Morgunblaðið - 08.03.2000, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skoða flutning Strætisvagna Reykjavíkur af Kirkjusandi að Eirhöfða
Orkuveitan reisir höfuð-
stöðvar við Réttarháls
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
kaup á nýbyggingu við Réttarháls 4
ásamt lóð og er kaupverð lóðar og
húss 394,6 milljónir. Orkuveita
Reykjavíkur á lóðirnar við Réttar-
háls 1 og 3 og er gert ráð fyrir að lóð-
irnar þrjár verði sameinaðar. Ákveð-
ið hefur verið að þar rísi nýjar
höfuðstöðvar Orkuveitunnar og er
ráðgert að öll starfsemin flytji þang-
að vorið 2002. Að sögn Alfreðs Þor-
steinssonar, formanns stjórnar
veitustofnana, eru forsvarsmenn
Strætisvagna Reykjavíkur og starfs-
menn Borgarskipulags jafnframt að
skoða hugmynd um að SVR ílytji
starfsemi sína frá Kirkjusandi að
Eirhöfða, þar sem Vatnsveita
Reykjavíkur er til húsa.
Forsenda
sameiningar
„Ætlunin er að byggja upp alla að-
stöðu Orkuveitunnar á einum stað,“
sagði Alfreð. „Það er talin ein aðal-
forsendan fyrir því að sameining
veitufyrirtækjanna þriggja heppn-
ist, en starfsemin er nú á þremur
stöðum."
í erindi Orkuveitunnar til borgar-
ráðs segir að nýbyggingin við Rétt-
arháls 4, sem er um 5.600 fermetrar,
muni nýtast vel fyrir starfsemi veit-
unnar. Að auki verða byggðir tæp-
lega 1.500 fermetrar í stað 23.000
fermetra sem fyrirtækið hefur til
umráða og er áætlaður kostnaður á
bilinu 1,3 til 1,4 milljarðar. Alfreð
benti á að sala á fasteignum Orku-
veitunnar við Grensásveg, Suður-
landsbraut og Eirhöfða kæmi þar á
móti.
Útboð á lagerhaldi
Stjóm veitustofnana hefur enn-
fremur samþykkt að fram fari útboð
á Evrópska efnahagssvæðinu vegna
vöruhótels fyrir lagerhald Orkuveit-
íslensku norðurpólsfararnir leggja af stað út á ísinn
Fremur
hlýtt í
veðri þótt
frostið sé
15 stig
ÓÐUM styttist nú í að Haraldur
Örn Ólafsson og Ingþór Bjarna-
son leggi af stað áleiðis til norður-
pólsins að lokinni vel heppnaðri
aðlögun á Baffins-eyju. Þeir eru
nú hættir æfingum og voru að
pakka búnaði sínum niður á sleð-
ana þegar Morgunblaðið heyrði í
þeim í gærkvöldi.
í dag, miðvikudag, flytja þeir
sig um set og fara með flugi frá
Iqualuit á Baffíns-eyju til Resol-
ute-eyju, sem er á 75. breiddar-
gráðu. Þeir áætla síðan að fara
með flugi eldsnemma á fóstudags-
morgun frá Resolute-eyju til
Ward Hunt-eyju og hefja sjálfa
gönguna á norðurpólinn á fóstu-
daginn.
„Þá byrjar fjörið," sagði Har-
aldur í gær. „Þessi tími hér í Iqu-
aluit hefur verið mjög dýrmætur,
enda höfum við lifað okkur inn í
aðstæðurnar sem bíða okkar. Við
höfum dregið allan búnað á sleð-
unum og vanið okkur við kuldann,
sem er ekki síst mikilvægt."
Mönnum hætt
við kali
Haraldur sagði að mönnum
væri hætt við kali í Iqualuit og því
þyrftu þeir að vara sig. Þeir Ing-
þór hafa nú þegar kynnst því af
eigin raun hversu lúmskur Frosti
getur orðið. „Við uppgötvuðum
það einn daginn þegar við vorum
úti við æfingar að við vorum báðir
Ljósmynd/Ólafur Öm Haraldsson
Tveir dagar eru þangað til Haraldur og Ingþór leggja af stað út á ís-
inn. Leiðin er um 800 km löng og útheimtir ýtrustu varúð vegna ís-
vaka. Myndina tók faðir Haraldar á Iqualuit íyrir skömmu þar sem
þeir hafa verið í aðlögun.
komnir með kalblett á nefið.
Þetta getur gerst án þess að mað-
ur taki eftir því. Þegar við tókum
tal saman uppgötvuðum við hvers
kyns var og þá reyndumst við
vera komnir með fyrsta stigs kal.
Við vorum sem betur fer nógu
snöggir að nudda kalið burt. Að
öðru lcyti hefur okkur ekki orðið
kalt og við vorum mjög fljótir að
aðlagast kuldanum. Viðbrigðin
voru engu síður mjög mikil í byrj-
un en nú er svo komið að okkur
þykir vera fremur hlýtt í veðri
þótt frostið fari niður í 15 stig.“
Tveir leiðangrar eru nú úr leik
eftir að Bettina Aller gafst upp f
fyrradag. Áður hafði Breti nokk-
ur, sem ætlaði einn á norðurpól-
inn, hætt við ferð sína.
Af öðrum leiðöngrum er það að
segja að Svíarnir Göran Kropp og
Ole Skinnarmo, sem frægir eru
orðnir að endemum í heimalandi
sínu fyrir að skjóta hvítabjörn,
halda áfram ferð sinni áleiðis til
pólsins þrátt fyrir ýmis áföll sem
þeir hafa orðið fyrir eins og að
brjóta sleða sína á fyrstu dögum
ferðarinnar. Kropp kól að auki á
fingri er hann skaut hvítabjörn-
inn. Umræðan um hvítabjarnar-
drápið í Svíþjóð er orðin svo há-
vær að talað er um „hvítabjarnar-
stríðið“ í sænska blaðinu Afton-
bladet, sem fylgist grannt með
stöðu mála.
Þriggja manna sænskur leið-
angur leggur af stað frá Ward
Hunt-eyju sama dag og Haraldur
og Ingþór og að auki lagði norsk-
ur tveggja manna leiðangur af
stað frá Síberfu um miðjan febr-
unnar. Að sögn Alfreðs sparast
þannig bygging 6-8.000 fermetra
birgðageymslu og um 600-800 millj-
ónir í stofnkostnað. ,Á vöruhóteli er
aðstaðan leigð og einungis greitt fyr-
ir það húsnæði sem er í notkun
hverju sinni, en birgðastaða Orku-
veitunnar á lager er mjög sveiflu-
kennd eftir árstíðum," sagði hann.
„Samnýting með öðrum fyrirtækjum
á starfsmönnum og húsnæði mun því
leiða til lægri kostnaðar. Auk þess
yrði kostnaður við lagerhald skýrari
en ekki falinn í fjárfestingum veit-
unnar og ekki þarf að byggja nema
um 2.000 fermetra geymslu."
Nýr
vefur
um For-
múlu-1
í TILEFNI þess að ný vertíð í
Formúlu-1 er að hefjast hefur
sérvefur mblis um íþróttina
verið endurbættur ásamt því
sem aukið hefur verið við upp-
lýsingar á honum. Meðal nýj-
unga eru kort og upplýsingar
um allar keppnisbrautir þar
sem er að finna lista yfir sigur-
vegara o.fl. úr fyiri mótum. Þá
auðveldar nýtt viðmót notend-
um að kalla fram upplýsingar
um einstök lið, ökuþóra eða
brautir á vefnum. Vefslóðin er
www.mbl.is/sport/formula.
Uppsögn fj ármálastj óra
Þj óðminj asafns
Geir Haarde stað
gengill mennta-
málaráðherra
Á FUNDI ríkisstjómarinnar í gær-
morgun var ákveðið að Geir H.
Haarde fjármálaráðherra yrði stað-
gengill menntamálaráðherra þegar
úrskurðað verður um uppsögn
Hrafns Sigurðssonar úr starfi fjár-
málastjóra Þjóðminjasafnsins.
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra ákvað í liðinni viku að hann
myndi víkja sæti þegar fjallað yrði
um málið og um leið allir starfsmenn
ráðuneytisins.
Þjóðminjavörður sagði Hrafni upp
störfum og hefur Hrafn lagt fram
kæru vegna uppsagnarinnar. í kær-
unni fór hann fram á að mennta-
málaráðherra viki sæti þar sem hann
hefði haft afskipti af málinu.
í úrskurði Björns í liðinni viku
komst hann að þeirri niðurstöðu að
honum bæri að víkja sæti þar sem
Hrafn hefði réttmæta ástæðu til að
ætla að hann hefði þegar myndað sér
skoðun á réttmæti uppsagnarinnar,
þótt ráðherra hefði engin afskipti
haft af henni. Sagði Björn að það
væri meðal annars tilgangur hæfis-
reglna að tryggja traust málsaðila og
þjóðfélagsins í heild á hlutleysi úr-
skurðaraðila, sem er í samræmi við
grundvallarreglur réttarríkisins. Því
myndi hann víkja sæti í þessu máli.
Við það færðist málið til forsætis-
ráðherra og er nú komið í hendur
fjármálaráðherra. Ekki fengust upp-
lýsingar um það í forsætisráðuneyt-
inu í gær hvenær meðferð málsins
yrði fram haldið.
Ný skýrsla um fæðingarorlof
Greiðslur til feðra helm-
ingi hærri en til mæðra
KOSTNAÐUR við fæðingarorlof
karla er meira en helmingi hæn-i en
við fæðingarorlof kvenna. Þetta er
niðurstaða útreikninga sem ASI og
Samtök atvinnulífsins unnu fyrir
fjármálaráðherra. Útreikningarnir
byggjast á gögnum um greiðslur í
fæðingarorlofi 1997. Samkvæmt
skýrslunni voru meðaltekjur mæðra
í fæðingarorlofi það ár rúmar 74 þús.
á mánuði, en feðra rúmar 155 þús.
Rætt hefur verið um að koma á fót
fæðingarorlofssjóði sem verði fjár-
magnaður með tryggingagjaldi.
Miðað við að greidd verði 100% af
mánaðartekjum í 28 vikur og móðir
nýti 26 vikur en faðir 2 vikur þyrftu
inngi'eiðslur í sjóðinn að vera um 2,3
milljarðar króna á ári miðað við for-
sendur frá 1997 um að fæðingaror-
lofsgreiðslur verði aldrei lægri en
43.499 ki\ á mánuði og aldrei hærri
en 217.000 kr. á mánuði. Sé gengið út
frá greiðslum miðað við febrúarmán-
uð á þessu árí yrði lágmarkið 54.000
kr. og hámarkið 270.000 kr.
Sérblöð f dag
SSlÉW
ÍHoio,imliIníiiíi
úrVERINU
F
► í Verinu í dag er greint frá verðmæti útfluttra
saltfiskafurða, fjallað um fjölda starfsfólks í sjáv-
arútvegi, rætt við íslenska yfirmenn hjá fyrirtæki í
Japan og sagt frá undanþágum til starfa á skipum.
www.mbf.is
Fimm nýliðar í landsliði kvenna
í körfuknattleik/Cl
•••••••••••••••••••••••••••••••••••••••
Patrekur Jóhannesson semur
á ný við Essen/C3
► Teiknimyndasögur
► Leikir
► Úrslit
► Teikningar
► Brandarar
► Þrautir