Morgunblaðið - 31.03.2000, Side 28

Morgunblaðið - 31.03.2000, Side 28
28 FÖSTUDAGUR 31. MARS 2000 URVERINU MORGUNBLAÐIÐ I tilefni af frumsýningu myndarinnar Deuce Bigalow 7. apríl í Sambíóunum í Reykjavík og Keflavík, ásamt Nýja Bíói, Akureyri, efnir mbl.is til skemmtilegs leiks. Smelltu þér á mbl.is og taktu þátt í leiknum og svaraðu léttum spurning- um um myndina. Heppnir þátttakendur eiga von á glæsilegum vinningum. x I- • ll JJll Ul\J Vm n rnga r: mmmnmx, • Miðar fyrir tvo á Deuce Bigalow • Thomson Lyra MP3-spilari með öllu: 64 MB minniskorti, Compact Flash-drifi, vönd- íi uótmi lieyrnartólum, gtjr- ¥ \ öllum tengingum við tölvu, hugbúnaði , og rafhlöðum. \ 'iiy Wí ■' Nánar á www.ht.is. ér Deuce Bigalow vinnur við að hreinsa fiskabúr Hann fær tímabundið starf við að vakta íbúð atvinnuglaumgosa. r k ' Hann leiðist að lokum sjálfur 1 ^ ff* út í starf glaumgosa og eignast V ! marga áhugaverða viðskiptavini. Nýr framkvæmdastjóri hjá Snæfelli á Dalvík Morgunblaðið/Friðrik Gígja Þorír Matthíasson, nýráðinn framkvæmdastjóri Snæfells hf. Þórir Matthías- son tekur við um mánaðamótin Dalvik - Magnús Gauti Gautason, framkvæmdastjóri Snæfells, sem áður hafði sagt starfi sínu lausu hjá Snæfelli hf. á Dalvík, lætur af störf- um nú um mánaðamótin og við tekur Þórir Matthíasson, framkvæmda- stjóri BGB hf. á Dalvík. Þessi tvö fyrirtæki hafa nú sameinast frá og með 1 janúar 2000 og úr þessari sameingu verður til mjög öflugt sjávarútvegsfyrirtæki með fjölþætta vinnslu. Samkvæmt milliuppgjöri Snæfells voru tekjur félagsins frá 1. sept sl. til 29 febrúar sl. 1.232 milljónir króna og hagnaður af reglulegri starfsemi 237 milljónir króna. Heildareignir félagsins í lok febrúar 3.941 milljónir en heildarskuldir 2.584 milljónir. Eigið fé er nú 1.357 milljónir króna. Framkvæmdastjóraskipti Magnús Gauti Gautason, fram- kvæmdastjóri Snæfells frá 1998,hættir störfum nú um mánaða- mótin og snýr sér að öðrum verkefn- um.Við starfi hans tekur Þórir Matt- híasson, sem er núverandi framkvæmdastjóri BGB hf., en þessi fyrirtæki sameinuðust nú fyrir skömmu. Þórir er 37 ára fæddur og uppal- inn á Dalvík. Hann fór ungur til sjós og hefur verið viðloðandi sjávarút- veginn frá blautu barnsbeini. Hann er menntaður skipstjómarmaður frá Stýrimannaskólanum í Vestmanna- eyjum, en auk skipstjómamámsins lauk hann prófi frá Tækniskóla ís- lands í útgerðartækni og iðnrekstr- arfræðum. Þórir var sölu og mark- aðstjóri Sæplasts hf. á Dalvík í sjö ár, en í byrjun ársins 1997 tók hann við framkvæmdastjóra BGB hf. á Dalvík en BGB hafði þá verið stofn- að við samrana tveggja rótgróinna fjöldskyldufyrirtækja, Blika hf. á Dalvík og G. Ben hf. á Árskógssandi. Þórir er kvæntur Dorotheu E. Jó- hannsdóttur og eiga þau 3 dætur. Snæfell hf. gerir út Björgúlf EA, Björgvin EA og Kambaröst SU og hefur yfir að ráða frystihúsi á Dalvík og Stöðvarfirði. Þá er einnig rekið saltfiskvinnsla á Dalvík og er fyrir- tækið með vinnslu á Hjalteyri, en þar er aðallega vinnsla á hertum af- urðum. Nú nýverið tók Snæfell í notkun fullkomna pökkunarstöð á Dalvík, sem áður hafði verið starf- rækt í Hrísey. BGB hf gerir út togarann Blika EA, nótaskipið Arnþór EA og neta- veiðiskipið Sæþór EA. Fyrirtækið starfrækir saltfiskverkun á Ár- skógssandi og auk þess fiskþurrkun á Dalvík. Hjá báðum þessum fyrir- tækjum vinna í dag um 350-380 manns. Aðspurður sagði Þórir að starfið legðist vel í sig. Efniviður beggja þessara íyrirtækja væri góður til að vinna úr og hann sæi í framtíðinni mjög áhugavert og öflugt sjávarút- vegsfyrirtæki. Magnús Gauti sagði margvíslegar ástæður að baki þeirri ákvörðun sinni að segja upp hjá Snæfelli en hann hefur setið í stól framkvæmdastjóra frá því í apríl 1998. Hann sagðist mjög sáttur við rekstrar- og efnahagslega stöðu fé- lagsins á þessum tímamótum. Magnús Gauti segist hafa reiknað með að það tæki um eitt og hálft ár að snúa rekstri félagsins við og gera úr því vel rekstrarhæfa einingu. Hann sagði það hafa verið mikið verk að endurskipuleggja rekstur og efnahag félagsins en eins og uppgjör síðustu 6 mánaða ber með sér er rekstur og efnahagur félagsins kom- inn í gott lag. „Ég hef því ákveðið að snúa mér að öðram verkefnum en get ekki farið nánar út í þau mál á þessari stundu,“ sagði Magnús Gauti. Afköst- • n9 * m fjor- földuð Morgunblaðið/Friðrik Gígja Unnið við uppsetningu á nýrri pökkunarlinu hjá BGB hf. BGB hf. á Dalvík tók nú nýverið í notkun nýja tölvustýrða pökkunar- línu fyrir hausaþurrkunardeild fyr- irtækisins. Hún gerir það að verk- um að afköst pökkunarinnar fjórfaldast frá því sem áður var, auk þess sem hún sparar 2-3 störf. Framleiðsla fyrirtækisins sl. ár hefur verið 18-20 þúsund pakkar af hertum þorkshausum á ári og með litlum tilkostnaði er hægt að auka framleiðsluna enn frekar. Að sögn Gests Matthíassonar, framleiðslu- stjóra BGB hf., voru á síðasta ári teknir í notkun nýir tölvustýrðir þurrkklefar sem stytta þurrktím- ann, en allir hausar eru inniþurrk- aðir eftir að hætt var að hengja hausana í hjalla eins og áður tíðk- aðist. Settur hefur verið upp ózon- búnaður til þess að eyða lykt, sem er frekar hvimleið af þessari vinnslu, og hefur það gefist mjög vel. Þetta er mjög fjárfrekur bún- aður, en samt er áætlað að þessi vinnsla verði lyktarlaus með öllu á komandi árum. Eins og áður segir fjórfaldast af- köstin í pökkun á hausum með til- komu þessarar nýju pökkunarlínu og möguleikarnir í framleiðslu fyr- irtækisins á hertum afurðum eru endalausir, enda fyrirtækið mjög vel tækjum búið og hefur í gegnum árin öðlast mikla reynslu og þekk- ingu á þessum markaði. Það vora fyrirtækin Raf hf. á Akureyri og Vélvirki ehf. á Dalvík sem sáu um smíði pökkunarlínun- ar, en hönnun var í höndum starfs- manna BGB hf. á Dalvík. BREMSANehi. Bremsuklossar, -diskar, -borðar, -skálar o.fl. Smiðjuvegi 20, grœn gata, Kópavogi, sími 567 0505

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.