Morgunblaðið - 31.03.2000, Síða 4
THÍ TIMESATLAS OPTHE WÖRLD
Kortabókin frá Times hefur alltaf verið í sér-
flokki og þessi útgáfa af Times Atlas - í tilefni
aldamótanna - er í einu orði sagt stórkostleg
bók sem vísar þér veginn um allar álfur heims.
14.495
PhiliBíi Cötlclsé
Wsrtá Attas
Erlendar bœkur
daglega
I tuumdssun
MiMunUæti 5tt 1130 * Kiiiiglulitii 5.13 1110 • Hafhstfirði 555 Ö0<ri
4 FÖSTUDAGUR 31. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ing-þór Bjarnason bíður ákvörðunar
Haraldar félaga síns um framhaldið
„Hefur allt
sem pólfari
þarf að hafa“
INGÞÓR Bjarnason dvelur nú í
Resolute og bíður átekta eftir
ákvörðun Haraldar félaga síns,
sem er að ljúka reynslu-
tíma sínum einsamall á
ísnum. Hann sagðist hafa
mikla trú á því að Har-
aldur gæti farið einn alla
leið á norðurpólinn.
„Hann er öruggur og
skynsamur, skipulagður
og sveigjanlegur; hann
hefur allt sem leiðangurs-
maður þarf að hafa. Og sem félagi
er hann alveg frábær,“ sagði Ing-
þór í samtali við Morgunblaðið í
Resolute. „Nú fer ég í að útbúa
fyrir hann birgðastöð sem á að
duga honum fram til pólsins. Það á
að vera 40 daga
matur. Síðan ákveð-
ur hann, þegar
sendingin kemur,
hvort hann nýtir sér
hana alla eða ekki.
Hann tekur til sín
það sem hann telur
sig þurfa, ásamt
öðrum búnaði sem
hann telur sig þurfa.
Prímusinn sýpur
sitt og fer ríflega
með af eldsneyti,
bæði til að halda á
sér hita og til að
þurrka fötin. En
vonandi fer það að
ganga betur þegar
sólin fer að hlýja
meira. Þá losnar
Haraldur við að
vera í plastpokanum
í svefnpokanum,
sem við höfum verið í allan tímann
og gerir það að verkum að allur
raki situr í fötunum næst manni og
fer ekki í svefnpokann. Þegar hann
losnar við plastpokann þá nær
hann að þurrka föt á sér, í svefn-
pokanum, og þar af leiðandi þarf
hann á minna eldsneyti að halda til
þurrkunar."
Ingþór þarf ekki síður að hugsa
um bata sinn eftir kalið og gildir
mestu að leyfa kalblöðrunum á
fingrunum að hjaðna í friði.
Hann fékk fyrsta kalið af snert-
ingu við ískaldar karabínur, örygg-
islása sem notaðir eru til að festa
sleðataug í dráttarbelti.
„Þegar við vorum að fara yfir
þrýstihryggina þurftum við alltaf
að smella okkur frá sleðatauginni,
fara úr vettlingnum, taka
á karabínunni og smella
henni úr króknum á belt-
inu,“ sagði Ingþór. „Af því
ég var líka með byssuna á
bakinu gekk mér svo illa
að finna hvar ég átti að
smella karabínunni í.
Fyrsta kalið kom vegna
þess að ég varð að taka af
mér vettlingana við að vinna þetta
verk. En þegar ég sá svo hvað mér
gekk illa við þetta, fór Haraldur að
smella þessu á mig. Mér líður ekki
illa í höndunum núna. Eg fór í
skoðun á heilsugæslustöðinni um
Morgunblaðið/Einar Falur
Ingþór getur unnið einföld verk
eins og raka sig þrátt fyrir kal-
blöðrurnar myndarlegu en verð-
ur að gæta þess að þær springi
ekki vegna sýkingarhættu.
leið og ég kom hingað og þar var
kunnáttulið sem skoðaði mig, lagði
mat á ástand fingranna og setti
mig á lyf. En það eru engar sýk-
ingar sjáanlegar, vessar aðeins úr
fingri sem opin blaðra er á; að öðru
leyti lítur þetta þokkalega út nema
hugsanlega gæti orðið vandamál
með fremsta hluta löngutangar."
Haraldur ákveður
framhaldið í dag
HARALDUR Örn Ólafsson norður-
pólsfari er nú staddur við 84.
breiddargráðu á leið sinni að norð-
urpólnum og er viðbúið að hann
taki ákvörðun um framhald ferðar
sinnar í dag, föstudag, eða á morg-
un. „Ég reikna með því að á morg-
un [í dag, föstud.] verði ég búinn að
mynda mér skoðun á framhaldi leið-
angursins," sagði Haraldur í sam-
tali við Morgunblaðið í gær. Hann
gekk 13,6 km á miðvikudag, sem er
allra lengsta dagleið leiðangursins
síðan hann hófst 10. mars og er því
kominn 104 km áleiðis að norður-
pólnum. Á honum er engan bilbug
að finna, enda er hann við hesta-
heilsu og í toppþjálfun. Ingþór
Bjarnason bíður átekta í Resolute
og hefur tilbúnar aukabirgðir handa
félaga sínum ákveði hann að halda
lengra áfram einn síns liðs.
Þrátt fyrir frábært gengi Har-
alds á miðvikudag var færið fremur
slæmt, ísinn úfinn og gamall. Hann
braust yfir tvo ísruðninga og krækti
fyrir þriggja metra breiða vök.
Hann telur færið þó fara skánandi.
Mikið um vakir norðan
86. breiddargráðu
Ingþór hefur fengið mikilvægar
upplýsingar um aðstæður á ísnum
sem bíða Haralds í um 200 km fjar-
lægð og mun koma þeim á framfæri
við hann. Ingþór frétti hjá Bretan-
um Ian Warwick, sem er í leiðang-
ursstjórn fjögurra manna bresks
leiðangurs, að norðan 86. breiddar-
gráðu væri mjög mikið um opnar
vakir. Áhöfn flugvélarinnar sem
sótti Ingþór út á ísinn á þriðjudag
hafði verið í birgðaflutningum úti á
ísnum áður en Ingþór var sóttur og
var Ian þá um borð og fékk yfirsýn
yfir svæðið norðan 86. breiddar-
gráðu. Bretarnir eru um 40 km á
undan Haraldi en ekki komnir á hið
varasama svæði.
Dúnúlpan full
af klaka
„Bretinn, sem er staðsettur hér í
Resolute, kom með flugvélinni, sem
sótti mig út á ísinn og aðstoðaði
okkur við að hlaða vélina,“ sagði
Ingþór í samtali við Morgunblaðið á
miðvikudagskvöld. „Hann færði
Haraldi bakpoka og kom einnig
með nýja dúnúlpu handa honum,
því dúnúlpan hans var orðin full af
ís. Bretinn sagði mér að félagar sín-
ir væru komnir 80 mílur út á ísinn
og það hefur gengið á ýmsu hjá
þeim. Einn þeirra datt í vök og
hann sagði mér að norðan 86. gráðu
væri mjög mikið opið vatn. Við von-
um að þessar vakir frjósi aftur og
það er vel líklegt að það geti gerst á
fáeinum dögum,“ sagði Ingþór.
Haraldur hringdi í bakvarða-
sveitina i hádeginu í gær og kom
víða við í skýrslu sinni, en mestan
fögnuð viðstaddra vakti þó fregnin
um árangur miðvikudagsins. í sam-
tali við blaðamann Morgunblaðsins
sagði Haraldur aðspurður að ómet-
anlegt hefði verið að fá nýja og
þurra dúnúlpu út á ísinn frá Ian
Warwick. „Ingþór sagði mér að
dúnúlpan mín hefði verið orðin að
ógurlegu flykki vegna klakans sem
safnast hafði fyrir í henni út frá
svitanum. Það er allt annað líf að
vera kominn í þurra dúnúlpu og
hún hefur í rauninni gert lífið miklu
bærilegra í öllum kuldanum hérna,“
sagði Haraldur.
Hljóðið í Haraldi er mjög gott
þessa dagana og raunar erfitt að
ímynda sér að hann hringi úr a.m.k.
40 stiga frosti, einsamall úti í ís-
auðninni. Hann veit ekki hversu
mikið frost er því hitamælarnir eru
ýmist ónýtir eða óáreiðanlegir. Til
marks um frostið á ísnum má þó
greina frá vitnisburði Ingþórs, sem
talaði við Harald eftir að hann kom
til Resolute. Þá sagði hann Haraldi
að í veðurathugunarstöðinni Eur-
eka á Ellesmere-eyju, þar sem
hann gisti aðfaranótt miðvikudags,
hefði frostið verið 40 stig og teldi
hann það frekar heitt, nýkominn af
Ljósmynd/ Ian Warwick
Kveðjustundin á ísnum reyndist Haraldi og Ingþóri erfið en báðir eru nú
orðnir sáttir við lok mála.