Morgunblaðið - 28.03.2000, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2000 53 >
Óvæntur sigur Hellis
í Deildakeppninni
SKAK
Deildarmeistarar Hellis: Helgi Ólafsson, Björn Þorfinnsson, Davíð
Kjartansson, Bram Halldórsson, Hannes Hlífar Stefánsson, Kristján Eð-
varðsson, Helgi Áss Grétarsson og kampakátur liðsstjórinn Hrannar B.
Amarsson. Á myndina vantar Jón L. Árnason, Karl Þorsteins, Ingvar
Ásmundsson, Jóhannes Gísla Jónsson og Davíð Ólafsson.
íslandsfluc sdeildin 1999 -2000
Félag 1 2 3 4 6 6 7 8 Vinn. Stifl Röö
Taflfélagið Hellir B 214 4 5 5 4 4 0 24% 7 4.
Taflfélag Reyldavikur A 5% y2 VÁ 4 4/2 7 8 4 40% 12 2.
Skákfélag Hafnarfiarðar A 4 I4% V/2 5/2 4/2 314 24 7 5.
Taflfélag Garðabæjar A 3 4 314 2'A 4'/2 4/2 0 22 5 6.
Skákfélag Akureyrar A 3 314 614 5/2 6/2 5/2 21A 33 8 3.
Tafldeild Bolungarvíkur 4 1 2/2 314 1'Á 1'A 2/2 16% 1 8.
Taflfélag Reykjavíkur B 4 0 3% 3/2 2'A ^54 1'A 21% 3 7.
Taflfélagið Hellir A 8 4 414 8 5'A 514 6'A 1 42 13 1.
Deildakeppni S. [. 1999-2000. Önnurdeild
Félag 1 2 3 4 5 6 7 8 Vinn. Stig Röö
Taflfélag Kópavogs A 3 3 314 414 5 2'A 4’/2 26 10 1.
Skákfélag Akureyrar B 3 3 3 3 314 3'A 314 22% 10 3.
Skákfélag Selfoss og nágr. 3 3 1 3/2 2/2 214 0 16% 4 8.
Taflfélag Reykjavíkur C 2Vi 3 5 11/2 31/2 14 3 19 6 6.
Taflfélag Reykjavíkur D VÁ 3 2/2 41/2 3 2 VA 18 4 7.
Skákfélag Reykjanesb. A 1 2 % 3/2 2’/2 3 5 3 20% 6 6.
Taflfélag Akraness A 3/2 214 3/2 5'/2 4 1 5 25 10 2.
Taflfélagið Hellir C IV2 2Vi 6 3 414 3 1 i 21'h 6 4.
Deíldakeppni S.í. 1999-2000. Þriðja deild
Félag 1 2 3 4 5 6 7 8 Vinn. Stig Röð
Skákfélag Akureyrar C 3 V2 1 214 41A 1 31/2 16 5 7.
Skáksamband Austurlands - I '/2 2 2 5 4 3 19% 6 5.
Skákfélag Grand-Rokk A 5/2 5/2 5 5 6 5/2 6 38% 14 1.
Skákfélag Seltjarnarness 5 4 1 4 2 5 2/2 3/2 23 8 2.
Taflfélag Reykjavlkur G 314 4 1 ,4 3 3 22% 10 3.
Taflfélagiö Hellir D VA 1 0 1 2 1 'A 7 0 8.
Taflfélag Vestmannaeyja 5 2 /2 3/2 3 5 3'A 22% 9 4.
U.M.S. Eyfirðinga A 2'A 3 0 2/2 3 5'A 214 | 19 4 6.
Félagsheímilí TK
DEILDAKEPPNI
SKÁKSAMBANDS
ÍSLANDS
24.-25 mars 2000
LOKAUMFE RÐIRNAR í ís-
landsflugsdeildinni urðu meira
spennandi en nokkum hafði órað
fyrir. Eins og undanfarin ár voru það
Taflfélag Reykjavíkur og Taflfélagið
Hellir sem börðust um meistaratitil-
inn. Hellir sigraði með yfirburðum í
Sfyrra, en að þessu sinni virtist TR
standa með pálmann í höndunum
eftir fyrri hluta keppninnar, sem
fram fór sl. haust. Þá voru tefldar
fjórar umferðir, en nú í seinni hlut-
anum voru þrjár síðustu umferðirn-
ar tefldar. TR hafði tveggja vinninga
forystu eftir fyrri hlutann. TR og
Hellir tefldu saman í þriðju umferð
og skildu jöfn, fengu bæði fjóra vinn-
inga. Almennt var talið að það væri
nánast formsatriði fyrir TR að landa
jtitlinum. Hellismenn virtust sjálfir
vera búnir að sætta sig við þessa nið-
urstöðu, og stilltu nú upp veikara liði
en í fyrri hlutanum, en tvo titilhafa
félagsins vantaði í sejnni hluta
keppninnar, þá Jón L. Arnason og
Karl Þorsteins.
I fimmtu umferð mætti TR liði
Garðbæinga og Hellir mætti Hafn-
firðingum. I báðum viðureignum var
búist við öruggum sigri Reykjavík-
urrisanna, en það fór á annan veg.
31 Garðbæingar, sem höfðu styrkt lið
sitt með áströlsku hjónunum Ian og
Cathy Rogers, héldu jöfnu gegn TR.
Hafnfirðingar, sem TR hafði sigrað
V/2-V2 fyrr í keppninni, stóðu nú í
Hellismönnum, en urðu þó að lokum
að játa sig sigraða með minnsta mun,
4V2SV2. Við þessi úrslit breyttist
vígstaðan örlítið, Hellir saxaði hálfan
vinning af forskoti TR-inga, sem
höfðu nú IV2 vinning í forskot fyrir
tvær síðustu umferðimar.
Ií sjöttu og næstsíðustu umferð
mætti TR Akureyri og Hellir glímdi
við b-sveit TR. Jóhann Hjartarson
var í fararbroddi sterkrar sveitar
Akureyringa. Þegar ein skák var eft-
ir var staðan 41/2-2‘/2 TR í vil, en þeir
Áskell Örn Kárason (SA) og Jón
Viktor Gunnarsson (TR) sátu enn að
tafli yfir athyglisverðu endatafli þar
sem Áskell stóð betur. Á sama tíma
var einnig ein skák eftir í viðureign
Hellis og TR-b og þar var staðan
16-1, Helli í vil. í síðustu skákinni átt-
ust við þeir Kristján Eðvarðsson
(Hellir) og Ingvar Þór Jóhannesson
(TR). Upp var komið endatafl þar
sem Kristján virtist standa örlítið
betur. Þegar hér var komið sögu
voru liðin því jöfn að vinningum og
síðustu tvær skákirnar mundu ráða
úrslitum um það hvort félagið hefði
forystu í keppninni fyrir síðustu um-
ferðina. Skák þeirra Kristjáns og
Ingvars lauk með jafntefli og þar
Imeð hafði Hellir náð hálfs vinnings
forystu. Augu allra beindust því að
skák þeirra Áskels og Jóns Viktors.
Tækist Jóni að halda taflinu mundi
TR jafna metin og ætti þá einungis
eftir að tefla við neðsta Uðið í deild-
inni, Bolvíkinga. Eftir mikla spennu
og tímahrak tókst Áskeli hins vegar
að nýta sér yfirburðina til vinnings á
lokasekúndunum og sú óvænta staða
var komin upp að Hellir hafði náð
forystu í íslandsflugsdeildinni fyrir
Ilokaumferðina.
í sjöundu og síðustu umferð tefldi
TR gegn Tafldeild Bolungarvíkur,
en Hellir gegn Taflfélagi Garðabæj-
ar. Nú var ljóst að barist yrði til síð-
asta blóðdropa og engin grið gefin,
því meistaratitillinn var í húfi. I við-
ureign Hellis og Garðbæinga gaf
Hannes Hlífar tóninn fyrir það sem
koma skyldi. Hann tefldi æsispenn-
andi skák við ástralska stórmeistar-
ann Ian Rogers (2.574). Gífurlega
flókin staða kom upp í þessari fórn-
■ arskák, sem líklega verður að teljast
athyglisverðasta skák seinni hluta
i keppninnar. Hannesi tókst að verj-
ast ágangi Ástralans og sigraði. Þeg-
ar leið á kvöldið og úrslit urðu Ijós á
öðrum borðum var greinilegt að það
stefndi í stórsigur Hellis. Svipað var
upp á teningnum hjá TR og þeir
gjörsigruðu Bolvíkinga með 7-1. Það
dugði þó ekki til því Hellir vann
Garðabæ 8-0 og tryggði sér þar með
fyrsta sæti í þessari spennandi
keppni.
Þetta er annað skiptið, og reyndar
annað árið í röð, sem Taflfélagið
Hellir hampar meistaratitlinum, sem
Taflfélag Reykjavíkur var nánast
áskrifandi að fyrstu 24 skiptin sem
keppnin fór fram. Það segir sína
sögu um yfirburði TR, að nú er Hell-
ir það félag sem hefur næstoftast
sigrað í Deildakeppninni! Sigursveit
Hellis skipuðu:
Hannes Hlífar Stefánsson, Helgi
Áss Grétarsson, Jón L. Árnason,
Helgi Ólafsson, Karl Þorsteins,
Ingvar Ásmundsson, Björn Þor-
finnsson, Davíð Kjartansson, Bragi
Halldórsson, Jóhannes Gísli Jóns-
son, Kristján Eðvarsson og Davíð
Ólafsson. Liðsstjóri var Hrannar B.
Amarsson.
Skákfélag Akureyrar lenti í þriðja
sæti í deildinni, sem félagið verð-
skuldaði fyllilega. Bolvíkingar verða
að bíta í það súra epli að falla úr ís-
landsflugsdeildinni og keppa í 2.
deild á næsta tímabili.
Þótt allra augu hafi beinst að ís-
landsflugsdeildinni, þá var ekki síður
hart barist í neðri deildunum. í ann-
arri deild fór fram mjög spennandi
keppni milli Taflfélags Kópavogs og
Taflfélags Akraness um efsta sætið.
Kópavogsbúar höfðu betur á enda-
sprettinum og urðu vinningi á undan
Ákurnesingum. Taflfélag Kópavogs
flyst því upp í íslandsflugsdeildina.
Skákfélag Grandrokk vann yfir-
burðasigur í þriðju deild, fékk 38!4
vinning af 42, og færist því upp í aðra
deild í haust. Félagið hóf þátttöku í
Deildakeppninni í fyrra og er á hrað-
ferð upp deildirnar með sterkt lið. B-
lið félagsins fylgir fast á hæla A-liðs-
ins, en það sigraði í fjórðu deild.
Skákstjórn önnuðust þeir Ólafur
Ásgrímsson, Þráinn Guðmundsson,
Jón Rögnvaldsson, Guðmundur
Sverrir Jónsson, Þorftnnur Bjöms-
son og Birgir Sigurðsson. Teflt var í
félagsheimili TR.
Jón Viktor Hraðskákmeistari
Hraðskákmót íslands fór fram í
félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur
26. mars. Tefldar vom 2x9 umferðir
með 5 mínútna umhugsunartíma.
Urslit urðu sem hér segir:
1. Jón Viktor Gunnarsson 15V4 v. 2. Helgi
Áss Grétarsson UV2 v.3.- 4. Róbert Harðar-
son, Amar E. Gunnarsson 12 v. 5.-7. Gylfi
Þórhallsson, Sigurður Daði Sigfusson, Sig-
urjón Sigurbjömsson 11 v. 8.-9. Stefán
Kristjánson,Ögmundur Kristinsson 10*/z v.
10.-12. Davíð Kjartansson, Þorsteinn Dav-
íðsson, Ámi Ármann Ámason 10 v.
Þátttakendur voru 34. Skákstjóri var Rík-
harður Sveinsson.
Ókeypis fyrirlestur Ians Rogers
Ástralski stórmeistarinn Ian Rogers
heldur fyrirlestur í boði Taflfélags Garða-
bæjar miðvikudaginn 29. mars kl. 20:30.
Fyrirlesturinn verður haldinn í Garðaskóla.
Taflfélag Garðabæjar býður alla skákmenn á
aldrinum 16-20 ára velkomna á fyrirlestur-
inn.
Shirov heldur forystunni
á Amber-mótinu
Shirov heldur enn forystunni á Amber-
skákmótinu eftir sigur á Gelfand l'/t-'A í
níundu umferð:
1. Shirov 13V4 v. 2.-3. Kramnik, Topalov
IH/2 v. 4. Anand 11 v. 5. Ivanchuk 10V4 v.
6.-7. Gelfand, Karpov 9 v.
Daði Örn Jónsson