Morgunblaðið - 08.03.2000, Page 26

Morgunblaðið - 08.03.2000, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Norræna farandsýningin Carnegie Art Award 1999 komin að Rjarvalsstöðum Landamæri mál- verksins færð út Á Kjarvalsstöðum hefur veríð sett upp sýningin Carnegie Art Award 1999 en þar er að fínna 56 verk eftir 27 norræna listamenn, þar af þrjá Islendinga. Sýningin, sem verður opnuð al- menningi á morgun, hefur veríð á ferð milli höfuðborga Norður- landanna frá því í októ- ber sl. og fer héðan til Lundúna þar sem ferða- lagi hennar lýkur í maí. Á SÝNINGUNNI, sem ætlað er að færa út landamæri málverksins, er að finna nýstárleg málverk, þrívídd- arverk, málverk með ljósmyndaívafí, innsetningar og gjörninga. Norræni fjárfestingabankinn Camegie stendur að sýningunni og veitir þrenn verðlaun og einn styrk til handa ungum og efnilegum lista- manni. Þetta er í annað sinn sem sýningin er haldin og er undirbún- ingur að hinni þriðju nú þegar í full- um gangi. Til verðlaunanna var stofnað til stuðnings hæfileikaríkum listamönnum á Norðurlöndum og til eflingar framúrskarandi samtíma- myndlistar, eins og það er orðað í kynningu. Fyrstu verðlaun hlaut að þessu sinni Rolf Hanson frá Svíþjóð, 500.000 sænskar krónur, önnur verð- laun, 300.000, komu í hlut fínnsku listakonunnar Silju Rantanen og þriðju verðlaun, 200.000 sænskar krónur, hlaut Bandaríkjamaðurinn Clay Ketter, sem búsettur er í Sví- þjóð. Styrkur að upphæð 50.000 sænskar krónur kom í hlut lista- mannsins Tal R frá Danmörku. Hópur sérfræðinga í norrænni samtímamálaralist tilnefndi tæplega 100 listamenn til þátttöku í einskon- ar forkeppni og úr þeim voru á end- Myndbreyting korts / Tveir dagar í Ascoli Piceno, 1999, olía á striga. Eitt af verkum Silju Rantanen, sem hlaut önnur verðlaun. Kaffihlé, 1999, kvoðukennd und- irmálning á fitu- bornar gifsflísar, hornlistar úr stáli, tréeiningar. Eitt verka Clay Ketters, sem hlaut þriðju verð- laun. anum valin 56 verk eftir 27 lista- tók einnig þátt í sýningunni á síðast- menn. Þrír íslenskir listamenn eiga liðnu ári. I veglegri 200 síðna lista- verk á sýningunni, þau Helgi Þorgils verkabók, sem gefín er út í tengslum Friðjónsson, Guðrún Einarsdóttir við sýninguna, eru litmyndir af öllum og Georg Guðni, en sá síðastnefndi verkunum, upplýsingar um lista- Kringum tröppurnar V, 1998, olía á tréplötu. Eitt af þremur verkum Rolf Hansons á sýningunni en hann hlaut fyrstu verðlaun. Fyrir þetta verk fékk Tal R frá Danmörku sérstakan styrk fyrir „mjög persónulega viðleitni hans til að hleypa nýju lífi í samtímamálverkið," eins og segir í umsögn dómnefndar. mennina og viðtöl við verðlaunahafa og styrkþega ársins. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri opnar sýninguna í dag, en hún verður opin almenningi frá og með morgundeginum til 2. apríl, kl. 10-18 alla daga. Á sunnudögum er boðið upp á leiðsögn um sýninguna. Aðgangur er ókeypis og öllum heim- m. Heimsþorpið og hraði nútímans MYNDLIST N u r r æ n a h ii s i ð GISLE FR0YSLAND MYNDBÖNDOGINN- SETNINGAR Sýningin er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 14 til 18 og stend- ur til 12. mars. GISLE Frpysland á að baki mikinn sýningarferil og tók meðal annars þátt í hinni miklu Elektra-sýningu í Henie-Onstad-listasafninu í Ólsó ár- ið 1996 þar sem könnuð var notkun listamanna á nýjustu tækni. Þar sýndi hann verkið „Joystuck“/gleði- bremsa, sem einnig má sjá nú á sýn- ingu hans í Norræna húsinu og er einmitt gott dæmi um það hvemig hann beitir tövum Qg tækni. Á vegg er varpað gríðarstórri mynd af fólki í verslunarmiðstöð og framan við myndina er hlaupabraut eins og þær sem notaðar eru á líkamsæktar- stöðvum til að láta fólk hlaupa af sér aukakílóin. Brautin er tengd við tölvuna sem stjórnar myndbandinu á veggnum og eina leiðin til að spila myndbandið er að hlaupa á braut- inni. Þannig verður áhorfandinn sjálfur að geranda í verkinu sem aft- ur á móti er fyrst og fremst ætlað að sýna á gagnrýninn hátt hraða og tilgangsleysi nútíma tæknisamfé- lags: Við hlaupum sífellt hraðar en komumst samt aldrei á áfangastað. „Skrúfuhöfuð heitir annað verk sem einnig er ádeila á samband manns og véla, á öriög mannanna á tækniöld. Þar má sjá á skermi mannshöfuð en yfir skerminum hangir skrúfa eins og lftil vifta og snýst annað veifíð. Um leið og skrúfan snýst hringsnýst líka and- litið á skjánum. Líkt og gleðibrems- an undirstrikar þetta verk hið und- arlega og ógnvekjadi nána samband manns og tækja í nútímanum og vekur upp spurningar um það hvort við stýrum lengur tækninni eða tæknin okkur. Stærsta verkið á sýningunni teng- ist þó fyrst og fremst upplýsinga- flæði og - ofhlæði samtímans og þar snýr Gisle út úr hinu þekkta hugtaki „Global Village“ eða „heimsþorpi“ sem kandíski fræðimaðurinn Mars- hall McLuhan setti fram á sjöunda áratugnum til að lýsa framtíðarsýn sinni á upplýsingasamfélagið þar sem samskipti um tölvur og síma yrðu orðin svo auðveld að allur heimurinn yrði sem eitt lítið þorp. Margir hafa litið svo á að þessi heimssýn McLuhans hafi ræst með örri útbreiðslu tölvutækninnar en Gisle Froysland hefur greinilega sínar efasemdir um gagnsemi eða jákvæðar afleiðingar hins óhefta upplýsingaflæðis. Á stóru, hringlaga borði hefur hann stillt upp fjölda hnattlíkana sem lýsast upp innan frá á víxl um leið og óþægilegur há- vaði streymir frá hátölurum allt um kring og ruglingslegar myndir af fólki og bílum á ferð renna yfir sjónvarpsskerma sem felldir eru inn í borðröndina. Niðurstaða hins tæknivædda heims upplýsingaaldar- innar er þannig ekki notaleg þorps- stemmning eins og McLuhan sá fyr- ir sér heldur tómur hávaði og óþolandi linnulaust áreiti. Það skemmtilegasta við verk Froyslands er kannski af hve mikilli hugkvæmni hann beitir tækninni til að gagnrýna tæknisamfélagið. Verkin verða þannig eins konar þversögn og einmitt þeim mun ágengari fyrir það, en sýna líka að hér er ekki á ferðinni einhver ólund- arlegur íhaldsfauskur heldur maður sem skilur og kann að beita tækn- inni. Fyrir það verður gagnrýni hans beittari og marktækari. A n il (I y r i IV o r r æ n a h á s s i n s ELSKU HELSINKI FJÓRIR LJÓSMYNDARAR I ANDDYRI Norræna hússins má skoða ljósmyndir fjögurra ungra finnskra kvenna sem túlka sýn á líf fólks í Helsinki. Anna Elina Varakas fer varfærnislega í verkefnið og sýnir af arkitektúr í jugendstíl úr gömlu hverfi í suðurhluta borgar- innar. Kati Rapia reynir hins vegar að veita áhorfendum leiðsögn með því að blanda saman myndum frá Islandi og Helsinki og tengja saman náttúru og borg. Nina Patilá sýnir ljósmyndir af ungu fólki úr hvers- dagslífinu í Helsinki, á kaffihúsum, úti á götu og heima. Loks þrengir Maarit Hohteri sér alveg inn í einkalífið og myndar fólk heima, gjarnan í rúminu. Hún tekur mynd- ir af vinum sínum og fjölskyldu og segir verk sín vera eins konar dag- bók um líf ungs fólks nú við alda- hvörf. Myndir hennar minna óneit- anlega á ljósmyndaraðir Nan Goldin, en einmitt þessi mikla ná- lægð við viðfangsefnið hefur ein- kennt verk margra ungra lista- manna í Finnlandi upp á síðkastið. Finnar hafa látið mjög til sín taka á sviði ljósmyndunar undanfarin ár, einkum yngri listamenn, og sjást verk þeirra nú á sýningum úti um allan heim. Þetta litla sýnishorn sem nú má sjá í Norræna húsinu er til marks um þá miklu grósku í finnsku listalífi sem ungt fólk hefur staðið fyrir og væri gaman að sjá fljótlega stærri sýningu á ljósmyndalist þess. Jón Proppé

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.