Morgunblaðið - 26.04.2000, Side 6

Morgunblaðið - 26.04.2000, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ný leið á Þver- ártindsegg klifin ÞRÍR Qallgöngumenn úr Björgun- arsveit Hafnai'ljaröar, þeir Pálmi Másson, Símon Halldórsson og Orv- ar Atli Þorgeirsson, klifu áður ófama leið á Þverártindsegg, hrikalegan íjallahrygg inn af Suð- ursveit um páskahelgina. Hæsti hluti fjallsins, sem stendur í um 1554 metra hæð yfír sjávarmáli, hefur verið klifínn áður en nýjung þremenninganna fólst í því að ganga eftír rúmlega 1000 metra langri örmjórri fjallsegginni, sem liggur upp á hæsta tindinn. Gangan var ekki hættulaus enda eggin svo mjó sums staðar að ekki varð gengið ofan á henni heldur þurftí að hliðra utan í henni í snar- bröttum hlíðum. Grjóthrun hófst á einum kafla niðurferðar svo Pálmi Másson átti fótum sínum fjör að launa. Að sögn hans var ekki laust við að skelfilega berskjaldaðir fjallshryggirnir fengju hjartað stundum til að slá örar. Fjallgangan hófst á föstudaginn langa og lauk á laugardagskvöld en gist var í tjaldi á leiðinni á skriðjökli sem liggur við fjallið og nefnist Skrekkur. Lokatakmarkinu náðu þeir félag- ar eftir 5 stunda göngu og klifur frá tjaldstað. Pálmi sagði að leiðin sem þeir fóm væri algjörleg ófær í vindi, enda mættí engu muna að menn fykju út af og veltust niður snarbrattar brekkurnar án þess að geta gripið í neitt. Á niðurleiðinni gengu þeir félag- ar fram á 50 metra háan ísfoss sem þeir sigu niður í ofanvað en að öðr- um kosti hefðu þeir þurft að taka á sig stóran krók tíl að sleppa við fossinn. Litlu mátti muna að slys yrði þegar fjallgöngumennirnir síð- an lentu í gijóthmni á allra sfðasta áfanga niðurleiðarinnar. „Símon tók eftir frekar öflugu gijóthmni efst í klettunum fyrir of- an okkur Orvar,“ sagði Pálmi. „Við skimuðum aðeins eftir gijótinu og skyndilega komu hnullungar fljúg- andi, þeir stærstu á stærð við fót- bolta og féllu í kringum okkur. Ég tók til fótanna og hljóp upp í ná- læga brekku og tel að heppnin ein hafi ráðið því að við urðum ekki fyr- ir gijóti. Eftir þessi slyótu viðbrögð höfðu félagar mínir á orði að þar væri kominn fram heimsmeistarinn í 20 metra hlaupi." Símon Halldórsson, einn leiðangursmanna á Þverártindsegg. Ljósmynd/Pálmi Másson Morgunblaðið/Bryryar Gauti Útsýnið var fagurt, yfir höfuðborgarsvæðið frá skíðasvæði Fram í Bláíjöllum. Þúsundir manna í skíðalöndunum ÞÚSUNDIR nutu veðurblíðu sem víða ríkti um páska- hátíðina og brugðu sér á skíði. í skíðalöndunum í nágrenni höfuðborgarinnar var hægt að stunda skíðamennsku daglangt og þeir sem ekki vildu fara á skíði gátu sýnt listir sínar á annan hátt. Gera má ráð fyrir að skíðalöndin verði opin næstu helgi og jafnvel þar næstu ef ekki hlýnar mjög snarlega. Mánuðunnn með sólríkustu aprflmán- uðum í Reykjavík SÓLRÍKT hefur verið um sunnan- og vestanvert landið í norðanáttinni allmarga síðustu daga og segir Magnús Jónsson veðurstofustjóri að apríl verði með sólríkustu apríl- mánuðum í Reykjavík í áratugi. Ar- in 1961 til 1990 var meðalsólskins- stundafjöldi í Reykjavík 140 en sókskinsstundirnar voru í gær þeg- ar orðnar nokkuð yflr 200. Magnús Jónsson segir að sól- skinsstundamet í Reykjavík sé kringum 75 ára gamalt og hafi þær verið um 220 þá. Sé því enn hugsan- legt að það met verði jafnað í mán- uðinum þótt sunnanáttir verði ríkj- andi næstu daga. Hann segir að sólríkt hafi verið einnig víða um sunnan- og vestanvert landið. Snýst til suð- lægrar áttar í nótt átti að snúast til suðlægrar áttar og byrja að rigna vestan til á landinu og síðar á einnig á Suður- landi. Skýjað verður og súld sums staðar á Norður- og Austurlandi. Þá á einnig að hlýna nokkuð og er spáð tveggja til sex stiga hita um vestanvert landið og á Norðurlandi vestra en heldur kaldara verður norðanlands og austan. Veðurstofustjóri minnti á að þótt sól hefði víða skinið glatt undanfar- ið hefði slíkt veðurfar einkum verið hagstætt til útivistar og ferðalaga. Gróðri hefði lítið farið fram og hann jafnvel átt í vök að verjast á þeim svæðum. Frost hefði ríkt mestan hluta sólarhringsins og því verið óvenjukalt og lítill raki í lofti, nánast svipað og á eyðimerkur- svæðum. ----------------- Sólbaðs- veður í Bláa lóninu Grindavík. Morgunblðaið. Mikill fjöldi lagði leið sína í Bláa lónið yfir páskadagana. Að sögn starfsmanna komu yfir 10.200 manns frá fimmtudegi til mánu- dags og enn var fólk að streyma í Bláa lónið þegar blaðamaður var þar á ferð síðdegis annan í páskum. Veðrið var kjörið tíl að bregða sér í Lónið enda skjól að fá í öllum átt- um. Sálmalög á saxófón og orgel Sigurður Flosason og Gunnar Gunnarsson fluttu lögin áður á annáluðum tónleikum: „Tónleikarnir heilluðu áhorfendur gersamlega." Silja Aðalsteinsdóttir, DV „Margir tónleikagesta voru greinilega mjög hrærðir og höfðu orðið fyrir mikilli uppLifun sem þeir létu óspart í Ijósi að tónleikunum loknum." Lana Kolbrún Eddudöttir, Rás 1 Laugavegl 18 • Sími S15 2500 • Sfðumúla 7 • Sími 510 2500 Gestir í Bláa lóninu nutu veðurblíðunnar. Ljóamynd/Garðar P Vignisson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.