Morgunblaðið - 26.04.2000, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 26.04.2000, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR _ Bónus með lægsta veröiö " Verð í Bónus hefur lækleað um 3,4% frá því að síðasta verðkönnun var Davíð verður að fínna annan sökudólg, þetta svúivirkar ekki á kauða. Romance sófi með mynsturofnu áklæði í beinhvítu. 3ja sæta sófi. L230 sm kr. 53.920,-. 2ja sæta sófi L193 sm, kr. 43.810,-. Felix sófi klæddur míkróvelúráklæði, sessur bólstraðar með kaldsteyptum svampi. Fæst í fleiri litum. 3ja sæta sófi. L214 sm kr. 68.830,-. 21/2 sætis sófi L182 sm, kr. 62.370,-. Amsterdam sófasett 3+2i/2 3ja B240. 2ja B206 H84 D87 sm. Fæst í fleiri litum. Settið kr. 110.290,-. Malaga sófi klæddur chenille-áklæði, fæst í fleiri titum. 3ja sæta sófi. L196 sm kr. 49.890,-. £ HÚSGAGNAHÖLUN BHdshöfða, 110 Reykjavik sími 510 8000 www.Husgagnahollin.is Forvarnaverkefnið Loftskipið Fundaherferð um landið Loftskipið er nafn á forvamaverkefni sem Ungmennafé- lag Islands og áætlunin Island án eiturlyfja hafa komið á laggirnar og er að halda fundi víða um land um þessar mundir. Næsti fundur er í kvöld á Vestfjörðum, nánar til tekið í Bolungarvík. Mar- ía Stefánsdóttir er verk- efnisstjóri fyrir Loftskip- ið. „Markmið þessa verk- efnis er í fyrsta lagi að miðla og safna upplýsing- um um vímuvarnir um allt land, í öðru lagi að stuðla að aukinni sam- veru barna og foreldra, í þriðja lagi viljum við koma sjónarmiðum ungs fólks hvað varðar vímuvarnir á framfæri.“ - Hvernig ætlið þið að ná þessum markmiðum? „Hvað varðar fyrsta atriðið, að safna og miðla upplýsingum, þá erum við núna með mikla fundaherferð um allt land meira og minna. Við höfum þegar haldið fundi í Borgarbyggð, á Blönduósi, á Akureyri, á Húsa- vík, á Egilsstöðum, Höfn og Hvolsvelli.“ -Hvað hefur komið fram á þessum fundum? „Á hverjum stað fyrir sig fá- um við alltaf einhvern sem vinn- ur að vímuvörnum í byggðarlag- inu til að segja frá hvað er verið að gera á viðkomandi stað. Þannig söfnum við að okkur ákveðnum upplýsingum sem við reynum síðan að miðla áfram. Einnig fáum við oft með okkur fólk úr öðrum byggðarlögum til þess að tala um ástand mála í sinni heimabyggð. Á Hvolsvelli talaði til dæmis Indriði Jósa- fatsson æskulýðsfulltrúi úr Borgarbyggð. Einnig eru með okkur í för á þessum fundum fulltrúar Marita-hjálparstarfs, þeir Jón Indriði Þórhallsson og Arnar Már Másson, þeir vekja fólk til umhugsunar um mark- aðssetningu á eiturlyfjum. Fyr- irlestur þeirra heitir: Er til markaðssetning á eiturlyfjum? Hjá þeim kemur fram að hún er til á mörgum sviðum, t.d. í gegnum Internetið, tónlist og klæðnað. Einnig hafa verið kynntar niðurstöður könnunar á vímuefnaneyslu nemenda í efstu bekkjum grunnskólans, sem framkvæmd var á vegum fyrir- tækisins: Rannsókn og grein- ing.“ - Hvað með aukna samveru barna og foreldra - hafið þið markað ykkur stefnu í þeim málaflokld nú þegar? „Við ætlum að fara í gang með átaksverkefni í því máli í sumarbyrjun. Við hugsum okk- ur ýmsar leiðir til að stuðla að aukinni samveru foreldra og barna en of snemmt er að upp- lýsa hér hverjar þær eru. Ég get þó sagt að þetta verður byggt á sömu hugmynd og lýðveldishlaupið 1994, þar sem fólk hljóp ákveðna vegalengd og skáði í bækur, nú mun fólk ekki þurfa að hlaupa heldur einfaldlega gera eitthvað skemmtilegt með fjölskyldunni og skrá það niður. Veitt verða vegleg verðlaun fyr- ir mestar samvistir og einnig ætlum við að safna saman frum- legum hugmyndum þátttakenda um hvað hægt er að gera.“ María Stefánsdóttir ► Maria Stefánsdóttir fæddist í Reykjavík 3. ágúst 1970. Hún lauk stúdentsprófi frá Verslun- arskóla íslands 1990, BA-prófí í sijómmálafræði frá Háskóla Is- lands 1995 og masters-prófi í al- þjóðastjórnmálum frá Kaup- mannahafnarháskóla í desember 1999. María hefur starfað sem verkefnisstjóri forvarnaverkefn- isins Loftskipið sem er á vegum Ungmennafélags íslands og áætlunarinnar Islands án eitur- lyfja. María á eina sjö ára dóttur. - Hvað með þriðja atriðið - að fá fram sjónarmið unga fólks- ins? „Hvað snertir þriðja atriðið; að koma sjónarmiðum ungs fólks á framfæri, þá er um það að segja að við ætlum að halda ungmennaráðstefnu í Reykjavík í haust og í undirbúningsnefnd mun starfa ungt fólk sem mun skipuleggja ráðstefnuna og ann- ast framkvæmdir. Mælendaskrá hefur ákveðið aldurshámark, allir mega koma og hlusta, en einungis ungt fólk fær að tala.“ - Hvert verður umfjöllunar- efni þessarar ráðstefnu nánar til tekið? „Umræðuefnið verður; Hvað tel ég að hafi haldið mér frá óreglusömu lífi og hvað tel ég að séu árangursríkar vímuvarnir." - Ert þú persónulega með hugmyndir um hvað séu árang- ursríkar vímuvarnir? „Það sem hefur komið fram á hverjum einasta fundi sem við höfum haldið er að gott sam- band foreldra og barna er tví- mælalaust það sem mest áhrif hefur í átt til vímuvarna. Ekki aðeins kemur þetta fram í máli fólks heldur staðfesta rannsókn- ir þetta, einnig hefur komið fram að öflugt íþrótta- og tómstundastarf hefur mikið gildi..“ - Hvaða fólk sækir helst fundi hjá ykkur? „Það er mjög breiður hópur - unglingar, foreldrar, kennarar, ________ þeir sem starfa með ungu fólki í félags- og íþróttastarfi. Einnig hafa komið fulltrúar frá fíkniefnalögreglu. Þá má nefna að prest- ar hafa mætt, bæjar- stjórinn á Ákureyri koma á fundinn sem haldinn var þar, og loks hefur einn þingmaður mætt, það var ísólfur Gylfi Pálmason sem kom á fundinn á Hvolsvelli. Ég hvet fólk á öllum aldri til að mæta á þá fundi sem við eigum eftir að halda - þetta málefni skiptir okkur öll miklu.“ Gott samband foreldra og barna er besta forvöm gegn vímu- efnum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.