Morgunblaðið - 08.03.2000, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2000 17
LANDIÐ
Bæjaryfírvöld í Arborg kynna nýtt íbúðarhverfí á Selfossi vestan Eyravegar
Oddur Þ. Hermannsson landslagsarkitekt, höfundur deiliskipulagsins, útskýrir einstaka
þætti þess á kynningarfundinum.
Mikil eftirspurn er
eftir nýju lóðunum
Selfossi - Nýtt deiliskipulag að íbúðahverfí
vestan Eyravegar var kynnt á Fast-
eignasölunni Bakka síðastliðinn föstudag og
laugardag. Mikill áhugi er fyrir byggingalöð-
um í nýja hverfinu og segja má að þær rjúki
út. Um er að ræða 48 lóðir í fyrsta áfanga
hverfisins, 13 einbýlishúsalóðir, 13 parhúsa-
lóðir, 11 raðhúsalóðir og 11 verslunarlóðir.
Auk þess eru í fyrsta áfanga þrjú fjölbýlishús
á 3 - 5 hæðum og lóð undir leikskóla. Alls eru
í fyrsta áfanga 86 íbúðir á einbýlis- raðhúsa-
og parhúsalóðum og 70 íbúðir í fjölbýlishús-
um.
Sótt um 80%
af lóðunum
Skipulaginu var mjög vel tekið á kynning-
arfundi með verktökum og byggingameistur-
um á föstudag og einnig með almenningi á
laugardag. Það er fyrirtækið Fossmenn ehf.
á Selfossi sem hefur deiliskipulagt svæðið og
lóðirnar eru allar seldar og kosta 400 þúsund
til 1,7 milljónir. Að sögn Guðmundar Sigurðs-
sonar, framkvæmdastjóra Fossmanna, er
búið að sækja um 80% af lóðunum og mikil
eftirspurn eftir verslunarlóðum með Eyra-
vegi. „Ef þetta gengur allt eftir þá reiknum
við með að fara í 2. áfanga strax í haust, það
er rífandi gangur í þessu,“ sagði Guðmundur.
Framkvæmdir við gatnagerð í hinu nýja
hverfi geta hafist eftir að fresti lýkur til að
skila inn athugasemdum við dciliskipulags-
tillöguna en frestur rennur út 14. apríl.
Mikill áhugi frá höfuðborgarsvæðinu
„Eg held að áhuginn fyrir þessum lóðum só
svona mikill vegna þess að hverfíð er nálægt
miðbæ Selfoss, aðeins 300 metra í burtu. Svo
er landið á bökkum Olfusár með góða fjalla-
sýn. Fyrir verktakana og húsbyggjendur
skiptir miklu máli að stutt er niður á fast og
vinna við undirstöður er auðveld.
ELFOSS - TILLAGA Ati bMKumei
Ifikskóli r.\ty'
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Dciliskipulag nýja hverfisins við Eyraveg á Selfossi,
Við finnum fyrir miklum áhuga hjá fólki í
Reykjavík og á Suðurnesjum fyrir þessum
Ióðum og reyndar víðar að. Ég held að fólki
finnist gott að hugsa til þess að búa hérna í
rólegheitunum og vera í nálægð við þéttbýlið
á höfuðborgarsvæðinu.
Svo eru þeir margir á höfuðborgarsvæðinu
sem eiga sumarbústaði hér fyrir austan, eink-
um eldra fólk, sem vill búa hér og stytta leið-
ina í bústaðinn ásamt því að njóta kostanna
að búa hér á Selfossi," sagði Guðmundur Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri Fossmanna ehf.
Grái markaðurinn
á heima í Kauphöll Landsbréfa
i
K.U'l’UÖÍX. I \N DSHUÉÉA
♦OsMMMU.#
w ö ti
OB* $*•)«**«**
bb?
IÐBu 3iAllr*liíitfh»
■ oa iSSf™
IM n Wnm Yincío<V«
■ s B Q8ED EJS
BBBBBO Oo»i»'W
maar~\ Mmm
Þær eru margar, vistarverurnar í Kauphöll Landsbréfa. Þúsundir íslenskra fjárfesta
sinna þar viðskiptum sfnum allan ársins hring enda hafa þeir greiðan aðgang að
innlendum og erlendum hlutabréfamörkuðum á einum og sama staðnum.
En fjárfestingarkosti má finna víðar en í skráðum hlutafélögum.
Óskráð hlutafélög, á hinum svokallaða gráa markaði, höfða líka til íslenskra
fjárfesta ef marka má miklar hreyfingar á þeim markaði síðastliðið ár.
Þess vegna á grái markaðurinn heima í Kauphöll Landsbréfa.
Þar finnur þú nýjustu upplýsingar um kaup- og sölugengi
fjölda óskráðra féiaga.
Það er engin ástæða til að hafa hljótt um það.
* , KÁUÍM I(")I <1 > i \ m i\cnn »• i' ; LANDS KRÉ FA 1 ANDSB R1 1
Sími 535 2000