Morgunblaðið - 09.03.2000, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 09.03.2000, Blaðsíða 66
66 FIMMTUDAGUR 9. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ ■■í>!S«iSK"í Vinsældalisti þar sem þú hefur áhrif! á uppleið ^ á niðurleið f ►stendur í stað V nýtt á lista ♦ ♦ ♦ Vikan 09.03.- 15.03. 1. Hann Védís H. Árnad. 2. Hryllir Védís H. Árnad. 3. Maria Maria Santana 4. Other side Red Hot Chili Peppers 5. Falling Away From Me Korn 6. Dolphins Cry Live 7. Crushed Limp Bizkit 8. Run to the Water Live 9. Starálfur Sigur Rós 10. Okkar nótt Sáliíl hans Jóns míns 11. Bad Touch Bloodhound Gang 12. Show me the meaning Backstreet Boys 13. Sex Bomb Tom Jones 14. Sexx Laws Beck 15. The Great Beyond REM 16. So Long Everlast 17. Born to make you happy Britney Spears 18. What a girl wants Christina Aguilera 19. Break Out Foo Fighters 20. What I am ■ Tin Tin Out & Emma B. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ Listinn er óformleg vinsældakönnun og byggist á vali gesta mbl.is. ® mbl.is SKJÁR einn FÓLK í FRÉTTUM Endurskoðendur flokka atkvæðaseðla sem sendir verða út til meðlima Óskarsakademíunnar, en meðlimir hennar eru rúmlega fimm þúsund. S Oskarskapphlaupið hefst fyrir alvöru ÞAÐ ER heldur betur farið að hitna í kolunum í henni Hollywood og angan Óskars frænda farin að leika fyrir vitum alira. I byrjun vikunnar hófst undir- búningur að því að senda út at- kvæðaseðla til meðlima Óskars- akademíunnar sem eru rúmlega flmm þúsund. Aðstandendur þeirra sem eru tilnefndir eru nú í óða önn að kynna verðleika frambjóðenda sinna og þykja herferðir stærstu kvikmyndaframleiðenda keyra fram úr hófi sem fyrr enda fjár- hagslega afar mikið í húfi. Það er enn fremur sagt skipta gríðarlega miklu máli að athygli akademiu- meðlima, kjósendanna sem allt valdið hafa, náist þvi þótt þeim sé á allan hátt auðveldað að nálgast þær rnyndir sem tilnefndar eru er ekki þar með sagt að þeir hafi áhuga á eða sinni dómarahlutverki sínu sem skyldi. Menn leika sér jafnan að því að spá í spilin og geta sér til um vinn- ingshafa. Veðmangarar í Las Veg- as telja „Ameríska fegurð" líkleg- asta til þess að hreppa hnossið sem besta myndin og líkur Kevins Spaceys þykja öllu meiri en þeirra Denzels Washingtons og Russells Crowes. Allar slíkar getgátur eru hins- vegar léttar á metunum og einungis undir fimm þúsund útvöldum skemmtikröftum komið hverjir fara brosandi heim af Óskars- verðlaunaathöfninni 26. mars næst- komandi. MYNDBOND Vönduð sjón- varpsmynd Hinsta kennslustundin A Lesson Before Dying I) H \ >1 \ ★★★tá Framleiðandi: Roberto Benedetti. Leikstjóri: Joseph Sargent. Hand- rit: Ann Peacock. Byggt á skáld- sögu Ernests J. Gaines. Aðal- hlutverk: Mekhi Phifer, Don Cheadle og Cicely Tyson. (98 mín.) Bandarikin. Bergvík, janúar 2000. Bönnuð innan 16 ára. KVIKMYNDIN sem hér um ræðir er einkar vönduð og áhrifarík sjónvarpsmynd framleidd af HBO- kvikmyndafyrir- tækinu. Sögusviðið er Louisiana-ríki í Suðurríkjum Bandarílganna á fimmta áratugn- um, þar sem blökkumenn mega berjast fyrir til- veru sinni með brauðstriti og und- irgefni við hvíta manninn. Ungur blökkumaður er ranglega dæmdur til dauða eftir að hafa orðið vitni að morði á hvítum manni. Gamli kennarinn hans, hug- sjónamaður sem náð hefur að berj- ast til mennta, heimsækir hinn dauðadæmda í fangelsið að beiðni fjölskyldunnar og ræðir við hann um lífið. Hér er á ferðinni einkar vel skrifuð og mögnuð saga sem gædd er lífi með vandaðri kvikmyndagerð og einstökum leikurum. Hún bregður upp lifandi mynd af að- stæðum blökkumanna í fordóma- fullu samfélagi með næmri nær- mynd af baráttu hinna ógleym- anlegu persóna sögunnar fyrir tilverurétti sínum. Eftirminnileg kvikmynd sem hæfir áhorfandann beint í hjartastað. Heiða Jóhannsdóttir ---------------- Bátur sekkur Á niðurleið (Sub Down) SI' EIVIVUMYIVH ■k'k Leikstjóri: Alan Smithee. Handrit: Howard Chesley. Aðalhlutverk: Stephen Baldwin, Gabriella Anwar og Tom Conti. (91 mín) Bandaríkin. Skífan, febrúar 2000. Öllum leyfð. Á NIÐURLEIÐ er kafbáta- spennumynd með meiru sem tekur sjálfa sig mjög alvarlega. Hand- ritið felur í sér hafsjó af tækni- legum „staðreynd- um“ um kaíbáta og kafbátahernað sem settar eru fram með slíku offorsi að áhorf- andinn skilur hvorki upp né nið- ur í fléttunni. Að baki flækjunni liggur einföld atburðarás: Kafbát- ur sekkur til botns og kemst ekki upp aftur. Tölvunörd og göfug vís- indakona sem stödd eru um borð taka þá til sinna ráða til að bjarga bátnum, sjálfum sér og áhöfninni. Auk ofgnóttar kafbátaupplýsinga er fléttan jafnframt hlaðin siðferði- legum álitamálum, spurningum um hernað fyrr og nú, hvalafræði og ástarplotti. Fremur slappir leikar- ar eru síðan fengir í málið (Steph- en Baldwin í aðalhlutverki - veit ekki á gott). Útkoman verður vel- viljuð en aumkunarverð spennu- mynd sem helst á floti með sóma- samlegri tæknivinnslu. Heiða Jóhannsdóttir DaCtetflf iy\n Mrtlii'Vw
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.