vera komnar skriflega í hendur stjómarinnar eigi síðar en 7
dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins munu
liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, 7
dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á
skrifstofu félagsins að Skipholti 50 d, 4. hæð, frá og með
2. mars 2000, og á fundarstað við upphaf aðalfundar.
Stjóm Jarðborana hf.
ll
i§
1
JARÐBORANIR HF
SKIPHOLTl 50 d, SÍMI 511 3800, BRÉFSÍMl 51 I 3801
Ókeypis lögfræðiaðstoð
öll fimmtudagskvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012
Orator, féiag laganema
flykkist til landsins í ógurlegum mæli
til að bera þennan nýja „þjóðarauð"
augum?
I stað þess að einblína á þá peninga
sem Valdimar telur Islenska erfða-
greiningu vera að „fá gefins" mætti
kannski skoða hvað aðrir gætu verið
að græða á auknum skilningi lækna-
vísindanna á sjúkdómum ýmiss kon-
ar, þá ekki á peningamælikvarðan-
um. Forkólfar „réttlátrar gjaldtöku"
þekkja þau sannindi sem skáldið frá
Fagraskógi orðaði: „Því betur unir
fólk sínum fjötrum/sem fleiri klæðast
andlegum tötrum“. Það er vonandi að
Valdimar uppskeri einhverjar krón-
ur úr sölumennskunni, hann gæti þá
kannski ráðið sér prófarkalesara eða
einhvem skrifandi á íslensku svo að
næsti áróðurssnepill verði ekki staf-
setningar- og málfarslega séð þannig
að sæmilega gefinn gmnnskólanemi
hefði skammast sín fyrir hann.
Ég hvet Islendinga til að vega og
meta, hver fyrir sig, hvar þeir ætla að
standa í þessu máli áður en þeir
verða fjölskyldutilboð frá „réttlátri
gjaldtöku“.
ATLI STEINN
GUÐMUNDSSON,
Sunnuflöt 18, Garðabæ.
LANDMÆLINGAR
ÍSLANDS
LÍSA samtök
Landshnitakerfi ÍSN93
og staðbundin hnitakerfi
í tilefni af útgáfu reglugerðar um viðmiðun (SN93,
grunnstöðvanet og mælistöðvar til notkunar
við landmælingar og kortagerð verður haldinn
hádegisfundur á vegum LÍSU-samtakanna
og Landmælinga íslands
á Grand Hótel, Hvammi, fimmtudaginn 16. mars kl. 12:00-14:00
Dagskrá fundar:
12:00 -12:30 Hádegisverður:
Grænmetissúpa, pönnusteikt ýsa með
vorlaukssósu og humarpólentu, kaffi
12:30 -13:30 ÍSN93 og staðbundin kerfi:
Þórarinn Sigurðsson, forstöðumaður framleiðslusviðs LMl.
Christof Völksen, mælingadeild LMÍ.
Gunnar Jóhannesson, deildarverkfræðingur Akureyrarbæ.
Jón Björnsson, mælingaverkfræðingur, Hnit hf.
13:30-14:00 Umræður:
Umræðustjóri Heiðar Þ. Hallgrímsson, Borgarverkfræðingi
Skráning: Skrifstofa LlSU samtakanna, sfmi 530 9110
Netfang: lisa@aknet.is
Nánari dagskrá: http://www.rvk.is/lisa
Verð: kr. 4.000,00 fyrir félagsmenn LlSU-samtakanna,
kr. 6.000,00 fyrir aðra
Heimabíó
Framtíðarútlit - vönduð hönnun
Super-5 Digital Blackline
myndlampi
180 W - 300 W magnari
6 framhátalarar
2 bassahátalarar
2x2 bakhátalarar
3 Scarttengi að aftan
2 RCA Super VHS/DVD
tengi að aftan
Super VHS, myndavéla-
og heyrnartækjatengi
að framan
Barnalæsing á stöðvar
Glæsilegur skápur á
hjólum með 3 hillum
T0SHIBA heimabíótækin
kosta frá aðeins
kr. 134.901 stgr.
með öllu þessu!!
T0SHIBA Pro-Logii tækin eru
margverðlaunuð af tækniblöðum í Evrópu
og langmest seldu tækin í Bretlandi!
T0SHIBA ERU FREMSTIR í TÆKNIÞRÓUN.
Hönnuðir Pro-Logic heimabíókerfisins -
DVD mynddiskakerfisins og Pro-Drum
myndbandstækjanna.
Önnur T0SHIB tæki fást í
stærðunum frá 14" til 61"
‘StaSgrelðsluafsláttur er 1011)
tækni á einstöku verði!
Fáðu þér framtíðartæki hlaðið
öllu því besta - Það borgar sig!
fíis
Einar Farestveit&Cahf.
Borgartúni 28 ■ Símar: 562 2901 & 562 2900 • www.ef.is