Morgunblaðið - 08.03.2000, Side 47

Morgunblaðið - 08.03.2000, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2000 47 __________FRÉTTIR_______ Fyrirlestur um tengsl starfsánægju og stjórnun leikskóla ARNA H. Jónsdóttir, aðjunkt við Kennaraháskóla Islands, heldur op- inberan fyrirlestur á vegum Rann- sóknarstofnunar Kennaraháskólans fimmtudaginn 9. mars næstkomandi kl. 16.15. Fyrirlesturinn ber yfir- skriftina: Tengsl starfsánægju og stjórnunar í leikskóla. I fyrirlestrinum verður gerð grein fyrir niðurstöðum úr rann- sókn sem gerð var í þremur leik- skólum á tengslum starfsánægju og stjórnunar. Markmiðið var að leita svara við því í hverju starfsánægjan fólst, hvað stuðlaði helst að eða drægi úr henni og hvernig svör við þessum spurningum féllu að kenn- ingum um starfsánægju og þátt stjórnandans í henni. Rannsókna- raðferðin var eigindleg þar sem leit- ast var við að fá sem heildstæðasta mynd af hverjum leikskóla með vettvangsathugunum og viðtölum. Jafnhliða var borið saman hvað var líkt og ólíkt í lýsingum starfsfólks allra leikskólanna og starfshópa inn- an þeirra. Ein af niðurstöðum rannsóknar- innar er að deildarstjórum finnst umfang starfs síns hafa vaxið mjög mikið og sífellt gefist minni tími til starfsins með börnunum. Annað sem fram kemur er að leikskóla- stjórar lýsa þeim vilja sínum að færa aukið vald og ábyrgð til deild- arstjóra. Ýmsar vísbendingar koma á hinn bóginn fram um að deildar- stjórar séu ekki alfarið tilbúnir að taka við þeirri ábyrgð. Ákveðin stjórnunarleg klemma virðist því ríkja innan leikskólanna sem hefur áhrif á starfsánægju starfsfólks. Ai-na H. Jónsdóttir lauk 1999 meistaraprófi í uppeldis- og kennslufræði við Kennaraháskóla íslands með áherslu á stjórnun upp- eldis- og menntastofnana. Hún útskrifaðist sem leikskóla- kennari frá Fósturskóla íslands 1977 og lauk framhaldsnámi í stjórnun frá sama skóla 1984. Arna hefur starfað sem leikskólakennari, leikskólastjóri og leikskólaráðgjafi. Þá var hún varaformaður Félags ís- lenskra leikskólakennara tímabilið 1988-1993. Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu M-201 í aðalbyggingu Kenn- araháskóla íslands við Stakkahlíð og er öllum opinn. ALÞJÓÐLEGS baráttudags kvenna verður minnst með opnum fundi í dag, miðvikudaginn 8. mars, kl.17 í Tjamarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Yf- irskrift fundarins er: Gegn ofbeldi - gegn stríði. Fundarstjóri verður Sól- veig Hauksdóttir, leikari. Hinn 8. mars er Alþjóðlegur bar- áttudagur kvenna fyrir friði og jafn- rétti. Ar hvert safnast konur saman á þeim degi og allt frá árinu 1952 hafa Menningar- og friðarsamtök ís- lenskra kvenna staðið fyrir sam- komum hér á landi. I ár standa fjórt- án fagfélög og samtök að fundinum. Fundurinn er öllum opinn. Dagskrá fundarins: Jóna Einar- sdóttir, hjúkrunarfræðingur, leikur á harmóniku á meðan fólk gengur í salinn við upphaf fundarins. Stríð í Baráttu- dagur kvenna nærmynd - Helga Þórólfsdóttir, fé- lagsráðgjafi og fyrrum sendifulltrúi Rauða kross íslands. Sagan af Önju - Adda Steina Bjömsdóttir, fræðslu- fulltrúi Geðhjálpar. „Það er eitt- hvað sem brennur ...“ - Anna S. Björnsdóttir, ljóðskáld. Friðargæsla með tvö andlit - Guðbjörg Sveins- dóttir, geðhjúkmnarfræðingur og forstöðukona í Vin, athvarfi fyrir geðfatlaða. Ungar konur standa vel að vígi til að berjast fyrir réttindum sínum og grundvallarbreytingum á þjóðfélaginu - Ólöf Andra Proppé, félagi í Ungum sósialistum og nemi í HI. Stígamót 10 ára - Halldóra Hall- dórsdóttir, starfskona Stígamóta. Félög og samtök sem standa að fúndinum: Menningar- og friðar- samtök íslenskra kvenna, Bandalag liáskólamanna, Bandalag starfs- manna ríkis og bæja, Barnaheill, Fé- lag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Félag íslenskra leikskólakennara, Kennarasamband Islands, Síung - félag höfunda barnabóka, Sjúkra- liðafélag íslands, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, Starfsmannafé- lag ríkisstofnana, Stéttarfélag ís- lenskra félagsráðgjafa, Stígamót, Þroskaþjálfafélag Islands. Náttúruleg lausn á # náttúrulegu vandamáli Konur! Velkomnar í Lyfju Hamraborg í dag kl. 14-18 og í Lyfju Setbergi kl. 14-18 til að fá ráðgjöf um Vivag -hyiki og -sápur. 20% afsláttur 50% afsláttur af 100 ml sápu EKKI BERA ÖLL AUKAKÍLÓIN! Hef hjálpað fjölda fólks með frábærum árangri. Hvað með þig? Uppl. í sima 698 3600. EXEM EXEM EXEM Er laus við 33 ára exem I andliti Upplýsingar I síma 698-3600 www.mbl.is Samfylkingin Framboð til formanns Kjörstjórn Samfylkingarinnar auglýsir eftir framboðum til kjörs formanns Samfylkingar- innar. Kjörgengir til formanns eru þeir einir, sem teljast félagar í Samfylkingarfélagi eða einhverju félagi þeirra stjórnmálahreyfinga, sem eru aðilar að Samfylkingunni. Til að framboð teljist gilt skulu fylgja meðmæli a.m.k. 100 félagsbundinna manna, en ekki fleiri en 150, þó skulu minnst 10 meðmælendur vera úr hverju kjördæmi landsins. Frestur til að tilkynna um framboð rennur út fimmtudaginn 16. mars 2000. Framboð, ásamt listum yfir meðmælendur, skulu afhent kjör- stjórn, Flverfisgötu 8-10, milli kl. 17:00 og 19:00 fimmtudaginn 16. mars. Nánari upplýsingar veitir Jóhann Geirdal, for- maður kjörstjórnar, í síma 898 4808 og Ingvar Sverrisson í síma 899 7722. Kjörstjórn Samfylkingarinnar. IMAUBUNGARSALA Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Flúðabakki 1, íbúð 0104, Blönduósi, þingl. eig. Félag eldri borgara i A-Húnav., gerðarbeiðandi (búðalánasjóður, mánudaginn 13. mars 2000 kl. 10.00. Iðavellir, Skagaströnd, þingl. eig. Aðalheiður Ósk Valsdóttir, gerðar- beiðandi íbúðalánasjóður, mánudaginn 13. mars 2000 kl. 11.00. Snæringsstaðir, Svínavatnshreppi, þingl. eig. Benedikt Steingrímsson og Alþert Guðmannsson, gerðarþeiðandi Lánasjóður landþúnaðarins, mánudaginn 13. mars 2000 kl. 14.00. Sýslumaðurinn á Blönduósi, 7. mars 2000. FÉLAGSSTARF Spilakvöld Varðar Árlegt spilakvöld Varðar, sem halda átti sunnu- daginn 27. febrúar sl. og fresta varð vegna veð- urs, verður haldið í Súlnasal Hótels Sögu sunnu- daginn 12. mars kl. 20.30. Glæsilegir spilavinningar að vanda. Meðal ann- ars: Utanlandsferðir með skipum og flugvélum, bækur, matarkörfur o.fl. ofl. Gestur kvöldsins: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi. Aðgangseyrir kr. 700. Allir velkomnir. Vörður - Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. ATVINNUHÚSNÆÐI Skrifstofuhúsnæði til leigu á góðum stað við Suðurlandsbraut. Snyrtilegt og bjart húsnæði á 2. hæð ca 120 fm. Hentar fyrir lögfræðistofur, fasteignasölur o.fl. Sanngjörn leiga. Glæsilegt anddyri. Upplýsingar gefur Þór í s. 553 8640 og 899 3760. Atvinnuhúsnæði Erum með til leigu skrifstofuhúsnæði í Lyngási í Garðabæ. Um er að ræða 90 — 127 fm. Möguieiki á að leigja í einu, tvennu eða þrennu lagi. Frekari upplýsingar í síma 588 7700 eða 893 6447 (Ágúst). YMISLEGT Mömmur athugið, ef barnið pissar undir Undraverður árangur með nýrri uppgötvun í óhefðb. aðferðum. Sigurður Guðleifsson, svæða- nuddfr., ilmolíufræðingur og reikimeistari, simi 587 1164. FÉLAGSLÍF Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund i kvöld kl. 20.00. □ Njörður 6000030819 I I.O.O.F. 18 = 180388 = BVi II* ....SAMBAND ÍSLENZKRA KRISTNIBOÐSFÉLAGA Háaleitisbraut 58. Smkoma i kvöld kl. 20.30. Baldur Ragnarsson og Gunnar J. Gunnarsson tala. Allir hjartanlega velkomnir. http://sik. torg.is/ □ Hamar 60000308 III I.O.O.F. 9 = 180388V2 = Fl. I.O.O.F. 7 = 18003088’/2 e 9.O. □ GLITNIR 6000030819 I augl@mbl.is Sparaðu þér umstang og tfma með því að senda atvinnu- og raðauglýsingar til birtingar ( Morgunblaðinu með tölvupósti. Notfærðu þér tæknina næst.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.