Morgunblaðið - 09.03.2000, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. MARS 2000 31
SINFONIUHLJOMSVEIT ISLANDS 50 ARA
SINFONIUHLJOMSVEIT Islands
fagnar hálfrar aldar afmæli sínu um
þessar mundir. Fimmtíu ár eru ekki
nema örlítið brot úr sögu sinfónískr-
ar tónlistar, tími sem þætti stuttur í
sögu elstu hljómsveita. Þó er Sin-
fóníuhljómsveit Islands meðal elstu
menningai-stofnana okkar, og hefur
gengið í gegnum mörg þroskaskeið
sem hafa fleytt henni fram til okkar
daga. Á hálfri öld hefur hljómsveitin
þróast frá því að vera 40 manna
hljómsveit misvel menntaðra hljóð-
færaleikara til þess að verða hljóm-
sveit sem fær er í flestan sjó; hljóm-
sveit sem nýtur velgengni og
vinsælda, jafnt heima sem erlendis.
Stórum áfanga var náð þegar Al-
þingi samþykkti lög um Sinfón-
íuhljómsveit íslands árið 1982. Þar
með var starfsemi hljómsveitarinn-
ar tryggð til framtíðar og henni
tryggt rekstrarfé sem skiptist milli
ríkis, Ríkisútvarpsins og sveitarfé-
laganna á höfuðborgarsvæðinu. Ör-
uggur starfsgrundvöllur hlaut að
gera hljómsveitinni auðveldar um
vik, og vera forsenda þess að list-
rænt starf gæti dafnað eðlilega.
Lögin um hljómsveitina mörkuðu
tímamót. I þeim er að finna ákvæði
um stjórnskipulag sveitarinnar eins
og vera ber, en einnig margvísleg
ákvæði um hlutverk hennar. Hverri
íslenskri menningarstofnun hlýtur
að bera skylda til að gefa íslenskri
menningu sérstakan gaum. Hvar
heyrum við íslenska tónlist, ef ekki
hjá íslenskri hljómsveit? Stærsti
ágalli laganna um Sinfóníuhljóm-
sveit Islands er hversu orðalag um
hlutverk hennar gagnvart íslenskri
tónlist er loðið og óskýrt. Þar stend-
ur: „Sérstaka áherslu ber að leggja
á flutning og kynningu íslenskrar
tónlistar, utan lands sem innan, ef
tilefni gefast“ (Lög nr. 36, 7. maí
1982). Þessi síðasta klausa, „...ef til-
efni gefast“, er óskiljanleg í ljósi
þess hve þýðingarmikið hlutverk
hljómsveitarinnar er í kynningu á
íslenskri tónlist. Engri hljómsveit í
gjörvöllum heiminum stendur það
nær að leika íslenska tónlist en Sin-
fóníuhljómsveit Islands. Hlustendur
gera ekki þá kröfu til útlendra
hljómsveita að þær leiki íslenska
tónlist; - sú krafa er gerð til Sinfón-
íuhljómsveitar íslands.
Hvenær er tilefni til að hlusta á
íslenska tónlist? Þarf tilefni til að
hlusta á íslenska tónlist? Það má
ætla að þessara spurninga hafí verið
spurt þegar lögin um hljómsveitina
voru samin, og að svo hafi verið tal-
ið, að sérstakt tilefni þyrfti að vera
fyrir hendi til að íslensk tónlist yrði
flutt. Hvaða ástæða önnur gæti ver-
ið fyrir þessari „undankomuleið" í
lögunum? Auðvitað þarf ekki sér-
stakt tilefni að flytja íslenska tónlist
og vissulega leikur Sinfóníuhljóm-
sveitin oft íslenska tónlist án tilefn-
is. Þó virðist sem íslensk tónlist eigi
erfitt uppdráttar. í ár er ekkert ís-
lenskt verk í rauðu röðinni, sem ber
yfirskriftina „sígildir einleikskon-
sertar og hljómsveitarverk“. I gulu
röðinni er jafnan að finna „stærri
hljómsveitarverk“, og þar eru þrjú
íslensk verk, þar af tvö mjög stutt. I
grænu röðinni, sem er röð
„skemmtilegra og aðgengilegra tóm
verka“, er ekkert íslenskt tónverk! I
bláu röðinni, sem er röð tónlistar frá
20. öld, eru svo þrjú ísjensk verk.
Betur má ef duga skal. íslensk tón-
list þarf að heyrast í samanburði við
aðra tónlist. Hún þarf að heyrast við
hliðina á Beethoven og Stravinskíj
svo hægt sé að hlusta á hana í sam-
hengi við aðra tónlist. Hún þarf líka
að heyrast miklu oftar. Og svei mér
ef það er ekki hægt að grafa upp eitt
eða tvö „aðgengileg og skemmtileg"
íslensk tónverk. Þarna er vettvang-
ur fyrir Sinfóniuhljómsveit Islands
til að bæta sig og á tímamótum sem
þessum væri það verðugt verkefni
hljómsveitarinnar að setja sér ný
markmið í því augnamiði að auka
flutning á íslenskri tónlist, þó svo að
lög hennar gefi færi á því að lengi
megi leita að tilefnum. Ef til vill
mætti í þeim tilgangi nýta annað
ákvæði laga um hljómsveitina, það
að hljómsveitinni er heimilt að ráða
tónskáld til starfa í þágu hljómsveit-
arinnar í takmarkaðan tíma.
Sinfóníuhljómsveit Islands stend-
ur á tímamótum í fleiri en einum
skilningi. Á undanförnum árum hef-
Færí
flestan sjó
Sinfóníuhljómsveit Islands stendur á tíma-
-------------------7----
mótum í fleiri en einum skilningi. A undan-
förnum árum hefur náðst gífurlegur
árangur í listrænu starfi, segir Bergþóra
Jónsdóttir tónlistargagnrýnandi Morgun-
blaðsins í grein í tilefni afmælisins.
Páll ísólfsson stjórnar Sinfóníuhljómsveit íslands á æfingu í Gúttó eftir
endurreisn hennar 1956.
ur náðst gífurlegur árangur í list-
rænu starfi. í dag er hljómsveitin
virt, vinsæl og nýtur velgengni. Síð-
ustu misseri hafa verið hljómsveit-
inni heilladrjúg, metaðsókn er að
tónleikum, og umfjöllun um leik
hljómsveitarinnar jafnt á tónleikum
sem á geisladiskum er nánast und-
antekningarlaust mjög lofsamleg.
Alla tíð hefur það verið hljómsveit-
inni til heilla að til hennar hafa ráð;
ist góðir hljómsveitarstjórar. I
þeirra hópi eru Karsten Andersen,
Bohdan Wodiczko og Jean-Pierre
Jacquillat. Páll Pampichler Pálsson
starfaði um áratugaskeið með
hljómsveitinni, fyrst sem hljóðfæra-
leikari en síðar sem hljómsveitar-
stjóri. í tíð Páls og Jacquillat var
sem ákveðið jafnvægi næðist i leik
hljómsveitarinnar, hún varð jafn-
betri en áður og fagmannlegri. Ung-
ir og góðir hljóðfæraleikarar skiluðu
sér heim úr námi og hófu leik með
hljómsveitinni. Árið 1988 kom Petri
Sakari til starfa hjá hljómsveitinni
sem var heillaskref. Petri var af hin-
um þekkta finnska hljómsveitar-
stjóraskóla, einn af nemendum
hljómsveitarstjórans fræga, Jorma
Panula. Petri hafði metnað og dug
til að leiða hljómsveitina til nýrra
sigra. Enn einn áfangi náðist árið
1991 með samningi hljómsveitarinn-
ar við útgáfufyrirtækið Chandos,
sem tók að sér að gefa út leik hljóm-
sveitarinnar. I kjölfarið fylgdu fleiri
útgáfusamningar; við Naxos, og við
BlS-útgáfuna í Svíþjóð, sem einset-
ur sér að gefa út íslenska tónlist í
flutningi hljómsveitarinnar og hefur
þegar gefið út nokkra diska með
verkum Jóns Leifs. Geisladiskar
Sinfóníuhljómsveitarinnar hafa
hlotið stórgóða og verðskuldaða um-
fjöllun í erlendum tónlistartímarit-
um. Þessi góða kynning á leik
hljómsveitarinnar, ekki síst í flutn-
ingi íslenskrar tónlistar er ómetan-
leg, og afar verðmæt fyrir íslenskt
menningarlíf.
Frægðarför til Vesturheims
Osmo Vanska tók við stjórn Sin-
fóníuhljómsveitar íslands af Petri
Sakari. Undir hans stjórn hefur
hljómsveitin náð einna hæstu list-
rænu flugi, og margir tónleikar
hljómsveitarinnar undir hans stjórn
eru og verða lengi í minnum hafðir.
Osmo Vánska stjórnaði Sinfón-
íuhljómsveitinni í mikilli frægðarför
hennar til Vesturheims í ársbyrjun
1996. í þeirri ferð lék hljómsveitin
meðal annars í virtasta hljómleika-
sal vestanhafs, Carnegie Hall í New
York. Þeir sem heyrðu þá tónleika
og sögðu frá voru á einu máli um að
það hefði verið eitt stærsta og mikil-
vægasta augnablik í sögu hljóm-
sveitarinnar. Þar fékk hún að
spreyta sig á leikvelli stóru og
frægu hljómsveitanna; þar lék hún
af sama þrótti og stóru og frægu
hljómsveitirnar og þar fékk hún
sömu viðtökur og stóru og frægu
hljómsveitirnar. Þar með var Sin-
fóníuhljómsveit Islands komin á
blað sem ein af eftirtektarverðustu
og jafnvel bestu hljómsveitum í dag.
Nú hefur Rico Saccani tekið við
stjórnveli Sinfóníuhljómsveitar Is-
lands. Undir hans stjórn er hljóm-
sveitin enn í framför og sýnir af-
burðaleik þegar best lætur. Hver
þessara stjórnenda hefur haft sinn
stíl og sett sitt svipmót á hljómsveit-
ina. Rico Saccani er fyrsta flokks
tónlistarmaður með djúpan skilning
á þeh-ri tónlist sem hann flytur. Það
hefur vakið umtal og athygli að oft-
ar en ekki stjórnar hann blaðlaust;
hann þekkir verkin sem hann
stjórnar í þaula og getur einbeitt sér
að því að draga fram þau áhrif sem
hann velur í túlkun sinni. Hann er
gríðarlega sterkur stjórnandi, en
þessi styrkleiki er þó jafnframt hans
veikleiki. Enn bíðum við eftir að
hann takist á við fjölbreytta flóru ís-
lenskra tónverka. Islensk tónverk
eru fæst vel þekkt og fæst auðlærð
og hafa ekki hljómað öldum saman,
eins og mörg þau verka sem Saccani
hefur verið að stjórna. Engu að síð-
ur verðskulda þau að slíkur stjórn-
andi taki þau upp á sína arma og
geri þeim jafn hátt undir höfði og
jafn góð skil og annarri góðri tónlist.
Hér hefur verið farið vítt og breitt
um sögu Sinfóníuhljómsveit Islands
á síðustu árum. Það sem mestu hef-
ur ráðið um þá miklu framför sem
hljómsveitin hefur tekið á síðustu
misserum eru hljóðfæraleikararnir
sem þar leika. I dag er Sinfón-
íuhljómsveit Islands skipuð vel
menntuðu fagfólki; öguðum lista-
mönnum sem hafa verið tilbúnir að
leggja á sig ómælda vinnu fyrir
þann árangur sem náðst hefur.
Nauðsynlegt er að litið verði á það
sem fullt starf að leika í Sinfón-
íuhljómsveit Islands. Fólk endist
ekki í þessu kröfuharða starfi, ef
það þarf að vera á hlaupum í jafnvel
fleiri en eitt starf að loknum starfs-
degi með hljómsveitinni, eins og
margir hljóðfæraleikarar gera. Það
að leika í Sinfóníuhljómsveit Islands
þarf að vera vel launað starf. Einnig
er ljóst, að enn hefur ekki verið of
oft sagt að hljómsveitin þurfi betra
athafnasvæði en Háskólabíó er. Enn
vantar hljómsveitina viðunandi hús-
næði. Við óformlega skoðun kom í
ljós að á þetta hefur verið minnst á
hverju afmæli hljómsveitarinnar frá
upphafi, og við ótal tækifæri önnur.
Stundum virðist sem við færumst
nær því markmiði að tónlistarhús
rísi hér í borg, en það gengur allt of
hægt. Þetta er orðið aðkallandi
verkefni og Sinfóníuhljómsveit Is-
lands verðskuldar ekkert minna.
Á afmæli Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands er hljómsveitinni óskað til
hamingju með þann mikla listræna
árangur sem hún hefur náð á síð-
ustu árum. Jafnframt er ástæða til
að brýna hljómsveitina til frekari
dáða; að sinna hlutverki sínu gagn-
vart íslenskri tónlist af meiri festu;
en ekki síst að halda áfram að
standa með reisn frammi fyrir
áheyrendum sínum og bera þá á
vængjum söngsins inn í undraheima
tónlistarinnar.
CARNEGIE
A RT
A W A R D
19 9 9
N o r r æ n t
m á I v e r k
LISTASAFN REYKJAVÍKUR
KJARVALSSTAÐIR
V/FLÓKAGÖTU, REYKJAVÍK
SÝNINGIN VERÐUR OPIN 9. MARS-2. APRÍL 2000
ALLA DAGA KL. IO—18
LEIÐSÖGN UM SÝNINGUNA SUNNUDAGA
FREKARI LEIÐSAGNIR SAMKVÆMT UMTALI
AÐGANGUR ÓKEVPIS
mkm
Funahöfða 1 - Fax 587 3433
www.litla.is
Nissan Patrol Se+ Tdi, 7/99,
5 g., upph., 33" dekk, álfelgur,
leður, sóllúga, tölvukubbur, cd
o.fl., ek. 11 þ.km., grænn/bei-
ge. Áhv. bílalán. Verð 3.950
þús., sk. ód., eigum fleiri Patrol.
Gott úrval af Toyota Land
Cruiser 90, árg. 97-00, LX-Vx.
Toyota Land Cruiser GX dísel
Tdi, 94, ssk., 35" dekk, álfelg-
ur, kastarar, cd o.fl., innfl. nýr,
ek. 118 þ. km., vínr. Verð 2.980
)ús.,
Grand Cherokee Laredo 4.0
L, 01/00, ssk., álfelgur, cd-
magasín, allt rafdr., sem nýr,
grár. Verð 4.750, sk. ód.
M.Benz ML-320, 98, ssk., leð-
ur, sóllúga, einn með öllu, ek.
18 þ. km., frábær jeppi! Verð
5.150 þús., áhv. bílalán. Sk. ód.
Subaru Impreza LX 1600 4x4,
97, 5 g., rauður, ek. 70 þ. km.
Verð 1.050 þús.
VW Golf CL 1800, 5/92, 5 g„
álfelgur, ek. 124 þ. km„ blár,
ath, kjör, Visa-Euro. Verð 590
þús. Eigum einnig aðrar árg.
VW Polo 1.4, 10/96 (97), ssk„ ál-
felgur, ek. 35 þ. km„ dökkgrænn
Áhv. bílalán. Verð 950 þús.
Rat Brava 1.6 SX, 10/98, 5 g.
abs, allt rafdr., ek. 14 þ. km.,
grænn. Áhv. bílalán. Verð 1.170
þús.
Nissan Micra, 6/98, 5 g„ ek.
56 þ. km„ vínrauður. Verð 790
þús. Einnig árg. 96 ssk.