Morgunblaðið - 08.03.2000, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 08.03.2000, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ 50 MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2000 Dýraglens PAD TÆKIMI6 PRJA ÖA6A Aö KLIFRA NIÖUR ‘ r AF PESSARIBRÚN 06 UPP HINU ME&IN... É& STEKK BARA! < <0 7 ÉG HELD MÉR VEITTI EKKIAFHREVFINGUNNI! j |j /I p A li Æ\ ? /// /( i Imi O o o c$L p*1//// J) JMi muTTTmrZu.1 Grettir Hundalíf .EG SA&ÖI, HLYTUR A£> VERA LJÚFT Ljóska HELDURfiU At) EG VERÖIHAR 09 MYNDAR L^GUR EÐA 5TUTTUR 09 DIGUR PEGAR EG STÆKKA, HERRA BLÓMSTURBERG NUJA, ELMAR! LITTU A ÆTTINGJA PINA, PABBA PINN 09 MÖMMU, FRÆNDUR ÞÍNA OG FRÆNKUR PAD GÆTIGEFID PER EINHVERJA HUGMYND Smáfólk Fyrirgefðu að ég skyldi missa Ég fékk vonar- af þessum bolta, stjóri, ég var glampa f augun. að vonast til að grfpa hann. BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavfk • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Eruekki # allir vakandi? Frá Hlyni Frey Vigfússyni: ÁSTÆÐAN fyrir þessu litla bréfi er sú að umræða um nýbúa og innflytj- endur á íslandi er orðin vandræða- lega einhliða af hálfu fjölmiðla og þingmanna. Fjölmiðlar, þingmenn, fréttastofur og fleiri eru algerlega lokaðir fyrir hvers kyns gagnrýni á innflytjendamál og hefur þetta verið mjög áberandi á síðustu mánuðum. Islendingar eru skammaðir opinber- lega af mannréttindafrömuðum og öðru „friðhelgu" fólki fyrir að sýna ekki nógu mikinn skilning á vanda- málum innflytjenda. Er hægt að ætl- ast til þess að þjóðin sætti sig við það að stjórnvöld flytji fólk linnulaust inn í landið án þess að spyrja kóng né prest? Og gera heldur engar at- huganir á þeim vandamálum sem þetta gæti haft í för með sér og eng- inn veit hvenær á að stoppa. Þessi mál verður að gagnrýna eins og önn- ur mál og skoða, öðruvísi verður aldrei hægt að stýra þessu þannig að ekki hljótist skaði af. Nú síðast bar til tíðinda að ýmsir þingmenn Sam- fylkingarinnar lögðu fram þings- ályktun þess efnis að innflytjendur fengju sama rétt og íslendingar í öll- um efnum hér á landi og meðal ann- ars er það harðlega gagnrýnt í þess- ari ályktun að ráðningum útlendinga í störf hérlendis sé þannig háttað að ef útlendingur sækir um starf hér, þá er starfið auglýst og séð hvort að Islendingur sæki um. Þetta finnst mér alveg sjálfsagður hlutur og get ekki séð fyrir hverja umræddir þing- menn eru á þingi fyrir íslendinga eða aðrar þjóðir, ber þingmönnum ekki siðferðileg og lagaleg skylda til að bera hag íslensku þjóðarinnar fyrir brjósti þegar þeir taka ákvarð- anir er snerta framtíð hennar? Hvað er að brjótast um í höfði fólks sem ákveður að gerast kross- farar minnihlutahópa og gera það að markmiði sínu að hleypa sömu flóð- bylgjunni af innflytjendum inn til okkar og gekk yfir Evrópu fyrir nokkrum árum? Þessi mikli innflutn- ingur á fólki inn í önnur Evrópulönd hefur valdið miklum skaða og vand- ræðum í þeim löndum sem hafa orðið hvað verst út í þessum efnum, s.s. Danmörk, þar sem dæmi má nefna vopnaleit í skólum sem má rekja beint til innflytjendavandamálsins. Finnst mér það undarleg pólitík að virða að vettugi reynslu á Norður- löndum í þessum efnum sem gæti nýst okkur íslendingum til að grípa í taumana nógu snemma og afstýra ýmsum vandamálum og árekstrum í framtíðinni. íslendingar hafa ekki sýnt þessum málum nægan áhuga, sem stafar kannski einna helst af því að enginn vill taka afstöðu nema að sá hinn sami hafi stuðning fjölmiðla og félagasamtaka sem eru í flestum tilvikum ekki hlutlaus, sem er til skammar fyrir íslenska fjölmiðla, því að ef fjölmiðlar eru ekki hlutlausir, hver er það þá? Þessi þjóð veður áfram inn í nýja öld eins og hvalur með beyglaðan bakugga, stefnulaus og of upptekin af eigin sjálfi að hún væri til í að fóma framtíð komandi kynslóða fyrir eigið stundargaman. Fólk verður að fara átta sig á því hverju er verið að lauma inn til þeirra og taka afstöðu til innflytj- endamála eins og annarra mála áður en það er orðið of seint. HLYNUR FREYR VIGFÚSSON, Teigaseli 4, Reykjavík. 200 myndir á mánuði og þar af 50 frumsýningar Frá Björgvini Halldórssyni: GÆSAHÚÐ fram undir morgun, nýbreytni hjá sjónvarpinu, var fyrir- sögnin á frétt sem birtist í Morgun- blaðinu laugardaginn 4. mars sl. und- ir dálkinum „Fólk í fréttum". Um var að ræða frétt frá sjónvarpi allra landsmanna um þá „nýbreytni" hjá sjónvarpinu að brydda uppá „þema- kvöldum“ og sýna heilar „fimm“ kvikmyndir í einni bunu. Fjallað var um þetta átak eins og himinn og jörð séu að farast og slegið upp á hálfa síðu. Ég fagna þeirri „nýbreytni“ sjónvarpsins að fara loksins að skila til „áskrifenda" sinna langri dagskrá afkvikmyndum. Mig langar að nota tækifærið og vekja athygli lesenda á því að eina kvikmyndarás landsins, Bíórásin, hefúr verið með þemakvöld í allan vetur. Ekki bara einu sinni í viku, heldur fimm sinnum. Spennan er á mánu- dagskvöldum, gömlu klassísku myndirnar eru á miðvikudagskvöld- um, rómantíkin á fimmtudagskvöld- um og grínmyndimar ráða ríkjum á föstudagskvöldum. Bíórásin bætir heldur við og er alltaf með þemamán- uði, sbr. marsmánuður er helgaður vfsindaskáldsögumyndunum og í apríl verða hryllingsmyndimar við völd. Bíórásin sýnir allt að 200 mynd- ir í hverjum mánuði og þar af eru allt að 50 frumsýningar. Stór hluti af frumsýningunum á Bíórásinni eru frumsýningar í íslensku sjónvarpi. Þess má geta að Bíórásin sendfr út allan sólarhringinn. Eins og sjá má að ofangreindu þá er úr miklu að velja á Bíórásinni og erum við mjög ánægð með viðbrögð okkar „áskrif- enda“. Við vonum að sjónvarpið haldi áfram að brydda uppá meiri „ný- breytni" og veita okkur á Bíórásinni samkeppni, því að við, blessaðir áskrifendumir, eigum það skilið, eins og segir í viðtali í DV 6. mars sl. við Bjarna Guðmundsson framkvæmda- stjóra sjónvarpsins. „Það má líta þetta sem vetrargjöf ríkissjón- varpsins til dyggra áhorfenda, sem vissulega eiga skilið spennandi og skemmtilega nótt í skammdeginu." Þeir eru flottir á því hjá sjónvarpinu. BJÖRGVIN HALLDÓRSSON, dagskrárstjóri Bíórásar. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni tii birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.