Morgunblaðið - 31.03.2000, Síða 1
77. TBL. 88. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 31. MARS 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Erfða-
kortið
birt í júní
VÍSINDAMENN á vegum
Human Genome Projeet
(HGP) hafa tilkynnt að fyrstu
drög að korti af erfðamengi
mannsins muni verða aðgengi-
legt á Netinu í júní næstkom-
andi, samkvæmt frétt á vefsíðu
BBC. Búist er við því að vís-
indamenn HGP verði þar með
fyrri til þess að birta drög að
erfðakorti fyrir manninn en
höfuðkeppinauturinn, fyrir-
tækið Celera Genomics. Gert
er ráð fyrir að kortið muni
þekja um 90% af erfðamengi
mannsins.
Samkvæmt áætlunum verð-
ur erfðakort HGP að fullu til-
búið árið 2003 en forstjóri Cel-
era Genomics, Craig Venter,
hefur áður lýst því yfir að fyr-
irtæki hans muni verða tilbúið
með nær fullgert erfðakort
næsta sumar. Human Genome
Projeet er alþjóðlegt sam-
starfsverkefni vísindastofnana.
Eldfjailið Usu, séð frá úthverfi Date-borgar sem stendur á
norðurhluta japönsku eyjunnar Hokkaido.
Landnámi gyð-
inga mótmælt
Jerúsalem. AP, AFP.
UM tuttugu manns
særðust í átökum pal-
estínskra mótmælenda
við ísraelska hermenn á
hinum svokölluðu her-
numdu svæðum í gær.
Upphaf átakanna má
rekja til fjöldamótmæla
Palestínumanna í tilefni
af landdeginum svokall-
aða. Þá minnast Palest-
ínumenn og ísraelskir
arabar þess er ísraelsk-
ir hermenn drápu sex
araba árið 1976 þegar
hinir síðarnefndu mót-
mæltu landnámi ísra-
ela við Galíleuvatn í
norðurhluta Israels.
Alvarlegust urðu
átökin í gær við bæinn
Sakhnin, þar sem nokk-
ur hundruð ísraelskir
arabar brutu sér leið
gegnum öfluga girð-
ingu og frömdu spjöll á
ísraelskri herstöð sem
þar er í byggingu. ísra-
elsk lögregla notaði
táragas og skaut
gúmmíkúlum að mannfjöldanum til
að stöðva aðförina.
Hópur palestínskra mótmælenda
gerði einnig aðsúg að byggðum
landnemagyðinga í Elon Moreh sem
er á vesturbakka Jórdanár. Einnig
þar þurftu ísraelskir öryggisverðir
að beita táragasi og gúmmíkúlum til
að dreifa mannfjöldanum.
Telja sig drétti beitta
Palestínumenn á hemumdu
svæðunum telja að landnám gyðinga
á vesturbakkanum og Gaza-svæðinu
feli í sér stuld á landi sem með réttu
sé eign þeirra. Palestínumenn og
arabískir ríkisborgarar í ísrael hafa
á undanfömum ámm notað land-
Reuters
fsraelskir arabar kasta grjóti að lögreglu
nálægt bænum Sakhnin í ísrael í gær.
daginn til að mótmæla því sem þeir
álíta ólöglega landvinningastefnu
gyðinga.
Arabískir ríkisborgarar í Israel,
sem em um ein milljón talsins,
efndu í gær til allsherjarverkfalls til
að leggja áherslu á kröfur sínar um
jafnan rétt á við gyðinga í landinu.
Þeir telja sig lengi hafa verið mis-
rétti beitta, m.a. að því er varðar að-
gang að landi. Að undanfömu hafa
stjórnvöld í ísrael komið að nokkm
leyti til móts við arabíska minnihlut-
ann. Fyrir skömmu kvað hæstirétt-
ur Israels upp þann úrskurð, að
óheimilt væri að mismuna aröbum
við úthlutun lóða undir húsbygging-
ar.
Ottast að
Usu vakni
VÍSINDAMENN greindu í gær
spmngur á yfirborði eldfjallsins
Usu sem er á eyjunni Hokkaido í
Japan. Sprungurnar auka á ótta
manna við að eldfjallið fari senn að
gjósa en 10.000 manns hafa nú fiúið
heimili sín í grennd við Usu í kjölfar
jarðskjálfta á svæðinu. Hokkaido er
nyrst í japanska eyjaklasanum og
Usu er um 70 kílómetra suðvestur
af höfuðstað eyjarinnar, Sapporo.
Að sögn jarðskjálftafræðinga mæld-
ust rúmlega 1.000 kippir aðfaranótt
miðvikudags með upptök undir Usu.
Bandarískir ráðamenn ósammála um
mál kúbverska fldttadrengsins
Gore vill veita
Elian dvalarleyfí
Washington. Reuters, AFP.
AL GORE, varaforseti Bandaríkj-
anna og væntanlegur forsetafram-
bjóðandi Demókrataflokksins, sagð-
ist í gær vera þeirrar skoðunar að
kúbverski drengurinn Elian Gonza-
lez og fjölskylda hans á Kúbu ættu
að fá varanlegt dvalarleyfi í Banda-
ríkjunum. Yfirlýsing Gores gengur
þvert á það sem verið hefur stefna
bandarískra stjórnvalda í málinu
hingað til.
Fyrr um daginn sagði Janet Reno,
dómsmálaráðherra Bandaríkjanna,
að senda bæri Elian til föður síns á
Kúbu og krafðist þess að lögregluyf-
irvöld á Flórída aðstoðuðu banda-
ríska innflytjendaeftirlitið (INS) við
að taka hann frá ættingjum sínum í
Miami. Reno kvaðst vænta þess að
lögregluyfirvöld á Flórída yrðu við
kröfunni og málið yrði til lykta leitt í
samræmi við lög. En Jeb Bush, rík-
isstjóri Flórída, lýsti því yfir að lög-
regla ríkisins myndi ekki aðstoða
embættismenn INS við að taka
drenginn frá ættingjum sínum.
Mikil spenna var í Miami á tíma-
bili í gær vegna þeirrar hótunar INS
að ógilda tímabundna heimild
drengsins til að dvelja í Bandaríkj-
unum. Upphaflega var gert ráð fyrir
að dvalarleyfi drengsins rynni út í
gær en það var síðar framlengt um
einn dag. Eftir ítarlegar samninga-
viðræður í gær féllst INS á að leyfið
yrði framlengt til þriðjudags í næstu
viku.
Útlagarnir virði lög landsins
Hreyfing kúbverskra útlaga í
Bandaríkjunum hefur skorað á fé-
laga sína að verja heimili ættingja
drengsins í Miami til að koma í veg
AP
„Skilið aftur drengnum okkar
stendur stórum stöfum undir
mynd af Elian Gonzales á vegg-
spjaldi sem blasir við á götu í
Havana, höfuðborg Kúbu.
fyrii- að hann verði numinn á brott.
Reno sagði að kúbversku útlagamir
hefðu komið til Bandaríkjanna þar
sem þeir vildu lýðræði og réttarríki.
Hún kvaðst því búast við að þeir
virtu lög landsins.
Embættismenn bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins ræddu mál Elians
í gær við fulltrúa Kúbustjómar í
Washington. Rætt var um tillögu
Fidels Castros, leiðtoga Kúbu, um
að faðir drengsins færi til Banda-
ríkjanna og fengi forræði yfir honum
meðan bandarískur áfrýjunardóm-
stóll fjallaði um deiluna.
■ Faðír Elians/33
Róttækar breytingar á varnarmálastefnu Svía
Herstöðvum fækk-
að um helming
Stokkh<Slmi. AP, AFP.
SÆNSKA þingið, Riksdagen, sam-
þykkti í gær tillögur um róttækan
niðurskurð á útgjöldum til varnar-
mála og breytinga á herafla lands-
ins til að mæta breyttum aðstæðum
í Evrópu. Herstöðvum í landinu
verður fækkað um helming og
launuðum liðsforingjum um rúm-
lega þriðjung, úr 14.000 í 9.000. Sjö
af 13 herdeildum, en í hverri þeirra
eru um 5.000 manns, verða lagðar
niður. Af þeim sex herdeildum sem
eftir verða munu breytingar verða
gerðar á starfsháttum og skipulagi
fjögurra svo þær gæti tekið þátt í
starfsemi sameiginlegra hersveita
sem verið er að setja á stofn á veg-
um Evrópusambandsins (ESB).
10% niðurskurður útgjalda
Samkvæmt ákvörðun sænska
þingsins munu útgjöld til varnar-
mála minnka um 10% frá því sem
nú er. Alls ver sænska ríkið um 40
milljörðum sænskra króna, u.þ.b.
330 milljörðum íslenskra króna, til
varnarmála á þessu ári en mjög
hefur dregið úr útgjöldum til her-
varna í Svíþjóð síðastliðinn áratug.
Sænskar hervarnir hafa ætíð
miðast við að geta varið landið fyr-
ir árás á ófriðartímum. Eftir lok
kalda stríðsins hefur farið fram
viðamikið endurmat á varnar- og
öryggismálum í Svíþjóð og er nið-
urskurðurinn sem þingið sam-
þykkti í gær niðurstaðan af því
starfi. Niðurskurði í hefðbundnum
herafla hyggjast sænsk stjórnvöld
mæta með því að koma upp mjög
tæknivæddum og hreyfanlegum
hersveitum og með því að styrkja
flugher landsins. Aætlanir gera
m.a. ráð fyrir að hermenn verði
þjálfaðir í því að verja tölvu- og
fjarskiptabúnað í landinu fyrir árás
tölvuþrjóta og annarra spellvirkja.
Ákvörðun þingsins var samþykkt
með 180 atkvæðum gegn 125. Þing-
menn Jafnaðarmannaflokksins,
Miðjuflokksins, Vinstriflokksins og
helmingur þingmanna Umhverfis-
flokksins greiddu atkvæði með til-
lögunni. A móti voru þingmenn
Hægriflokksins, Kristilega flokks-
ins og Frjálslynda flokksins.
Reiknað er með því að hafist verði
handa um breytingarnar í júlí á
þessu ári og er búist við því að líða
muni fjögur ár áður en þær verði
að fullu komnar til framkvæmda.
MORGUNBLAÐK) 31. MARS 2000
690900 090000