Morgunblaðið - 31.03.2000, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 31. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Thomas Knutzen yfírmaður upplýsingamála Norsk Hydro
Tölvumynd af 240 þúsund tonna álveri, sem hugmyndir eru uppi um að reisa í Reyðarfirði. Svona verður útsýnið fyrir þá sem koma frá Reyðarfirði á leið til Eskifjarðar.
Hagkvæmari og-
umhverfísvænni
framkvæmdir
EIGNARAÐILD Norsk Hydro að
240 þúsund tonna álveri við Reyðar-
íjörð hefur ekki verið ákveðin. For-
ráðamenn Hydro eru opnir fyrir
ýmsum útfærslum í þeim efnum, svo
lengi sem Reyðarálsverkefnið verð-
ur áfram íslenskt að stofni til og að
meirihluta í eigu íslenskra fjárfesta.
Þetta segir Thomas Rnutzen, yfir-
maður upplýsingamála hjá Norsk
Hydro, en Morgunblaðið ræddi við
hann í gær í kjölfar þeirra tíðinda að
fjárfestar í fyrirhugðu álveri við
Reyðarfjörð kanna nú hagkvæmni
þess að reisa 240 þúsund tonna álver
í fyrsta áfanga og stækka það síðan
um 120 þús. tonn.
Hingað til hefur verið stefnt að því
að reisa 120 þús. tonna álver á Reyð-
arfirði, en tvöfalt og jafnvel þrefalt
stærri álverksmiðja myndi þurfa
orku frá Kárahnúkavirkjun í stað
Fljótsdalsvirkjunar sem hingað til
hefur verið stefnt að. Gengi allt eftir
og umhverfismat virkjunar við Kára-
hnúka yrði jákvætt, yrði væntanlega
unnt að afhenda orku þaðan síðla árs
2007 eða í ársbyrjun 2008, eftir því
sem fram kom í máli forstjóra
Landsvirkjunar í Morgunblaðinu í
gær.
Eignaraðild enn
til umræðu
Knutzen segist ekki geta gefið upp
hvenær fjárfestarnir í Reyðaráls-
verkefninu fóru alvarlega að íhuga
þann möguleika sem nú er kominn
upp, en allan tímann hafi þó mátt
ljóst vera að hagkvæmni álvers ykist
í hlutfalli við aukna stærð þess.
„Enn er ekkert ákveðið í þessum
efnum og eignaraðild einstakra fjár-
festa í verkefninu er enn til umræðu
og þar erum við opnir fyrir ýmsum
möguleikum," segir Knutzen. Hann
bætir þó við: „Það verður þó alltaf
með þeim formerkjum að hér yrði að
stofni til um íslenska framkvæmd að
ræða - meirihluti hlutafjár yrði í
eigu íslenskra aðila.“
Knutzen sagði í viðtali við Morg-
unblaðið 1. febrúar sl. að hlutur
Hydro Aluminium og Hæfis í Reyð-
aráli væri jafn um þessar mundir, en
Hydro ætlaði sér ekki að eiga svo
stóran hlut þegar út í eiginlegan
rekstur væri komið, heldur fremur á
bilinu 20-25%. Um nákvæmar tölur
ætti þó eftir að semja.
Knutzen sagði að þessi ummæli
sín hafi verið rangtúlkuð af sumum.
„Að ég hafi nefnt 20% eignaraðild
nýttu sumir sér til þess að álykta
sem svo að Norsk Hydro hefði ekki
trú á verkefninu. Það er af og frá.“
Spurður um þær tafir sem Ijóst er
að verða munu á því að álver rísi og
taki til starfa, segir Knutzen að slíkt
sé í lagi verði niðurstaðan að reisa
hagkvæmara álver. „Einhverjar taf-
ir skipta þá ekki öllu. Vissulega
þyrftum við að mæta þörfum mark-
aðarins eftir öðrum leiðum á meðan,
en verðmæti slíkrar endurskipulag-
ningar getur orðið miklu meira en
hugsanlegt tap vegna tafa.“
Signr á þrennum vigstöðvum
Knutzen var í lokin spurður út í
umhverfismálin, nokkuð sem mjög
hefur verið í brennidepli vegna fyrir-
hugaðrar virkjunar í Fljótsdal, sem
og miðlunarlóns á Eyjabökkum.
„Það er augljóst að hér eru breyt-
ingar á ferðinni - eiginlega sigur á
þrennum vígstöðvum," svarar hann
og bætir við: „Hin fullkomna lausn
hlýtur að vera að endurskipulagning
verkefnisins skili okkur arðbærara
álveri, hagkvæmri orkuvinnslu og
um leið án þess að fórna þurfi of
miklu í umhverfislegu tilliti. Verðum
við virkilega heppin gæti því orðið
um sigur að ræða á þrennum víg-
stöðvum. Allir myndu fagna því, ekki
síst Norsk Hydro.“
U mh verfis vimr
segjast hafa
unnið
TALSMAÐUR Umhverfisvina, sem
stóðu fyrir undirskriftasöfnun fyrir
lögformlegu mati á umhverfisáhrif-
um Fljótsdalsvirkjunar, segir sam-
tökin fagna sigri í ljósi nýjustu tíð-
inda.
Ólafur F. Magnússon, borgarfull-
trúi og talsmaður Umhverfisvina,
segir að sín fyrstu viðbrögð við
þessum tíðindum séu fögnuður yfir
því að Eyjabökkum verði þyrmt.
„Þessari náttúruperlu verður að
öllum líkindum bjargað frá eyði-
leggingu, ekki síst fyrir baráttu
okkar á undanfömum mánuðum,“
segir hann.
Olafur þakkar málflutningi Um-
hverfisvina að mál skuli komin í
þennan farveg. „Barátta okkar hef-
ur skerpt umræðuna og skýrt,
þannig að umhverfismál og um-
hverfisvernd eru komin á nýtt stig
hérlendis. Umræða um umhverfis-
vernd á eftir að aukast enn á næstu
árum og að mínu mati er langt í frá
að Kárahnúkavirkjun nái í gegn,“
sigur
bætir hann við. Ólafur tekur þó
skýrt fram, að um Kárahnúkavirkj-
un tali hann fyrir sig persónulega,
en ekki fyrir hönd Umhverfisvina.
Tíðindin séu svo ný, að ekki hafi gef-
ist tími til að ræða málin. „Að mínu
mati felast gífurleg náttúruspjöll í
virkjun Kárahnúka og það get ekki
sætt mig við. Þess vegna leggst ég
gegn þeirri virkjun," segir hann.
Aðspurður um hvort Umhverfis-
vinir væru komnir í tilvistarkreppu,
nú þegar útlit væri fyrir að fram-
kvæmdir þyrftu allar að fara í lög-
formlegt umhverfismat, sagði Ólaf-
ur: „Þetta er góð spurning.
Staðreyndin er þó sú að sífellt koma
í ljós nýir fletir á umhverfismálun-
um. Svo stórir atburðir sem þessi
setja málin í nýtt samhengi og lík-
lega er okkur hollast að leggjast
undir feld og hugsa málið. Eitt er þó
víst; að baráttan fyrir lýðræðisleg-
um og vönduðum vinnubrögðum í
umhverfismálum mun halda
áfram.“
Formaður samtakanna Afl fyrir Austurland
Vill kanna aðra
valkosti en álver
EINAR Rafn Haraldsson, formaður
Samtakanna Afl fyrir Austurland,
sem mjög hafa barist fyrir stóriðju á
Austurlandi, segir áhuga fjárfesta á
stærra álveri góðan, en frestun sem
fylgi virkjun við Kárahnúka og
breyttum forsendum sé mjög baga-
leg. Ekki aðeins fyrir Austurland
heldur landið allt.
„Ekki er að sjá annað en ásetning-
ur sé um að framkvæma í Reyðar-
firði, þótt síðar verði, og það er auð-
vitað jákvætt," segir Einar. „Hins
vegar höfum við langa reynslu af
frestun framkvæmda hér og getum
þess vegna ekki beinlínis hrópað
húrra yfir þessum tíðindum," bætir
hann við.
Níföld reynsla af
frestun framkvæmda
Einar Rafn segir að í raun réttri
megi segja að Austfirðingar búi yfir
nífaldri reynslu af frestun lofaðra
framkvæmda. Málin séu hins vegar
þannig vaxin nú, í byggðarlegu tilliti,
að ekki sé gott að sjá hver staðan
verði eftir fimm til sjö ár, þegar
gangur gæti komist í málin að nýju.
„Meðan þetta dregst er fólk að
flytja héðan. Ég veit ekki hver stað-
an verður eftir nokkur ár. Svo kann
þá að vera komið að ekki sé lengur
vinnuafl til staðar eða samfélag til að
bræða rekstur slíks fyrirtækis inn í.“
Mjög brugðið yfir
þessari þróun mála
Einar Rafn bendir á að enn sé til
staðar heimild til að hefja byggingu
Fljótsdalsvirkjunar - imdirbúningi
sé að mestu lokið og unnt að hefja
þær framkvæmdir með skömmum
fyrirvara. „Mín persónulega skoðun
er sú að iðnaðarráðherra eigi að líta
á aðra valkosti nú; sjá hvort ekki sé
áhugi hjá fjárfestum að reisa eitt-
hvað annað en álver við Reyðarfjörð.
Ég tel sjálfsagt að kanna hvort ein-
hverjir fleiri fiskar séu í pollinum,"
segir hann.
Aðspurður um hvort þessi þróun
mála hafi komið sér á óvart, segir að
vissulega hafi svo verið. „Þótt ýmis
teikn hafi verið á lofti í nokkurn
tíma, vill maður ekki trúa vondu tíð-
indunum fyrr en þau skella beinlínis
á. Ég get alveg viðurkennt að mér er
mjög brugðið yfir þessari þróun
mála. Ég skil að stjórnvöld eru kom-
in í ákveðna klemmu í þessu máli, en
við álitum að málin væru komin í
ákveðinn farveg og að af fram-
kvæmdum við 120 þúsund tonna ál-
ver yrði.“
Einar Rafn er í lokin spurður
hvort barátta umhverfisverndar-
sinna hafi haft einhver áhrif á þróun
mála. „Það er alveg Ijóst að þeir
túlka þetta sem sinn sigur og aug-
Ijóst er að áróður þeirra í Noregi
hefur haft sín áhrif. Hins vegar þykir
mér ekki síður alvarlegt að íslenskir
fjárfestar skuli þrýsta á um þessa
breytingu nú, ekki síður en Norsk
Hydro. Það kemur manni óþægilega
fyrir sjónir,“ sagði Einar Rafn Har-
aldsson.